Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 20
20 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
Götusalar, nágrannar ognemendur í snyrtiskólahennar í Kabúl í Afgan-istan kalla hana Miss
Debbie. Það gerðu líka fangarnir í
fangelsinu, þar sem Deborah Ro-
driguez var fangavörður, í Holland,
Michigan-ríki í Bandaríkjunum. Og
kannski líka konurnar, sem hún
puntaði og greiddi hárið á í sömu
borg um árabil, eða þar til árið 2002
er hún slóst í för með kristilegum
mannúðar- og hjálparsamtökum til
Afganistans. Þá umturnaðist líf
þessarar hugumstóru, frökku, rauð-
hærðu og tvífráskildu hár-
greiðslukonu með löngu, lökkuðu
neglurnar, sem fer sínu fram og
bæði reykir og drekkur í landi
múslima ef henni þóknast svo.
Hún hefur nú sagt sögu sína með
aðstoð blaðamannsins Kristin
Ohlson í bókinni The Kabul Beauty
School með undirtitlinum An Am-
erican Woman Goes Behind the Veil
(Snyrtiskólinn í Kabúl; bandarísk
kona fer undir blæjuna), sem kom
út í síðasta mánuði. Þar fjallar Ro-
driguez um tildrög þess að hún sett-
ist að í þessari stríðshrjáðu borg, líf
og starf og kynni af innfæddum sem
aðfluttum. Bókin hefur fengið tölu-
verða athygli og yfirleitt góða dóma,
t.d. er gagnrýnandi
Culture, menningarfylgirits The
Sunday Times, hrifinn, en hann lýs-
ir henni m.a. með eftirfarandi hætti:
„Sagan varpar ljósi á óvenjulegar
sálfræðilegar breytingar, sem hún
gekk í gegnum, vaxandi sannfær-
ingu fyrir mikilvægi og réttmæti
eigin málstaðar, baráttu í gjör-
samlega framandi menningarheimi,
hvernig hún verður, ófús, að sætta
sig við takmörk þess mögulega og
ómögulega og um litlu sigrana
hennar.“
Hættu lífinu fyrir strípur
Sjálfsálit Rodriguez var þó ekki
upp á marga fiska þegar hún fyrst
kom til landsins ásamt fylgdarliði,
sem samanstóð af læknum, hjúkr-
unarfræðingum, ljósmæðrum, tann-
læknum og öðrum með augljósa
kunnáttu til að verða að liði. „Hvaða
gagn gæti fólk hér haft af hár-
greiðslukonu,“ hugsaði hún með
sér, dauf í dálkinn.
Undrun hennar var því ósvikin
þegar hún, ásamt fylgdarliðinu mik-
ilvæga, var kynnt fyrir löndum sín-
um, búsettum í Kabúl, og nokkrir
þeirra fögnuðu ákaft þegar hún
kvaðst vera hárgreiðslukona. „Við
höfum bókstaflega þurft að hætta
lífinu fyrir strípur,“ sagði ein konan
úr hópnum og lýsti svaðilförum sín-
um þeirra erinda frá Khyber Pass
til Pakistans.
Upp frá því hafði Rodriguez nóg
að gera við að snyrta hár vestrænna
kvenna í Kabúl og smám saman
einnig þeirra afgönsku, sem eiga
sér ríka hefð fyrir að reka eigin
snyrtistofur. Talibanarnir bönnuðu
slíkar stofur í valdatíð sinni eins og
svo margt annað, t.d. menntun
kvenna og ýmislegt, sem fólk gerði
sér til gamans og skemmtunnar.
Þótt afganskar konur hafi alla tíð
látið sér afar annt um hár sitt og
förðun hafði engin þorað að setja á
stofn snyrtistofu í borginni þegar
Rodriguez bar að garði. Óttinn lá
ennþá í loftinu, ólæsi var mörgum
konum þrándur í götu og þekkingin
í faginu hafði farið forgörðum.
