Morgunblaðið - 28.12.2006, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
HJALTI Jón Sveinsson, skóla-
meistari Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri, gerði að heimanám að um-
talsefni við útskrift nemenda frá
skólanum 20. desember. Hann seg-
ir að svo virðist sem æ fleiri telji
heimanám óþarft.
Á haustönn hófu 1.230 manns
nám í VMA, fleiri en nokkru sinni,
og að auki voru um 800 manns
skráð í fjarnám skólans. Alls út-
skrifaðist 71 nemandi af hinum
ýmsu brautum hinn 20. desember.
„Öðru hverju koma upp á borðið
hugleiðingar kennara um heima-
nám nemenda og undirbúning
þeirra fyrir kennslustundir. Á
þeim vettvangi virðast viðhorf vera
að breytast í þá veru að æ fleiri líta
svo á að þeir eigi ekki að þurfa að
læra neitt heima. Nýlegar rann-
sóknir benda til þess að stór hópur
framhaldsskólanemenda ver ótrú-
lega litlum tíma til heimanáms –
jafnvel innan við klukkustund á
dag. Sumir nemendur fullyrða í
samræðum sínum við kennara að
þeir telji nægjanlegt að ef þeir
fylgist vel með í kennslustundum
eigi þeir ekki að þurfa að leggja
meira á sig,“ sagði Hjalti Jón.
Lágmarkseinkunn
„Við höfum rætt það hér í skól-
anum hvort við höfum verið að
minnka námskröfurnar vegna
þessa. Hvort við gerum minni kröf-
ur vitandi það að margir nemendur
okkar hafa ekki undirbúið sig í
samræmi við það sem við settum
þeim fyrir áður en við kvöddum þá
í lok síðustu kennslustundar.
Minna heimanám þýðir að kenn-
arar eiga erfiðara með að fara yfir
námsefnið á þeim hraða sem ráð er
fyrir gert. Um leið er ljóst að fleiri
nemendur verða úti á þekju og eiga
í vandkvæðum með að tileinka sér
námsefni kennslustundanna. Komi
þeir ekki lesnir og undirbúnir í
kennslustund geta þeir átt í ennþá
meiri erfiðleikum í næstu kennslu-
stund við að tileinka sér viðfangs-
efnin og síðan koll af kolli. Þegar að
prófi kemur eru margir nemendur
síðan ánægðir ef þeir ná því með 5
– sem er lágmarkseinkunn til að
standast áfangann. Þetta þýðir
með öðrum orðum að takmarkið er
að ná helmingi markmiða – eða
helmingi þeirra krafna sem gerðar
eru.“
Nám er fullt starf
Hjalti Jón sagði að ef til vill ætti
að setja markið hærra og hafa lág-
markskröfuna 6 eða jafnvel 7.
„Þessi viðhorf geta ekki gengið úti
á vinnumarkaðinum; fyrirtæki og
stofnanir gera þær kröfur að
starfsmennirnir nái hámarks af-
köstum og árangur starfs þeirra sé
óaðfinnanlegur – án tillits til þess
hvort um t.d. iðnaðarmenn er að
ræða eða háskólamenntaða sér-
fræðinga.“ Skólameistari VMA
sagði mikilvægt að við fáum svör
við því hvernig á þessu standi;
hvers vegna ekki sé hægt að fá
nemendur til að gera sitt besta – og
leggja sig fram um að ná sem best-
um árangri.“
Ein ástæða þess að margir nem-
endur líta ekki í námsbækur sínar
utan kennslustunda er mikil vinna
þeirra með skólanum auk þess sem
fjölmargir nemendur stunda
íþróttir. Því eru frístundirnar færri
og kraftur þrotinn þegar heim er
komið; auk þess sem ungt fólk vill
einnig eiga þess kost að umgangast
félaga sína utan skólans.
Ef vel á að vera þá er nám í
framhaldsskóla fullt starf.“
Mikilvægt að komast að því hvers vegna nemendur gera ekki sitt besta
Æ fleiri framhaldsskólanem-
ar telja heimanám óþarft
Ljósmynd/VMA
Útskrift Hluti þeirra nemenda sem útskrifuðust frá VMA 20. desember.
Í HNOTSKURN
»Að þessu sinni var 71 nem-andi brautskráður frá skól-
anum af hinum ýmsu náms-
sviðum og brautum; sumir
reyndar af fleiri en einni braut.
Þar af eru 43 stúdentar, 13
sjúkraliðar, 12 rafvirkjar, tveir
4. stigs vélstjórar, tveir mat-
artæknar, tveir húsasmiðir,
tveir matartæknar, einn að-
stoðarkokkur – sá fyrsti á land-
inu – og sex iðnmeistarar að
loknu fjarnámi.
