Morgunblaðið - 28.12.2006, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SIGRÚN Magna Þórsteinsdóttir hlaut í gær ár-
legan styrk sem veittur er úr Minningarsjóði
Karls J. Sighvatssonar tónlistarmanns. Þetta er í
15. skipti sem veitt er úr sjóðnum en hann var
stofnaður árið 1991 skömmu eftir að Karl lést í
bílslysi við Hellisheiði. Bróðir hans, Sigurjón
Sighvatsson, afhenti Sigrúnu styrkinn ásamt
Hauki Guðlaugssyni, formanni úthlutunarnefnd-
ar sjóðsins. Sigrún Magna er Þingeyingur, stúd-
ent frá MA, og stundaði nám við Tónlistarskól-
ann á Akureyri og síðar hjá Herði Áskelssyni í
Tónskóla þjóðkirkjunnar. Hún hefur starfað sem
organisti í Breiðholtskirkju og Bessastaðakirkju
og stundar nú nám við Konunglega tónlistar-
skólann í Kaupmannahöfn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fékk styrk úr Minningarsjóði Karls
ALCAN hefur
sent öllum hafn-
firskum heim-
ilum disk með
upptöku af tón-
leikum Björgvins
Halldórssonar og
Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í
haust. Með disk-
inum fylgir bréf
þar sem fram
kemur að fyrirtækið hyggist á
næstu mánuðum kynna starfsemi
sína með margvíslegum hætti fyrir
bæjarbúum. „Við gerum okkur
grein fyrir því að í aðdraganda
kosninganna munu ólík sjónarmið
takast á og látum í ljósi von um að
þau skoðanaskipti verði málefnaleg
og heilbrigður grunnur að vel
ígrundaðri afstöðu bæjarbúa,“ seg-
ir í bréfinu.
Á heimasíðu samtakanna Sól í
Straumi, sem eru þverpólitísk sam-
tök gegn stækkun álversins, segir
að erfitt sé að sjá hvaða mál-
efnalega innlegg þessi diskur eigi
að vera.
Þegar Morgunblaðið innti Lúðvík
Geirsson bæjarstjóra eftir við-
brögðum við gjöf fyrirtækisins
sagði hann að Alcan væri aðili máls-
ins og það væri þess að ákveða
hvernig kynningarmálum yrði hag-
að. Mikilvægast væri að öll sjón-
armið í málinu kæmu fram þannig
að íbúar Hafnarfjarðar gætu tekið
upplýsta ákvörðun þegar þar að
kæmi.
Aðspurður hvort hann óttaðist að
aðstöðumunur milli Alcan og þeirra
sem berðust gegn stækkuninni
kynni að hafa áhrif á umræðuna
sagðist Lúðvík ekki hafa trú á því
að það hefði áhrif að sendir væru út
geisladiskar eða annað slíkt. „Ég
treysti íbúum bæjarins fyllilega til
að taka ákvörðun sína á yfirveg-
aðan hátt.“
Alcan gefur
íbúum
geisladisk
Björgvin
Halldórsson
Bæjarstjóri segist
treysta íbúum
„VEL gengur að undirbúa við-
bragðsáætlunina,“ segir Þorgeir
Pálsson, flugmálastjóri og verðandi
forstjóri Flugstoða ohf. „Þetta býð-
ur auðvitað ekki upp á sama sveigj-
anleika og það þjónustustig sem við
höfum lagt áherslu á að halda uppi
hér,“ segir Þorgeir en tekur fram
að reynt verði að hækka þjónustu-
stigið eins hratt aftur og hægt er á
nýju ári.
Meðal þeirra breytinga sem gerð-
ar verða nú um áramót er að hætt
verður með flugumferðarstjórn í
flugturninum á Akureyrarflugvelli
en í staðinn kemur flugupplýsinga-
þjónusta með sama hætti og verið
hefur um langt árabil bæði á Egils-
stöðum og Ísafirði.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
undanförnu að verið sé að þjálfa
upp flugumferðarstjóra til starfa
hjá Flugstoðum. Að sögn Þorgeirs
er um að ræða menntaða og reynda
flugumferðarstjóra sem ekki eru
með virk réttindi í augnablikinu
sökum þess að þeir hafi ekki starfað
við stjórn flugumferðar í einhvern
tíma, þar sem þeir hafi ýmist verið í
stjórnunarstöðum eða þróunarverk-
efnum á sviði flugumferðarmála.
Búast má við verulegri
skerðingu á þjónustunni
Í samtali við Morgunblaðið gagn-
rýndi Loftur Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra flugumferðarstjóra
(FÍF), fréttaflutning af málefnum
flugumferðarstjórnar að undan-
förnu. Segir hann athyglisvert að
flugmálastjóri hafi kosið að gera
viðbragðsáætlunina sína ekki opin-
bera hérlendis en skuli á sama tíma
gefa í skyn að Alþjóðaflugmála-
stofnun hafi samþykkt hana. „Eftir
því sem ég best veit þá leggur Al-
þjóðaflugmálastofnun ekki blessun
sína yfir slíkar áætlanir,“ segir
Loftur og bendir á að þó stofnunin
geri engar athugasemdir við áætlun
þá beri hún ekki ábyrgð á henni
heldur íslenska ríkið.
