Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 20
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Þær sitja, sauma og spjalla. Efnisúrvaliðer fjölbreytt, mynstrin mörg og við-fangsefnin ekki síður margbreytileg.Töskur, buddur, veski, dúkar, teppi og púðar eru meðal þess sem konurnar í búta- saumsklúbbnum Spólunum á Patreksfirði vinna að einn laugardag í mánuði – en þá er líka allur dagurinn tekinn frá. „Bútasaumsklúbburinn var stofnaður haustið 2001 af nokkrum áhugakonum um bútasaum á Patreksfirði,“ segir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Vestfjörðum, sem ásamt þeim Sigríði Sigurðardóttur og Rósu Ástvaldsdóttur er í stjórn klúbbsins. „Tildrögin voru að ákveðið var að auglýsa og kalla til konur sem áhuga hefðu á bútasaumi. Viðbrögðin við auglýsingunni komu okkur öll- um á óvart því á fyrsta fundinn mættu 25 konur frá öllum fjörðunum – Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. Þetta var miklu meiri fjöldi en við höfðum átt von á og í framhaldi var ákveðið að hittast einn laugardag í mánuði og sauma sam- an.“ Undanfarin tvö ár hafa Spólurnar haft að- stöðu í kaffistofu gamals sláturhúss, sem var áð- ur hraðfrystihúsið á Patreksfirði. Þar hafa þess- ar handavinnukonur komið sér vel fyrir og raunar hittast bútasaumsfélagarnir einnig, ásamt öðru handverksfólki af svæðinu, í hús- næðinu á miðvikudagskvöldum. „Miðvikudags- kvöldin eru opnari,“ segir Arnheiður, „en á laugardögum sitjum bara og saumum, svona sex tíma í senn.“ Saumavél og áhugi eina skilyrðið Um 12 til 15 konur mynda kjarna bútasaums- klúbbsins, sem þó hefur tekið nokkrum breyt- ingum frá stofnun. „Eins og í öllum félagsskap þá er hér viss kjarni. Auðvitað er alltaf einhver hreyfing, fólk flytur burt og nýir koma í staðinn, en við erum þó alltaf að fá inn fleiri konur. Undanfarið hefur mesta virknin verið hér á Patreksfirði en konur frá Tálknafirði hafa þó mætt líka,“ segir Arnheiður og bætir við að þó að vegalengdirnar milli bæjarfélaganna séu ekki endilega miklar þá geti færðin á veturna reynst erfið. Sá hópur sem hittist í Spólunum er líka mjög blandaður. „Hér hittast fyrir konur á öllum aldri og af öllum stigum þjóðfélagsins, sem ann- ars hefðu kannski ekki haft mikið samband sín á milli.“ Engar kröfur um færni eða fyrri þekkingu á bútasaum eru heldur gerðar. „Eina krafan er sú að eiga saumavél og hafa áhuga á bútasaumi. Þannig hafa þó nokkrar konur komið inn í hóp- inn og svo reynum við bara að leiðbeina hver annarri. Vissulega eru líka í hópnum konur sem hafa meiri handverksgrunn, eins og t.d. Sonja Ísfeld sem er menntaður feldskeri. Svo lærum við líka heilmikið bara hver af hver annarri og fáum nýjar hugmyndir út frá því sem hinar eru að gera,“ segir Arnheiður sem vinnur þessa dagana að ljómandi fallegum dúk. Tengsl milli landshluta og landa Félagsskapurinn er heldur ekki bundinn ein- göngu við Patreksfjörð, því tengsl hafa einnig myndast við handavinnufólk annars staðar á landinu. „Núna fyrstu helgina í maí ætla bútasaums- klúbbar á norðanverðum Vestfjörðunum að eiga saumahelgi að Núpi. Við tökum þátt í því, en þá hittast konur af öllum Vestfjörðunum til að sauma saman, borða saman og hlæja sam- an,“ segir Arnheiður. „Við höfum líka sótt nokkrar saman búta- saumshelgi á Löngumýri í Skagafirði hjá kon- um af Norðurlandi og eins höfum við farið utan. Til að mynda fórum við nokkrar saman til Birm- ingham í Bretlandi 2005 en þar eru haldnar ár- legar sýningar og vinnustofur (e. workshop) sem maður getur tekið þátt í og það var virki- lega gaman.“ Það er því greinilega nóg að gera hjá þessum laghentu konum sem héldu sýningu á verkum sínum á Patreksdeginum, 17. mars sl. þar sem þær fengu yfir 100 gesti. Þær breyta líka með sínum fimu fingrum hversdagslegustu tuskum og bútum í ævintýralegustu töskur, teppi og dúka. Morgunblaðið/Guðlaugur Alberts Hluti af Spólunum situr og saumar Sigríður Sigurðardóttir og Rósa Ástvaldsdóttir eru fremst á myndinni. Fyrir aftan frá vinstri Ester Krist- jánsdóttir, Þuríður Alma Karlsdóttir, Arnheiður Jónsdóttir, Ingibjörg Valgeirsdóttir, Sonja Ísafold, Sólveig Jóhannsdóttir og Anna Jensdóttir. Saumaskapur Sólveig Jóhannsdóttir er ein- beitt að störfum við saumavélina. Ljúfir Þeir eru krúttlegir bangsarnir sem hún Þuríður Alma Karlsdóttir saumar. Blómstrandi bútasaumur á Patreksfirði Litríki Afrakstur vinnunnar er margbreyti-legur og ímyndunaraflið fær að njóta sín. |fimmtudagur|26. 4. 2007| mbl.is daglegtlíf Lamba-, svína-, kjúklinga- og nautakjöt er áberandi í helg- artilboðum verslana þessa helgina. » 22 helgartilboð Bærinn Darjeeling við rætur Hi- malayafjalla er heillandi við- komustaður með ólýsanlegu útsýni. » 26 ferðalög Þegar valin eru sumardekk skiptir mestu, upp á öryggið að gera, að dekkin séu stöðug og að bíllinn rási ekki á þeim. » 24 neytendur Hótel er ekki bara hótel og sum þykja einfaldlega í sérflokki. Condé Nast hefur sett saman lista yfir þau 10 bestu. » 27 hótel Transfitusýrur hafa verið mikið til umræðu. Margir íslenskir framleiðendur hafa nú dregið úr notkun þeirra. » 22 heilsa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.