Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 22
daglegt líf 22 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ B yrjunina má rekja til 23. nóvember 1996, þá komum við fyrst fram,“ segir barnalæknirinn Viðar Eðvarðsson sem er ásamt nokkrum félögum í hljóm- sveitinni Bambínós, sem er verulega viðeigandi nafn, ef litið er til starfs Viðars. Meðlimirnir í sveitinni koma þó úr fleiri stéttum þjóðfélagsins þó að barnalæknarnir séu tveir. „Það var í fimmtugsafmæli Gests Páls- sonar barnalæknis,“ heldur nú Við- ar áfram sögunni. „Gestur hafði komið að máli við Þórólf Guðnason [barnalækni] og spurt hvort ekki væri möguleiki að stofna blúsband fyrir afmælið sitt. Þá gerist það að Þórólfur biður Ársæl Másson [stærðfræðikennara í Kvennaskól- anum] og mig að spila með sér við þetta tækifæri. Þá voru komnir þarna tveir gítarar og saxófónn. Þórólfur hringdi síðan í Gest og spurði hvort ekki væri í lagi að spil- aður yrði djass í stað blús og Gestur hélt það nú.“ Úr varð að þeir fé- lagar mættu í afmælið og spiluðu fimm lög, voru þá búnir að æfa í tvær vikur saman. „Allir höfðu þó komið eitthvað nálægt tónlist áður,“ segir Viðar þó að sameiginlegur æf- ingatími hafi verið stuttur. Kraftur fyrir Léttsveitina Hafsteinn Guðfinnsson [sjávarlíf- fræðingur] gekk til liðs við bandið haustið 2000. „Á þessum árum var þetta meira þannig að liðinu var hó- að saman þegar tilefni gáfust,“ segir hann. „Um veturinn 2000–2001 vor- um við svona að gutla við þetta, en seinnipart árs 2001 tókum við þetta föstum tökum, fórum að æfa einu sinni í viku, nánast allt árið.“ Viðar og Þórólfur sjá um sönginn að mestu og … „ég gaula svona með,“ segir Hafsteinn og Viðar grípur orðið hlæjandi: „Það heitir að syngja bakraddir. Hann gerir það vel, enda vanur maður.“ Hafsteinn hafði líka komið eitthvað nálægt því að útsetja og slíkt. „Og það setti svona meira form t.d. í sönginn hjá okkur. Allt í einu voru gerðar meiri kröfur í hljómsveitinni,“ segir Við- ar. Í framhaldi af komu Hafsteins í sveitina fóru félagarnir að koma meira fram. „Já, þetta svona vatt upp á sig,“ segir Hafsteinn. „Samt spiluðum við mest í afmælum og á árshátíðum kannski aðeins, vorum sko ekkert að spila á dansleikjum, höfum lítið gert af því í rauninni.“ Fyrsta árshátíðin sem Bambínós var fengin til að spila á fyrir dansi var hjá kvennakórnum Léttsveit- inni. „Þá settum við rosa kraft í þetta og æfðum upp 40–50 lög,“ segir Hafsteinn. „Þá vorum við ekki með dansprógramm,“ segir Viðar. „Þetta setti þess vegna þrýstinginn á okkur að bæta við prógrammið,“ bætir hann við og heldur svo áfram. „Árið 2004 ákváðum við að halda fyrsta árlega stórdansleik hljóm- sveitarinnar,“ segir hann og þessi orð vekja hlátur Hafsteins. „Það þýddi ekkert annað en að setja markið hátt en þessi böll fara þann- ig fram að á þau koma eingöngu boðsgestir, þ.e. við bjóðum vinum og vandamönnum,“ segir Viðar. „Það hefur verið ótrúlega góð mæt- ing,“ segir nú Hafsteinn, „250–270 manns í þessi þrjú skipti sem við höfum haldið ballið,“ bætir hann við. „Tilgangurinn í upphafi var og er enn að gera eina góða skemmtun fyrir okkur og vini okkar, með sem minnstum kostnaði … og það bara lukkaðist svona líka vel,“ segir hann og dregur seiminn. „Þá vorum við reyndar trommuleikaralausir,“ seg- ir Viðar, „fyrsta árið. Þegar annar árlegi stórdansleikurinn var svo haldinn fengum við Odd Sig- urbjörnsson [rafvirkja] til liðs við okkur og hann hefur verið viðloð- andi starfið síðan.