Morgunblaðið - 29.03.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 29.03.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 31 ✝ GuðmundurÁgúst Jensen fæddist í Reykjavík 17. nóvember 1919. Hann lézt á Land- spítala, Landakoti föstudaginn 16. mars síðastliðinn. Foreldrar Guð- mundar voru hjónin Kristín Eiríksdóttir, húsfreyja í Reykja- vík, f. í Sölvholti í Hraungerðishreppi í Flóa 25.7. 1885, d. í Reykjavík 20.7. 1966, og Carl Kristján Ágúst Jen- sen, vélstjóri og pípulagn- ingamaður, f. í Frederikshavn í Danmörku 21.4. 1875, d. í Reykja- vík 30.7. 1952 . Systkini Guðmundar eru: 1) Guðrún Karólína, f. 29.1. 1908, d. 16.2. 1985, eiginmaður Sigurður Sigurðsson, verslunarstjóri á Hell- issandi; 2) Guðjón Knud Martín, f. 15.5. 1909, d. 2.1. 1996, eiginkona Anna Eygló Egilsdóttir, f. 9.8. 1914, d. 17.3. 1972; 3) Svala, f. 22.1. 1912, d. 5.11.1966, eig- inmaður Friðþjófur Thor- steinsson, knattspyrnumaður, f. 28.8. 1895, d. 13.4. 1967; 4) Bertha María, f. 8.11. 1914, d. 26.11. 1998, eiginmaður Tómas Guðmundsson, skáld, f. 6.1. 1901, d. 14.11. 1983; 5) Eiríkur, f. 2.10. 1917, til heimilis á Akranesi, eiginkona Ósk Sig- mundsdóttir, f. 29.6. 1903, d. 8.6. 1995; 6) Sigríður Anna, f. 30.12. 1921, d. 7.1. 1968, fyrri eig- inmaður Harald Sverre Normann Bruvik, f. 16.7. 1918, d. 7.12. 1959, seinni eiginmaður Hreinn Svav- arsson, f. 19.5. 1929, d. 20.9. 1997; og 7) Karl Pétur, f. 12.7. 1924, d. 31.12. 1938. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Elimar Tómasson, skólastjóri í Grundarfirði, f. í Hlíðarkoti í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, 30.8. 1900, d. í Reykjavík 19.2. 1988, og Guðbjörg J. Pálsdóttir, f. í Álfhó- lahjáleigu í V-Landeyjum 3.3. 1915, d. á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 28.5. 2005. Helga á eina dóttur, Rut Jóns- dóttur, f. 30.8. 1957. Guðmundur ólst upp með for- eldrum sínum, systkinum og afa á Spítalastíg 4 í Reykjavík, í Efsta- bæ, sem svo var kallaður. Efsta- bæjarhúsið, sem afi hans Eiríkur Magnússon byggði, er nú í Árbæj- arsafni. Faðir hans, Carl Jensen, kom til Íslands 1906, með nýjum bát, sem keyptur var til Austfjarða frá Danmörku. Hann hafði gegnt herþjónustu í danska hernum og síðar unnið um tíma við gesta- móttöku við hirð Danakonungs. Kristín, tilvonandi kona hans, vann á Hótel Íslandi þegar þau kynntust. Eftir að Guðmundur óx úr grasi vann hann ýmsa verka- mannavinnu, en oft var litla vinnu að hafa á þeim árum, þar til á heimsstyrjaldarárunum síðari. Seinna lagði hann stund á nám í pípulögnum við Iðnskólann og lauk sveinsprófi 15.6. 1960. Eftir það voru pípulagnir hans að- alstarf. Lagði hann víða miðstöðv- arkerfi í Reykjavík og nágrenni. Guðmundur og Kristín reistu sér hús á Langholtsvegi 166, þar sem dætur þeirra slitu barnsskónum. Seinni hluta ævinnar, allt fram undir það síðasta, bjó hann á Grensásvegi 54. Útför Guðmundar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Hinn 22. sept- ember 1945 kvæntist Guðmundur Kristínu Halldórsdóttur, f. í Vörum í Garði í Gerðum 22.11. 1921. Þau skildu. For- eldrar hennar voru Halldór Þor- steinsson, útgerð- armaður og skip- stjóri í Garði, f. 22.2. 1887, d. 3.1. 1980, og kona hans Kristjana Pálína Kristjáns- dóttir, f. 2.11. 1885, d. 1.8. 1975. Halldór og Kristjana eignuðust 13 börn. Seinni maður Kristínar er Friðrik S. Guð- jónsson, frá Heydal í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi, f. 9.7. 1921. Þau eiga einn son, Friðrik Sigurð, f. 9.2. 1965. Guðmundur og Kristín eignuðust tvær dætur, en þær eru: 1) Kristjana Margrét, f. 18.2. 1944, býr í Reykjavík. Synir hennar eru Kristinn Ragnarsson, f. 24.7. 1966, og Ívar Jörundsson, f. 27.11. 1967. Sambýliskona Ívars er Elínborg Björnsdóttir, f. 11.4. 1973. Sonur hennar heitir Agnar Dofri Stef- ánsson, f. 8.4. 1995. 2) Halldóra, f. 14.6. 1950 býr á Seltjarnarnesi. Maður hennar er Kristján Helgi Bjartmarsson, verkfræðingur, frá Mælifelli í Skagafirði, f. 7.6. 1947. Þau eiga tvo syni, Bjartmar, f. 22.12. 1977, og Grétar, f. 2.7. 