Sínir eigin „herrar“
Sjálfsálit Rodriguez jókst til
muna þegar hún eygði leið til að
nýta menntun sína til að hjálpa
langhrjáðum konunum að verða
fjárhagslega óháðar eiginmönnum
sínum eða feðrum. Sínir eigin herr-
ar, ef svo má segja. Í því skyni
hugðist hún ekki aðeins kenna þeim
snyrtingu, förðun og hárgreiðslu
Snyrtiskólinn í Kabúl
Hulin förðun? Þótt það blasi ekki endilega við, eru afganskar konur sagðar láta sér mjög annt um útlitið.
BÆKUR»
Bandarísk hárgreiðslukona stofnaði snyrtistofu og -skóla í Kabúl, þar sem hún kennir
afgönskum konum snyrtingu og hárgreiðslu og býr þær undir eigin atvinnurekstur á því sviði
Höfundurinn Deborah Rodriguez,
hárgreiðslukonan hugumstóra.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Austurbær Lundúna fór áhliðina af eftirvæntingusíðastliðið haust þegargert var heyrinkunnugt
að argentínsku landsliðsmennirnir
Carlos Tévez og Javier Mascherano
væru gengnir í raðir West Ham
United. Engum datt annað í hug en
þeir væru á leið til Chelsea eða
Manchester United, slík er vigt
þeirra á velli, og fengur „Hamr-
anna“ því mikill.
Það er ofsögum sagt að félagarnir
hafi fengið fljúgandi start í ensku
úrvalsdeildinni. Í fyrstu níu leikj-
unum eftir komu þeirra laut West
Ham átta sinnum í gras og gerði eitt
jafntefli. Þeir voru eins og laxar í
lautarferð. Eftir þetta þótti mönn-
um fullreynt með Mascherano sem
fór á endanum til Liverpool, þar
sem hann leikur raunar við hvurn
sinn fingur. Tévez var settur í salt.
Hremmingar „Hamranna“ héldu
áfram þrátt fyrir eigenda- og spark-
stjóraskipti og börðust þeir á hæl og
hnakka í kjallara deildarinnar. Eftir
ævintýralegt tap á heimavelli fyrir
Tottenham, 3:4, í byrjun mars héldu
flestir að dagar liðsins meðal hinna
bestu væru taldir. Það hafði aðeins
hlotið 20 stig í 29 leikjum.
Fáa óraði fyrir því að þessi ægi-
legi leikur væri í raun upphafið að
upprisunni. Í honum skoraði Carlos
Tévez, sem Alan Curbishley hafði
skömmu áður sótt í saltpækilinn,
sitt fyrsta mark fyrir félagið, beint
úr aukaspyrnu, og lagði upp hin tvö.
Við það var eins og álögum væri af
honum létt og í næstu átta leikjum
fékk West Ham 18 stig af 24 mögu-
legum sem þýðir að félagið á mjög
góða möguleika á því að bjarga sér
frá falli í dag. Þarf stig gegn meist-
urum Manchester United á Old
Trafford til að vera öruggt en slepp-
ur líka ef Wigan leggur ekki Shef-
field United á Bramall Lane.
Froskakyssirinn mikli
Á engan er hallað þótt Tévez sé
eignaður heiðurinn af þessum æð-
isgengna endaspretti. Eitt frækileg-
asta björgunarafrek enskrar knatt-
spyrnusögu á síðari árum er í
uppsiglingu. Argentínumaðurinn
hefur farið á kostum, skorað mörk,
lagt upp mörk og hlaupið upp að
hnjám í hverjum leiknum af öðrum.
Hann er innblásturinn sem prýði-
lega mannað lið West Ham þurfti á
að halda, froskarnir eru aftur orðnir
að prinsum. Það er ómetanlegt þeg-
ar afburðahæfileikar og ástríða fara
saman og það stóð ekki á stuðnings-
mönnum West Ham að launa Tévez
erfiðið með því að velja hann leik-
mann ársins.
