Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ A ðfaranótt mánudagsins 12. janúar 1970 héldu þrír Íslendingar, Þor- steinn E. Jónsson flug- stjóri, Einar Guð- laugsson flugmaður og Runólfur Sigurðsson flugvélstjóri, sem loftleið lá frá eyjunni São Tomé úti fyrir vesturströnd Afríku til Bí- afra. Fyrir lá að styrjöldinni í hinu skammlífa lýðveldi var að ljúka og Bíaframenn höfðu lotið í lægra haldi fyrir Nígeríumönnum. Uli- flugvöllur, þar sem hjálparflugvél- arnar höfðu lent mánuðina á undan, var fallinn í hendur þeim síð- arnefndu. Eigi að síður var ákveðið að fara í eitt lokaflug til að freista þess að sækja hjálparstarfsmenn Rauða krossins sem voru innlyksa í Bíafra og lenda á öðrum flugvelli, Uga, sem vonast var til að væri enn á valdi Bíaframanna. Þorsteinn var eini flugmaðurinn á São Tomé sem hafði séð Uga- flugvöll og því blasti við að hann færi í þessa svaðilför og buðust Ein- ar og Runólfur til að fljúga með hon- um. Með þeim um borð var írskur prestur, séra Cunningham að nafni. Flugið inn til Bíafra gekk áfalla- laust fyrir sig og fjarskiptasamband komst á við Uga-flugvöll, þar sem það fékkst staðfest að Bíaframenn réðu þar ríkjum. „Við lendinguna kom aftur á móti í ljós að engir Rauða krossmenn biðu vélarinnar heldur á að giska 40–50 Bíaframenn, menn, konur og börn, sem biðu þess að komast úr landi. Okkur leist ekki á ástandið en gátum ekki skilið fólk- ið eftir því við vissum ekki hvað yrði þá um það,“ rifjar Einar Guð- laugsson upp, nú tæpum fjórum ára- tugum síðar. Áhöfnin lét stiga út um aftur- dyrnar og upphófst þá æðisgengin barátta fólksins um að komast um borð. „Séra Cunningham hrópaði á fólkið og bað það að stilla sig en það var skelfingu lostið og virti hann ekki viðlits. Hann tróð sér þá út og niður stigann en var varla hálfnaður þegar skothríð hófst og byssukúlur buldu á vélinni. Við vorum allir aftur í þegar þetta gerðist en flýttum okk- ur að loka hurðinni og drifum okkur fram í vélina til að taka á loft. Þegar í flugstjórnarklefann var komið veitti ég því athygli að framrúðan var brotin og byssukúla sat föst í sætinu mínu. En það var enginn tími til að fást um það. Skothríðin hélt áfram. Við urðum að sleppa öll- um undirbúningi fyrir flugtak og komumst í raun ekki að því hvort vélin væri flughæf fyrr en við vorum komnir í loftið.“ Þorsteinn bað Einar að taka stýr- ið og nú fengu þeir kveðjur frá loft- varnaskyttunum. En það var ekki um annað að ræða en láta skeika að sköpuðu. „Þegar vélin var komin í um tíu þúsund feta hæð varð mér litið á Þorstein við hliðina á mér – hann var að lesa bók. Himinninn var logandi í sprengikúlum og ég bað Þorstein að líta út um gluggann. „Tjí, þetta er bara eins og á gaml- árskvöld. Farðu í suður,“ sagði hann og hélt áfram að lesa. Það hvorki datt né draup af manninum enda var hann svo sem ýmsu vanur úr seinni heimsstyrjöldinni. Þvílíkar stáltaugar.“ Eftir þetta gekk heimferðin að óskum og Einar minnist þess ekki að hafa flogið með þakklátari far- þega. Séra Cunningham hlúði að hinum særðu og skar m.a. byssu- kúlu með vasahníf úr hendi eins þeirra. 45 Bíaframenn reyndust vera í vélinni þegar loksins var unnt að gera manntal. Starfsmenn Rauða krossins sáu leiðangursmenn aldrei. Of ungur til að líta um öxl Eftir þessa dramatísku frásögn gerir Einar Guðlaugsson hlé á máli sínu. Við sitjum í stofunni á heimili hans í Grafarholtinu og horfum stundarkorn þegjandi út í loftið. Ég til að meðtaka þessa ótrúlegu lífs- reynslu viðmælanda míns og hann líklega til staðsetja sig aftur í örygg- inu heima á Íslandi öllum þessum árum seinna. Svo þú hefur ekki frá neinu að segja? byrja ég og vísa til símtals okkar nokkrum dögum áður, þar sem Einar botnaði ekkert í því að ég hefði áhuga á að taka við hann við- tal. Hann hlær. Þegar hann spurði í símanum á hvaða nótum viðtalið ætti að vera missti ég orðið „lífs- hlaupsviðtal“ út úr mér. „Lífs- hlaupsviðtal,“ át Einar þá upp eftir mér. „Ég er alltof ungur til að líta um öxl.