»Á haustönn hófu 1.230manns nám í VMA, fleiri en
nokkru sinni fyrr, og að auki
voru um 800 manns skráð í
fjarnám skólans.
ÁRLEG úthlutun úr Afreks- og styrkt-
arsjóði Akureyrar fer fram í hófi sem
haldið verður í Íþróttahöllinni í dag,
fimmtudag, kl. 16. Öllum Akureyringum
er unnið hafa til Íslandsmeistaratitils á
árinu 2006 verður afhentur minnispen-
ingur. Árangur akureyrskra íþrótta-
manna var góður á árinu, segir í til-
kynningu ÍRA. Þeir munu hafa unnið til
112 Íslandsmeistaratitla og einnig voru
margir Akureyringar valdir til leiks
með landsliðum í hinum ýmsu íþrótta-
greinum.
Árlegt hóf ÍRA
UPPBYGGING og framfarahugur ein-
kennir fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar
fyrir árið 2007 sem afgreidd var í bæj-
arstjórn Dalvíkurbyggðar 19. desember,
að því er segir í fréttatilkynningu frá Dal-
víkurbyggð.
Þar eru einnig nefndar nokkrar helstu
staðreyndir úr fjárhagsáætlun bæjar-
félagsins fyrir 2007:
Heildartekjur Dalvíkurbyggðar verða
rúmlega 1.036 milljónir króna en heild-
argjöld rúmlega 920 þús. króna. Skatt-
tekjur aðalsjóðs eru áætlaðar tæplega 502
milljónir króna.
Langstærsti útgjaldaliðurinn er
fræðslumál eða um 400 milljónir króna.
Vel er búið að íþrótta og æskulýðsstarfi og
fara ríflega 26 milljónir í beina styrki til
þess málaflokks.
Fjárhagsáætlun ársins 2007 gerir ráð
fyrir miklum fjárfestingum í grunngerð
samfélagsins svo sem við gatnagerð og
endurhönnun og viðbyggingu við leikskól-
ann Krílakot. Samkvæmt framkvæmda-
yfirliti Dalvíkurbyggðar eru fram-
kvæmdir A-hluta fyrir um 70 milljónir
króna og þarf ekki lántöku til að mæta því.
Þá er gert ráð fyrir framkvæmdum við
hitaveitu og vatnsveitu fyrir um 200 millj-
ónir króna, bæði til að tryggja rekstrarör-
yggi og til að leggja hitaveitu í Svarf-
aðardal.
„Uppbygging og
framfarahugur“
BÆJARFULLTRÚAR Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði segja
skuldir og skuldbindingar bæjar-
sjóðs hafa aukist jafnt og þétt á
undanförnum árum og að yfirlýs-
ingar bæjarstjórans í fjölmiðlum
undanfarið standist ekki. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
bæjarfulltrúunum.
Í tilkynningunni segir að sam-
kvæmt yfirliti yfir fjárstreymi bæj-
arsjóðs hafi langtímaskuldir A-
hluta bæjarsjóðs frá árinu 2002 til
og með fjárhagsáætlun fyrir árið
2007 breyst þannig að samtals hafi
verið tekin ný lán fyrir 6.015 millj-
ónir króna en greidd niður lán að
upphæð 6.199 milljónir. Þetta þýði
að niðurgreiðsla langtímalána A-
hluta bæjarsjóðs hafi á þessu tíma-
bili verið um 183 milljónir en ekki
þrír milljarðar eins og bæjarstjór-
inn hafi fullyrt í fjölmiðlum.
Bæjarfulltrúarnir segja að hin
mikla skuldaaukning sem komi
fram í fjárhagsáætlun Samfylking-
arinnar sé verulegt áhyggjuefni.
Skuldir og skuldbindingar A-hluta
bæjarsjóðs hafi hækkað frá árinu
2002 úr 10,3 milljörðum í 13,7 millj-
arða. Fjárhagsáætlun Hafnarfjarð-
ar fyrir árið 2007 beri þess augljós
merki að teflt hafi verið á tæpasta
vað við gerð hennar. Tekjuaukning
er talin verða um 930 milljónir en
gjöldin talin hækka um 1,1 milljarð.
Þetta lýsi best þeirri almennu til-
hneigingu Samfylkingarinnar að
eyða meiru en aflað er, segir í
fréttatilkynningu frá bæjarstjórn-
arflokki sjálfstæðismanna.
