Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 43

Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 43 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9–16.30. Jóga kl. 9. Boccia kl. 10. Útskurðarnámskeið kl. 13. Mynd- listarnámskeið kl. 13. Videostund kl. 13.30. Alþjóðahúsið | Alþjóðahús og Samtök kvenna af er- lendum uppruna standa fyrir bingókvöldi fyrir konur í kvöld kl. 20 á 3ju hæð Alþjóðahúss. Hvert bingó- spjald kostar 100 krónur. Boðið upp á kaffi og kökur. Spennandi vinningar. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8–16.30 handavinna. Kl. 9–16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 boccia. Kl. 10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl. 13.30 myndlist. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, leikfimi, myndlist, almenn handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bókband og kaffi. Á morgun, föstudag, er spiluð félagsvist kl. 13.30 og kór Verslunarskólans kemur kl. 14.30 og syngur und- ir stjórn Vilborgar Þórhallsdóttur. Upplýsingar í s.535-2760. Dalbraut 18–20 | Söngstund alla fimmtudaga kl. 14. Lýður leikur undir á harmonikku. Alltaf úrvals- kaffiveitingar hjá Haraldi. Allir velkomnir til okkar. Félag CP á Íslandi | Háaleitisbraut 13, Reykjavík (húsi SLF), 4. hæð. Aðalfundur Félags CP á Íslandi verður haldinn kl. 20. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf og önnur mál. Eftir aðalfundinn verður áhugaverður fræðslufundur. Nánari upplýsingar á www.cp.is. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bridds í dag kl. 13. Vorfagnaður verður haldinn á morgun, föstudag 27. apríl, kl. 20: Spurningarþáttur, gamanvísur, samtals- þáttur, gamansögur o.fl. Kaffiveitingar og dans. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55. Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silfursmíði kl. 9.30. Bókband kl. 13. Bingó kl. 13.30. Myndlistar- hópur kl. 16.30. Stólajóga kl. 17.15. Jóga á dýnum kl. 18. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handa- vinna og Briddsdeild FEBK (tvímenningur), kl. 18.15 jóga. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi í Mýri kl. 13, smiðja í Kirkjuhvoli kl. 13. Karlaleikfimi kl. 13 og Boccia kl. 14 í Ásgarði, handavinnuhorn í Garðabergi kl. 13. Leikhúsmiðar seldir í Garðabergi frá kl. 12.30– 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund, umsj. sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Frá hádegi vinnu- stofur opnar m.a. perlusaumur og leiðsögn við myndlist. Kl. 13.15 ,,Kynslóðir saman í Breiðholti" fé- lagsvist eldri borgara og nemenda Seljaskóla. Stjórn. Kjartan Sigurjónss. Garðheimar veita verðlaun. Allir velkomnir. Strætisv. S4, 12 og 17. Hraunbær 105 | Fimmtudaga: Kl. 9–12.30 postulín. Kl. 10–11 boccia. Kl. 11–12 leikfimi. Kl. 12–12.30 hádeg- ismatur. Kl. 14–16 félagsvist. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Leikfimi kl. 11.20. Glerbræðsla kl. 13. Opið hús í boði stjórnmála- flokkanna kl. 14. Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl. 9– 16. Félagsvist kl. 13.30, vinningar, kaffi og meðlæti í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320. Hársnyrting 517- 3005/849-8029. Hæðargarður 31 | Sparikaffi. Fastir liðir eins og venjulega. Sjálfstæðisflokkurinn kemur í heimsókn föstudag 27. apríl í hádeginu. Síðasti fundur í Bók- menntahópi er n.k. miðvikudag kl. 20. Suðursveitar- hópurinn mætir. Videó, myndir og óvænt uppákoma. Allir velkomnir alltaf. Komdu við. S.568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er sund- leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og Listasmiðja á Korpúlfsstöðum kl. 13. Landspítali Háskólasjúkrahús, Hringbraut | Iðju- deild 31C, geðsjúkrahús LSH við Hringbraut. Árlegur sumarmarkaður iðjuþjálfunar geðdeildar Landspít- alans við Hringbraut verður haldinn 26. apríl og 27. apríl, kl. 11–15.30. Athugið að þetta er síðasta salan vegna lokunar deildarinnar 1. maí. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og bóka- stofa kl. 9. Sögustund kl. 10.30. Boccia karlaklúbbur kl. 10.30. Boccia kl. 13.30. Kaffiveitingar 14.30. Bingó kl. 15. Upplýsingar í síma 552-4161. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Hátúni 12. Skák í kvöld kl. 19. Allir velkomnir. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík | Afmælis- fundur SVD kvenna verður haldinn annað kvöld kl. 20 í Höllubúð. Takið með ykkur gesti. Söngvinir | Vortónleikar: Söngvinir halda vortónleika í Digraneskirkju 28.apríl nk. kl. 17. Kór eldri borgara í Garðabæ kemur í heimsókn. Fjölbreytt dagskrá. Allir velkomnir. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9-12.30, bók- band kl. 9-13, morgunstund kl. 9.30, handavinnu- stofan opin kl. 9-16.30, boccia kl. 10-11, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa opin kl. 9, glerskurður kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-17.30. Félagsstarfið opið fyrir alla aldurshópa. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera. Kl. 13 opni salurinn. Kl. 13.15–14 leikfimi (frítt). Kl. 14.15 bingó/félagsvist (bingó annan hvern fimmtudag, fé- lagsvist annan hvern fimmtudag). Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður á eftir. Aðalfundur Samhygðar kl. 20. Áskirkja | Kl. 10-12: Foreldramorgnar. Hjúkrunar- fræðingur frá Heilsugæslustöðinni í Glæsibæ ræðir um svefn ungbarna. Kl. 14–16: Samsöngur undir stjórn Þorvaldar Halldórssonar. Kaffi og meðlæti. Kl. 17: Klúbbur 8–9 ára barna og kl. 18 TTT-starfið: Fóstursystkinin. Bústaðakirkja | Foreldramorgnar eru samveru- stundir fyrir foreldra og börn þeirra. Boðið er upp á hressingu á mjög vægu verði. Við hittumst vikulega í Bústaðarkirkju. Allir velkomnir, láttu sjá þig. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Foreldra- morgnar kl. 10 í fræðslusal. Bænastund kl. 12. Barna- starf 6–9 ára kl. 17.15. (www.digraneskirkja.is) Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðarstund með altaris- göngu í Kapellu safnaðarheimilis kl. 12. Allir vel- komnir. Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. Fræð- andi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn 10–12 ára í Víkurskóla kl. 17–18. Hjallakirkja | Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 12– 14. Léttur hádegisverður og skemmtileg samveru- stund. Allir velkomnir. Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6–9 ára starf, kl. 16.30–17.30. Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðarstund. Gunnar Gunn- arsson leikur á orgelið og Sigurbjörn Þorkelsson hef- ur ritningarlestur, stutta hugvekju og leiðir bæn. Mál- tíð að lokinni stundinni í safnaðarheimilinu. Kl. 14 samvera eldri borgara í umsjá Sigurbjörns Þorkels- sonar, framkvæmdastjóra kirkjunnar, Gunnhildar Ein- arsdóttur, kirkjuvarðar, auk þjónustuhóps. Lögreglu- kórinn kemur og syngur. Síðasta samvera vetrarins. Kl. 17 Adrenalín gegn rasisma, unglingastarf. Umsjón sr. Hildur Eir Bolladóttir og Stella Rún Steinþórs- dóttir. Kl. 20.30 gospelkvöld að Hátúni 10. