Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Óþekkturkaupandi
keypti í fyrradag
áritaða Bítlaplötu
á uppboði fyrir
115 þúsund dali,
jafnvirði nærri
8,3 milljóna
króna. Um er að
ræða plötuna
Meet The Beatles, fyrstu breiðskíf-
una sem Bítlarnir gáfu út í Banda-
ríkjunum undir merkjum Capitol
Records en eintakið, sem selt var á
uppboðinu, var í eigu Louise, systur
Georges Harrisons. Um er að ræða
hæsta verð, sem greitt hefur verið
fyrir áritaða Bítlaplötu á uppboði.
Bítlarnir skrifuðu nöfn sín á plötu-
umslagið þar sem þeir voru á ferð í
lest á leið til Washington í Banda-
ríkjunum árið 1964.
LeikkonanEva Lon-
goria, sem fer
með hlutverk
Gabrielle Solis í
Aðþrengdum eig-
inkonum, segir
að frægðin sé
eins og fellibylur.
„Það er von-
laust að reyna að ná áttum eftir að
frægðin dynur yfir. Það er eins og
fellibylur. Ég varð fræg á tveim sek-
úndum. Ég þakka Guði fyrir að ég
var sæmilega jarðbundin áður en
það gerðist. Ég held að ef maður er
það ekki neyðist maður til að finna
sjálfan sig í ringulreiðinni. Og það er
ekki hægt,“ segir Longoria sem
skaust upp á stjörnuhimininn árið
2004.
Fólk folk@mbl.is
Samkvæmtþví sem
fram kemur
á vefsíðunni
rottentom-
atoes.com
mun Guill-
ermo Del
Toro standa
í því þessa
dagana að
þrýsta á um
gerð fram-
haldsmyndar
Hell Boy,
Hell Boy 2.
„Á þessu
stigi málsins get ég upplýst að við
eigum í smáerjum viðvíkjandi fjár-
hagsrammann, en listrænt séð hef
ég verið í himnaríki,“ er haft eftir
Del Toro. Hann hefur jafnframt
lýst því yfir að framhaldsmyndin
skilji ekki eftir ósvaraðar spurn-
ingar.
„Við gerum það alltaf. Við gerð-
um fyrstu myndina og sögðum við
sjálf okkur: „Ef það verður búin til
önnur mynd þá er það bara fínt. Ef
það verður ekki búin til önnur er
það líka bara fínt.“ Við höfum ráð-
ist í þessa seinni mynd með sama
hugarfari. Það er von mín að við
fáum að gera þríleik, en maður veit
aldrei.“
Fólk folk@mbl.is
ÞEGAR flestir jafnaldrar Clints
Eastwoods eru farnir að taka lífinu
með ró setur hann á fulla ferð og
kemur með hverja gæðamyndina á
eftir annarri. Fyrst Mystic River,
síðan Million Dollar Baby og núna
síðast samlokuna, seinnastr-
íðsmyndirnar Flags of our Fathers
og Letters From Iwo Jima. Allar
hafa þær fengið frábæra dóma,
fjölda verðlauna (og bætist eflaust í
hópinn í febrúar nk.) og aðsóknin
verið á svipuðum nótum. Myndirnar
hefur hann fullgert á innan við fjór-
um árum og þættu það ótrúleg af-
köst hjá manni „á besta aldri“.
Eastwood hefur afsannað að það
tímaskeið sé endilega á fyrri helm-
ingi ævinnar því þessa mik-
ilfenglegu fernu sendir hann frá sér
á áttræðisaldri. Hann hefur heldur
ekki ráðist á garðinn þar sem hann
er lægstur, öðru nær, hann er að
fást við mikilvæg umfjöllunarefni og
nú síðast, í hinni hryssingslegu Fán-
ar feðra vorra, kollvarpar hann
gömlu stríðshetjuhugmyndinni og
segir að sú eina sanna sé maðurinn
sem er næstur þér á blóðvellinum.
Hvað sem hæft er í því er sú óvenju-
lega og raunsæja hlið sem velt er
upp í Fánum feðra vorra meg-
inkostir hennar og lyftir langt upp
yfir gamalkunna hetjusöngva til
stríðsmanna sem geta átt rétt á sér
en eru fyrir langa löngu búnir að
missa trúverðugleikann og annað
gildi en hvað snertir afþreyingu.
Myndin segir frá mönnunum, at-
burðunum og eftirhreytunum á bak
við frægustu stríðsfréttamynd allra
tíma; sexmenningunum að draga
bandaríska fánann að húni í reykj-
arbrækjunni og vítislogunum á víg-
vellinum á eyjunni Iwo Jima. Hún
var táknræn fyrir sigur Bandaríkja-
manna á japanska fjandmanninum í
í hatrammasta návígi styrjald-
arinnar. Hann olli straumhvörfum í
Kyrrahafsstríðinu og blés Banda-
mönnum í brjóst trú á að end-
anlegur sigur í hildarleiknum væri
ekki aðeins möguleiki heldur tekið
að styttast í endalokin.
