Morgunblaðið - 29.03.2007, Side 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 19
Óhætt er að mæla með Lífinu – notunarregl-
um, sem Leikfélag Akureyrar og útskrift-
arhópur leiklistardeildar Listaháskóla Íslands
frumsýndu í Rýminu fyrir tæpri viku. Texti
Þorvalds Þorsteinssonar er góður og mjög
skemmtilegur, eins og við mátti búast, og tón-
list Megasar himnesk.
Fyrirgefið væmnina, en þetta er einfaldlega
yndisleg sýning …
Leikararnir í Lífinu – notkunarreglum eru
hver öðrum betri að mínu mati og í raun hlýt-
ur að mega segja að í sýningunni sé vart sleg-
in feilnóta frá upphafi til enda; höfundur, leik-
stjóri, ljósameistari, leikarar – er ég að
gleyma einhverjum? Jú, auðvitað hljóðfæra-
leikurunum. Ekki voru þeir síðri en hinir.
Það kæmi mér ekki á óvart ef Lífið yrði
enn ein sýningin á Akureyri sem slær í gegn.
Háskólinn á Akureyri fagnar 20 ára afmæli á
þessu ári. Þess verður minnst með marg-
víslum hætti og fjölmiðlafræðinemendur á
öðru ári við skólann opna t.d. í dag ljós-
myndasýningu í flugstöðinni á Akureyri. Sýn-
ingin ber nafnið Tuttugu og myndirnar eru af
20 útskriftarnemendum, þar sem sýnt er hvað
viðkomandi eru að fást við í dag.
Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrrverandi bæj-
arfulltrúi, var kjörin formaður Akureyr-
arakademíunnar (Félags sjálfstætt starfandi
fræðimanna á Norðurlandi) á aðalfundi á dög-
unum. Hún tekur við af Jóni Hjaltasyni sagn-
fræðingi sem var formaður fyrsta starfsárið.
Félagsmenn eru nú um 50 en sex fræðimenn
eru starfandi að ýmsum og ólíkum verkefnum
í gamla Húsmæðraskólanum, þar sem félagar
geta fengið aðstöðu til fræðistarfa gegn vægu
gjaldi. Með Valgerði í nýrri stjórn eru Mar-
grét Guðmundsdóttir og Hjálmar S. Brynj-
ólfsson.
Saga Capital, fjárfestingarbankinn nýi á Ak-
ureyri, hefur gengið til liðs við þau 12 ís-
lensku fyrirtæki sem áður höfðu gert sam-
starfssamning við Akureyrarbæ um
uppbyggingu og rekstur snjóframleiðslukerfis
í Hlíðarfjalli. Saga kallast því Vinur Hlíð-
arfjalls eins og hin.
Farfuglarnir tínast nú til landsins og í gær-
morgun kom útsendari vefsíðu Akureyr-
arbæjar auga á fyrstu tjaldana í fjörunni við
Leiruveginn. „Þeir voru tveir saman og nokk-
uð varir um sig en leyfðu þó góðfúslega
myndatöku fyrir Akureyri.is,“ segir á síðunni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Yndisleg sýning Þorvaldur Þorsteinsson og
Megas fyrir frumsýninguna í Rýminu.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Þ að er skemmtilegt að lesaræður og greinar Guðmundar
skálds á Sandi, enda kennir þar
margra grasa. Á einum stað fjallar
hann um húsganga. Þeir sverja sig í
ætt þjóðsagna vorra þannig, að
segja má, að alþýðuandinn sé faðir
þeirra og þjóðarsálin móðir. Hann
byrjaði á þessari braghendu, sem
hann kallar barnagælu, og á vel við
nú þegar fyrstu lóurnar eru
komnar til landsins:
Blessuð lóan syngur sætt og segir
dýrðin.
Það er hennar þakkargjörðin,
þegar hún kemur hér í fjörðinn.
Guðmundur segir, að enga vísu
hafi hann heyrt oftar kveðna þegar
hann var barn og að engin vísa hafi
verið sér kærari. Hún var tónuð
vetur, sumar vor og haust og fylgdi
sú skýring, að lóurnar færu alls eigi
af landi burt – þær lægju í dái yfir
veturinn í klettaskorum.
Vísan um Höllu kerlingu og
fífukveikinn hefur fengið á sig
vængi tónlistar:
Ljósið kemur langt og mjótt,
logar á fífustöngum.
Halla kerling fetar fljótt
framan eftir göngum.
Höfundur þessarar vísu hefur
sundriðið vegna stúlku:
Reið ég Grána yfrum ána,
aftur hána færðu nú;
ljós við mána teygði hann tána,
takk fyrir lánið, hringabrú!
Auðnuleysið stafar af því, að
þessi skáld, sem áttu enga úrkosti
til fjár eða frama, lifðu við kjör
Lazarusar – sátu á rangri hillu.
Hugur þeirra hvarflaði í aðra átt en
bjargálna fólks:
Oft eru skáldin auðnusljó,
af því fara sögur.
Gaman er að geta þó
gert ferskeyttar bögur.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Eldgamlar vísur
í umbúðum
vaxtaauki!
10%
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
0
0
1
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
ER KOMINN!
Qashqai er glænýr tímamótabíll frá Nissan. Þessi borgarjeppi
sem beðið hefur verið með þvílíkri eftirvæntingu á Íslandi á eftir
að koma verulega á óvart, enda helsti tískubíllinn í evrópskum
borgum. Qashqai sameinar eiginleika töff borgarbíls og
harðsnúins fjallajeppa.
Qashqai – allt á einu bretti.
KOMDU OG REYNSLUAKTU
Nissan Qashqai
Verð frá 2.550.000 kr.