Morgunblaðið - 29.03.2007, Page 18
|fimmtudagur|29. 3. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Töluvert úrval páskaeggja er að
finna í verslunum núna og verð-
munurinn getur reynst umtals-
verður. » 20
verðkönnun
Kenía er í senn framandi og
áhugavert land sem hefur upp á
margt að bjóða, líkt og Brynja
Tomer uppgötvaði. » 22
ferðalög
Sérstakar testofur virðast eiga
upp á pallborðið hjá íbúum
Kaupmannahafnar þessa dag-
ana. » 23
veitingastaðir
Þ
að eru smáatriðin sem
skipta máli,“ segir
Hjörtur Matthías
Skúlason kaffibarþjónn
sem sigraði um helgina
í fyrstu keppninni Kaffi í góðum
vínanda þar sem keppt var í gerð
áfengra kaffidrykkja. Frjálsi drykk-
urinn hans var þó bæði frumlegur
og fallega framreiddur. „Þetta er
kaldur kaffidrykkur með rjóma og
kókoslíkjör.“
– Hvernig í ósköpunum datt þér í
hug að blanda kókoslíkjör saman
við kaffi?
„Ég átti uppskrift að kaffikokteil
með kókoshnetusírópi sem hefur
verið vinsæll og prófaði mig áfram
með þessa blöndu sem heppnaðist
svona vel. Það eru til ýmsir kokteil-
ar með kókoslíkjör en ég veit ekki
til þess að kaffi hafi verið prófað áð-
ur,“ segir Hjörtur og brosir.
Júlíus Sigurjónsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins og sérlegur kaffi-
smakkari, bragðar á kaffidrykknum
og gefur honum bestu einkunn.
„Mjög ferskur.“
Á leið á heimsmeistaramót
„Ég drekk ekki mikið af kaffi-
líkjörum en ég drekk mikið af
kaffi,“ segir kaffibarþjónninn, sem í
sex ár hefur unnið á kaffihúsinu
Kaffitári. Hann viðurkennir að
dreyma stundum kaffi á næturnar.
„Mig dreymir svo margt um kaffi,
helst vinnuna í kringum kaffi. Ég er
oft á kaffivélinni í draumum, að búa
til kaffi.
– Færðu martraðir?
„Nei, ekki tengdar kaffi,“ segir
Hjörtur og hlær. „Þetta er svo
skemmtilegt starf. Það er listrænt
og ef maður hefur hugmyndaflug þá
nýtur það sín vel í starfinu. Það
þarf að hafa bæði bragðlaukana í
lagi og auga fyrir framsetningunni.“
Það kemur sér þá áreiðanlega vel
að vera iðnhönnuður að mennt eins
Hjörtur sem upphaflega ætlaði sér
aðeins að vinna eitt sumar á Kaffi-
tári en nú eru þau orðin sex og vet-
urnir líka. „Ég ánetjaðist einfald-
lega kaffinu. Mér finnst malið í
kaffivélinni bara notalegt, eins og í
ketti. Kvörnin er aðeins „aggressív-
ari“. Ég hef síðasta árið verið
verslunarstjóri á kaffihúsum Kaffi-
társ í Þjóðminjasafninu og á Lista-
safni Íslands og það er auðvitað frá-
bært að hafa slíka umgjörð utan um
kaffimenninguna,“ segir Hjörtur
sem sennilega hefur búið til tugi
þúsunda espressó, caffe latte, cafe
au lait og macchiato á starfsævi
sinni en finnst það samt aldrei leið-
inlegt.
Í hans huga eru listin, kaffið og
hönnunin eitt, enda hefur hann líka
verið útlitsráðgjafi fyrir Kaffitár.
„Í haust stefni ég svo á vöru-
hönnun í Listaháskólanum, ef ég
kemst inn. En fyrst er það heims-
meistaramótið í Antwerpen í Belg-
íu, „Coffee in a Good Spirit“. Þar
ætla að reyna mig á meðal meistara
með drykkinn minn, Tind, sem ég
nefni svo því hann minnir mig á
snjóþakinn fjallstind. Ég er nefni-
lega að vestan, frá Rauðasandi og
er alltaf undir áhrifum úr sveitinni.“
Tindur
f. 2
2 einfaldir espressó
2 msk. hrásykur
2 msk. súkkulaði, 50%
2 msk. Malibu-líkjör
3 msk. rjómi
klaki
Blandið saman hrásykur og
súkkulaðið og leysið upp í heitu
espressóinu. Kælið. Setjið rjómann
saman við Malibu-líkjörinn og hrist-
ið saman. Setjið klaka í vínglas á
fæti. Hellið fyrst súkkulaðisyk-
urblöndunni yfir hann og síðan Mal-
ibu-rjómablöndunni og berið fram.
Morgunblaðið/Júlíus
Tindur Kaffikokteillinn hans Hjartar er einstaklega ferskur.
Morgunblaðið/Júlíus
Flinkur Það er kannski eitthvað í vestfirsku genunum sem hefur gert Hjört einn af helstu kaffigúrum Íslands.
Tindur toppaði
með kaffi og
kókóslíkjör
Hjörtur Matthías Skúlason sigraði
í gerð áfengra kaffidrykkja