Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 2
2 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn-
arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BORGARRÁÐ hefur samþykkt al-
mennar reglur um úthlutun íbúðar-
húsalóða í Reykjavík. Samkvæmt
þeim verður lóðum úthlutað á föstu
verði og jafnframt er kvöð um
greiðslu viðbótargjalds ef lóðarrétt-
indi eða fasteign er seld innan sex
ára frá gerð lóðarleigusamnings.
Fagnaðarefni
Við afgreiðslu málsins í borgarráði
óskuðu borgarráðsfulltrúar Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að
bókað yrði að það væri sérstakt
fagnaðarefni að fyrir lægi uppbygg-
ingar- og úthlutunaráætlun til næstu
ára fyrir Reykjavík. Gert væri ráð
fyrir verulega auknu framboði lóða
og íbúða í borginni og sanngjarnar
úthlutunarreglur og fast lóðaverð
tryggðu að allir ættu raunverulega
kost á að byggja og búa í borginni,
„enda sýna þau gögn sem lögð hafa
verið fram á þessum fundi að það
lóðaverð sem nú er í boði í borginni
er með því allra lægsta sem þekkist í
nágrannasveitarfélögum okkar og
miklum mun lægra en það lóðaverð
sem hefur verið í Reykjavík á und-
anförnum árum“.
Í þessu sambandi bendir Björn
Ingi Hrafnsson, formaður borgar-
ráðs, á að nýlega hafi verið greint frá
því að einbýlishúsalóðir í nýju hverfi
í Urriðaholti í Garðabæ muni kosta
18 til 60 milljónir króna.
Komið í veg fyrir brask
Í reglunum um úthlutun íbúðar-
húsalóða í Reykjavík kemur m.a.
fram að með undirritun umsóknar
lýsi umsækjandi því yfir að hann
sæki um lóðina til þess að byggja á
henni húsnæði til eigin nota.
Viðbótargjald er nýmæli en það er
fimm milljónir kr. fyrir einbýlishús í
Úlfarsárdal, fjórar milljónir fyrir
par- og raðhús og tvær milljónir fyr-
ir íbúð.
Björn Ingi Hrafnsson segir að
brask með lóðir hafi verið gagnrýnt,
þ.e. að menn hafi sótt um lóðir án
þess að ætla sér að byggja sér þak
yfir höfuðið heldur til að gerast milli-
göngumenn og maka á því krókinn.
Hlutverk sveitarfélaga sé ekki að sjá
þeim fyrir lóðum heldur að sjá þeim
íbúum, sem áhuga hafa á því að
byggja, fyrir lóðum.
Einbýlishúsalóð í Úlfarsárdal kostar 11 milljónir króna, par- og raðhúsalóð 7,5 milljónir og íbúð 4,5 milljónir
Lóðum úthlutað á föstu
verði í Reykjavíkurborg
Morgunblaðið/Ómar
Lækkað verð Lóðum í Úlfarsárdal er úthlutað á föstu verði.
BJÖRN Ingi
Hrafnsson, for-
maður borg-
arráðs, segir að
fast verð sé á
lóðum á nýbygg-
ingarsvæðum og
markaðsverð á
lóðum á þétting-
arsvæðum. Ár-
lega verði boðið
upp á að minnsta
kosti 1.000 lóðir á nýbygging-
arsvæðum og ekki færri en 500
íbúðir á þéttingarsvæðum.
Reykjavíkurborg hefur kynnt
verð á lóðum í Úlfarsárdal. Þar
kostar einbýlishúsalóð 11 milljónir
króna, parhúsa- og raðhúsalóð 7,5
milljónir og 4,5 millj. kr. er lóð-
argjaldið fyrir hverja íbúð í fjöl-
býli. Björn Ingi Hrafnsson bendir á
að þetta lóðaverð sé með því lægsta
sem þekkist á höfuðborgarsvæðinu.
„Þessar lóðir eru á mjög hóflegu
verði en þær eru hins vegar á mjög
glæsilegu svæði,“ segir hann og
vísar til þess að þær séu í suð-
urhlíðum þar sem ríki mikil veð-
urblíða og auk þess verði þar fyrsta
flokks íþróttaaðstaða og vatna-
paradís.
Lóðir á hóflegu
verði í borginni
Björn Ingi
Hrafnsson
SAMKVÆMT frétt breska blaðsins
Daily Telegraph í gær nam hagnað-
ur Baugs Group 84,4 milljónum
punda á síðasta ári, jafnvirði um 10,7
milljarða króna. Blaðið segir hagn-
aðinn hafa dregist saman um 2⁄3 milli
ára en árið 2005 hafi Baugur hagnast
um 265 milljónir punda, eða um 34
milljarða króna. Baugur Group hef-
ur ekki tilkynnt formlega um afkomu
síðasta árs, enda félagið ekki skráð á
markaði.
