Morgunblaðið - 26.04.2007, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Gagnrýnir Impregilo
ÞORSTEINN Njálsson, yf-
irlæknir við Kárahnjúka, telur að
Landsvirkjun og Impregilo hefðu átt
að hægja á framkvæmdum þegar
ljóst var að margir starfsmenn voru
orðnir veikir við þessar „nöturlegu
og hættulegu“ aðstæður. » 1
Samstarf við Þjóðverja
ÞJÓÐVERJAR munu senda hing-
að fulltrúa í maí til að ræða við ís-
lenska ráðamenn um aukið samstarf
í varnar- og öryggismálum. Þýskar
herflugvélar lentu 122 sinnum á
Keflavíkurflugvelli í fyrra. » 1
Lífrænt þotueldsneyti
FLUGFÉLAGIÐ Virgin Atlantic
hyggst gera tilraunir með breiðþotu
með hreyfli er brennir að verulegu
leyti lífrænu eldsneyti úr m.a. maís
og sykurreyr en því verður blandað
saman við hefðbundið þotueldsneyti.
» 14
Hjónavígslutillaga felld
TILLAGA um að prestum verði
heimilt að annast hjónavígslu sam-
kynhneigðra var felld á prestastefnu
í gær með 64 atkvæðum gegn 22.
» Miðopna
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Í kjölfar kjarnorkuspr.
Staksteinar: Umræða og innflytj.
Forystugreinar: Noregur, Danmörk
og öryggi Íslands |Vanræksla
UMRÆÐAN»
Að nýta afrakstur
Listahátíðin List
Byggjum stórmannlega
Forstjóri Karólínska sjúkrahússins
Bankastj., ofurstinn og tenórsöngv.
Treysta viðskiptalífinu
Heiður og virðing
Eric Weber ræðir ísl. viðskiptalíf
VIÐSKIPTABLAÐIл
2 !8%'
.
%+
!
9
" %%3&%
6 % 1 3 1 1 1 31 13 1 1 31 1 1 13 31
13 1 1 -:
6 '
31 1
1 1333
31 13 1
;<==0>?
'@A>=?/9'BC/;
:0/0;0;<==0>?
;D/':%:>E/0
/<>':%:>E/0
'F/':%:>E/0
'7?''/&%G>0/:?
H0B0/':@%HA/
';>
A7>0
9A/9?'7+'?@0=0
Heitast 13° C | Kaldast 7° C
Suðlæg átt, 3–8 m/s.
Léttir til austanlands
en dálítil væta á S- og
Vesturlandi. » 8
Silvía Nótt er efst á
Tónlistanum með
plötuna Goldmine en
Take That á Laga-
listanum með Pati-
ence. » 47
TÓNLIST»
Silvía á
toppnum
MYNDLIST»
Verk Warhols hafa verið
sýnd hér tvisvar. » 55
Franska síðpönks-
sveitin Nouvelle
Vague leikur í Lista-
safni Reykjavíkur á
Frönsku vori á
morgun. » 47
TÓNLIST»
Franskt
síðpönk
FÓLK»
Reese Witherspoon er
afbrýðisöm. » 48
TÓNLIST»
Árni Matthíasson fór í
kaffi hjá Sigur Rós. » 53
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Nefndi dótturina eftir Eddie M.
2. Eyddi 300 kr. og fékk 11,7 millj.
3. Jón Ásgeir keypti íbúð í NY
4. Fékk stólfót í gegnum höfuðið
SPÁÐ er miklum
hlýindum, allt að
20 stigum, og
þurrviðri á norð-
austanverðu
landinu um
helgina, suðvest-
anlands verður
einnig fremur
hlýtt miðað við
árstíma en gæti orðið skýjað og jafn-
vel rignt.
„Ég held að þetta fari upp í 20 stig
í hnjúkaþeynum um helgina, það er
sunnanátt í honum svo að hann gæti
hækkað hitann svolítið,“ sagði Hrafn
Guðmundsson veðurfræðingur í
gær. „Vindurinn í hnjúkaþeynum
getur sums staðar farið í 10 metra á
sekúndu. En víða verður hitinn 15–
16 stig, þetta byrjar fyrir alvöru á
föstudag.“
Hrafn segir þetta nokkuð mikinn
hita miðað við árstíma. Suðvest-
urhornið geti líka búist við hita,
hann geti jafnvel farið yfir 12–13 stig
en þar megi þó reikna með skýjum.