“ Áður en Haf- steinn gekk til liðs við sveitina hafði Kristín Leifsdóttir [barnalæknir] sungið með henni og Leifur Geir Hafsteinsson [vinnusálfræðingur] leikið á bassa en þau urðu að hætta í sveitinni þegar þau héldu utan til framhaldsnáms. Pípan þekkta Þegar Bambínós koma fram spila þeir bæði tökulög og frumsamið efni. „Ég slysaðist á að semja eitt lag,“ segir Hafsteinn um frum- samda efnið, „og við erum með það á okkar dansprógrammi. Svo hefur Viðar líka verið að semja,“ segir Hafsteinn og bandar hendinni í átt að Viðari. Nefnt lag Hafsteins má telja að langflestir landsmenn þekki, það heitir Ástarljóð en geng- ur undir nafninu Pípan og Viðar hefur upp raust sína: „Ég sá hana fyrst á æskuárum …“.“ Hljóm- sveitin Sjöund frá Vestmannaeyjum gaf lagið út á sínum tíma við miklar vinsældir. Viðar segist svo hafa sett saman tvö lög nú í haust sem menn útsetja í sameiningu og allir hafa til- lögurétt. „Þar af leiðandi aðlagast hljómsveitin vel tónlistinni,“ segir hann. „Ársæll hjálpaði mér að hljómsetja, hann er mjög útsjón- arsamur músíkant. Oddur hefur líka verið í annarri hljómsveit og á sæg af lögum. Við höfum líka tekið ein- hver af hans lögum og útsett þau í djassstíl.“ Félagarnir í Bambínós hafa allir einhvern tónlistarlegan bakgrunn. „Ársæll fór í gegnum gítarnám í FÍH og er slyngastur okkar,“ segir Hafsteinn og Viðar bætir við að hann hafi trúlega mesta innsæið í sambandi við djassútsetningar. Oddur lærði upphaflega trommuleik hjá Reyni Sigurðssyni og seinna var hann einn vetur í FÍH-skólanum. Góður félagsskapur í saumaklúbbnum Markmið sitt með spilamennsk- unni segja þeir vera langt frá því að slá í gegn. „Við erum eiginlega skít- hræddir við það,“ segir Hafsteinn og hlær, þeir vilji bara skemmta sér með þessu, fyrst og fremst, þó að skemmtilegt geti verið að koma fram líka. „Það má eiginlega segja að þetta sé okkar saumaklúbbur, en fyrst og fremst er þetta bara góður félagsskapur.“ Að lokum segir Viðar söguna af nafninu Bambínós. „Gestur Pálsson nánast skírði hljómsveitina. Þegar hann var unglingur spilaði hann með hljómsveit á Akureyri sem hét Bambino. Og hann bara gaf okkur nafnið. Við höfðum eiginlega ekkert val. Þetta var komið á okkur strax í upphafi.“ sia@mbl.is Skíthræddir við að slá í gegn Morgunblaðið/Eggert Gasalegt stuð Ólafur Skúli Indriðason nýrnalæknir og Helga Ágústsdóttir, doktor í tannlækningum, kunna réttu sporin og beita þeim svikalaust á dansgólfinu á árlegum stórdansleik Bambínós. Morgunblaðið/Eggert Eintóm gleði Sjúkraþjálfararnir í Taumlausum teygjum voru með atriði á hinum árlega stórdansleik Bambínós nú í haust. En með því voru þær að endurgjalda spilamennsku félaganna. Morgunblaðið/Eggert Bambínós Hafsteinn Guðfinnsson, líffræðingur á Hafrannsóknastofn- uninni, Ársæll Másson, stærðfræðikennari við Kvennaskólann, Viðar Eð- varðsson barnalæknir og Þórólfur Guðnason barnalæknir. Sitjandi er trommarinn Oddur Sigurbjörnsson rafvirki. Nafnið var komið á þá strax í upphafi og verður nafngiftin að teljast sérlega viðeigandi í ljósi þess að tveir hljómsveitarmeðlimanna eru barnalæknar. Sigrún Ásmundar setti á sig dansskóna og ræddi við liðsmenn hljómsveitarinnar Bambínós. » Þessi böll fara þannig fram að á þau koma eingöngu boðsgestir, þ.e. við bjóðum vinum og vandamönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.