Bandaríska ríkisstjórnin kom
auga á sóknarfæri í hetjunum á
myndinni og kallaði heim þá þrjá
sem enn voru á meðal lifenda af sex-
menningunum á blóðvellinum á Iwo
Jima. Þeir voru John Bradley (Phil-
lippe), Rene Gagnon (Bradford) og-
Ira Hayes (Adam Beach). Tilgang-
urinn að nota þá til að selja
stríðsskuldabréf, hernaðurinn kost-
aði stjarnfræðilegar upphæðir á
degi hverjum og peninga var þörf
sem aldrei fyrr. Stríðsvélin teygði
arma sína um allan heim og bar-
áttan var í algleymingi.
Bragðið borgaði sig og banda-
menn unnu að lokum sigur á mönd-
ulveldunum. Myndin Fánar feðra
vorra sýnir enn eina hliðina á þeim
ómælda fórnarkostnaði sem hann
útheimti. Eastwood og handritshöf-
undarnir byggja söguþráðinn á end-
urminningum sjúkraliðans „Doc“
Bradleys, sem voru færðar á letur af
syni hans. Undirstrikað að allir voru
þremenningarnir ókátir með
ákvörðunina um heimkomuna og
hetjudýrkunina. Hinar sönnu hetjur
sögðu þeir vera í orrustu eða fallnar.
Dauðir menn gagnast illa í sölu-
mennsku og þeir Bradley og Gagn-
on léku með allt til loka í söluherferð
herstjórnarinnar en sá þriðji, ind-
jáninn Ira Hayes, þoldi hvorki álag-
ið né tvískinnunginn. Hann brotnar
niður, ekki síst af því að hann kemur
úr undirokuðum minnihlutahóp og
fær að gjalda uppruna síns, jafnvel
þótt hann sé yfirlýst stríðshetja. Ha-
yes veslast upp í landinu sem var
rænt af þjóðinni hans, þegar engin
not voru fyrir hann lengur skipti
hann ekki máli og urðu örlög Gagn-
ons lítið skárri. Hayes drakk sig í
hel og Johnny Cash söng honum
minnisstæðan óð.
Eastwood bætir um betur, Fánar
feðra vorra er í viðeigandi grátón-
um, ísköld og óaðlaðandi. Það sjást
engin hreystiverk, átökin minna
meira á viðurstyggilega slátrun. Það
er engin elsku
mamma til staðar í
stríði, lögmálið
sem gildir er
dreptu eða vertu
drepinn. Engin
húrrahróp og
fagnaðarlætin
heima fyrir byggð
á hæpnum for-
sendum. Sá hluti
myndarinnar sem
gerist á Iwo Jima
var, eins og alþjóð
veit, tekinn suður
með sjó og í
Krýsuvík og töku-
staðirnir eru til-
heyrandi óvægnir
í svart/hvítu. Kolgrá ströndin býður
innrásarliðið óvelkomið og það hefur
ekki náð fótfestu þegar óvinurinn
byrjar að brytja það niður. Eastwo-
od lætur japönsku hermennina
óséða fyrir utan örfá lík, illa farin
eftir sjálfsmorð með hand-
sprengjum og fer þar sem annars
staðar eftir staðreyndum. Hlið Jap-
ana verður sýnd í Bréf frá Iwo Jima
– Letters From Iwo Jima, sem verð-
ur frumsýnd hérlendis innan tíðar
en myndin hefur fengið lofsamlega
dóma, ekki síst í Japan, og verður
forvitnilegt að sjá átökin frá því
sjónarhorni. Sá hluti Fána feðra
vorra sem gerist í Bandaríkjunum
er ekki síður áhrifaríkur og óvæntur
því Eastwood flettir ofan af hetju-
sögninni og sýnir þess í stað unga,
ráðvillta menn sem eru, gegn vilja
sínum, notaðir í pólitískum tilgangi.
Þeir vilja sannarlega leggja sitt af
mörkum til að sigra miskunn-
arlausan óvin, en með beinni þátt-
töku.
