Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 13
ERLENT
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
VIÐBRÖGÐ við dauðadómnum yfir
Saddam Hussein, fyrrverandi for-
seta Íraks, og ákvörðun um, að hann
skuli tekinn af lífi á næstu vikum,
eru mjög misjöfn. Hefur Banda-
ríkjastjórn fagnað væntanlegri af-
töku hans en Evrópusambandið og
ýmis önnur ríki hafa skorað á Íraks-
stjórn að þyrma lífi Saddams.
Hashem al-Shibli, dómsmálaráð-
herra Íraks, segir, að nú standi að-
eins nokkur formsatriði í vegi fyrir
lífláti Saddams og hann leggur
áherslu á, að ekki komi til greina að
breyta dauðadómnum í ævilangt
fangelsi. Niðurstaða dómsins verði
nú send forsetaembættinu og þegar
það hafi lagt blessun sína yfir hana,
verði Saddam líflátinn.
Jalal Talabani, forseti Íraks, er
raunar andvígur dauðarefsingum en
hann hefur áður gefið til kynna, að í
þessu máli muni hann víkja sæti og
láta varaforsetunum eftir að skrifa
undir aftökutilskipun.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði í gær, að dauðadómurinn væri
merkur áfangi í þeim tilraunum
Íraka að „láta lög og reglu leysa
harðstjórnina af hólmi“ og stjórn-
völd í Þýskalandi tóku í sama
streng. Ýmis samtök, þar á meðal
bandarísku mannréttindasamtökin
Human Rights Watch, segja hins
vegar, að íraska stjórnin hafi með
ýmsum hætti eyðilagt trúverðug-
leika réttarhaldanna.
Nokkur ríki, til dæmis Indland,
segjast óttast, að aftaka Saddams
Husseins muni ekki auka líkur á sátt
og friði í Írak og Evrópusambandið
hefur skorað á Íraksstjórn að hætta
við hana.
Verjendur Saddams sögðu, að
dómurinn yfir honum hefði ekki
komið á óvart og héldu því fram, að
réttarhöldin yfir honum hefðu alltaf
verið algerlega pólitísk.
Auk Saddams voru hálfbróðir
hans, Barzan al-Tikriti, og Awad
Hamed al-Bandar, háyfirdómari í
valdatíð Saddams, dæmdir til dauða
en Taha Yasin Ramadan, fyrrver-
andi varaforseti, fékk lífstíðarfang-
elsi. Þrír aðrir voru dæmdir í 15 ára
fangelsi. Hugsanlegt er, að dómur-
inn yfir Ramadan verði endurskoð-
aður en ýmsum þykir hann of væg-
ur.
Saddam og hinir sakborningarnir
voru dæmdir fyrir fjöldamorð á sjít-
um í bænum Dujail 1982 en þau
voru framin eftir að reynt var að
ráða Saddam af dögum.
Skorar á Íraka að sameinast
gegn Bandaríkjamönnum
Þótt búið sé að dæma Saddam til
dauða og ákveða aftöku hans innan
mánaðar, þá standa enn yfir rétt-
arhöld yfir honum vegna ofsókna og
morða á Kúrdum á níunda áratugn-
um. Ekki er ljóst hvernig þau mál
verða til lykta leidd.
Í bréfi, sem Saddam Hussein hef-
ur skrifað, segist hann munu ganga
að gálganum sem „píslarvottur“ og
hann skorar á landa sína að samein-
ast gegn óvininum, Bandaríkja-
mönnum. Segir hann, að þeim sé um
að kenna hvernig komið er í Írak.
Misjöfn viðbrögð við
dómi yfir Saddam
Margir óttast að aftaka hans auki ekki líkur á friði í Írak
AP
Stóra fréttin Íbúi í Bagdad með dagblað, sem að mestu var helgað yfirvof-
andi aftöku Saddams. Víst er, að sjítar og Kúrdar munu ekki gráta hann en
óvíst er hvernig súnnítar munu bregðast við dauða hans.
