Morgunblaðið - 13.05.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.05.2007, Qupperneq 21
heldur líka að reka eigin snyrtistof- ur. Rodriguez var sannfærð um að grundvöllur væri fyrir atvinnu- rekstri af því taginu og gat með styrk stórfyrirtækja á borð við hár- snyrtifyrirtækið Paul Mitchell opn- að Snyrtiskólann í Kabúl árið 2003 með pomp og prakt. Aðdragandinn gekk að vísu ekki þrautalaust fyrir sig, tungumálaerfiðleikar settu strik í reikninginn og hin velmeinandi Miss Debbie þótti á stundum heldur óskammfeilin í ákafa sínum og stór- hug. Rodriguez átti auðvelt með að vingast við afgönsku konurnar og varð fljótt eins og ein af þeim. Snyrtiskólinn varð griðastaður kvennanna og þar gátu þær talað óáreittar fyrir körlunum um alla heima og geima. Bókin þykir gefa góða innsýn í vandamál sem konur þar í landi eiga við að glíma. Þar segir til að mynda frá brúðinni sem þóttist vera hrein mey og konunni, sem beið fyrir framan svefn- herbergisdyr brúðhjónanna eftir að fá afhentan blóðugan vasaklút sem sönnun fyrir meydómi tengdadóttur sinnar, tólf ára brúðarinnar, sem foreldrarnir seldu til að greiða skuldir sínar, og konu eins Talib- anans, sem hélt náminu í snyrtiskól- anum áfram þrátt fyrir stöðugar barsmíðar eiginmannsins. Sjálf hafði Rodriguez sætt ofbeldi af hendi eiginmanns síns. Reynsla afganskra vinkvenna hennar veitti henni styrk til að láta til skarar skríða og skilja við bónda sinn. „Og leyfa sér að elska á ný,“ eins og seg- ir á vef Random House-bókaútgáf- unnar. Eiginmaðurinn talar ekki ensku Sá sem vann hug hennar er tíu árum yngri, Afgani í húð og hár, sem talar ekki orð í ensku, barðist gegn Rússum í stríðinu og starfaði við að selja náttföt áður en hann hóf eigin atvinnurekstur með borvélar. Þar sem hann á nokkur börn og eiginkonu í Sádi-Arabíu virðist Ro- driguez ekki vera gallharður fem- ínisti. Hún brást samt við sem slík- ur eitt sinn þegar klipið var í rassinn á henni á útimarkaði. „Ég sneri mér við og sá þennan stóra, ljóta karl, sem gekk fast á hæla mér. Ég gaf honum illt auga gegn- um litlu götin á búrkunni minni og hélt að hann myndi láta segjast. En um leið og ég sneri mér við kleip hann mig aftur. Þá snarsneri ég mér við, þeytti upp búrkunni og kýldi hann í andlitið,“ lýsir Rodrigu- ez á einum stað samskipum sínum við hitt kynið. Hún er stolt af öllum 182 útskrift- arnemum sínum, sem hún segir flesta hafa áður unnið fyrir lús- arlaunum, en hafi nú allt upp í eitt þúsund dollara á mánuði. En ólgan heldur áfram í Kabúl. Eftir að bandarískur herbíll lenti í árekstri í maí í fyrra logaði borgin í ófriði, átta létust og meira en eitt hundruð særðust. Rodriguez og nemendur hennar þurftu að sæta lagi til að komast út úr skólanum og í nálægt húsaskjól. Bæði skólinn og snyrti- stofan voru lokuð þar til nokkrum vikum áður en bókin kom út. Rödd kvennanna Þótt frú Debbie þori ekki lengur að ganga úti á götu, jafnvel ekki með lífverði, heldur hún starfi sínu ótrauð áfram „Ástandið er orðið margfalt verra eftir að Talibanarnir styrktu stöðu sína. Stundum er ég rödd kvennanna í samskiptum þeirra við eiginmenn og lækna. Þær vita að ég stend með þeim og get haft áhrif. Ég get ekki farið frá Afg- anistan fyrr en rödd þeirra heyrist,“ sagði hún í viðtali við San Francisco Chronicle. Hún hefur enda engin áform um að fara aftur til Banda- ríkjanna. Í HNOTSKURN » The Kabul Beauty Schoo-ol verður þýdd á a.m.k. tólf tungumál, en kemur ekki út í Afganistan. » Bókin er byggð á dagbók,sem Rodriguez hélt í formi tölvupósts og sendi fjölskyldu og vinum. » Þótt fall Talibananna2001 hafi vakið vonir um betra líf fyrir afganskar konur virðist jafnrétti fjarlægur draumur. Skjól Snyrtiskólinn var líka griða- staður kvennanna. Tévez var í landsliðshópi Argent- ínu á heimsmeistaramótinu í Þýska- landi í fyrra og kom talsvert við sögu enda þótt hann ætti ekki fast sæti í byrjunarliðinu. Hann hefur leikið 25 landsleiki og gert í þeim fjögur mörk. Í fyrrasumar kastaðist í kekki með Tévez og Corinthians