Morgunblaðið - 29.03.2007, Side 30

Morgunblaðið - 29.03.2007, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hansína Aðal-björg Jónatans- dóttir fæddist á Húsavík 22. maí 1925. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 3. mars síðastliðinn. Móðir hennar var Guðfinna Hans- dóttir frá Hrauni í Aðaldal og faðir Jónatan Jónasson. Móðir hennar veiktist þegar hún átti Hansínu og var Hansína tekin í fóstur 14 vikna af föðursystur sinni Sól- veigu Jónasdóttur frá Hafralæk og Vilhjálmi Jónassyni frá Síla- læk í Aðaldal. Fóstri hennar dó þegar hún var innan við ferm- ingu. Hafralækur var seldur Þórhalli Andréssyni frá Sílalæk frænda hennar og var hún þar þar til hún var fullorðin og flutti þá til Akureyrar þar sem hún vann á saumastofu. Hún fluttist til Siglufjarðar 1951 og vann við síldarsöltun, í frysti- húsi SR, á saumastofu og síðast í frystihúsi Þormóðs ramma á Siglufirði. Á Siglu- firði kynntist hún Sveini Pétri Björnssyni, f. 27. júní 1924, d. 18. desember 1998. Giftu þau sig 26. júní 1952 á Siglu- firði. Bjuggu þau lengst af á Hverf- isgötu 29 ásamt foreldrum Sveins. Foreldrar Sveins voru Björn Z. Sig- urðsson skipstjóri frá Vík í Héðins- firði og Eiriksína Kristbjörg Ás- grímsdóttir húsmóðir frá Hóla- koti í Fljótum. Hansína og Sveinn voru barnlaus en ólu upp bróðurson Sveins, Sigurð Ásgrímsson, f. 3.12. 1951, kvæntur Ingibjörgu Ósk Þor- valdsdóttur, f. 19.12. 1956, og eiga þau þrjú börn, Karen Ósk Sigurðardóttur, f. 19.8. 1979, Svein Pétur Sigurðsson, f. 20.9. 1989, og Mörtu Eiri Sigurð- ardóttur, f. 11.9. 1991. Útför Hansínu var gerð frá Siglufjarðarkirkju 10. mars, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hansína Aðalbjörg Jónatansdóttir var dásamleg manneskja. Frá henni stafaði alltaf mikil hlýja og velvilji. Hún var réttsýn og ákveðin kona sem aldrei lá á skoðunum sínum. Alltaf var hún vel að sér í þjóðfélags- umræðunni og var fljót að mynda sér sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og áttu lítilmagninn og náttúran stuðning hennar yfirleitt vísan. Gaf það Hansínu mikið að geta átt stundir úti við í náttúrunni og naut hún þess vel á meðan hún átti heilsu til að ferðast um landið, fara á berjamó, skoða fugla eða veiða. Hún hafði mikið dálæti á því að fylgjast með fuglunum og fóru þau Sveinn maðurinn hennar ófáa bíltúrana á meðan hann var enn á lífi suður í fjörð að líta eftir fuglunum. Hún þekkti allar fuglategundir með nafni og þóttu henni hávellurnar og kríurnar skemmtilegastar. Leiðin- legir þóttu henni hins vegar hett- umáfarnir sem héldu sig við Skál- arhlíð með óhljóðum. Hún Hansína var mikil veiði- og keppnismann- eskja og hélt hún oft til Héðinsfjarð- ar eða Skagafjarðar að veiða með Sveini. Ávallt ríkti mikil eftirvænt- ing hjá þeim eftir Héðinsfjarðar- ferðunum sem þau fóru mörg sum- ur. Þá tók Hansína veðrið á þriggja tíma fresti og mikill spenningur fór í að taka saman netin, stangirnar og hafa til nestið. Var þá oft glatt á hjalla með góðum vinum og ættingj- um. Hansína var sérlega fengsæl í veiði og gerðu þau Sveinn saman út lítinn bát um tíma sem þau nefndu Leif heppna. Hafa þeir eflaust verið ánægjulegir túrarnir þeirra á hon- um. Lukkan fylgdi Hansínu þó ekki einungis í veiði því hún var dæma- laust heppin í spilum, bingói og happdrættum. Kom heldur fyrir að hún lenti í vandræðum með að ráð- stafa öllum vinningunum en að hala þá inn. Hansína átti ekki alltaf sjö dagana sæla en hún glímdi við psori- asis upp úr fertugu