Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 11 FRÉTTIR EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Bruna- bótafélag Íslands (EBÍ) hefur gef- ið út bæklinga um grunnatriði eldvarna á sjö erlendum tungu- málum, auk íslensku. EBÍ býður slökkviliðum landsins bæklingana til notkunar án endurgjalds og eru þeir þegar komnir í talsverða dreifingu víða um land. Efnið er ætlað innflytjendum og útlendingum sem búa og starfa hér á landi um lengri og skemmri tíma. Bæklingarnir eru tveir og í þeim er fjallað um reykskynjara, flótta úr brennandi íbúð, slökkvi- tæki og fleiri grunnatriði eld- varna á heimilum. Þá er fjallað um neyðarnúmerið, 112, og Hjálparsíma Rauða krossins en Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði áður gefið efnið út í sam- vinnu við 112 og Rauða kross Ís- lands. Alþjóðahúsið þýddi efnið á ensku, pólsku, rússnesku, lithá- ísku, spænsku, taílensku og serb- nesku. EBÍ vill með útgáfu bækling- anna tryggja að stór slökkvilið sem smá geti brugðist við breytt- um aðstæðum og veitt nýjum íbú- um sveitarfélaganna upplýsingar sem stuðla að auknu öryggi þeirra, segir í fréttatilkynningu. Eldvarnir á sjö tungumálum ÁRSFUNDUR Landspítala – há- skólasjúkrahúss verður haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ í dag, fimmtudaginn 26. apríl 2007, kl. 14.00 til 16.30. Fundurinn er öllum opinn. Auk hefðbundinna starfa á ársfundi verður fjallað um sér- greinar á LSH, afhentur styrkur úr verðlaunasjóði í læknisfræði og starfsmenn verða heiðraðir. Kunn- ur áhrifamaður í heilbrigðisþjón- ustu í Bretlandi, Sir Michael Rawl- ins, flytur fyrirlestur um forgangs- röðun í heilbrigðisþjónustu þegar fjármunir eru af skornum skammti. Fyrirlestur hans hefst upp úr kl. 15.30. Beint vefvarp verður frá ársfundinum á www.landspitali.is. Beint vefvarp af ársfundi LSH Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Strandgata 32, Hafnarfirði Sími 555 2615 ÞRÝSTNAR OG HÁGLANSANDI VARIR WANTED GLOSS Demi Moore er með lit nr. 09 Sumargleði VIRÐISAUKINN AF LANCÔME, HELENA RUBINSTEIN OG BIOTHERM fim. 3. og fös. 4. maí. Ath. langur fimmtudagur. i i i Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Stærðir 40-52 Vor - Sumar 07 kynningardagar 26. apríl-5. maí fjallaland.is Til sölu glæsilegar lóðir á einu eftirsóttasta sumarhúsasvæði landsins! Upplýsingar á www.fjallaland.is og í síma 893 5046. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Sumartilboð 15% afsláttur af öllum yfirhöfnum www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00 Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Vorum að fá í einkasölu glæsilega rúmgóða 102 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í litlu lyftuhúsi, ásamt stæði í upphituðu bílskýli (innangengt úr sameign). Tvennar flísal. suðvestursvalir (í stofu og hjónaherb.) Þvottaherb. í íb., Góðar eikarinnréttingar, eikarparket á gólfum. Laus við kaupsamning. Rólegur eftirsóttur staður. V. 25,5 millj. Opið hús í dag fimmtudag frá kl. 18-21. Jóhann tekur á móti áhugasömum. Sími 588 4477 Þorláksgeisli 1. íbúð 020 Glæsileg ný fullb. íb. í lyftuhúsi Opið hús í dag frá kl. 18-21 Flísabúðin hf. auglýsir Í dag milli kl: 14:00 og 17:00 verður Hr. Winfried Schuster frá PCI Augsburg Þýskalandi, í versluninni að Stórhöfða 21 og veitir faglega ráðgjöf, m.a. hljóðeinangrandi flotefni, epoxy fúgur o.fl. efni. Stórhöfði 21. S:545-5500 www.flis.is KAFARAR Landhelgisgæslunnar fundu sprengikúlur í höfninni við Faxagarð síðdegis í gær. „Þær eru óvirkar, þetta eru sprengjur sem eru í flutningsumbúðunum,“ sagði Sigurður Ásgrímsson, sprengju- sérfræðingur hjá gæslunni. „Þær hafa sennilega dottið hérna í höfn- ina við uppskipun á stríðsárunum.“ Oft hefur verið kafað á svæðinu en ekki orðið vart sprengnanna fyrr. „Mér sýnist að einhver breyt- ing hafi orðið á hérna í höfninni, hrunið hérna úr kantinum,“ sagði Sigurður um líklega skýringu þess að sprengjurnar komu nú í ljós. Engin hætta stafaði af sprengj- unum en Sigurður segir þó sprengi- efni alltaf geta sprungið ef það verði fyrir einhverju hnjaski eða miklu höggi. „Meginreglan hefur þess vegna verið hjá okkur að farga alltaf sprengjum og við munum trú- lega eyða þessum á morgun [í dag],“ sagði hann en bætti við að þegar hefði verið fjarlægður sá hluti sem gæti komið sprengingu af stað. Sprengjum er stundum fargað neðansjávar eða farið er með þær á æfingasvæði gæslunnar á Reykja- nesi eða við Stapafjall þegar á að eyða þeim. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Sprengja Tímakveikja sem gæslan fann í höfninni við Faxagarð í gær. Sprengjur í höfninni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.