og að því kom að leikmaðurinn neitaði að skrýðast búningi félagsins framar. Fréttin fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina og stórlið Evrópu hugsuðu sér gott til glóðarinnar. Það kom því eins og þruma úr heið- skíru lofti þegar þeir Tévez og Mascherano skrifuðu undir samning við West Ham. West Ham vill halda honum Ýmsir voru á því að maðkur væri í mysunni og eftir japl, jaml og fuður var West Ham sektað um ríflega 700 milljónir króna vegna þessara undarlegu viðskipta en samningar Tévez og Mascheranos reyndust vera í eigu fjárfestingafélagsins Media Sports Investments en regl- ur úrvalsdeildarinnar banna að leik- menn séu eign þriðja aðila. Enn er ýmislegt óljóst í málinu og fróðlegt verður að sjá hvernig greitt verður úr þessari eignarhaldsflækju í sumar. Eggert Magnússon, stjórn- arformaður West Ham, hefur lýst því yfir að hann vilji halda Tévez en til þess að það verði er grundvall- arskilyrði að West Ham verji sæti sitt í úrvalsdeildinni. Sjálfur hefur kappinn ekki tekið því fjarri enda þótt spænsk-enska orðabókin sé komin upp í hillu – a.m.k. að sinni. Vösk framganga Tévez á liðnum vikum hefur ekki bara æst upp áhuga liðanna í efri hluta ensku úr- valsdeildarinnar heldur líka stórlið- anna á Spáni þannig að Eggert Magnússon þarf örugglega að bretta upp ermarnar fyrir átök sumarsins. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 21 Tími: 14:30 - 15:05 Stofa: K2 Kringlunni 1 OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKA 9 • KRINGLUNNI 1 SÍMI: 599 6200 www.hr.is Nemendur sem eru að íhuga nám við skólann eru sérstaklega hvattir til að mæta. á lokaverkefnum í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík OPIN KYNNING Miðvikudagur 16. maí Föstudagur 18. maí TSM Status Monitor Í verkefninu var gert kerfi sem safnar upplýsingum frá TSM server og sýnir tölulegar upplýsingar um afritun, sem styður kerfisstjóra við að fylgjast með hvort afritun gagna hefur gengið samkvæmt áætlun. Samstarfsaðili: Basis ehf. Nemendur: Páll Guðjón Sigurðsson, Kristján Björn Birgisson. Eve The Second Genesis - Electronic Card Game Í verkefninu var smíaður tölvuleikur sem byggir á safnkortaspilinu EVE: The Second Genesis frá CCP. Markmiðið var að hanna frumgerð af leikjaþjóni ásamt grafísku viðmóti sem gerir tveimur notendum kleift að spila tölvuleikinn yfir netið. Samstarfsaðili CCP. Nemendur: Gunnar Steingrímsson, Halldór Björgvin Jóhannsson, Svanur Björnsson. Sérhæft netbókhaldskerfi Smíðað var netbókhaldskerfi fyrir lítil fyrirtæki í verkefninu. Færslur eru færðar frá heimabanka inn í bókhaldskerfið og beitt er verklagsreglum til að áætla líklegt val bókhaldslykla á færslu. Samstarfsaðili: Fakta. Nemendur: Elín Helga Egilsdóttir, Jakob Árni H. Ísleifsson. SYVI - Kerfi fyrir samninga Útfært var kerfi sem sér um skjölun á gagnaflutningum frá þriðja aðila og milli deilda innanhúss í svokallaða samninga. Einnig sér kerfið um vöktun á innsendum gögnum og vefviðmótum fyrir þriðja aðila og innanhúss. Samstarfsaðili: Teris. Nemendur: Hafsteina Helga Sigurbjörnsdóttir, Óðinn Baldursson, Ólafur Hrafnsson. Herstjórinn Í verkefninu var smíðað kerfi til að senda auglýsingaherferðir á ákveðna póstlista og gefnir möguleikar á að skoða árangur herferðar út frá því hversu margir smelltu á tengla í póstinum. Samstarfsaðili: TM-Software - Origo Nemendur: Andri Kristjánsson, Björgvin Þór Sigurólason, Hannes Agnarsson Johnson. Upplýsinga- og geymslukerfi fyrir bifreiðar Í verkefninu var smíðað kerfi sem heldur utan um skráðar upplýsingar um bifreiðar sem eru í vörslu Vöku. Kerfið tengist Ökutækjaskrá til að fá upplýsingar um bifreiðar og einnig er hægt að senda upplýsingar í Navision Financials til reikningagerðar. Samstarfsaðili: Vaka. Nemendur: Rúnar Grétarsson, Sigurður Örn Jónsson. Sjáandi - Vöruhús heilsufarsgagna Vöruhús heilsufarsgagna er gagnagrunnur með upplýsingum frá ýmsum stöðum í heilbrigðiskerfinu. Í verkefninu var smíðuð viðbót við vöruhúsið ásamt greiningartæki sem notað verður