og hafði sá sjúk- dómur djúp áhrif á sjálfsmynd henn- ar. Lá hún oft inni á Vífilsstöðum í Reykjavík að leita sér lækninga. Hansína og Sveinn bjuggu sér fal- legt og bjart heimili á Hverfisgöt- unni og var gott til þeirra að koma. Þau voru ákaflega gestrisin og aldrei vantaði kræsingarnar á eldhúsborð- ið. Var afskaplega skemmtilegt og þægilegt að vera samvistum við þau og eiga eflaust margir góðar minn- ingar um þau. Sem amma og afi voru Hansína og Sveinn ógleymanlega skemmtileg, umhyggjusöm og gef- andi. Var ævintýri líkast að dvelja hjá þeim á Siglufirði. Hansína var alltaf dugleg að minna barnabörnin sín á að fara út að skemmta sér og fannst þau sjaldnast nógu dugleg við þá iðju. Hansína var skemmtileg og góðhjörtuð kona sem aldrei lá á sín- um skoðunum og verður hennar minnst af mikilli hlýju. Við þökkum henni fyrir allar ánægjustundirnar sem við áttum með henni. Sigurður Ásgrímsson og fjölskylda. Hansína Jónatansdóttir ✝ Auður Magn-úsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1. ágúst 1947 og ólst þar upp. Hún lést 14. mars síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Magnús Ástmarsson prent- smiðjustjóri, f. 7.2. 1909, d. 1970 og Elínborg Guð- brandsdóttir hús- móðir, f. 6.8. 1913, d. 1979. Systkini: Björn Bragi, f. 6.3. 1940, d. 1963, Anna Rósa, f. 14.7. 1942, búsett í Kópavogi, Ásdís, f. 28.9. 1951, búsett í Noregi, Brynhild- ur, f. 30.4. 1953, d. 1980, og Guðbrandur, f. 20.9. 1954, bú- settur á Akureyri. Auður gekk í Melaskólann til 12 ára aldurs, en flutti þá að Sól- heimum í Gríms- nesi. Hún bjó þar til ársins 1984 er hún flutti á sam- býli í Kópavogi. Árið 1998 flutti hún af sambýli í íbúð og bjó hún í Fannborg í Kópa- vogi til æviloka. Auður vann í Plastprent í nokk- ur ár, eftir það fór hún að vinna í starfsþjálfunarstaðnum Örva í Kópavogi. Síðustu árin vann hún á Umferðarmiðstöðinni við Hringbraut. Útför Auðar Magnúsdóttur fór fram 26. mars. Látin er í Reykjavík frænka mín og jafnaldra Auður Magnúsdóttir. Við Auður hófum lífsgöngu okkar í sama húsi við Hringbraut og eyddum fyrstu árum okkar saman við leiki. Snemma kom í ljós áhugi Auðar á litlum börnum. Endalaust lékum við okkur að brúðum sem hún sinnti af mikilli natni, talaði við þær, hló með þeim og gaf þeim móðurlegar ráðleggingar. Oft lék- um við að við þóttumst vera að fara í bæinn. Þá lá leiðin út í kirkjugarð og við gengum um garðinn með dúkkuvagnana og vorum fullorðnar konur. Veturinn áður en við áttum að byrja í skóla var áhugi okkar mest- ur á því að læra að lesa. Við áttum hvor sitt eintakið af „Gagni og gamni“ og endalaust gátum við leik- ið okkur við að móta stafina með líkömum okkar, eins og sýnt var í bókinni, og þylja upp runur eins og „Sísí segir s-s-s-, s-s-s segir Sísi“. Fyrr en varði vorum við báðar orðnar læsar. Þegar að skólagöngu kom var Auður send í annan skóla vegna fötlunar sinnar. Eftir þetta smáfjarlægðumst við, náðum einhvern veginn ekki hvor til annarrar en vorum þó fermdar saman. Svo leið lífið, við bjuggum langt hvor frá annarri og ekkert samband var á milli okkar þar til fyrir sex árum að ég leitaði hana uppi og við endurnýjuðum kynni okkar. Þá fannst mér svo gaman að ennþá hafði hún þennan brennandi áhuga á litlum börnum. Rödd hennar varð svo blíð og hún fékk glampa í aug- un þegar hún sagði mér frá litlu börnunum sem hún þekkti. Hún var iðin við að ljósmynda og voru það mest myndir af litlum börnum sem hún tók. Flestar þó af frænku hennar Evu Vilhelmínu sem hún dáði mest. Auður las mikið, aðallega ástar- sögur, og var tíður gestur á bóka- safni Kópavogs og hún hafði líka mjög gaman af að horfa á íslenskar gamanmyndir sem hún átti í löngum röðum. Ekki er hægt að minnast Auðar án þess að nefna vin hennar Ólaf Hafstein. Þau hafa verið vinir í 16 ár. Óaðskiljanleg. Þessi vinátta þeirra var einstök. Ég votta Ólafi og systkinum Auð- ar samúð mína. Áslaug frænka. Auður Magnúsdóttir Stína mín elskuleg, brosandi út að eyr- um, brúnu augun tindrandi. 