Morgunblaðið - 03.04.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
ÞAU 25 íslensku félög sem skráð eru
á markað hér eru nú komin á að-
almarkað OMX Nordic Exchange og
verða um leið hluti af samnorrænni
kynningu sænskra, finnskra og
danskra félaga sem skráð eru á að-
almarkað Nordic Exchange. Þá
verða þau jafnframt hluti af norræn-
um vísitölum OMX.
Blað brotið
Á slaginu klukkan tíu í gærmorg-
un hringdi Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra bjöllu í húsakynnum
Kauphallar Íslands þessu til stað-
festingar. Árni sagði blað brotið með
þessari breytingu, áhugi á íslensk-
um félögum og efnahagslífi erlendis
hefðu vaxið hröðum skrefum. Ís-
lenskir fjárfestar hefðu farið mikinn
erlendis en nokkuð hafi skort á er-
lenda fjárfestingu á hlutabréfamark-
aðinum hér heima og sagðist Árni
gera sér vonir um að breyting yrði
þar.
Jukka Ruuska, forstjóri OMX
Nordic Exchange, lýsti yfir ánægju
með að íslensku félögin væru nú
komin inn á samnorrænan hluta-
bréfamarkað. Sagði Ruuska það
myndu verða til þess að auka mjög
sýnileika íslensku félaganna og þá
vonandi um leið viðskipti með bréf
þeirra; Ruuska sagðist raunar ekki
efast um það að væri mjög eftirsókn-
arvert fyrir íslensk félög að vera á
hinum samnorræna lista OMX. Þá
kom einnig fram í máli Ruuska að
OMX Nordic Exchange myndi einn-
ig taka til norskra fyrirtækja þegar
fram líða stundir en norska kaup-
höllina er ekki hluti af OMX-fjöl-
skyldunni.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
OMX á Íslandi, sagðist eiga von á því
að veltan á markaðinum hér héldi
áfram að aukast og verðmyndun á
markaðinum myndi dýpka enn frek-
ar; það hefði reyndar þegar gerst
með fækkun félaga og hlutfallslega
mörgum stórum félögum hér í sam-
anburði við hin Norðurlöndin.
Afleiðumarkaður
„Á næstu mánuðum reiknum við
með að alþjóðlegir fjárfestingabank-
ar muni taka þátt í viðskiptum frá
degi til dags. Það mun treysta verð-
myndun enn frekar og gott að fá inn
erlenda aðila sem eru kannski með
önnur viðhorf og sjónarmið en fjár-
festar hér heima. Í þriðja lagi má
nefna að það stendur fyrir dyrum að
stofna afleiðumarkað hér á landi í
maí og afleiðumarkaður felur í sér að
það verða fleiri tækifæri til þess að
veðja á hvort markaðurinn hækki
eða lækki. Það er mikilvægt fyrir
markaðinn að það séu sem fjöl-
breyttust sjónarmið sem geti komist
að og þannig treyst verðmynd-
unina.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Klukkan glymur Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX á Íslandi, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Jukka
Ruuska, forstjóri OMX Nordic Exchange, slógu í sameiningu inn nýjan tíma á íslenskum hlutabréfamarkaði.
Verðmyndun dýpkar
á Íslandi með OMX
3! 4 &
& &4.0 567 8!)91 !
#*
+ "&+
2#
4(
- 5&12#
#
4
2#
(
( 46
(&
6
(&
5&12#
7
-/5&12#
+5&12#
5 ( 8
2#
9#: 1
#3
!
"
10 !8
2#
+
8
2#
*
2#
*&
4
2 & 2#
(
;7
..#82#
<2#
- * % .$
:= (
2#
!
5&12#
>4
5&19& !2#
>4
45&12#
?@2
2#
A*B 7
C
D 2#
CD!! !
(/ 2#
E (/ 2#
/
$
$ .(#3
!
-#
# 0! % 1
975
2#
9
1
2#
2$"
)
)
)
)
)
)
) )
)
)
)
)
) )
)
)
)
)
)
)
*
)
)
)
)
)
)
. )# / !
0
0
10
0
1%0
0
0
1 0
1 0
+0
1 0
0
0
0
10
0
%0
1 0
1 0
0
1
10
1 0
0
0
0
0
9
- 1(
! C 8&,&
!F
"
1
;
;
;
;
;
;
;
;
;
E 1( , ) C9G (2!
( /
- 1(
;
;
;
;
;
;
;
A*B A*B
+)
,
)
H
H
A*B 67B
+)
,)
H
H
I&JK&
?
L
,)
)
H
H
I B
,)
,)
H
H
A*B7
A*B0
,)
,)
H
H
● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi
stóð því sem næst í stað í gær og
endaði í 6.794 stigum. Gengi bréfa
Atlantic Petrolium hækkaði um
5,3%, gengi bréfa Exista um 1,1% og
bréfa Flögu um 0,4%. Gengi bréfa
Tryggingamiðstöðvarinnar lækkaði
um 1,3% og bréfa Teymis um 1,2%.
Krónan veiktist um 0,55% í gær.
Evran kostar 88,4 krónur, pundið
130,8 og dalurinn 66,1.
Litlar breytingar
ÞETTA HELST ...
● VERÐBRÉFAFYRIRTÆKIÐ Glitnir
Securities, dótturfélag Glitnis í Nor-
egi, hefur reynt að fá til sín starfs-
menn frá DnB
NOR Markets og hefur boðið þeim
allt að 200 milljóna íslenskra króna
eingreiðslu fyrir að færa sig yfir til
Glitnis Securiteis.
Þetta er fullyrt á vef Finansavisen
og fylgir sögunni að haldinn hafi ver-
ið neyðarfundur í húsakynnum DnB
Nor á Akersbryggju í Ósló vegna
málsins og í framhaldinu hafi verið
ákveðið að bjóða nokkrum þeirra
sérfræðinga og verðbréfasala, sem
Glitnir bauð í, 55 til 110 milljónir ís-
lenskra króna fyrir að vera kyrrir og
binda sig til eins árs.
Haft er eftir Karl Otto Eidem, fram-
kvæmdastjóra Glitnir Securities, að
þrír nýir starfsmenn muni hefja störf
hjá fyrirtækinu.
Glitnir sagður bjóða í
starfsmenn DnB NOR
KAUPÞING banki hefur enn aukið
við hlut sinn í norska tryggingafyr-
irtækinu Storebrand og á nú vænt-
anlega liðlega 14% hlut í félaginu.
Þetta kemur fram í frétt á vef Nær-
ingsliv en þar segir að Kaupþing hafi
keypt umtalsvert af bréfum í Store-
brand í síðustu viku og á nýjum lista
megi sjá að Kaupþing banki og dótt-
urfélagið Arion Custody eigi saman-
lagt 16,02% í Storebrand; líklegt sé
að af þessum 16% eigi Kaupþing
sjálft rúm 14%.
Fyrir tæpum hálfum mánuði
keypti Kaupþing bréf í Storebrand
fyrir tæpa fimm milljarða íslenskra
króna og átti þá rúmlega 10% hlut en
skömmu áður hafði Kaupþing fengið
heimild norska fjármálaeftirlitsins
til að auka hlut sinn í allt að 20%.
Meira í Storebrand