Morgunblaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn GRETTIR, ÉG ER FASTUR Í HANDKLÆÐAHENGINU! ENGAR MYNDIR! ÉG ÆTLA BARA AÐ TAKA EINA TIL ÞESS AÐ SETJA Á NETIÐ ERTU ENNÞÁ FÚL ÚT Í LÚLLA? NEI, ÉG ER MEÐ LÍFSSPEKI SEM KEMUR Í VEG FYRIR ÞAÐ LÍFSSPEKI MÍN HEFUR STAÐIST TÍMANS TÖNN, ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞAÐ SÉ ERFITT AÐ SKILJA HANA... LÍFSSPEKI SEM HEFUR VERIÐ STYRKT Í LOGANDI ELDI LÍFSBARÁTTUNNAR... LIFÐU OG LEYFÐU AÐ LIFA Ferdinand KOSNINGAR. MEÐ HVERJUM BÝÐUR ÞÚ ÞIG FRAM? HVAÐ ÁTTU VIÐ? ÞÚ GETUR AUÐVITAÐ EKKI NÁÐ KJÖRI ÁN ÞESS AÐ HAFA MÖMMU ÆTLAR ÞÚ AÐ HALDA ÞIG VIÐ MÖMMU MÍNA EÐA ÆTLAR ÞÚ AÐ FINNA ÞÉR NÝJA? HMM FARÐU AÐ SOFA AUÐVITAÐ HELD ÉG MIG VIÐ ÞESSA ÆI! ÞAÐ ERU AÐ KOMA ÞAÐ ER ENGIN LEIÐ AÐ ÚTSKÝRA ÞAÐ HVERNIG KONUR HUGSA ÉG SKIL ÞIG EKKI ALVEG... GETUR ÞÚ NOKKUÐ ÚTSKÝRT ÞETTA AÐEINS FYRIR MÉR GRÍMUR, HVAÐ ERTU AÐ GERA Í RUSLINU... ÞEGAR ÞAÐ ER SKÁL FULL AF HUNDAMAT HÉRNA! ÉG BORÐA EFTIR- RÉTTINN ALLTAF FYRST! MIKIÐ ERTU ÞREYTULEG, ADDA ÉG HEF ÁTT ERFITT MEÐ AÐ SOFA UNDANFARIÐ ÞETTA KEMUR LÍKA STUNDUM FYRIR MIG. PRÓFAÐU AÐ FARA Í BAÐ, GERA SLÖKUNARÆFINGAR EÐA DREKKA KAMILLUTE ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ AÐ SOFA MM HM... OG EKKI LEGGJA ÞIG Á DAGINN! AUÐVITAÐ EKKI... MIG GRUNAR STERKLEGA AÐ LÆKNIRINN SÉ MEÐ EITTHVAÐ VAFASAMT Á PRJÓNUNUM EN ÞAÐ ER EITT SEM ÉG VEIT... ÞESSIR SPÍTALA- SLOPPAR ERU EKKERT SÉRSTAKLEGA HLÝIR dagbók|velvakandi Getum við hjálpað? ÁSTA Lovísa Vilhjálmsdóttir er ung kona, aðeins 30 ára gömul, ein- stæð móðir með þrjú ung börn. Hún er að berjast við krabbamein. Hún hefur fengið þær erfiðu fréttir að lyfin sem hún er á í dag geri ekki það gagn sem læknar von- uðust til. Eina von hennar núna sé að komast til New York og fara þar í lyfjameðferð. Þessi meðferð erlendis kostar mikla peninga og því hafa ætt- ingjar Ástu Lovísu stofnað reikn- ing henni til styrktar. Er það von þeirra að fólk leggi henni lið í erf- iðri baráttu. Reikningsnúmerið er: 0525-14- 102510, kt. 090876-5469. Bloggsíða: 123.is/crazyfroggy. Ómar vill ekki komm- unistastimpil á nýja flokkinn EINN af þessum nýju flokkum sem ætla sér að koma manni á þing 12. maí segist vera grænn í gegn, og kennir sig við Ísland. Nú hefur farið fram skoðanakönnun sem sýnir að 25% Vinstri grænna (kommanna) segjast myndu kjósa nýja flokkinn, betra að kjósa græna litinn hjá Ómari en komm- unum. Karl Ormsson, fv. deildarfulltrúi. Fúl á móti ALLTAF verð ég jafnfúl þegar ég lendi í því að ætla að staðgreiða og fyrir vikið þarf ég að borga meira en ef ég borgaði með kreditkorti. Ætlaði að kaupa ferð fyrir okkur vinkonurnar hjá Sumarferðum. Fór í það að bóka, er orðin það tækni- vædd að ég get notað Netið. Vildi greiða inn á reikning hjá þeim en þá þurfti ég að borga, ef ég man rétt, 3.000 kr. auka pr. mann, fyrir að staðgreiða, því þau þurftu að