Upplýsingarnar eru samkvæmt
frétt Daily Telegraph fengnar úr
skjölum sem hluthafar félagsins
Blueheath fengu vegna yfirtöku á
matvælakeðjunni Booker. Mun
Baugur hafa þurft að veita þessar
upplýsingar þar sem félagið á stóran
hlut í Booker. Munu eignir Baugs
um síðustu áramót hafa verið metnar
á 1,4 milljarða punda.
Hagnaður
hjá Baugi
minnkaði
ÍSLENDINGAR gengu seint og snemma til kosninga í gær og þessi tvö létu
ekki sitt eftir liggja, kusu rétt fyrir hádegi. Ríflega 221 þúsund manns hef-
ur kosningarétt um land allt og eru konur heldur fleiri en karlar. Þar af fá
nú rúmlega 17 þúsund manns að kjósa til Alþingis í fyrsta skipti.
Samkvæmt niðurstöðum síðustu skoðanakannana var útlit fyrir afar
spennandi kosninganótt þar sem hvert atkvæði gæti ráðið úrslitum.
Hver kýs rétt fyrir sitt leyti
Morgunblaðið/Kristinn
„ÉG GET NÚ sagt þér það að það
varð aldrei neitt ástand þar þó að
um 100–120 krakkar hafi komið
þarna,“ segir Ragnar Kristjáns-
son, varðstjóri hjá lögreglunni á
Akureyri, um samkomu tíundu-
bekkinga í Kjarnaskógi við Ak-
ureyri sem fram fór aðfaranótt
laugardags. Þeir höfðu safnast
saman þar til að fagna lokum sam-
ræmdu prófanna. Síðasta sam-
ræmda prófið var haldið á mið-
vikudag, en alls þreyttu um 4.500
börn á landinu samræmd próf í ár.
Talsverðu magni af
áfengi hellt niður
„Það sem varð til þess að hvorki
urðu nein læti þarna né í mið-
bænum var að við vorum með 20–
30 foreldra í vinnu. Þeir komu á
svokallað foreldrarölt og það var
bara tekið þannig á málunum að
engin vandræði urðu og við viljum
fyrst og fremst þakka foreldrunum
fyrir það hversu vel þetta fór
fram,“ bætir Ragnar við. Hann
segir þó að talsverðu magni af
áfengi hafi verið hellt niður og það
hafi verið gert strax. Lögregla og
foreldrar voru á rölti saman og
skiptu sér í hópa.
„Það var reyndar líka kalt og
leiðindaveður,“ segir Ragnar.
Lögreglan var vel undir það bú-
in að ýmislegt gæti gerst í kjölfar
loka samræmdu prófanna að þessu
sinni og setti saman prógramm
með það fyrir augum að fá for-
eldra í lið með sér. „Og við vorum
afskaplega ánægðir með nóttina,“
segir Ragnar og bætir við að fátt
hafi verið um ungmenni í miðbæ
Akureyrar.
Samkoma ung-
linga fór vel fram
Foreldrum að þakka hversu vel gekk
FÆREYINGAR eru farnir að búa
sig undir langvinna deilu á vinnu-
markaðnum því verkfall eða verk-
bann er yfirvofandi frá og með þriðju-
deginum kemur.
Viðræður samtaka færeyskra
verkalýðsfélaga og atvinnurekenda
um nýja kjarasamninga báru ekki
árangur í vikunni sem leið en boðaður
hefur verið fundur á morgun, mánu-
dag, til að reyna til þrautar að ná sam-
komulagi. Takist það ekki hefst verk-
fall eða verkbann aðfaranótt þriðju-
dags þegar kjarasamningar falla úr
gildi, að sögn færeyska útvarpsins í
gær.
Komi til verkfalls eða verkbanns
verða verslanir lokaðar og Færeying-
ar hafa því hamstrað matvæli og
bensín síðustu daga. Í höfuðstaðnum,
Þórshöfn, voru verslanir til að mynda
orðnar uppiskroppa með kartöflur og
grænmeti. Fiskvinnslufyrirtæki eru
hætt að taka á móti fiski og leggja
kapp á að ljúka vinnslu fisks, sem
landað hefur verið, áður en kjara-
samningarnir falla úr gildi.
Verkfall í
Færeyjum?