Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 55
Vorferð á varnarsvæðið Keflavíkurflugvelli
Allir velkomnir.
Á fyrrum varnarsvæðinu eru ótal möguleikar sem nýst geta okkur Íslendingum
til atvinnuuppbyggingar og sóknar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, tekur á móti hópnum. Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar sýnir okkur fyrrum varnarsvæðið.
Fararstjórar eru Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og Guðfinna S. Bjarnadóttir
frambjóðandi í Reykjavík ásamt fleiri frambjóðendum.
Skráning í ferðina er í Valhöll í síma 515-1700 eða á kosningaskrifstofum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Boðið verður upp á ilmandi Knorr-súpu og brauð á öllum kosningaskrifstofum
fyrir ferðina frá kl 11:00. Í ferðinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
Lagt verður af stað með rútum kl. 13.00 frá eftirtöldum
kosningaskrifstofum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
// Húsi Verslunarinnar, Kringlunni 7 Sími: 569-8133
// JL Húsinu, Hringbraut 119 Sími: 569-8181
// Grafarvogi, Hverafold 5 Sími: 569-8171
// Langholtsvegi 43 (f.v. hús Landsbankans) Sími: 569-8141
// Breiðholti, Álfabakka 14a (Mjódd) Sími: 569-8161
// Árbæ og Grafarholti, Hraunbæ 102B Sími: 567-4011
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík bjóða til vorferðar næsta
laugardag 28. apríl á varnarsvæðið Keflavíkurflugvelli.
Frambjóðendur á staðnum
Hraunhamar fasteignasala hefur í sölu glæsilega hannað ein-
býli, teiknað af Albínu Thordarson arkitekt. Eignin er 229,4 fm
á tveimur hæðum, þar af er innbyggður tvöfaldur 43,1 fm bíl-
skúr með aukinni lofthæð, einnig fylgir eigninni ca. 30 fm her-
bergi með snytingu á neðri hæð. Eignin er mjög vel staðsett
á frábærum útsýnisstað innst í botnlanga í Ásahverfi í Garða-
bæ. Eignin skiptist í forstofu,hol, gestasnyrtingu,herbergi,
þvottahús,og bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús,
gangur, þrjú herbergi, baðherbergi, hjónaherbergi með bað-
herbergi og fataherbergi inn af. Innréttingar eru allar glæsileg-
ar sérsmíðaðar úr Hlyn og gólfefni eru
flísar. Gólfhiti er í stærstum hluta húss-
ins. Lýsing er hönnuð af Lúmex. Falleg-
ur garður. Glæsileg vönduð eign í sér-
flokki. Eignin getur verið laus fljótlega.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi ,
gsm 896 0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunás - Garðabær - Einbýli
EINS og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær verður verk eftir
bandaríska listamanninn Andy
Warhol boðið upp á listmunaupp-
boði Gallerís Foldar á sunnudaginn,
en það mun vera í fyrsta skipti sem
verk eftir hann er boðið upp hér á
landi. Í fréttinni var haft eftir Jó-
hanni Hansen hjá Galleríi Fold að
verk eftir Warhol hefðu einungis
einu sinni verið sýnd hér á landi, á
sýningu í Galleríi Fold árið 2003.
Það mun ekki vera alls kostar rétt
því verk eftir listamanninn voru
einnig sýnd í Norræna húsinu dag-
ana 17. janúar til 15. febrúar árið
1987. Þar voru sýnd 24 stór sáld-
þrykk af sænsku leikkonunni Ing-
rid Bergman. Samkvæmt öruggum
heimildum Morgunblaðsins keyptu
að minnsta kosti tveir Íslendingar
verk á sýningunni.
Að sögn Jóhanns Hansen höfðu
fjölmargir samband við Gallerí
Fold í kjölfar greinarinnar í gær og
pöntuðu nokkrir þeirra borð á upp-
boðinu, sem fer fram á Hótel Sögu
á sunnudagskvöldið.
Bergman Verkið „Ingrid Bergman with Hat“ eftir Andy Warhol var meðal
þeirra mynda sem sýndar voru hér á landi árið 1987.
Verk Warhols áður
sýnd hér á landi
OFURFYRIRSÆTAN Kate Moss
mun stilla sér upp sem lifandi
gína þegar hún kynnir nýja fata-
línu sína. Kate mun klæðast föt-
unum í búðarglugga Topshop við
Oxfordstræti í London 1. maí,
daginn sem línan kemur í búðir.
„Kate óttast mest að springa úr
hlátri í glugganum,“ segir heim-
ildarmaður um uppátæki fyr-
irsætunnar.
Kate viðurkenndi nýlega að
það væri ekki auðvelt að vinna
með henni þar sem hún væri svo
mikill fullkomnunarsinni en Tops-
hop hefði samt ekki sagt nei við
neinni uppástungu hennar.
Kate samþykkti að vinna með
fatakeðjunni því hún var orðin
þreytt á því að allir voru að
reyna að apa eftir henni og
ákvað því að aðstoða við eftiröp-
unina og hanna föt fyrir Tops-
hop. „Ég get ekki beðið eftir að
sjá fólk klætt í fötin mín,“ sagði
hún.
Moss sem lifandi gína
Kate Moss er alltaf töff í tauinu.