1980. Sambýliskona Bjartmars er Jóna Erlendsdóttir, f. 19.6. 1975; þau eiga einn son óskírðan, f. 24.3. 2007. Jóna á son fyrir, Magnús Pétursson, f. 4.10. 1999. Sambýlis- kona Grétars er Maria Laura Doru, f. 8.7. 1985 í Rúmeníu. Seinni kona Guðmundar var Helga Elimarsdóttir, f. 1.5. 1932. Ég kynntist Guðmundi tengdaföð- ur mínum fyrst í alvöru eftir að ég og kona mín, Halldóra, fluttum heim frá Svíþjóð 1980. Bjó hann þá á Grens- ásvegi 54, ásamt seinni konu sinni, Helgu Elimarsdóttur. Guðmundur var stór og stæðilegur maður og þótti glæsimenni þegar hann var upp á sitt besta. Hann var fagurkeri og listhneigð- ur og bar heimili hans þess vott. Hafði hann yndi af tónlist, einkum djassi og óperusöng. Hann var og smekkmaður í klæðaburði, var oft stíll yfir karli. Hann hafði mjög gam- an af að ræða við fólk, tók stundum skemmtilega til orða og kryddaði þá mál sitt gjarnan dönskum slettum, enda var hann stoltur af hinum danska uppruna sínum, ekki síður en hinum íslenska. Enda frændgarður- inn stór. Hann hafði góða kímnigáfu og gat sýnt af sér grallaraskap. Hann var mjög minnugur á nöfn og atburði og hafði unun af að segja frá. Hann ólst upp í miðbæ Reykja- víkur er borgin var að mótast og var fróðlegt að aka með honum um æskuslóðir hans og heyra hann rifja upp gamla tíma og segja frá fólki og atvinnulífi fyrr á árum. Hann mundi þar nánast nafn á hverri þúfu og gat sagt hver hefði þar búið eða byggt og hvaða fyrirtæki eða verslanir hefðu þar verið. Í mörg ár var það venja að Guðmundur væri hjá okkur Dóru á gamlárskvöld og voru svona útúr- dúrar þá gjarnan teknir, þegar við fylgdum honum heim. Í mörg sumur ferðaðist hann um landið með okkur, um byggðir sem óbyggðir. „Afi Gummi“ sat þá í aft- ursætinu milli sona okkar ungra. Oft var farið í heyskap vestur í Dali til systur minnar, Snæbjargar. Eða norður í Eyjafjörð, til foreldra minna, sr. Bjartmars og Hrefnu. Var þá margt skrafað. Af óbyggðaferð- um er sú kannski minnisstæðust, er við festum okkur á Sprengisandsleið og Nýjadalsáin flæddi um bílinn. Á þessum ferðalögum okkar heim- sóttum við líka ýmsa staði, þar sem Guðmundur hafði dvalið og starfað fyrr á árum, t.d. Fljót í Skagafirði og Grundarfjörð, að ógleymdum Ing- ólfsfirði á Ströndum, en þar hafði hann verið í vinnu ungur maður, þeg- ar síldin fyllti fjörð og flóa. Að vísu var sú heimsókn blandin trega, þarna hafði hann verið í blóma lífsins og staðurinn líka, en nú hafði hallað undan fæti hjá báðum. Þótt líf Guðmundar væri ekki allt- af dans á rósum stóð hann ávallt keikur. Nú er hann lagður af stað í sína hinstu för og hugur okkar fylgir honum, með þakklæti fyrir góðar stundir. Kristján Bjartmarsson. Guðmundur Á. Jensen pípulagn- ingameistari, sem kvaddur er í dag, tilheyrði þeirri kynslóð, sem nefnd hefur verið aldamótakynslóðin. Hann upplifði því, og tók þátt í, mesta breytingatímabili Íslandssög- unnar, þegar þjóðin reis úr mikilli fá- tækt til álna nútímasamfélags. Hann var hafsjór fróðleiks um gömlu Reykjavík og var mjög minnugur á fólkið í borginni, hvar það bjó og við hvað það starfaði. Það er veröld sem var og sem betur fer hefur yngri sagnfræðingum á borð við Guðjón Friðriksson og Eggert Þór Bern- harðsson tekist að halda utan um og skrá sögu þessa tímabils. Margs er að minnast í samskipt- um okkar Guðmundar og fjölskyldu minnar, en kynni okkar hófust, þeg- ar ég á yngri árum starfaði í bygg- ingarvöruverslun J. Þorláksson og Norðmann, en þar var Guðmundur tíður gestur vegna starfa sinna. Síð- ar gat ég leiðbeint honum lítilsháttar við kaup á íbúð við Grensásveg, þar sem hann bjó alla tíð síðan og undi hag sínum vel. Guðmundur var síðan gestur fjölskyldunnar í tæplega þrjátíu ár á hverju aðfangadags- kvöldi og var aufúsugestur sem allir hlökkuðu til að fá í heimsókn, enda var frásagnargleði hans og hnyttin tilsvör einstök. Tvö síðustu ár voru jólin haldin án Guðmundar vegna veikinda hans og má segja, að þar hafi verið skarð fyrir skildi. Guðmundur naut umhyggju beggja dætra sinna síðustu