Morgunblaðið - 26.04.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.04.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 19 AUSTURLAND LANDIÐ Fjarðabyggð | Ársreikningur Fjarðabyggðar 2006 hefur verið tek- inn til fyrri umræðu bæjarstjórnar og þykir niðurstaða hans mjög já- kvæð og umfram það sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Hinn 1. júlí 2006 sameinuðust sveitarfélögin Austur- byggð, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Fjarðabyggð og Mjóafjarðarhrepp- ur undir nafninu Fjarðabyggð. Árs- reikningurinn samanstendur af sam- keyrðum rekstri hinna fjögurra sveitarfélaga fyrir tímabilið 1. jan- úar til 30. júní og sameinaðs sveitar- félags fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2006. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagns- gjalda var jákvæð sem nam 936,7 m.kr. í samstæðuársreikningi, A- og B- hluta. Þar af var rekstrarniður- staða A-hluta jákvæð um 744,5 m.kr. Að teknu tilliti til fjármagnsgjalda var rekstur samstæðu jákvæður sem nam 313,7 m.kr. og A-hluta 463,0 m.kr. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggð- ar 2006 hafði gert ráð fyrir 238,7 m.kr. rekstrarafgangi samstæðu og 295,3 m.kr. í A-hluta. Því er ljóst að mikill bati er í afkomu sveitarfé- lagsins á milli ára þar sem rekstr- arniðurstaða samstæðunnar árið 2005 var neikvæð um 10,4 m.kr. og í A-hluta 39,2 m.kr. Seinni umræða um ársreikning Fjarðabyggðar 2006 fer fram í dag. Betra en við var búist Djúpivogur | Brandöndin er stór og litskrúð- ugur fugl sem fór fyrst að venja komur sínar á vötnin í nágrenni Djúpavogs fyrir um 7 árum og hefur verið fasta- gestur síðan. Brandendur verpa hér í holum undir stórum steinum og erlendis oft í yf- irgefnar kanínuholur og haga sér þar með nokkuð öðruvísi en aðrar endur. Brandöndin var mætt óvenju- snemma nú í ár til Djúpavogs eða hinn 26. mars sl. Nú eru á svæðinu 3 pör og er auðvelt fyrir gesti og gangandi að berja fuglana augum. Gestur sem gleður augað Glæsileg brandönd í flæðarmálinu. Egilsstaðir | Foreldrar 45 barna hafa ritað undir áskorun til bæj- aryfirvalda á Fljótsdalshéraði, þar sem þess er farið á leit að börnum fæddum árið 2006 verði tryggð leikskólavist hið fyrsta. Árgang- urinn sé fjölmennur og brýnt að sveitarfélagið efni gefin loforð um næg leikskólapláss fyrir eins til fimm ára börn. Ákvörðunar bæj- arstjórnar er að vænta í næstu viku. Vantar vistun fyrir eins árs Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Kárahnjúkavirkjun | Komið hefur í ljós að þrátt fyrir að loftmengun hafi nokkrum sinnum, skv. upplýsingum Impregilo, farið yfir viðmiðunar- mörk í einstökum hlutum aðrennsl- isganga virkjunarinnar milli að- ganga 1 og 2 undir Þrælahálsi á Fljótsdalsheiði að undanförnu, var það ekki fyrr en fjöldi manna hafði veikst af loftmengun að Vinnueftir- litið lokaði göngunum fyrir vinnu. Nú er talið að mengunin stafi af út- blástursefnum frá dísilknúnum vinnuvélum, þ. á m. köfnunarefnis- díoxíði, brennisteinsdíoxíði og kolmónoxíði, sem öll eru stórhættu- leg fari þau yfir ákveðin mörk. Oddur Friðriksson yfirtrúnaðar- maður segist þess fullviss að Imp- regilo muni fylgja málum vel eftir. „Við urðum fyrst áskynja um þessa eitrun fyrir um 15 dögum og ber að taka fram að 85-90% mælinga í göng- unum voru undir mengunarmörkum. Það gerði okkur mjög erfitt fyrir, við gátum ekki skellt í lás og sagt stopp. Frá þeim tíma hafa framkvæmdaeft- irlitið og Impregilo skoðað sameig- inlega hverju þurfti að breyta. Nið- urstaða um það lá fyrir sl. sunnudag og úrbætur langt komnar. Mig tekur sárt að menn veiktust þarna og menn lokuðu göngunum á grundvelli þess. Matareitrunin við aðgöng 2 var þó einstakt tilfelli sem hefði getað gerst á hvaða vinnustað sem var.“ Framkvæmdaeftirlitið óskaði í árslok 2006 eftir að Vinnueftirlitið fjölgaði heimsóknum á stíflustæði og í göngin „Við því var ekki orðið, nema að sett var upp heimsókn í tengslum við námskeið í janúar,“ segir Oddur. „28. mars sendi fram- kvæmdaeftirlitið skeyti þar sem ósk- að var eftir að Vinnueftirlitið kæmi og ynni með okkur að loftræsting- unni og breyttu vinnulagi í göngun- um. Því skeyti hefur ekki verið svar- að. Þeir eru boðaðir á alla fundi öryggiseftirlitsins og fá fundargerð- ir öryggisráðs. Vinnueftirlitið hafði því allar forsendur til að fylgjast hér með málum.