Í HNOTSKURN
» Saddam Hussein er 69ára, súnnískur arabi en
þeir eru aðeins 20% Íraka.
Kúrdar eru einnig súnnítar,
um 20% landsmanna, en sjítar
eru um 60%.
» Saddam varð forseti Íraks1979 og barði alla and-
stöðu niður af mikilli grimmd.
Hann átti í stríði við Íran
1980-’88 og réðst inn í Kúveit
1999.
» Eftir innrásina í mars2003 fór hann huldu höfði
en fannst loks í jarðhýsi
skammt frá heimabæ sínum
Tikrit 13. desember 2003.
Teheran. AFP. | Íransþing samþykkti
í gær frumvarp, sem skyldar
stjórnvöld til að endurskoða sam-
vinnu sína við Alþjóðakjarnorku-
stofnunina. Var það gert vegna
þeirrar ákvörðunar öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna að beita Írana
refsiaðgerðum.
Frumvarpið var samþykkt með
161 atkvæði gegn 15 en í því eru
stjórnvöld einnig hvött til að hraða
kjarnorkuvæðingu landsins. Ekki
er búist við, að deilurnar um kjarn-
orkuáætlanir Írana muni minnka
við þetta en þeir hafa skellt skoll-
eyrum við áskorunum um að hætta
að auðga úran. Á Vesturlöndum er
óttast, að það eigi að nota í kjarna-
vopn en Íranar segjast ætla að nota
það í friðsamlegum tilgangi.
Gholam Ali Hadad Adel, forseti
íranska þingsins, sagði, að Íranar
ætluðu ekki að segja sig frá samn-
ingnum um bann við útbreiðslu
kjarnavopna en ríkisstjórnin gæti
að öðru leyti túlkað samþykktina
eins og hún vildi. Hún gæti til
dæmis takmarkað alþjóðlegt eftirlit
og hvöttu margir þingmenn til þess.
Refsiaðgerðir SÞ felast í því að
banna að selja Írönum búnað, sem
nota má í kjarnorkuiðnaði eða í
langdrægar eldflaugar.
Íranar svara refsiaðgerðum
Peking. AFP. | Loftslag í Kína mun
fara hlýnandi á næstu áratugum og
vatnsskortur fara vaxandi, að því er
kínverskir ríkisfjölmiðlar höfðu eftir
höfundum fyrstu skýrslu stjórn-
arinnar um áhrif loftslagsbreytinga
sem nær til alls landsins í gær.
„Losun gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum leiðir til sífellt alvar-
legri vandamála,“ sagði í yfirlýsingu
kínverska vísinda- og tækniráðu-
neytisins í gær. „Hnattrænar lofts-
lagsbreytingar hafa áhrif á getu
þjóðarinnar til að þróast frekar.“
Alls tóku tólf ráðuneyti þátt í gerð
skýrslunnar en þar er því spáð að
áhrifa loftslagsbreytinga muni fara
að gæta innan tíu ára og um miðja
þessa öld mun hitastigið hafa aukist
um 3,3 gráður að meðaltali.
Þar er því jafnframt spáð, að úr-
koma muni aukast um allt að 17 pró-
sent við næstu aldamót en að hún
muni ekki vega upp á móti vatns-
skorti sökum þess að uppgufun verði
þá mun meiri en nú er. Þá er búist
við að hitabylgjur og aðrar öfgar í
veðurfari verði algengari en þar
kemur einnig fram, að yfirborð jökla
hafi dregist saman um 21 prósent
frá því á sjötta áratug síðustu aldar.
Eru breytingarnar í veðurfarinu
sagðar munu hafa áhrif á öllum svið-
um kínversks þjóðlífs, hvort sem um
er að ræða hrísgrjónauppskeru
bænda eða heilsufar þjóðarinnar.
Vara við loftslagsbreytingum í Kína
Reuters
Útblástur Verkamaður fylgist með frá stjórnklefa lestar við járnbræðslu í
borginni Hefei í austurhluta Kína fyrir skömmu en mengun er þar mikil.