Hvernig sem fer í dag hefur hann
unnið hug og hjarta hinna spark-
elsku austurbæinga fyrir lífstíð.
Carlos Alberto Martínez fæddist í
Ciudadela í nágrenni Buenos Aires
5. febrúar 1984. Hann ólst upp við
kröpp kjör í hverfi sem heitir Ej-
ército de Los Andes en er í daglegu
tali kallað „Fuerte Apache“. Þaðan
er gælunafn Tévez komið,
„Apache“. Af ástæðum sem ekki eru
ljósar tók hann upp ættarnafn móð-
ur sinnar, Tévez, á unglingsárunum.
Auðkenni Tévez er ör sem nær
frá hægra eyra, niður hálsinn og
endar á bringunni. Það er afleiðing
slyss sem hann varð fyrir tíu mán-
aða gamall í eldhúsinu heima hjá sér
þegar hann togaði ketil með sjóð-
andi vatni niður af skenknum og yfir
sig. Olli vatnið þriðja stigs bruna og
var Tévez á gjörgæslu í tvo mánuði.
Örið er mjög greinilegt og á sínum
tíma bauðst félag hans í Argentínu,
Boca Juniors, til að greiða fyrir lýta-
aðgerð. Því góða boði hafnaði Tévez
á þeim forsendum að örið væri
órjúfanlegur hluti af honum.
Eins og svo mörg ungmenni í
Suður-Ameríku komst Tévez í kynni
við tuðruna á götum úti. Hann náði
fljótt góðu valdi á henni og þegar
hann var þrettán ára limaði Boca
Juniors hann inn í ungmennaaka-
demíu sína.
Tévez þreytti frumraun sína með
Boca sautján ára að aldri og vakti
snemma mikla athygli fyrir tækni
sína og markheppni. Hann lék í þrjú
ár með Boca og varð meðal annars
Argentínumeistari árið 2003. Gerði
25 mörk í 75 leikjum fyrir félagið.
Tévez minnir um margt á landa
sinn, goðsögnina Diego Maradona, á
velli enda lét samlíkingin snemma á
sér kræla. Hann hefur um árabil
rogast með hinn óbærilega kross
„hinn nýi Maradona“ og ekki dró
goðið sjálft, Maradona, úr vænting-
unum þegar hann kallaði á sínum
tíma Tévez „spámann 21. aldarinnar
í Argentínu“. Það er eins gott að
okkar maður er með breiðar herðar.
Tévez vakti fyrst athygli á heims-
vísu ári síðar þegar Argentína vann
gullverðlaun á Ólympíuleikunum í
Aþenu. Hann skoraði átta mörk í
sex leikjum á leikunum og varð
markakóngur. Í kjölfarið var hann
valinn knattspyrnu- og íþróttamað-
ur ársins í heimalandi sínu.
Dýrasti leikmaður
S-Ameríku
Í desember 2004 greiddi bras-
ilíska félagið Corinthians hæsta
verð sem um getur í Suður-Ameríku
fyrir Tévez, 20 milljónir Bandaríkja-
dala. Stuðningsmenn félagsins tóku
honum fálega í fyrstu en snerist
fljótt hugur. Tévez var fyrirliði og
lykilmaður í liði Corinthians sem
varð brasilískur meistari vorið 2005.
Alls gerði hann 25 mörk í 38 leikjum
fyrir brasilíska liðið.
Spámaður
21. aldarinnar
Reuters
Af lífi og sál Carlos Tévez (t.h.) fagnar marki ásamt félaga sínum hjá West
Ham United, Mark Noble. Verða þeir svona brosmildir kl. fjögur í dag?
KNATTSPYRNA»
»Hann er innblást-
urinn sem prýðilega
mannað lið West Ham
þurfti á að halda, frosk-
arnir eru aftur orðnir
að prinsum.