9 ára gömul að hitta mig í fyrsta sinn. Hún vissi um Nínu mína, nýfætt telpukríli í stigaganginum og lang- aði til að sjá angann. Bankaði því uppá hjá móðurinni og bauðst til að vaska upp! Í það skiptið hafði ég lokið uppþvottinum, en engin manneskja hefur oftar sinnt því starfi á mínu heimili en Stína. Frá þessum degi vorum við vinkonur. Raunar miklu meira en það. Stína var stelpan mín og okkar allra í fjölskyldunni. Þó við værum ekki blóðskyld henni þótti okkur ekki síður vænt um hana og henni um okkur. Næstum daglega kom hún við á leið heim úr skólanum. Mörg kvöld og flestar helgar áttum við með henni þau 13 ár sem við bjuggum í sömu blokkinni. Þegar Snorri Páll sonur okkar fæddist varð hann Stínustrákur. Hún passaði hann, elskaði og dekr- aði. Snorri var ekki hrifinn af ýs- unni í potti móður sinnar og vildi aldrei borða fisk. Hann naut þar umhyggju og ástríkis Stínu sem Kristín Guðmundsdóttir ✝ Kristín Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 28. apríl 1961. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfara- nótt 11. mars síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Bú- staðakirkju 16. mars. ævinlega vissi hvað var í kvöldmatinn hjá okkur og forðaði hnokkanum af staðn- um. Ef svo óheppi- lega vildi til að fiskur var líka á borðum heima hjá henni, fékk drengurinn kleinus- tampinn í fangið og gerði sér gott af inni- haldinu. Þegar ég átti von á næsta barni og það um líkt leyti og afmæli Stínu, varð ég að lofa henni að barnið fæddist þá. En ekki tókst mér að uppfylla þá ósk hennar þrátt fyrir góðan vilja. Það munaði 3 klst. að þau Kjartan Bergur ættu sama afmælisdag. Stína mín lagði sig þó alla fram, lá við hliðina á mér í marga klukku- tíma og brýndi fyrir mér að láta barnið ekki fæðast fyrr en eftir miðnætti, en allt kom fyrir ekki. En Stína varð nú himinsæl með strákinn þrátt fyrir rangan afmæl- isdag. Stína var bráðger, afskaplega dugleg og verklagin. Hún vildi læra alla handavinnu sem ég var með og 10 ára heklaði hún hettu- peysu á 2 ára, sem var eins og sú sem ég var að hekla á dóttur mína og vann hún verkið bæði fljótt og vel. Um veturinn taldi hún út krosssaumsmynstur í klukkustreng í mörgum litum og lauk verkinu á mettíma. Og ekki var hún gömul þegar hún kom í fyrsta postulíns- tímann. Ég er sérlega stolt af hve marga fallega muni hún málaði og hve dugleg hún var síðar, þá flutt til Danmerkur, að mála heima hjá sér þegar stund gafst til. Stína var listræn og vissi alveg hvað hún vildi. Þegar hún fermdist teiknaði hún á blað flíkina sem hún vildi sem fermingarföt, dragt með síðu pilsi. Ég sneið og saumaði og hún sá um að elda kvöldmat og passa krakkana. Við báðar himinsælar með skiptin. Stína vann líka nokkur sumur í fjölskyldufyrirtækinu okkar við framleiðslu á sælgæti og var til þess tekið þar hve dugleg og rösk hún var. Þannig var hún alla tíð. Hún fór ung í kokkaskóla, lærði á Hótel Sögu að vera smurbrauðsdama og endaði svo í Kaupmannahöfn í