Fánar feðra vorra er nýstárleg
sýn og sjálfsagt þarf sextíu ára fjar-
lægð frá atburðarásinni og þroskaða
menn til að gera upp þessa nöt-
urlegu reikninga. Eastwood hefur
gert betur og er óspar á tíma en
hann á engu að síður heiður skilinn
fyrir að koma uppgjörinu fyrir al-
menningssjónir. Eastwood leik-
stýrir, framleiðir og er að auki höf-
undar tónlistarinnar, sem er falleg
og dapurleg, líkt og lag við jarð-
arfararsálm. Leikur og tæknivinna
er einnig með miklum ágætum, og
ástæða að geta frammistöðu Beach í
raunalegu hlutverki Hayes.
Stríð eru ljót og ómannúðleg og
myndin hans Eastwoods minnir á að
þau vinnast ekki heldur með vett-
lingatökum. Með illu skal illt út
reka.
Hetjur og ekki hetjur
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjóri: Clint Eastwood. Aðalleik-
endur: Ryan Phillippe, Jesse Bradford,
Adam Beach, John Benjamin Hickey,
John Slattery, Barry Pepper, Paul
Walker, Robert Patrick. 132 mín.
Bandaríkin 2006.
Fánar feðra vorra – Flags of our Fathers
Sæbjörn Valdimarsson
Nýstárleg „Fánar feðra vorra er í viðeigandi grá-
tónum, ísköld og óaðlaðandi,“ segir m.a. í dómnum.
ÓFAGRA VERÖLD
Í kvöld kl. 20 Forsýning. Miðaverð 1.000
Fös 29/12 kl. 20 Frumsýning UPPS.
Fim 4/1 kl. 20 2. sýning Gul kort
Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort
Sun 21/1 kl. 20 4.sýning Græn kort
Fös 26/1 kl. 20 5.sýning Blá kort
Lau 30/12 kl. 20
Fös 5/1 kl. 20
Lau 13/1 kl. 20
Fös 19/1 kl. 20
SAN FRANCISCO BALLETTINN
Samstarfsverkefni Listahátíðar í
Reykjavík og Borgarleikhússins.
Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20
Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14
Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14
Sun 20/5 kl. 20
Miðaverð 4.800
Sun 7/1 kl. 20 AUKAS.
Sun 14/1 kl.20 AUKAS.
Lau 20/1 kl. 20 AUKAS.
Lau 27/1 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar
DAGUR VONAR
Mið 10/1 kl. 20 Fors. Miðaverð 1.000
Fim 11/1 Afmælissýning UPPS.
Fös 12/1 kl. 20
Fim 18/1 kl. 20
Sun 21/1 kl. 20
Fös 26/1 kl. 20
Sun 7/1 kl. 20
Sun 14/1 kl. 20
Lau 20/1 kl. 20
Síðustu sýningar
Lau 6/1 kl. 20
Fim 11/1 kl. 20
Fim 18/1 kl. 20
Lau 27/1 kl. 20
Síðustu sýningar
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 30/12 kl. 14 UPPS.
Sun 7/1 kl. 14
Sun 14/1 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fös 29/12 kl. 20
Lau 6/1 kl.20
Lau 13/1 kl. 20
Fös 19/1 kl. 20
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00,
kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus,
lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1
kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti
laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus.
BAKKYNJUR eftir Evrípídes
3. sýn. í kvöld fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1
örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus,
8. sýn. fim. 18/1.
Stóra sviðið kl. 20:00
! "
!
"
!
# $ %
&'# ( )
!
###
$
"!( *++ $,--
.#
# +/#-- ! )00" 1 ' ! !
/#
# ,-#-- !
& # ,#--- 1 2
( , +
3 4
# 5# # # ,- 1
6 % & %
37889: 398&"2 1 ;'9<=
#"
12
4
>>>#
' ( & % ) & % 389 "?2:289
;9@A0 BC9&:A8 ";98D E 1 ,*
*-F ! *+
+
&
,-. / 0 1
2
Gleðilega hátíð!
LA óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar.
Karíus og Baktus – sýnt í Rýminu
Lau 30. des kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning!
Svartur köttur – forsala hafin
Fös 19. jan kl. 19 Forsýn – UPPSELT
Lau 20. jan kl. 19 Frumsýn – UPPSELT
Næstu sýningar: 21/1, 25/1, 26/1, 27/1. Sala hafin!
www.leikfelag.is
4 600 200
Hátíðarhljómar
við áramót
Flytjendur:
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari
Ásgeir H. Steingrímsson trompet
Eiríkur Örn Pálsson trompet
Hörður Áskelsson orgel
Á efnisskránni eru ma:
bassaaríur úr Messíasi og Jólaóratóríunni
auk verka eftir Albinoni, Scarlatti o.fl.
Miðasala í Hallgrímskirkju - sími 510 1000
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 3.-31. des. 2006
Listvinafélag Hallgrímskirkju - 25. starfsár
31. desember 2006, gamlárskvöld kl. 17.00