“ Höfðu unnið að úrbótum í göngum í hálfan mánuð                                      ! "                                                                      $%  &  '( ) * + Kópasker - Jónína Bjartmarz um- hverfisráherra hefur opnað Gljúfra- stofu Þjóðgarðsins í Jökulsárs- gljúfrum. Ráðherrann naut aðstoðar þriggja ungra Keldhverfinga sem áður höfðu flutt dagskrá í tali og tónum ásamt skólasystkinum sínum í Öxarfjarðarskóla við opnun Gljúfrastofunnar. Um 200 manns voru við opnunina og ljóst að heimamenn láta sig miklu skipta framgang þjóðgarðsins og horfa björtum augum fram á stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem ná mun allt frá Skaftafelli í suðri til Ásbyrgis í norðri. Stærsti þjóðgarður Evrópu Í ræðu umhverfisráðherra kom fram að með fyrirhuguðum Vatna- jökulsþjóðgarði verður til stærsti þjóðgarður Evrópu, með ein- staklega fjölbreytt náttúrufar og sögu og mun Gljúfrastofa gegna mikilvægu fræðslu- og þjónustu- hlutverki í starfseminni. Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir þjóðgarðsvörður rakti bygging- arsögu Gljúfrastofu og þakkaði þeim fjölmörgu sem lagt hafa hönd á verkið. Gljúfrastofa, sem er um 550 fm að flatarmáli, verður aðalgestamóttaka þjóðgarðsins, upplýsingamiðstöð og sýning um náttúru og sögu svæð- isins. Að auki mun Gljúfrastofa hýsa skrifstofur starfsmanna og gert er ráð fyrir aðstöðu til að taka á móti skólahópum í þjóðgarðinn. Í sýningunni sem er mjög glæsi- leg og myndræn er lögð áhersla á Jökulsá á Fjöllum og þátt hennar í mótun lands og lífs, fjölbreytt nátt- úrufar þjóðgarðsins og sögu og mannlíf í héraðinu. Framsetning sýningarinnar er með þeim hætti að gestir fræðast um hið fallega svæði þjóðgarðsins með áþreifanlegum hætti, þar sem gagnvirkri myndmiðlun er beitt til upplýsingar og fræðslu. Undirbúningur að Gljúfrastofu hófst 2003 og hönnun húss og sýn- ingar fór fljótlega í gang í framhaldi af því en bygging hússins hófst 2005. Hönnun sýningarinnar hefur ver- ið í höndum Bility ehf., Guðrúnar Lilju Gunnlaugsdóttur og Jóns Ás- geirs Hreinssonar. Gljúfrastofa formlega opnuð Morgunblaðið/Kristbjörg Mannfagnaður Það voru þau Hlynur Aðalsteinsson, Bjarni Þór Geirsson og Lillý Óladóttir, nemendur í Öxarfjarðarskóla, sem aðstoðuðu Jónínu umhverfisráðherra við að klippa á borðann. Í HNOTSKURN »Gljúfrastofa, sem er um550 fm að flatarmáli, verð- ur aðalgestamóttaka þjóð- garðsins, upplýsingamiðstöð og sýning um náttúru og sögu svæðisins. » Í sýningunni er lögðáhersla á Jökulsá á Fjöll- um og þátt hennar í mótun lands og lífs. »Undirbúningur að Gljúfra-stofu hófst 2003 og hönnun húss og sýningar fór fljótlega í gang í framhaldi af því en bygging hússins hófst 2005. KVENNAKÓRINN Ljósbrá í Rangárvallasýslu heldur vortónleika sína föstudagskvöldið 27. apríl nk. í Hvoli, Hvolsvelli og hefjast þeir kl. 20.30. Í kórnum eru um 40 konur sem koma bæði úr Rangárvalla- og Árnessýslu. Stjórnandi kórsins er Eyrún Jón- asdóttir og hefur hún stjórnað kórn- um undanfarin fjögur ár. Efnisskrá tónleikanna er fjöl- breytt og má segja að rómantíkin svífi yfir vötnum. Er þar að finna m.a. lög úr þekktum kvikmyndum í bland við sígild dægurlög. Kórinn hefur þetta vorið fengið til liðs við sig félaga úr Djassbandi Suð- urlands, þá Stefán Þorleifsson á pí- anó, Stefán Ingimar Þórhallsson á slagverk, Trausta Örn Einarsson á gítar og Róbert Dan Bergmundsson á bassa. Auk þess að spila með kórn- um munu þeir félagar flytja nokkur lög ásamt söngvurunum Kristínu Örnu Hauksdóttur og Bergsveini Theodórssyni. Einsöngvarar með kórnum eru Gísli Stefánsson baríton og tveir meðlimir kórsins, þær Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Guðríður Júlíusdóttir. Ljósbrár á Hvolsvelli H im in n o g h af / S ÍA – 9 0 7 0 4 9 6 HEFÐBUNDNA SAFNIÐ 20,8% ávöxtun Áhersla á góða ávöxtun og áhættu- dreifingu, meðaláhætta. • 50% skuldabréf • 50% hlutabréf 50% 50% ÁVÖXTUNARSAFNIÐ 24,9% ávöxtun Meiri sveiflur, hærri væntingar. Áhersla á góða áhættudreifingu með erlendum og íslenskum verðbréfum. • 75% hlutabréf • 25% skuldabréf 75% 25%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.