Hlýindi
framundan
SVOKALLAÐIR Croc’s-inniskór
hafa verið tengdir uppákomum á
sænskum sjúkrahúsum þar sem
mikilvæg lækningatæki hafa slegið
út. Þeir eru vinsælir meðal starfs-
fólks á sjúkrahúsum en hafa nú verið
bannaðir á sjúkrahúsi í Noregi og
rætt er um að banna þá í Svíþjóð.
„Ég veit þó ekki alveg hvort þessir
skór eru orðnir jafnvinsælir hjá
starfsfólki okkar og þeir virðast vera
í Svíþjóð,“ segir Aðalsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri tækni og eigna
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Talið er að atburðirnir tengist því
að allt fólk hleðst rafmagni og afraf-
magnast vanalega gegnum skó.
Útlit er fyrir að Croc’s-töfflurnar
virki eins og einangrun sem hleypir
ekki rafmagni í gegnum sig og valdi
þess vegna truflunum í viðkvæmum
rafmagnstækjum. | 23
Slá inni-
skórnir út?
Vinsælir Croc’s-inniskórnir hafa
vakið mikla athygli.
ÞAÐ VAR gríðarleg spenna í fimmta og síðasta úrslita-
leik Skautafélags Reykjavíkur og Skautafélags Ak-
ureyrar um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkíi í gær.
Jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 2:2, og staðan var
enn jöfn eftir framlengingu. Leikmenn SR nýttu tæki-
færið í vítakeppninni og höfðu sigur, 6:4. | Íþróttir
Morgunblaðið/ÞÖK
Titillinn áfram í Reykjavík
GRÍÐARLEG SPENNA Á ÍSNUM
Eftir Ingveldi Geirsdóttur og Jóhann
Bjarna Kolbeinsson
JÓN Atli Jónasson vinnur nú að
handriti að kvikmynd um atburðina
í Nígeríu á sjöunda áratugnum þeg-
ar skipulagðar ofsóknir norðan-
manna gegn Iboættbálkinum urðu
til þess að hann sagði skilið við
Nígeríu og stofnað var Lýðveldið
Bíafra. Stríð geisaði í Bíafra í 30
mánuði og kostaði yfir milljón
manna lífið áður en svæðið samein-
aðist Nígeríu að nýju. Breska kvik-
myndafyrirtækið FM&E ætlar að
framleiða myndina en í henni segir
m.a. frá íslenskum flugmönnum
sem tóku þátt í hjálparstarfi kirkj-
unnar og flugu með vistir til Bíafra
á stríðstímanum.
„Það er ekkert launungarmál að
þessir íslensku flugmenn unnu stór-
kostlegt afrek og mér finnst þetta
líka svolítið magnaður partur af Ís-
landssögu okkar,“ segir Jón Atli.
Einar Guðlaugsson var einn af
þeim íslensku flugmönnum sem
fóru til Bíafra. „Þorsteinn Jónsson
réð mig ásamt Kristjáni Richter og
Arngrími Jóhannssyni. Ég flaug
þarna í tæpt ár og fór margar ferð-
ir til Bíafra bæði með matvæli og
bensín,“ segir Einar sem var yngst-
ur Íslendinganna í Bíafra, aðeins 23
ára. „Það komu túrar þegar skotið
var svo mikið á okkur að maður
varð mjög óttasleginn. Ég bauð mig
samt fram í síðasta flugið til Bíafra
til að bjarga starfsmönnum Rauða
krossins og við tókum með okkur
45 innfædda til baka. Það var varla
talinn möguleiki að við gætum lifað
flugið af en við gerðum það samt
þrátt fyrir að koma sundurskotin til
baka.“ | 46
Flogið í kúlnahríð
Jón Atli skrifar kvikmyndahandrit um stríðið í Bíafra á sjö-
unda áratugnum þar sem íslenskir flugmenn komu við sögu
Morgunblaðið/Kristinn
Hetjur Jón Atli Jónasson, handrits-
höfundur myndarinnar um Bíafra.
Í HNOTSKURN
» Hátt í 40 Íslendingar unnuvið hjálparstarfið í Bíafra
til lengri eða skemmri tíma.
Þorsteinn Jónsson var yf-
irflugmaður og fór 423 ferðir
með hjálpargögn.
»Flogið var með vistirstanslaust allar nætur í
tvær og hálfa klst. frá eyjunni
Sao Tome til Bíafra og voru
sprengju- eða skotárásir í nán-
ast hverri ferð.
»Frá Íslandi var komið meðmjólkurduft og skreið.
♦♦♦