Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 18

Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Kópavogur | Rótarýklúbbur Kópavogs hefur veitt árlega viðurkenningu klúbbsins, Eldhug- ann. Að þessu sinni hlaut Anna Bjarnadóttir húsmóðir viðurkenn- inguna fyrir störf að félags- og mannúðarmálum, en hún er 87 ára. Anna hefur búið í Kópavogi í meira en hálfa öld og tekið þar mjög virkan þátt í félagsstörfum frjálsra félagasamtaka, einkum Kvenfélags Kópavogs og Rauða- krossdeildar Kópavogs. Þar hefur hún lagt fram ómetanlegt félags- starf í þágu samborgara sinna og fátækra barna í þróunarlöndum. Hún sá m.a. um leikfimitíma í 25 ár á vegum Kvenfélags Kópavogs auk margháttaðra annarra félags- starfa, að því er fram kemur í greinargerð með útnefningunni. Árið 1984 mætti hún á fyrsta fundi sjálfboðaliða á vegum Rauðakrossdeildar Kópavogs, sem hófu sjúkravinastörf í Hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð sem þá var nýtekið til starfa. Alla tíð síðan eða í 23 ár hefur hún starfað í þessum sjúkravinahópi. Auk þess beitti hún sér fyrir samstarfi Kvenfélags Kópavogs og Rauða- krossdeildarinnar um að mynda starfshópa til að prjóna og sauma föt á fátæk börn í þróunarlönd- unum. Anna hefur haft frum- kvæði og haft umsjón með þessu starfi sl. 16 ár, skipulagt það og fengið fleiri til samstarfs. Á síðustu árum hefur þetta verkefni fengið nafnið „Föt sem framlag“ og hefur framleiðslan beinst að því að útbúa pakka með peysu, treyju, húfu, sokkum, teppi, handklæði og bleium fyrir börn á aldrinum 0–1 árs í þróun- arlöndum. Hafa þannig verið út- búnar þúsundir slíkra barnapakka í Kópavogi sl. hálfan annan ára- tug undir ötulli forustu og umsjón Önnu. Hún hefur lagt hluta af eigin húsnæði undir þessa starf- semi auk eigin orku og hugvits sem hún hefur lagt fram ómælt í þetta góða verkefni og er enn að. Viðurkenning til 86 ára eldhuga Morgunblaðið/Ásdís Viðurkenning Forseti Rótarýklúbbs Kópavogs, Þórir Ólafsson, og formað- ur viðurkenningarnefndar, Haukur Hauksson, færa Önnu Bjarnadóttur glerlistaverk eftir Ingu Elínu og blómvönd í tilefni útnefningarinnar. Garðabær | Í tilefni af 40 ára af- mæli Skátafélagsins Vífils undirrit- uðu Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, og Helgi Grímsson, fé- lagsforingi Vífils, viljayfirlýsingu um samstarf við uppbyggingu á úti- lífsmiðstöð Garðabæjar í Heiðmörk laugardaginn 21. apríl sl. Skátafélagið Vífill hélt þá form- lega upp á 40 ára afmæli sitt með fjölmennu kaffiboði sem haldið var í veislusal Vífils í Jötunheimum. Yfir- lýsingin felur í sér vilja beggja aðila til að vinna að uppbyggingu 160 m² útilífsmiðstöðvar í Heiðmörk ásamt aðstöðu til náttúruskoðunar, úti- kennslu, útieldunar, útileikja og úti- vistar. Skátafélagið mun á næstunni vinna nánar að hugmyndum um skipulag svæðisins. Aðstaðan verð- ur hönnuð með það í huga að hún nýtist ekki aðeins skátunum, heldur einnig leikskólum og grunnskólum bæjarins og annarri starfsemi og uppákomum á vegum bæjar- félagsins. Garðabær mun koma ná- lægt fjármögnun útilífsmiðstöðvar- innar en Skátafélagið tekur að sér uppbyggingu og rekstur mannvirkj- anna. Nýr heiðursfélagi Vífils Í afmælisfagnaðinum fór Ágúst Þorsteinsson, fyrrverandi félagsfor- ingi og fyrrverandi skátahöfðingi, yfir sögu félagsins og sýndar voru myndir frá fyrri árum. Sigurgeir Óskarsson, fyrrverandi félagsforingi Vífils, var gerður að heiðursfélaga Vífils og sérstaklega þökkuð fyrri störf í þágu félagsins. Skátastarf Páll Hilmarsson forseti bæjarstjórnar, Hrafnhildur Sigurðar- dóttir aðstoðarfélagsforingi Vífils, Helgi Grímsson, félagsforingi Vífils, og Gunnar Einarsson bæjarstjóri eftir undirritun viljayfirlýsingarinnar. Hyggjast reisa útilífs- miðstöð í Heiðmörk Hversu hátt stefnir þú? Þrjú fjárfestingarsöfn – þrjár mismunandi leiðir Hægt er að fjárfesta í ákveðinni leið eða vera í reglulegri áskrift. Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is ÖRUGGA SAFNIÐ 16,1% ávöxtun Stöðug ávöxtun, lágmarkssveiflur, lítil áhætta. • 75% skuldabréf • 25% hlutabréf 75% 25% verða nú sambærileg við það sem best gerist,“ segir Alexander. Helstu ómrannsóknir sem gerðar verða á tækinu eru forburðarskimun við 11-14 vikur, svo kölluð hnakka- þykktarmæling, hefðbundin óm- skoðun við 20 vikur og svo mun tæk- ið auðvelda og bæta eftirlit barna í áhættu síðar á meðgöngu svo sem vegna sköpulagsfrávika og vaxt- arseinkunar. JÓHANNES Sigurðsson hefur gefið kvennadeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri nýtt og fullkomið óm- tæki af gerðinni General Electric. Að sögn Alexanders Smársonar, yf- irlæknis á deildinni, mun nýja tækið koma í stað ómtækis sem nú er mjög komið til ára sinna. „Þjónusta við þungaðar konur mun gjörbreytast til hins betra. Myndgæði við fósturómskoðanir FSA gefið ómtæki Góð gjöf Jóhanna Gunnarsdóttir, Anna M. Helgadóttir, Svana Zóphan- íasóttir, Alexander Smárason, Svala Jóhannesdóttir og faðir hennar, Jó- hannes Sigurðsson við ómtækið sem hann gaf kvennadeildinni. DAGANA 28. apríl til 6. maí nk. verður Kirkjulistavika í Akureyr- arkirkju. Þetta er í 10. sinn sem Akureyrarkirkja og Listvinafélag Akureyrarkirkju standa að Kirkju- listaviku en hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1989. Helstu markmið Kirkju- listaviku hafa frá upphafi verið að efla samvinnu og tengsl listafólks við kirkjuna og gefa Akureyr- ingum kost á að njóta góðra lista í kirkjunni. Dagskrá Kirkjulistavikunnar verður fjölbreytt að vanda og hefst hátíðin 28. apríl kl. 15 með opnun sýningar í Ketilhúsinu. Í tilefni af 10. Kirkjulistaviku var þeim lista- mönnum sem sýnt hafa á Kirkju- listaviku frá upphafi boðið að taka þátt í samsýningu og verða í Ket- ilhúsinu sýnd verk eftir 15 lista- menn. Sýningin sem er í samstarfi við Menningarmiðstöðina Listagili stendur til 13. maí. Í kapellu Akureyrarkirkju verð- ur sýningin Altarisdúkar úr kirkjum í Eyjafirði opnuð sunnu- daginn 29. apríl kl. 16 en sú sýning er á vegum Minjasafnsins á Ak- ureyri. Hinn 6. maí kl. 16 verða hátíð- artónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands með þátttöku Kórs Akureyrarkirkju og Kammerkórs Norðurlands. Á efnisskrá tón- leikanna eru Rómeó og Júlía, fant- asíuforleikur eftir P.I. Tjækofskí, Orgelkonsert eftir F.A. Guilmant og Te Deum eftir A. Dvorak. Ein- leikari á tónleikunum er Björn Steinar Sólbergsson og einsöngv- arar Hanna Dóra Sturludóttir og Ágúst Ólafsson. Stjórnandi er Guð- mundur Óli Gunnarsson. Helgihald verður einnig afar fjölbreytt þessa viku. Sunnudaginn 29. apríl kl. 11 verður fjölskyldu- guðsþjónusta í Akureyrarkirkju, lokahátíð barnastarfsins, og taka börnin virkan þátt í messunni með leik og söng. Guðsþjónusta að 19. aldar sið verður í Minjasafnskirkj- unni kl. 14 og um kvöldið kl. 20.30 verður æðruleysismessa í Akureyr- arkirkju. Fyrirlestur um Jónas Páll Valsson rithöfundur heldur í dag fyrirlestur um Jónas Hall- grímsson á Amtsbókasafninu. Páll nefndir fyrirlesturinn Alefling and- ans og athöfn þörf – Jónas og nú- tíminn og hefur upp raust sína kl. 17.15. Gestir munu svo fá tækifæri til að spyrja Pál frekar út í efnið. Fræðslufundur um Alzheimer Annar fræðslufundur FAAS um málefni Alzheimerssjúkra á Ak- ureyri í vetur verður haldinn í saln- um í Dvalarheimilinu Hlíð í dag kl. 18. Kristín Inga Hannesdóttir fjallar um skert innsæi hjá ein- staklingum með Alzheimer, og álag á aðstandendur, Gísli Hólmar Jó- hannesson fjallar um Alzheimer og heilarit, m.a. í tengslum við rann- sókn Gísla á Akureyri og loks verða fyrirspurnir og umræður eins og tími leyfir. „Heilabilun, sem er íslenskun á alþjóðlega orðinu dementia, og er í dag annar algengasti dánarvaldur á Vesturlöndum á eftir hjartasjúk- dómum en Alzheimerssjúkdóm- urinn er algengastur heilabil- unarsjúkdóma eða um 70% heilbilunartilvika,“ segir í frétta- tilkynningu. FAAS er félag áhugafólks og að- standenda Alzheimerssjúkra og fólks með aðra skylda sjúkdóma og hefur það að markmiði að létta Alz- heimerssjúklingum og aðstand- endum þeirra tilveruna svo sem unnt er með, m.a. fræðslustarfi, hagsmunagæslu og frumkvæði að framboði nauðsynlegrar þjónustu sem unnt er. Kirkjulistavika að hefjast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.