Hafna yfir-
lýsingum
bæjarstjóra
Sjálfstæðismenn
í Hafnarfirði
EINAR Birgir Steinþórsson skóla-
meistari Flensborgarskólans braut-
skráði 39 stúdenta og 6 nemendur af
sérsviði fjölmiðlunar á upplýsinga- og
fjölmiðlabraut í nýjum sal skólans,
Hamarssal. Einn var bæði útskrif-
aður sem stúdent og af fjölmiðla-
braut. 22 luku stúdentsprófi á þrem-
ur og hálfu ári. Bestum árangri í
heild náði Stella Sif Jónsdóttir stúd-
ent af félagsfræðabraut sem lýkur
námi á 7 önnum. Var henni veitt við-
urkenning fyrir frammistöðu sína
auk þess sem fleiri hlutu verðlaun.
Meðal þeirra sem voru heiðraðir
við athöfnina var Sigurður Reynir
Ármannsson en hann tók þátt í Evr-
ópuleikum Special Olympics 2006
sem fóru fram í Róm í haust og hlaut
Sigurður gull, silfur og brons. Þá var
Guðríður Karlsdóttir heiðruð en hún
lætur nú af störfum eftir sérlega far-
sælan starfsferil í 34 ár, segir í frétt
frá skólanum.
Hjördís Guðbjörnsdóttir skóla-
stjóri afhenti Stellu Sif Jónsdóttur
viðurkenningu frá Rotaríhreyfing-
unni og sagði frá því um leið að á
þessu skólaári væru fimmtíu ár frá
því hún hóf sjálf nám við skólann, þá í
gagnfræðadeild. Þá var Jenný Sif
Steingrímsdóttur veittur styrkur úr
Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar.
Snorri Páll Jónsson flutti ávarp ný-
stúdents og Kór Flensborgarskólans
söng undir stjórn Hrafnhildar
Blomsterberg, auk þess sem hljóm-
sveitin Strakovski Horo flutti lag en
hana skipa m.a. nemendur skólans.
Í ræðu sinni vék skólameistari að
fjölmörgu í starfi skólans og m.a. var
sagt frá gjöf frá Sparisjóði Hafn-
arfjarðar en það er forláta flygill sem
tekinn var í notkun við athöfnina þó
svo hann verði formlega afhentur við
útskrift í vor. Af þessu tilefni léku
þær Steinunn Birna Ragnarsdóttir
og Ástríður Alda Sigurðardóttir fjór-
hent á flygilinn.
Að auki var sagt frá fjölbreyttu
samstarfi við Hafnarfjarðarbæ um
rekstur nýbúaútvarps, samstarfs-
verkefnum við erlenda skóla, og síð-
ast en ekki síst því mikla verkefni
sem er að skipuleggja afmæli skólans
á komandi ári en haldin verður af-
mælishátíð við brautskráningu 1. júní
2007.
Í ræðu sinni vék skólameistari,
Einar Birgir Steinþórsson, m.a. að
umbótastarfi í skólakerfinu.
Styrkur úr Fræðslusjóði
Jóns Þórarinssonar
Við brautskráningu í Hamarssal
Flensborgarskólann var afhentur
styrkur úr Fræðslusjóði Jóns Þór-
arinssonar. Styrkurinn var veittur í
15. sinn en hann er veittur þeim nem-
endum sem hafa útskrifast frá skól-
anum og eru í framhaldssnámi.
Að þessu sinni hlaut Jenný Sif
Steingrímsdóttir styrkinn en hún út-
skrifaðist frá skólanum 1999. Eftir
það hefur hún m.a. lokið námi í
ítölsku og frönsku frá Háskóla Ís-
lands, dvalið við nám erlendis og
fleira. Nú síðast hefur hún verið í
meistaranámi í Evrópufræðum við
háskólann í New York og Columbia
háskóla en þessir skólar eru í sam-
starfi um nám í Evrópufræðum. Hún
áætlar að ljúka námi vorið 2007.
Lokaritgerð hennar mun fjalla um
utanríkisstefnu ESB og samband
hennar við NATO.
Útskrifað í Hamarssal í Flensborg
Dúx skólans lauk
stúdentsprófi á
aðeins sjö önnum
Ljósmynd/Lárus Karl
Útskrift 39 stúdentar og sex nemendur á upplýsinga- og fjölmiðlabraut voru útskrifaðir frá Flensborgarskóla.
Í HNOTSKURN
»Sigurður Reynir Ár-mannsson var heiðraður
við útskriftina en hann tók
þátt í Evrópuleikum Special
Olympics 2006 sem fóru
fram í Róm í haust og hlaut
gull, silfur og brons.
»22 luku stúdentsprófi áþremur og hálfu ári.
Bestum árangri í heild náði
Stella Sif Jónsdóttir stúdent
af félagsfræðabraut sem
lauk námi á 7 önnum.