af Landlæknisembættinu til að styðja ákvarðanatöku í heilbrigðismálum Íslendinga. Samstarfsaðili: Kögun hf. Nemendur: Ari Geir Hauksson, Sverrir Ámundsson. Kerfi fyrir ferðaþjónustuaðila Snertilausnir sérhæfa sig í kerfum fyrir standa með snertiskjáum fyrir ferðamenn. Í verkefninu var smíðað bókunarkerfi á vef, sem nýtist ferðaþjónustuaðilum við að bóka þjónustu fyrir viðskiptavini og afgreiða bókunina hratt og örugglega. Samstarfsaðili: Snertilausnir. Nemendur: Erlendur Arnar Gunnarsson, Halldór Kári Hreimsson, Hrannar Örn Hauksson. Skjalakerfi fyrir HugAx Verkefnið felst í því að gera nýtt skjalakerfi í stað eldra kerfis, sem heldur utan um öll skjöl fyrirtækisins. Í nýja kerfinu eru öflugir leitarmöguleikar og umsýsla með skjöl mjög þjál. Samstarfsaðili: HugurAx. Nemendur: Davíð H. Brandt, Kjartan Þ. Kjartansson, Sigurjón S. Guðbergsson. Eignaskráningarkerfi Verkefnið fólst í að smíða vefkerfi til að halda utanum eignir Ratsjárstofnunar. Kerfið nýtist vel til yfirlits, skýrslugjafar, leitar, flokkunar, skráningar og aðgreiningar á upplýsingum milli deilda. Samstarfsaðili: Ratsjárstofnun. Nemendur: Róbert Þ. Gunnarsson. LVF Mæliniðurstöður Í verkefninu var smíðað vefkerfi, sem reiknar út og heldur utanum mæliniðurstöður LVF fiskimjölsverksmiðju. Samstarfsaðili: Loðnuvinnsluna hf. á Fáskrúðsfirði. Nemendur: Valborg Jónsdóttir. OMX Incident Manager Í verkefninu var hannaður grunnur að Incident Management kerfi fyrir OMX Technology á Íslandi. Kerfið er gagnvirkur þjónustuvefur sem styður við “1 and 2nd line support” fyrir alla viðskiptavini OMX. Samstarfsaðili: OMX. Nemendur: María Jakobsdóttir, Þór Arnar Curtis. Mánudagur 21. maí 2007 Föstudagur 18. maí Tími: 13:00 - 13:35 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 13:45 - 14:20 Stofa: K2 Kringlunni 1 Tími: 14:30 - 15:05 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 15:15 - 15:50 Stofa: K2 Kringlunni 1 Tími: 16:00 - 16:35 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 12:15 - 12:50 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 13:00 - 13:35 Stofa: K2 Kringlunni 1 Tími: 13:45 - 14:20 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 14:30 - 15:05 Stofa: K2 Kringlunni 1 Tími: 12:15 - 12:50 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 13:00 - 13:35 Stofa: K2 Kringlunni 1 Tími: 13:45 - 14:20 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 12:10 - 12:55 Stofa: K3 Kringlunni 1 Tími: 09:45 - 10:20 Stofa: K2 Kringlunni 1 Tími: 10:30 - 11:05 Stofa: K5 Kringlunni 1 Tími: 11:15 - 11:50 Stofa: K2 Kringlunni 1 Vélræn gerð samheitaorðabókar Í verkefninu var aðferð til að finna samheiti í texta útfærð og metin. Aðferðin byggir á þeirri tilgátu að orð með sömu merkingu koma oft fyrir í sama samhengi. Samstarfsaðili: Háskólinn í Reykjavík. Nemendur: Frank Arthur Blöndahl Cassata. Video Retrival - Using local Descriptors and NV-tree indexing Í verkefninu var smíðað kerfi til að leita í myndskeiðum eftir innihaldi. Segja má að kerfið “horfi á” myndskeið þegar það býr til gögn sem lýsa myndrænu innihaldi skeiðanna sem eru vistuð í sérstökum gagnagrunni. Til dæmis er hægt að finna úr hvaða kvikmynd stutt myndskeið af Youtube eru komin. Samstarfsaðili: Háskólinn í Reykjavík. Nemendur: Kristleifur Daðason. Median Rank Aggregation Í verkefninu var leitaraðferð fyrir margvíð gögn rannsökuð, (Median Rank Aggregation) sem er aðferð til að finna nálægustu nágranna í margvíðum gögnum. Algrím var útfært, prófað og sett fram sem nothæfur pakki fyrir frekari tilraunir á algríminu. Samstarfsaðili: Háskólinn í Reykjavík. Nemendur: Hjalti Jakobsson, Ævar Örn Kvaran. A Platform for Humanoid Í verkefninu var smíðaður rammi (e. framework) fyrir stýringar á vélmennum og hann notaður til að gera einfaldar skipanir svo sem sestu og vinkaðu til að sýna fram á að ramminn er auðveldur í notkun. Samstarfsaðili: Háskólinn í Reykjavík. Nemendur: Andri Mar Jónsson, Ágúst Hlynur Hólmgeirsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.