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir, djákni, Þorvaldur Halldórsson, tónlistarmaður og fleiri góðir. AA fundur í safnaðar- heimilinu kl. 21. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í kvöld kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundar- innar. 50ára afmæli. Í dag,fimmtudaginn 26. apríl, er Karl Björnsson, sviðsstjóri kjarasviðs Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Selfossi til margra ára, Smárarima 112 í Reykjavík, fimmtugur. Karl heldur upp á afmælisdaginn í New York ásamt eiginkonu sinni Katrínu Ingu Karlsdóttur. dagbók Í dag er fimmtudagur 26. apríl, 116. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem oss mun opinberast. (Rm. 8, 18.) Nú stendur yfir alþjóðleg um-ferðaröryggisvika SÞ oghefur Samgönguráðuneytiðfalið Umferðarstofu og að- ildarfélögum Umferðarráðs að setja saman fjölbreytta dagskrá vikunnar. Einar Magnús Magnússon er upplýs- ingafulltrúi Umferðarstofu: „Alþjóðleg umferðaröryggisvika SÞ er nú haldin í fyrsta skipti, en henni er ætlað að bregðast við því mikla manntjóni sem verður í umferðinni ár hvert um allan heim,“ segir Einar Magnús. „Dauðsföll í umferðinni í dag jafnast á við mann- skæðustu smitsjúkdóma, en umferð- arslysin eru öll af mannavöldum og ætti að vera auðvelt að koma í veg fyrir fjöldamörg dauðsföll árlega með vitund- arvakningu.“ Aðstandendur alþjóðlegu umferðar- öryggisvikunnar leitast við að fanga at- hygli fjölmiðla og stjórnmálamanna og sérstaklega að vekja ungt fólk til um- hugsunar: „Alla vikuna verður mjög áhugaverð sýning í Forvarnarhúsi Sjóvá, Kringlunni 1-3, þar sem meðal annars er ökuhermir sem sýnir áhrif áfengis á aksturshæfni,“ segir Einar Magnús. „Á fimmtudag er haldinn fræðslufundur á Hótel Loftleiðum sem einkum er ætlaður stjórnmálamönnum, bæði í sveitarstjórnum og á Alþingi. Með þessu er ætlunin að auðvelda stjórnmálamönnum að setja umferðar- öryggi á oddinn við ákvarðanatöku og stefnumótun.“ Í lok vikunnar verða kynntar breyt- ingar á umferðarlögum og opnað nýtt æfingasvæði til akstursíþrótta: „Laga- breytingarnar fela meðal annars í sér auknar kröfur til nýliða í umferðinni auk þess að veitt er heimild til að gera ökutæki upptækt ef um endurtekin al- varleg umferðarlagabrot er að ræða,“ segir Einar Magnús. „Akstursæfinga- svæði verður opnað á gamla varnar- svæðinu í Keflavík á laugardag, en feng- ist hefur leyfi til að halda þar æfingar fyrir áhugamenn um akstursíþróttir. Um er að ræða samstarfsverkfeni Um- ferðarstofu, FÍB og Landssambands ís- lenskra akstursíþróttafélaga en með þessu erum við að gera tilraun til þess að uppræta kappakstur í almennri um- ferð og koma honum á til þess gerð svæði þar sem fyllsta öryggis er gætt.“ Á laugardag verður einnig sýning á vegum Frumherja í Smáralind þar sem ástandi ökutækja og öryggi barna í bíl- um verða gerð sérstök skil. Samfélag | Fjölbreytt dagskrá á alþjóðlegri umferðaröryggisviku SÞ Manntjón sem má hindra  Einar Magnús Magnússon fæddist í Reykja- vík 1966. Hann lauk stúdents- prófi frá MH 1988, fékkst við dagskrárgerð í útvarpi 1987 til1989, starfaði við heimildamynda- og kvikmynda- gerð 1989 til 2003 og starfrækti einnig auglýsingastofu. Hann hefur verið upplýsingafulltrúi Umferðar- stofu frá 2004. Einar Magnús er kvæntur Hrund Gunnarsdóttur, grafískum hönnuði. Tónlist DOMO Bar | Tregasveit Kristjönu Stefáns á Múlanum á Dómó í Þing- holtsstræti í kvöld klukkan 21. Kristjana Stefánsd., söngur, Agnar Már Magnússon, píanó/orgel, Ómar Guðjónss., gítar, Valdi Kolli, bassi, Scott McLemore, trommur. Dagskrá full af tregafullum stan- dördum og blús. Hjallakirkja | Vortónleikar kór- anna í Snælandsskóla í Kópavogi kl. 20. Fögnum vori með söng og gleði. 