konditori-námi sem hún lauk auð- vitað með láði. Hún rak þar sitt eigið fyrirtæki, sá um veislur, bæði smáar og stórar, hvort sem um var að ræða kökuhlaðborð eða mat- arveislur. Stína kunni allt og gat allt. Hún var heldur enginn ný- græðingur í brauðtertum eða snittugerð því áður en hún flutti til Danmerkur rak hún Studio-Brauð í Austurveri til margra ára. Stína mín eignaðist 2 dætur, ljósin sín Sofiu Ösp og Sunnevu Katrínu. Sunneva býr í Danmörku og á 2 börn og naut Stína sín í ömmuhlutverkinu. Rudolf, tryggða- tröllið maðurinn hennar Stínu, var vafalítið gæfan stóra. Hann hefur alla tíð stutt hana í því sem hún hefur tekið sér fyrir hendur og vék ekki frá henni eftir að heim til Ís- lands kom og ljóst að hverju stefndi. Honum, dætrunum, ömmu Petu og allri fjölskyldu Stínu vottum við í fjölskyldu minni okkar dýpstu samúð. Elsku Stína var okkur svo kær og minning hennar mun lifa með okkur alla tíð. Guð blessi Stínu okkar. Kolbrún, Jón og fjölskylda. Dr. Sveinn Þórðar- son, síðast prófessor í Red Deer í Al- bertafylki í Kanada, lést hinn 13. mars sl., 94 ára gamall. Ég vil minn- ast hans með örfáum orðum. Hann var eðlisfræðikennari við Menntaskólann á Akureyri á náms- árum mínum þar á fjórða áratug síð- ustu aldar og hafði ég hann sem kennara í þeirri grein. Mér fannst kennsla hans afbragðsgóð. Hann hafði gott lag á að vekja áhuga á eðl- isfræði og fór oft út fyrir efni kennslubókarinnar í því skyni, m.a. með því að skýra fyrir okkur stjörnu- þokur í milljóna ljósára fjarlægð og hinn örsmáa furðuheim atómsins. Það var á þessum árum sem fyrstu kjarnorkusprengjurnar voru sprengdar; atburður sem vakti heimsathygli. Ekki svo fáa útúrdúra frá kennslubókinni fengum við Svein til að fara með því að spyrja hann út í Sveinn Þórðarson ✝ Sveinn Þórð-arson fæddist á Kleppi 13. janúar 1913. Hann lést á heimili dóttur sinn- ar í Red Deer, Al- berta í Kanada 13. mars síðastliðinn. Minningarathöfn um Svein var í Eventide Funeral Chapel í Red Deer þriðjudaginn 20. mars. það fyrirbæri. Varð hann ávallt ljúfmann- lega við beiðnum um það. Sveinn beitti sér fyr- ir að komið var upp til- raunastofu í eðlisfræði í kjallara menntaskól- ans þar sem færi gafst á að gera eðlisfræðitil- raunir. Það var ómet- anleg viðbót við kennslutímana. Minn- ist ég margra ánægju- stunda þar. Ég minnist líka ánægjulegrar gönguferðar bekkjar- ins á Kaldbak undir leiðsögn Sveins. Einnig í þeirri ferð gleymdi hann ekki eðlisfræðinni. Áður en gangan á fjallið hófst brýndi hann fyrir okkur að drekka eins mikið vatn og við mögulega gætum. „En þið megið alls ekki éta ís eða snjó. Til að bræða eitt kíló af ís þarf jafnmikla orku og að lyfta 75 kg manni í 454 metra hæð. Meira en helminginn af orkunni sem þarf til að koma hverju ykkar upp á Kaldbak. Sólundið ekki orku ykkar. Þið verðið nógu þreytt samt.“ Þetta var ekki þurr utanbókarlærdómur heldur hagnýt eðlisfræði. Sveinn var í senn góður lærimeist- ari og góður félagi. Blessuð sé minn- ing hans. Afkomendum hans og eftirlifandi bróður votta ég einlæga samúð. Jakob Björnsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, RAGNHEIÐUR STEINDÓRSDÓTTIR, Heiðargarði 10, Keflavík, lést á heimili sínu föstudaginn 23. mars. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 30. mars kl. 14.00. María Pálsdóttir, Steindór Róbertsson, Anna Sigríður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Lilja Steindórsdóttir, systkini og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.