Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.12.2006, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FLAGS OF OUR FATHERS kl. 3 - 4:30 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2:30 - 4:45 LEYFÐ HAPPY FEET m/ensku tali kl. 2:30 - 4:45 - 9 LEYFÐ DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára NATIVITY STORY kl. 5:50 B.i. 7 ára SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 LEYFÐ BOSS OF IT ALL kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2:30 LEYFÐ HAGATORGI • SÍMI 530 1919 • WWW.HASKOLABIO.IS / AKUREYRI FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ HAPPY FEET m/ensku tali kl. 4 - 8:30 LEYFÐ DÉJÁ VU kl. 10:30 B.I. 12 ára SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ / KEFLAVÍK FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára ERAGON kl. 3 - 5:30 - 8 B.I. 12 ára FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3 - 5:30 LEYFÐ DÉJÁ VU kl. 10:10 B.I. 12 ára Óskum landsmönnum SANNKALLAÐ MEISTARAVERK SEM KVIKMYNDAÐ VAR AÐ MESTUM HLUTA Á ÍSLANDI CLINT EASTWOOD HLAUT TILNEFNINGU TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA FYRIR BESTU LEIKSTJÓRN FÁNI FEÐRANNA ENDURUPPLIFUNIN DENZEL WASHINGTON VAL eee S.V. MBL. FRAMLEIDD AF STEVEN SPIELBERG EFTIR ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANN CLINT EASTWOOD HINIR FRÁFÖLLNU ÞRJÁR Á TOPPNUM Netið áður en þú færð þér kaffi. x x x Víkverji hefur tekiðeftir því að jóla- skapið hefur tekið völdin í desember og nær meira að segja inn í umferðina. Um dag- inn smeygði Víkverji sér inn í umferðina úr bílastæði. Glufa hafði myndast milli bíla, sem óku löturhægt í röð og virtist tilvalið að sæta lagi. Víkverji hafði ekki fyrr ekið af stað en fyr- ir aftan hann var lagst á flautuna af öllum lífs og sál- arkröftum. Víkverji hugsaði með sér að þetta væri sennilega of- urskiljanlegt: maðurinn hefði nátt- úrlega getað verið fjórum metrum framar í umferðinni ef Víkverji hefði ekki troðið sér fram fyrir hann. En svo rann upp fyrir Vík- verja ljós: Bílstjórinn fyrir aftan væri líklega alls ekki að sýna reiði sína, heldur þvert á móti að senda kumpánlega jólakveðju með því að blása í bíllúðurinn. Skömmu síðar tók bílstjórinn fram úr á harðakani. Víkverji vinkaði til hans með bros á vör en sá ekki hvort kveðjan var endurgoldin. Listar af ýmsu tagieru mjög vinsælt efni í póstsendingum á Netinu. Fyrir jólin barst Víkverja ein slík- ur listi með vísbend- ingum um það hvernig ráða mætti að hann væri uppi árið 2006:  Þú slærð lykilorðið þitt óvart inn í ör- bylgjuofninn.  Þú hefur ekki lagt kapal með venjulegum spilum í áraraðir.  Þú ert með 15 síma- númera lista til að ná í fjölskyldu þína, sem er aðeins þriggja manna.  Þú sendir tölvupóst til mannsins við hliðina á þér.  Þú missir sambandið við vini og vandamenn vegna þess að þú ert ekki með netfangið þeirra.  Þegar þú ekur upp að húsinu þínu notar þú farsímann til að hringja og spyrja hvort einhver geti komið út að hjálpa þér að bera inn innkaupapokana.  Þú færð kvíðakast þegar þú ferð að heiman og gleymir farsímanum þínum (sem reyndar var ekki til fyrstu 20 til 30 ár ævi þinnar ef ekki 60 ár) og snýrð við til að sækja hann.  Þú vaknar á morgnana og ferð á         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins: Daníel tók til máls og sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.) Í dag er miðvikudagur 27. desember, 361. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Feigðarakstur FÓLKI þykir orðið nóg um mann- fórnir ungs fólks í umferðinni. Ástæður slysa eru margbreyti- legar og sumu hefði eflaust aldrei verið forðað né ber vott kæruleysis. Aldursbil þeirra sem látast í slysum þessi misserin virðist samt sláandi líkt. Af því má álykta að áróður gegn slysum, glannaakstri og óvarkárni skilar sér engan veginn til ákveðins aldurshóps. Nú hljóta þeir sem stýra fræðslu og áróðri í umferðinni að ástunda óvægna sjálfsritskoðun og end- urmeta sín vinnuferli. Þetta virkar bara ekki. Alveg eins og þetta lesendabréf virkar eflaust ekki. Hvers vegna er það? Vegna þess að áhættuhópurinn, ungt fólk, nýlega komið með bílpróf, les eflaust í litlum mæli greinarkorn á þessum stað í Morgunblaðinu og á þessu formi. Fyrirbærið umferðarstofa er í al- veg sömu stöðu. Virkar þokkalega í reglulegum skilaboðaskjóðum send- um til ákveðins aldurshóps. Sennilega best til hópsins sem hlustar reglulega á Bylgjuna og Rás 2. En ekki meir. Hvenær ætlar fólk að átta sig al- mennilega á sívaxandi hólfaskiptingu aldurshópa þessa ágæta þjóðfélags? Ein rás. Ein skilaboð. Liðin tíð. Gleymið slíku. Ég heyri stöku sinnum í þeim fm-rásum sem börnin mín hlusta á. Aldrei hef ég heyrt óðamála útvarpsmenn að kynna taktfast hrað- rokk með dúndrandi bassahljóm segja frá hálku, slæmri spá eða um- ferðarhnút. Þætti líklega ferlega hall- ærislegt og gamaldags. Það rifjast upp í huganum bílaröðin á leið á Þingvöll 1994. Með börnunum hlustuðum við á útvarp umferðarráðs sem þá hét, að koma reglulega með skilaboð. Allt í sómanum. Þótt allt væri í hnút. Þangað til glöggur frétta- maður útvarpsins þástarfandi kveikti á perunni. Þetta var ekki í lagi og allir muna hvers vegna. Sama er nú. Ein- hver utan við sviðið þarf að banka upp á og segja: Þetta virkar ekki. Tölvukynslóðin er komin með bíl- próf. Hún er reyndar búin að keyra bíl í fullkomnum tölvuhermi inni á einkaheimilum síðan hún var segjum átta ára. Hefur náð tökum á stýringu og inngjöfum. Ákveðinn hópur af þessari kynslóð virðist halda áfram með það sem frá var horfið í tölvunni. Á sama hraða. Út á íslenska vegi. Sú æfing sem þar fékkst dugir ekki á ís- lenskum einbreiðum vegum í sí- breytilegum veðrum. Með lifandi fólk, hold og rennandi blóð bak við stálrammann. Síseljandi eyðslu-, ímyndar- og áróðursfræðingar í neyslusamfélagi: Seljið áróðursmönnum fyrir bættu umferðarsiðferði leiðina til áhættu- hópsins. Skilaboðin berast ekki. Valdimar Guðjónsson, Gaulverjabæ. Pelskápu saknað Pelskápa var tekin í misgripum í Ing- ólfsskála austan Hveragerðis laugar- daginn 16. desember eftir jólahlað- borð Suðurverks. Vinsamlega skilið kápunni á sama stað þar sem önnur er í óskilum eða hringið í síma 892 5909. Kápunnar er sárt saknað. Myndavél týndist við Grens- áskirkju Myndavél Pentax týndist líklega á bílaplani við Grensáskirkju fyrst í desember. Skilvís finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 553 4145. árnað heilla ritstjorn@mbl.is 50 ára af-mæli. Í gær, 26. desem- ber, varð fimm- tugur Einar Haraldsson. Í tilefni af þessu taka Einar og kona hans, Jó- hanna, á móti gestum 29. des- ember í sal Oddfellow, Grófinni 6, frá kl. 20–23. Brúðkaup | Gefin voru saman í hjóna- band 16. desember sl. á Borg á Mýrum af séra Þorbirni Hlyni Árnasyni þau Sonja Lind Eyglóardóttir og Pavle Estrajher. Heimili þeirra er á Dalvík. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569-1100 eða sent á net- fangið ritstjorn@mbl.is. Hægt er að senda tilkynningar í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Árnað heilla ásamt frekari upplýsingum. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.