Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 16

Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING MUNNLEG hefð og eddu- kvæði er yfirskrift þemakvölds á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi sem fer fram í kvöld kl. 20 í húsi Sögufélagsins við Fisc- hersund. Þar munu Frog, doktorsnemi við University College, Lund- únum og Gísli Sigurðsson, rann- sóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar, fjalla um eddukvæði sem vitnisburð um lifandi hefð munnlegs kveðskapar. Leitast verður við að gefa innsýn í þá munnlegu hefð sem liggur að baki varðveittum eddukvæðum og eddukvæðabrot- um. Allir velkomnir. Fyrirlestur Munnleg hefð og eddukvæði Gísli Sigurðsson KARLAKÓRA- STARFIÐ blómstrar um þessar mundir. Karla- kórinn Þrestir er með vortónleika sína í Víði- staðakirkju kl. 20 í kvöld, fimmtudag, og á laug- ardaginn kl. 16 í Graf- arvogskirkju. Efnisskrá kórsins er einstaklega fjölbreytt og vorleg. Karlakór Reykjavíkur heldur líka vortónleika sína í kvöld, 26. apríl, í Langholtskirkju kl. 20 og á laugardaginn, einnig í Langholtskirkju, kl. 16. Efnisskrá þeirra er norræn og eru þjóðlög áber- andi. Á tónleikunum tekur kórinn í notkun nýjan kórbúning, byggðan á gömlum hefðum. Tónleikar Karlakórar fagna vori með tónleikum Karlakór Reykjavíkur LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur sýnir einþáttunga og leiklestra í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld undir yfirskriftinni „Þetta mánaðarlega“. Þættirnir sem sýndir verða að þessu sinni eru „Fyrir“ eftir Hrefnu Friðriksdóttur, „Þriðjudagskvöld“ eftir Þór- unni Guðmundsdóttur, og „Eigin raun“ og „Þriðji dag- urinn“ eftir Sigurð H. Pálsson. Auk þess verða leiklesin valin atriði úr nokkrum leikrita Hugleiks frá fyrstu árum félagsins. Húsið opnar kl. 20:30 og sýningar hefjast kl. 21:00. Miða- verð er 1000 kr. Leiklist Hugleikur sýnir fjóra einþáttunga Sigurður H. Pálsson Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir greindi frá gjörningi sínum á blaðamanna- fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Gjörningurinn, sem verður við Reykja- víkurtjörn næstkomandi laugardag, ber yfirskriftina „Tökum höndum saman, við þurfum hvert á öðru að halda“ og byggir á þátttöku almenn- ings. Hugmyndin er sú að fólk taki höndum saman og myndi hring, óháð stétt og stöðu, augnlit eða útliti almennt, og horfist í augu við sjálft sig. Morgunblaðið/Ásdís Líf og list án landamæra BLAÐAMAÐ- URINN og rit- höfundurinn David Halbers- tam lést í um- ferðarslysi í fyrradag í San Francisco, 73 ára að aldri. Halbers- tam var vel þekktur fyrir störf sín og vann m.a til Pulitzer Prize-verðlauna árið 1964. Halberstam steig fram á ritvöll- inn 1962 þegar hann hóf að skrifa um Víetnamstríðið fyrir The New York Times. Hann kom upp um ýmsa spillingu á bak við stríðið og fyrir þann fréttaflutning vann hann Pulitzer-verðlaunin. Átta árum síð- ar skrifaði hann bók um það hvers vegna Bandaríkjamönnum mistókst í Víetnam undir heitinu The Best and the Brightest. John F. Kennedy Bandaríkja- forseti var svo reiður yfir stríðs- skrifum Halberstam að hann bað ritstjóra The Times að hann yrði færður til í starfi en svo var ekki. Halberstam skrifaði yfir tuttugu bækur, m.a eina um Kóreustríðið og aðra sem var rannsókn á banda- rískum stjórnmálum á níunda og tí- unda áratug seinustu aldar, bókina War in a Time of Peace: Bush, Clin- ton and the Generals. Halberstam var fæddur 1934 í New York, hann útskrifaðist úr Harvard 1955 og stefndi alltaf að skriftum. Hann var giftur rithöf- undinum Jean Sandness. Umdeildur blaðamaður látinn Vann til Pulitzer Prize-verðlauna árið 1964 David Halberstam VERÐMÆTIN leynast víða. Í næsta mánuði munu verða boðin upp í Lundúnum gömul auglýsingaplaköt sem héngu á neðanjarðarlesta- stöðvum þar í borg. Talið er að þau geti farið á um 1.200 pund hvert. Á plakötunum er verið að auglýsa frí í borginni, t.d er fólk hvatt til að heimsækja vor- blómin í Hampton Court. 