Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 43
450 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
Now with english
subtitles in Regnboginn
Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið!
Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók
Sýnd kl. 2, 8 og 10.15 B.I. 10 ára
eee
S.V. MBL.
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
Sími - 551 9000
- Verslaðu miða á netinu
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 12 ára
Sýnd kl. 2, 4 og 6 ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 2, 4 og 6 ENSKT TAL
Sýnd kl. 8 og 10:30450 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
KLIKKUÐ GRÍNMYND ÞAR SEM JACK BLACK
OG KYLE GASS FARA Á KOSTUM Í LEIT
AÐ ÖRLAGANÖGLINNI
GEGGJUÐ
TÓNLIST!
Hinn ungi og og bráðefnilegi Freddie Highmore úr Charlie
and the Chocolate Factory fer á kostum í hlutverki Artúrs.
Mynd eftir Luc Besson
ÍSLENSKT OG ENSKT TAL
JÓLAMYNDIN
2006
Eragon kl. 3, 6, 8.20 og 10.40 B.i. 10 ára
Arthur & Mínimóarnir kl. 4 og 6
Tenacious D kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 12 ára
Casino Royale kl. 10.20 B.i. 14 ára
Hátíð í bæ / Deck the Halls kl. 3
Mýrin With english subtitles/M. enskum texta kl. 5.40 og 8
Borat kl. 8 og 10
Skógarstríð kl. 3
eeee
Þ.Þ. Fbl.
KLIKKUÐ GRÍNMYND
ÞAR SEM JACK BLACK
OG KYLE GASS FARA Á
KOSTUM Í LEIT
AÐ ÖRLAGANÖGLINNI
STÆRSTI
KVIKMYNDA-
VIÐBURÐUR
ALLRA TÍMA
JÓLAMYNDIN Í ÁR
-bara lúxus
Sími 553 2075
M.M.J. Kvikmyndir.com
eeee
Blaðið
eee
SV MBL
eee
V.J.V. TOPP5.IS
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá
kl. 9. Jóga kl. 9. Boccia kl. 10. Út-
skurðarnámskeið kl. 13. Myndlist kl.
13. Videostund, ýmsar myndir og
þættir kl. 13.30. Allir velkomnir.
Dalbraut 18 - 20 | Starfsfólk og gest-
ir í félagsstarfi félagsmistöðvarinnar
Dalbrautar 18-20 Reykjavík senda
landsmönnum öllum óskir um gleðileg
jól. Öllum velkomið að kíkja inn milli
jóla og nýárs. Blöðin leggja frammi.
Hádegisverður og síðdegiskaffi. Upp-
lýsingar 588 9533.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Starfsmenn félagsstarfs aldraðra
óska gestum sínum gleðilegrar hátíð-
ar og góðs gengis á nýju ári.
Hæðargarður 31 | Starfsfólk og gest-
ir í félagsstarfi félagsmiðstöðvarinnar
í Hæðargarði 31 í Reykjavík senda öll-
um landsmönnum óskir um gleðileg
jól. Allir velkomnir að kíkja inn milli
jóla og nýárs. Jólatréð okkar er engu
líkt. Hádegisverður og síðdegiskaffi.
Upplýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 10 boccia, kl. 10.30
ganga, kl. 9 smíði, kl. 9-12 leir, kl. 9-
16.30 opin vinnustofa, kl. 13 upplestur,
kl. 13-16 leir.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15-14 aðstoð v/
böðun. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl.
9-10 boccia. Kl. 10.15-11.45 enska. Kl.
10.15-11.45 spænska. Kl. 11.45-12.45
hádegisverður. Kl. 13-14 leikfimi. Kl.
13-16 kóræfing. Kl. 13-16 glerbræðsla.
Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í Vídalínskirkju kl. 21. Gott er að
ljúka deginum og undirbúa nóttina í
kyrrð kirkjunnar. Tekið er við bænar-
efnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
ÖÐRUVÍSI saga er þriðja bókin í
bókaflokki Guðrúnar Helgadóttur
um Karen Karlottu og fjölskyldu
hennar. Karen er nú orðin tíu ára
gömul og hefst sagan á afmælisveislu
hennar í sama mund og sumarið
gengur í garð. Karen er athugul
stúlka sem tekur fullan þátt í sam-
ræðum fólks. Hún vill ennfremur
nota tímann sinn vel, hvort sem er til
leikja eða að njóta þess sem lífið gef-
ur.
Þetta er saga um góð gildi. Karen
býr yfir jákvæðu viðhorfi til tilver-
unnar og höfundurinn leggur áherslu
á hjálpsemi, umburðarlyndi, fyrir-
gefningu, jöfnuð og virðingu. Stríð
og friður koma við sögu, því inn á
milli er minnst á átökin í Palestínu og
ennfremur heimstyrjöldina síðari.
Karen hefur lesið dagbækur Önnu
Frank:
„Ég hafði aldrei lesið neitt eins
umhugsunarvert – og sorglegt.
Hvernig gátu venjulegir menn orðið
svona vondir við annað fólk? Meira
að segja börn?
Ef ég gæti nú svarað
því, sagði Elísabet. Og
það versta er að menn
eru enn að deyða sak-
laust fólk um víða ver-
öld. Meira að segja
þjóðir sem mest þurftu
að þjást sýna ótrúlega
grimmd.
Og ég mundi eftir því
sem hún hafði sagt mér
um Ísraelsmenn og
Palestínu. Um Palest-
ínufólkið sem var rekið
úr landinu sínu þegar
Ísraelsmenn komu.
Seinast hafði eitthvað
verið um það í kvöld-
fréttunum daginn áður.“ (32–33).
Á afmælisdegi Karen Karlottu
kemur bréf frá afa hennar í Englandi
þar sem hann býður allri fjölskyld-
unni í heimsókn um haustið. Í ljós
kemur að afinn er bú-
inn að skrifa bók um
minningar sínar úr
stríðinu og fjallar hún
um stríð og hvaða áhrif
styrjaldir hafa á fólk.
Hún er einmitt að
koma út í Bretlandi
með hjálp Kolbeins
sem amma Karenar
hefur hjálpað áður.
Ferðin hefur mikil
áhrif á fjölskylduna og
breytir viðhorfum
hennar. Karen skrifar:
„Ég náði varla and-
anum og fór að há-
gráta. Út af gyðing-
unum, út af afa, út af þessum and-
styggilegu stríðum. Matta systir
kom upp í til mín og hélt utan um
mig þangað til ég sofnaði.“ (101).
Guðrún Helgadóttir hefur samið
fallega sögu sem fjallar um sam-
skipti fólks; hvernig megi ná sáttum
og að aldrei sé of seint að fyrirgefa.
Ákveðin rósemd ríkir í bókinni,
ákveðin sátt og hún líður áfram án
mikilla átaka. Höfundur fjallar um
fordóma án reiði. Gott væri ef for-
eldrar læsu söguna með börnum sín-
um og ættu við þau samræður um þá
þætti sem vekja áhuga. Hentugt er
að byrja á fyrri bókunum Öðruvísi
dagar og Öðruvísi fjölskylda til að
kynnast söguhetjunum og sjá sam-
hengið í hlutunum. Sögurnar þrjár
mynda góða heild og friðsemd.
Sagan er sögð á góðu máli og er
vel hugsuð. Teikningar Önnu Cynt-
híu Leplar eru hófstilltar, þær eru
ekki í lit enda gerðar til að styðja við
söguna án þess að lesandinn veiti
þeim of mikla eftirtekt.
Saga um góð gildi
BÆKUR
Barnasaga
Eftir Guðrúnu Helgadóttur. Myndir eftir
Önnu Cynthiu Leplar. Vaka-Helgafell.
Reykjavík. 2006 – 112 bls.
Öðruvísi saga
Gunnar Hersveinn
Guðrún Helgadóttir
Fréttir
í tölvupósti