æviárin og var liðsinni Halldóru og fjöl- skyldu hennar ekki síst mikilvægt. Undir lokin vissi Guðmundur að hverju dró og tók örlögum sínum af æðruleysi. Hann var búinn að lifa langa og viðburðaríka ævi og verða vitni að miklum umbreytingum. Hann kvaddi því sáttur. Blessuð sé minning Guðmundar Á. Jensen. Alfreð Þorsteinsson. Guðmundur tengir okkur systur sterkt við jólin. Hann eyddi aðfanga- dagskvöldi með fjölskyldu okkar síð- ustu þrjátíu árin. Um leið og Guð- mundur gekk inn um dyrnar í Vesturberginu vissi maður að jólin væru komin. Guðmundur var mjög notalegur maður sem hafði góða nærveru. Hann kunni vel að segja sögur og það var afar fróðlegt að heyra lýsingar hans á Reykjavík á sínum uppvaxtarárum og hvernig borgin þróaðist á þessum stutta tíma. Guðmundur naut þess að borða góðan mat og hlusta á fallega tónlist. Þess vegna var mjög gaman að eyða aðfangadagskvöldi með honum. Hann kunni vel að meta matinn hennar mömmu og sagði hver jól: „Þetta hefur aldrei verið betra.“ Með þessu móti var hann að þakka fyrir sig og viljum við systur þakka hon- um kærlega fyrir hlýja samveru undangengin ár. Guð blessi minn- ingu hans. Lilja og Linda Alfreðsdætur. Guðmundur Ágúst Jensen Hulda mín, það er komið að kveðjustund. Ég þakka þér, kæra vinkona, okkar góðu kynni, þá sérstaklega hlýjar mót- tökur þínar á ferðum mínum suður og norður yfir heiðar. Alveg sama hvenær og hvaðan ég hringdi, stundum heiman úr Rauðu- skriðu eða úr Borgarfirði, frá Akur- eyri eða Holtavörðuheiði, alltaf varst þú tilbúin með veisluborð fyrir mig og Jóhannes. Þú stóðst við eða í úti- dyrunum með þitt geislandi, hlýja bros og við föðmuðumst af innilegri Hulda Árnadóttir ✝ AðalheiðurHulda Árnadótt- ir ljósmóðir fæddist á Kringlu í Torfa- lækjarhreppi í Aust- ur-Húnavatnssýslu 28. desember 1917. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 14. febr- úar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Blönduós- kirkju 24. febrúar. gleði við að hittast. Kynni barna okkar, Bergþóru og Haralds, leiddi okkur saman, þökk sé þeim. Ég á þér mikið að þakka, því það eru for- réttindi að fá að kynn- ast konu eins og þér, sem miðlaðir svo mik- illi hlýju og ævinlega hafðir þú eitthvað já- kvætt fram að færa, annað var ekki í þínu fari og betur væri ver- öldin komin, ef fleiri ættum við þína líka. Vertu kært kvödd, elsku Hulda. Sólskins fagur sumardagur sinnið hressir, vermir blóð, léttir geð og lífgar gleði, lyftir huga og kveikir móð, er skýja drungi og skúra þungi skugga slær á sálu mín vonin bjarta vor í hjarta vekur, innra sólin skín. (Grímur Thomsen.) Kolbrún Úlfsdóttir ✝ Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýjan hug við andlát og útför föður okkar, afa, langafa og bróður, HARALDAR SIGURÐSSONAR frá Hjalla, Háaleitisbraut 43, Reykjavík. Ólafur Haraldsson, Þórarinn Haraldsson, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Rut Vilhjálmsdóttir, Kristmundur Þór Ólafsson, Rögnvaldur Gauti Þórarinsson, Dagrún Ása Ólafsdóttir, systkini hins látna og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð við útför JÓNS JÓNSSONAR. Guð blessi ykkur. Oktavía Hrund Jónsdóttir og fjölskylda hins látna. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför SIGURÐAR GUÐLAUGSSONAR rafvirkjameistara, Hamarstíg 36, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar FSA. Sigrún Stefánsdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir, Friðrik Bjarnason, Páll Sigurðarson, Guðrún Bergsdóttir, Friðrik Sigurðsson, Þórdís Guðmundsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR ÖSSUR GUNNARSSON, (Mummi), Hátúni 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudag- inn 30. mars kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Júlíana Sóley Gunnarsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn og vinur, HJÁLMTÝR JÓNSSON fyrrverandi símaverkstjóri, Kirkjuvegi 1B, Keflavík, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Guðmundsdóttir og fjölskyldur hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.