“ Það er stutt í stríðnina og húm- orinn hjá þessum hægláta og við- kunnalega manni. Hann talar af yf- irvegun og styðst ekki aðeins við logbókina sína, meðan við rifjum feril hans upp, heldur einnig ýmsa pappíra og ljósmyndir til að frá- sögnin megi verða sem nákvæmust. Enda þótt Einar hafi varið starfs- ævinni í háloftunum er hann jarð- bundinn maður að eðlisfari. „Eigum við ekki að hafa þetta marktækt fyrst ég lét á annað borð hafa mig út í þetta?“ segir hann og brosir. Heilsaði Danakonungi Einar Elías Guðlaugsson fæddist SPRENGJUBJARTUR HIMINN Morgunblaðið/Kristinn Flugkappi „Við vissum ekki mikið um ástandið þarna niður frá. Við vissum að það geisaði stríð og það var búið að skjóta niður eina flugvél þegar þarna var komið sögu. Okkur var því ljóst að þetta væri hættulegt flug en fyrir 23 ára gamlan mann, sem er sannfærður um að hann sé ódauðlegur, var ekki mikið mál að drífa sig á vettvang,“ segir Einar Guðlaugsson þegar hann rifjar upp aðdraganda þess að hann fór til Afríku til að taka þátt í hjálparfluginu til Bíafra. Himinninn var logandi í sprengikúlum þegar hann flaug í síðasta sinn yfir hið skammlífa Afríkulýðveldi Bíafra, hann var á vettvangi flugslyssins hræðilega á Srí Lanka, hann móðgaði indversku þjóðina á einu bretti – rúman milljarð manna – og gammur gerði til- raun til að granda hon- um í háloftunum. Svo kveðst Einar Guð- laugsson flugstjóri ekki hafa frá neinu að segja. ÞRIÐJUDAGINN 20. janúar 1970 birtist í Morgunblaðinu grein eftir Þorstein E. Jónsson flugstjóra þar sem hann lýsir í ítarlegu máli loka- fluginu til Bíafra undir yfirskrift- inni „Síðasta flugvél frá Biafra“. Þar segir hann m.a.: „Áhöfn mín, hvoru tveggja ungir menn, hafði staðið sig með stökustu hugprýði við mjög erfiðar aðstæður, og ég er stoltur af þeim.“ Í niðurlagi greinar sinnar kemst Þorsteinn svo að orði: „Nú er Bi- afra liðið undir lok, en ekki það hörmungarástand sem þar er að finna. Mest langar okkur til að geta haldið áfram okkar starfi, sem er að koma matvælum til sveltandi fólks. Hér á Sao Tome eru nægar birgðir til að fæða 4 milljónir manna í 3 vikur, og tækin til að koma þessu til hinna bágstöddu. Skyldum við fá að gera þetta í friði, eða verður mannvonzkan og hefni- girnin ráðandi?“ Stoltur af áhöfninni ÆVINTÝRI Í HÁLOFTUNUM Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Foreldrarnir Einar og Guðrún systir hans ásamt foreldrum sínum, Þor- gerði Nönnu Elíasdóttur og Guðlaugi Magga Einarssyni.                           Í HNOTSKURN »Lýðveldið Bíafra var stofn-að 30. maí 1967 af héraðs- stjórninni í austurfylki Níger- íu og nefnt eftir flóa suður af landinu. Tilefnið var skipu- lagðar ofsóknir norðanmanna gegn Igbo-ættbálkinum sem taldi um sjö milljónir manna. Bjuggu flestir í austurhluta landsins. »Nígeríustjórn reyndi að nálandinu aftur og borg- arastyrjöld braust út. Álitið er að meira en milljón manna hafi farist úr hungri þegar Nígeríustjórn lokaði fyrir samgönguleiðir til Bíafra. »Aðeins Gabon, Haítí, Fíla-beinsströndin, Tanzanía og Zambía viðurkenndu sjálf- stæði Bíafra en fleiri ríki veittu því stuðning. Frakk- land, Ródesía og Suður-Afríka veittu Bíaframönnum hern- aðarstuðning og Ísrael sendi þeim vopn. »Stuðningur Portúgals varlíka mikilvægur en bæki- stöð hjálparstarfsins var á eyj- unum São Tomé og Príncipe, suður af Bíafra. »Hátt í fjörutíu Íslendingarunnu við hjálparstarfið í Bíafra. Frá Íslandi var komið með mjólkurduft og skreið. »Bíaframenn gáfust upp 15.janúar 1970 og samein- uðust Nígeríu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.