95 nemendur skólans koma fram í þremur kórum. Gestir verða Skólahljómsveit Kópavogs B- sveit, stjórnandi Össur Geirsson. Undirleikari á píanó Hannes Bald- ursson, stjórnandi Heiðrún Há- konardóttir. Seljakirkja | Vortónleikar kvenna- kórsins Seljanna í Seljakirkju kl. 17. Stjórn og einsöngur: Svava K. Ing- ólfsdóttir, einsöngur: Linda Antonsdóttir. Píanó: Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Bassi: Tómas R. Einarsson. Gítar: Ragnar Hermannsson. Gestakór er Karla- kór Kópavogs. Stjórn: Julian Hew- lett. Uppákomur Hitt húsið | Pósthússtræti 3–5 (kj.). Hugarafl mun bjóða upp á kaffi, kökur og fleira á lágu verði laugard. 28. apríl kl. 12–17. Einnig tónlistaratriði, upplestur og geð- greining. Hlökkum til að sjá þig. Fyrirlestrar og fundir Askja – Náttúrufræðahús Há- skóla Íslands | LHS, Öskju, nátt- úrufræðahúsi HÍ við Vatnsmýrar- veg. Sir Michael Rawlins, yfir- maður bresku ráðgjafarstofnunar- innar NICE, verður með fyrirlestur um forgangsröðun í heilbrigðis- þjónustunni á ársfundi LSH. Fund- urinn hefst kl. 14 en erindið upp úr kl. 15.30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Barnaheill – Save the Children á Íslandi | Kornhlaðan, Bankastræti 2. Aðalfundur Barnaheilla verður haldinn í dag kl. 17–19. Fundarstjóri verður Ingibjörg Rafnar, umboðs- maður barna. Félagsmenn sam- takanna eru hvattir til að mæta. Félag Nýalssinna | Álfhólsvegi 121 í Kópavogi í kvöld kl. 20. Samstill- ing lífs og efnis í alheimi. Erindi sem varða vísindastörf dr. Helga Pjeturss og heimspekikenningar hans. Einnig verður fjallað um ýmislegt í nýlegum vísindum sem tengist þessu efni. Allir velkomnir. Geðhjálp | Túngötu 7, Rvk. Sjálfs- hjálparhópur þeirra sem þjást af kvíða er haldinn á hverjum fimm- tud. kl. 18–19.30. Verið velkomin. Gerðuberg | Aðalfundur íslenska bútasaumsfélagsins verður hald- inn laugard. 12. maí kl. 13–14. Dag- skrá: Venjuleg aðalfundarstörf, sjá nánar á www.butasaumur.is. Landakot | Síðasti fræðslufundur Rannsóknarstofu í öldrunarfræð- um RHLÖ á vorönn verður haldinn í dag kl. 15 í kennslusalnum á 7. hæð á Landakoti. Sigrún Júlíus- dóttir félagsráðgjafi mun fjalla um viðhorf ungs fólks til aldraðra. Sent verður út með fjarfundabún- aði. Allir velkomnir. Norræna húsið | Aðalfundur Heilsuhringsins 2007 verður í Norræna húsinu kl. 20. Að loknum aðalfundi, kl. 20.30, flytur Sigríður Ævarsdóttir, hómópati erindi: Ég „þoli“ ekki skólann … tengsl of- næmis og óþols við vanlíðan og námsörðugleika barna. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. Oddi – stofa 101 | Bókasafns- og upplýsingafræðiskor við félags- vísindadeild Háskóla Íslands stendur að málþingi um nýjar rannsóknir nemenda í skorinni. Haldið 26. apríl í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101, kl. 12.55–16. Létt- ar veitingar í boði félagsvísinda- deildar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Sögufélag, Fischersundi 3 | Félag þjóðfræðinga á Íslandi boðar til aðalfundar fimmtudaginn 26. apríl kl. 19.30. Fundurinn verður haldinn í húsi Sögufélagsins við Fischer- sund. Venjuleg aðalfundarstörf. Að loknum aðalfundi, kl. 20, hefst hefðbundið þemakvöld. Frog, doktorsnemi við University College, London, og Gísli Sigurðs- son, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar, fjalla um eddukvæði sem vitnisburð um lifandi hefð munnlegs kveðskapar. Þjóðskjalasafn Íslands | Lauga- vegi 162, 2. h. Ættfræðifélagið: Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræð- ingur heldur fyrirlestur kl. 20.30, Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur sem fædd var 1759, sjálfsævisaga alþýðukonu eða kímnisaga af flóni. FRÉTTIR Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó KYRRÐARDAGAR fyrir hjónafólk verða í Skálholti helgina 4.–6. maí nk. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir hjón á öllum aldri að koma í sveit- ina og njóta kyrrðar og upp- byggilegrar samveru á helgum stað. Allir eru velkomnir sem vilja eiga sameiginlega reynslu af kyrrð, íhugun og hollustu. Þessir dagar hefjast á föstudegi kl. 18 og þeim lýkur upp úr hádegi á sunnu- deginum. Leiðsögn er í höndum Hafliða Kristinssonar fjölskyldu- ráðgjafa sem getið hefur sér gott orð fyrir vandað fræðsluefni á sínu fagsviði, segir í fréttatilkynn- ingu. Veittur er sérstakur hjóna- afsláttur þannig að helgin kostar 22.400 kr. á hjón. Skráning í síma 486-8870 eða með netfanginu rekt- or@skalholt.is. Kyrrðardagar fyrir hjónafólk FÉLAG íslenskra fornleifafræð- inga og Fornleifafræðingafélag Ís- lands halda ráðstefnu í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands laugar- daginn 28. apríl kl. 13:00 í fyrir- lestrasal Þjóðminjasafnsins. Mikið hefur verið um fornleifa- uppgröft um allt land á síðast- liðnum árum. Er það helst Kristni- hátíðarsjóði að þakka en sjóðurinn var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Ís- landi, segir í fréttatlkynningu. Auk þeirra fornleifarannsókna sem hlutu styrki úr Kristnihátíð- arsjóði hefur verið ráðist í fjöl- margar aðrar rannsóknir, stórar og smáar, sem eru allrar athygli verðar og ekki síður mikilvægar fyrir fræðin. Á ráðstefnunni verður að þessu sinni einungis fjallað um þær rannsóknir, sumar hverjar á óvæntum minjastöðum, aðrar til komnar vegna framkvæmda. Sem dæmi má nefna rannsókn á kumli í Hringsdal, á minjum sem hurfu í lónið við Kárahnjúkavirkjun og persónurannsókn á 17. aldar kot- bónda. Á ráðstefnunni verður fjallað um fornleifarannsóknirnar í stuttu máli en henni er öðrum þræði ætlað að efla samstarf þeirra sem að fornleifarann- sóknum standa. Ráðstefnan er öllum opin og að- gangur ókeypis. Gróska í forn- leifarannsóknum Rangt föðurnafn Í AUKABLAÐI sem fylgdi Morgunblaðinu í gær á degi um- hverfisins slæddist villa í mynda- texta á bls. 15. Annar tveggja full- trúa Orkuveitu Reykjavíkur, sem tóku við verðlaunum, heitir Loftur R. Gissurarson. Er beðist velvirð- ingar á þessum mistökum. Stjórnarmaður, ekki framkvæmdastjóri Í MORGUNBLAÐINU í gær var ranglega sagt að Tal Clifton Finney væri framkvæmdastjóri Iceland America Energy. Hið rétta er að Magnús Jóhannesson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Finney er stjórnarmaður og einn af eigendum Iceland America Energy. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að senda vélrit- aða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.