166 plaköt verða seld úr einka- safni og eru sögð listaverk hvert og eitt og marka liðinn tíma. Gömul plaköt á uppboði HÁTÍÐIN List án landamæra verð- ur sett með pomp og prakt kl. 17 í dag, í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hátíðin er haldin í fjórða sinn og er orðin ár- viss viðburður á menningardagatali Íslendinga. Framkvæmdastýra há- tíðarinnar, Margrét M. Norðdahl, segir markmið hátíðarinnar að brjóta niður múra og koma á samstarfi milli ólíkra hópa. Á hátíðinni verða list- viðburðir og sýningar á verkum fatl- aðra, sem hafa unnið þau bæði sjálf- stætt og í samstarfi við aðra sem ekki eiga við fötlun að stríða. ,,Hún er svolítið að sprengja utan af sér rammann, hún gæti orðið enn stærri á næsta ári,“ segir Margrét um hátíðina. Hún verði sífellt meira áberandi menningarviðburður á land- inu og opni vonandi dyr fyrir sýn- endur að listalífinu almennt og þá án formerkja fötlunar. Laugardaginn næstkomandi verð- ur tilkomumikill gjörningur Kol- brúnar Daggar Kristjánsdóttur framinn við Reykjavíkurtjörn. Þar mun fólk safnast saman og mynda hring í kringum tjörnina, sem er um 1 km að ummáli. Áhugasamir eru hvattir til að mæta kl. 13 og verða leiðbeinendur á svæðinu til að stjórna gjörningnum. Klukkan 14 ganga menn svo hönd í hönd einn hring í kringum tjörnina. „Það getur oft verið erfitt að horf- ast í augu við sjálfan sig og lífið,“ seg- ir Kolbrún, en hún glímir við ógreind- an vöðvasjúkdóm. Hún telur mikilvægt að almenningur taki þátt í gjörningnum. „Við þurfum að byrja á okkur sjálfum, okkar fordómum og geta horfst í augu við náungann, tekið honum eins og hann er,“ segir Kol- brún, um merkingu gjörningsins. Fólk sé gjarnt á að hólfa fólk niður, setja það í kassa, svo að segja, og þá ekki síst fatlaða. Hringurinn hjálpi mönnum að brjótast út úr kassanum. Að listahátíðinni standa Lands- samtökin Þroskahjálp, Fjölmennt, Átak, Öryrkjabandalag Íslands og Hitt húsið. Frítt er á alla viðburði há- tíðarinnar. Henni lýkur 16. maí með lokahátíð sem slegið verður saman við árshátíð Fjölmenntar. „Oft á tíðum erfitt að horfast í augu við sjálfan sig“ Í HNOTSKURN »Fleiri viðburðir eru á há-tíðinni í ár en í fyrra eða 25 alls. Flestir þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu. » Í boði er myndlist, stutt-myndir, leiklist, tónlist, ljóðlist, dans og söngur. »Hátíðin stendur til 16. maí.Nánar má lesa um hana og ná í dagskrá hátíðarinnar á Netinu. Slóðin er www.list- anlandamaera.blog.is. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ♦♦♦ ÞAÐ ER ekki oft sem leikhúsgestir eru beðnir um að taka með sér teppi þar sem kalt geti orðið á meðan á sýningu stendur. En það er þó gert fyrir þrjár sýningar þýska leikhóps- ins Das Letzte Kleinod (Síðasti fjár- sjóðurinn) á verkinu Cod War, eða Þorskastríðið, í Fiskmarkaðnum í Hafnarfirði. Fiskmarkaðurinn er ekki upphit- aður, enda sjálfsagt ekki verið byggður með leiksýningar í huga og heldur óvenjulegur sýningarstaður. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar verkið um þorskastríð Breta og Íslendinga árið 1977. Höfundur og leikstjóri verksins, Jens Siems- sen, ferðaðist í fyrra til Íslands og Cuxhaven og ræddi við fyrrum sjó- menn, skipstjóra og hafnarverði sem upplifðu þorskastríðið. Þau viðtöl eru uppistaða verksins. Dröslast með níðþungt net Verkið hefur þróast í höndum ís- lenskra og þýskra leikara og hefur þegar verið sýnt í fyrrum netaverk- smiðju í Cuxhaven. Bryndís Bragadóttir, eini íslenski leikarinn í verkinu, segir Siemssen hafa sérhæft sig í að búa til sýningar sem fjalli um raunverulega, liðna at- burði. „Hann tengist sjálfur mjög sterkt sjónum og verkefni hans hafa hingað til fjallað töluvert mikið um sjóinn. Þegar hann er búinn að finna viðfangsefnið finnur hann sýning- arstaði, velur staði utan- sem innan- dyra sem eru í sinni upprunalegustu mynd og tengjast viðfangsefninu beint,“ segir Bryndís. Eini leik- munur sýningarinnar er 85 kg þungt net, sem leikarar þurfa að dröslast með í sýningunni. „Þegar við erum búin að kynnast rýminu, netinu og finna hvað við get- um gert við þetta net, hvernig við getum breitt úr því og rúllað því upp og hvaðeina, þá fáum við texta. Eitt og eitt viðtal. Svo vinnum við myndir úr þessum texta,“ segir Bryndís og á þar ekki við myndir í bókstaflegum skilningi. „Við búum til skip, við er- um fiskar, sjómenn og þar fram eftir götunum.“ Bryndís segir leikstjórann og höf- undinn einan hafa migið í saltan sjó. Leikararnir hafi verið látnir vinna einn dag á vinnustöðum sem tengj- ast fiskveiði. Hún hafi sjálf unnið í saltfiski. Bryndís segir leikhópinn mjög ná- inn. „Við vinnum saman og búum saman, bjuggum saman í lest sem leikstjórinn og leikhúsið á.“ Á hún þar við lestarvagn sem stendur við hafnarbakka í Cuxhaven, og sjá má myndir af á vefsíðu leikhópsins, www.das-letzte-kleinod.de. Þorskastríðið verður sýnt 27, 28. og 29. apríl, kl. 20. Verkið er flutt á íslensku, þýsku og ensku. Þorskastríð í fiskmarkaði Þorskur Þrír leikarar úr Das Letzte Kleinod í sjóklæðum. STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2007-2008. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 1. júní nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.