bóka ferðina sjálf því eingöngu er hægt að greiða með kreditkorti á Netinu. Grautfúlt. Vildi þá hafa greiðsluna á tveimur kortum, en hún varð að vera á einu korti. Þetta finnst mér fúlt og datt mér sérstaklega eldra fólkið í hug sem kann ekki á tölvur. Nú þetta er sjálfsagt svona hjá öllum ferða- skrifstofunum en mér finnst þetta neikvætt að staðgreiðsla skuli ekki vera metin meira í dag. Sólarlandafari. Hálsmen tapaðist GULLHÁLSMEN tapaðist við Hamraborgina, nálægt Kína- nuddstofunni, föstudaginn 23. mars. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 891-6855 eða 892-1003. Míkrafónn í óskilum MÍKRAFÓNN tapaðist á Mar- argötu miðvikudagskvöldið 21. mars. Þetta er alveg nýr Sure- míkrafónn með langri snúru og var í svörtum taupoka. Fundarlaun. Vinsamlegast hafið samband við Ríkharð, s. 863-0180. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is HILDUR Pétursdóttir flytur erind- ið Fæðutengsl milli rauðátu og efri þrepa í sjó föstudaginn 30. mars kl. 12.30. Erindið verður flutt í fundarsal á fyrstu hæð Hafrannsóknastofn- unar, Skúlagötu 4, og eru allir vel- komnir. Kynntar verða niðurstöður úr meistaraverkefni Hildar Péturs- dóttur þar sem könnuð var fæðu- vistfræðileg staða og tengsl al- gengra úthafs- og uppsjávartegunda á Reykjanes- hrygg í júní 2003 og 2004. Kann- aðar voru 6 algengar tegundir í út- hafinu, krabbaflóin rauðáta, ljósátan náttlampi, rækjan lang- halarækja og þrjár tegundir mið- sjávarfiska, þ.e. ísalaxsíld, norræna gulldepla og úthafskarfi. Rauðáta og efri þrep í sjó ÍSLANDSMÓT barnaskólasveita 2007 fer fram dagana 31. mars og 1. apríl nk. og hefst kl. 13.30 báða dagana. Teflt verður í hús- næði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verða níu umferðir, umhugsunartími 20 mín. á skák fyrir hvern kepp- anda. Keppt er í fjögurra manna sveitum (auk varamanna). Kepp- endur skulu vera fæddir 1994 og síðar. Sigurvegari í þessari keppni mun öðlast rétt til að tefla í Norðurlandamóti barna- skólasveita, sem haldið verður í Svíþjóð í haust. Nánari upplýs- ingar er hægt að fá á skrifstofu Skáksambands Íslands alla virka daga kl. 10–13 í síma 568-9141. Skráning fer fram í sama síma og tölvupósti, siks@simnet.is Íslandsmót barnaskóla- sveita í skák STOFNUN Vigdísar Finn- bogadóttur í samvinnu við Al- þjóðahúsið efnir til málþings um stöðu innflytjenda á vinnumark- aðnum með tilliti til tungumála- kunnáttu, föstudaginn 30. mars kl. 14 í Öskju. Frummælendur eru: Gauti Kristmannsson, dósent í þýð- ingafræðum, Barbara J. Krist- vinsson, ráðgjafi hjá Alþjóðahúsi og Halldór Grönvold, aðstoð- arframkvæmdastjóri ASÍ. Fundarstjóri er Laufey Erla Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, og umræðum stýrir Sólveig Jón- asdóttir, verkefnastjóri hjá Al- þjóðahúsi. Málþing um tungumál og atvinnulífið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.