„Ef viðbragðsáætlunin er á þeim
nótum sem kynnt var í Noregi ný-
verið þá er ljóst að veruleg skerðing
mun verða á flugumferðarstjórn-
inni,“ segir Loftur og telur ljóst að
flugfarþegar sem og flugfélög muni
með áþreifanlegum hætti verða vör
við það í formi seinkana á flugi
þrátt fyrir yfirlýsingar flugmála-
stjóra um annað. Bendir hann á að
haldist það breytta þjónustustig,
sem kynnt hefur verið að taki gildi
um næstu áramót, út árið 2007, þá
megi gera ráð fyrir að það þýði
aukakostnað fyrir flugfélögin upp á
a.m.k. 5 milljarða króna á ársgrund-
velli. Bendir Loftur á að fjöldi
þeirra flugvéla sem koma megi inn
á íslenska flugumferðarstjórnar-
svæðið haldist í beinu hlutfalli við
fjölda flugumferðarstjóra á vakt.
Áætlunin á ábyrgð
íslenska ríkisins
Breytt þjónustustig getur þýtt milljarðakostnað fyrir flugfélögin
Þorgeir Pálsson Loftur Jóhannsson
ALLIR starfsmenn Norðuráls,
sem eru um 400 talsins, munu eftir
áramótin gangast undir lyfjapróf
og hefur fyrirtækið jafnframt
ákveðið að framvegis verði slík
próf framkvæmd reglulega og
verði tilviljun látin ráða því hvaða
starfsmenn gangast undir prófið
hverju sinni. Þetta segir Ragnar
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar og fjármálasviðs,
hjá Norðuráli. Ragnar segir að á
kynningarfundi um málið í fyr-
irtækinu hafi sú hugmynd komið
fram hjá hópi starfsmanna að allir
yrðu settir í lyfjapróf. „Það var
ákveðið af hálfu fyrirtækisins að
verða við þeirri ósk,“ segir Ragnar.
Í framhaldinu hafi verið rætt við
fleiri starfsmenn og virðist almenn
ánægja vera meðal þeirra með
prófin.
Í lögum um persónuvernd er
ekkert sem bannar að fyrirtæki
láti framkvæma lyfjapróf á starfs-
fólki sínu en þar eru gerðar kröfur
um að málefnalegur tilgangur búi
að baki söfnun viðkvæmra per-
sónuupplýsinga.
Ragnar segir að hingað til hafi
enginn starfsmaður Norðuráls ver-
ið staðinn að neyslu ólöglegra lyfja
við störf sín hjá fyrirtækinu.
Hins vegar sé ljóst að neyti fólk
slíkra efna sé það bæði hættulegt
sjálfu sér og öðrum. Hjá Norðuráli
sé starfsfólk oft að meðhöndla heit-
an málm og stór tæki og fari eitt-
hvað úrskeiðis liggi mikið við.
Munnvatnssýni tekin
„Þetta er liður í því að skapa
mönnum eins gott starfsöryggi
eins og hægt er,“ segir Ragnar um
hin fyrirhuguðu lyfjapróf.
Ragnar segir að vegna prófanna
hafi Norðurál fengið til liðs við sig
fyrirtækið InPro, en það starfar
meðal annars á sviði heilsu- og
vinnuverndar. Prófin verði fram-
kvæmd þannig að munnvatnssýni
starfsmanna verði rannsökuð.
Allir starfsmenn Norðuráls í lyfjapróf
Morgunblaðið/Ómar
JÓN Bjarnason, fulltrúi VG í sam-
göngunefnd Alþingis, óskaði í gær
eftir því að boðað yrði til fundar í
nefndinni vegna þeirrar alvarlegu
stöðu sem hann segir að upp komi í
flugleiðsögn og flugumferðarstjórn
í landinu um næstu áramót.
Hjá Guðmundi Hallvarðssyni,
formanni samgöngunefndar, feng-
ust þær upplýsingar að hann hefði
þegar boðað það að fundað yrði
næst í nefndinni í annarri viku jan-
úarmánaðar. Spurður hvort til
greina kæmi að kalla nefndina sam-
an fyrr segir hann ekki enn búið að
taka afstöðu til þess, en ákvörðun
um það verði tekin í dag.
Í bréfi sínu óskar Jón eftir því að
nefndin kanni hvað Alþingi geti
gert til að leysa deilu samgöngu-
ráðherra við flugumferðarstjóra.
Aðspurður segir Guðmundur sjálf-
sagt að málið sé rætt í nefndinni,
enda var það samgöngunefnd sem á
sínum tíma fjallaði um laga-
frumvarpið, þar sem kveðið er á um
hlutafélagavæðingu flugumferð-
arstjórnar hérlendis, þegar það var
í vinnslu Alþingis. Bendir hann á að
framhald málsins sé hins vegar
núna í höndum ríkisstjórnar, sem
hafi umsjón með því að útfæra lögin
sem sett hafa verið.
Vill fá fund
í samgöngu-
nefnd
SÍMAFYRIRTÆKIÐ Vodafone
sendi í gær frá sér afsökunarbeiðni
þar sem það er harmað að SMS-jóla-
kveðja frá Domino’s Pizza hafi borist
viðskiptavinum fyrirtækisins á að-
fangadagskvöld. Skeytin hafi átt að
berast í GSM-síma viðskiptavina
milli klukkan 10 og 14 á aðfangadag
en vegna álags í kerfi Vodafone hafi
hluti þeirra fengið jólakveðjuna um
kvöldið.
„Markmiðið með sendingum Dom-
ino’s var fyrst og fremst að óska við-
skiptavinum gleðilegra jóla og ekki
ætlunin að senda þeim skeytið eftir
að jólahátíðin var gengin í garð,“
segir í tilkynningu Vodafone.
Vodafone
biðst afsök-
unar á SMS
♦♦♦