Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 23
eigu Reykjavíkurborgar, en Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri sló strax tóninn í uppbygg-
ingunni þar, þegar hann í bjarma
eldsins lýsti því yfir að húsin yrðu
endurbyggð sem næst sinni upp-
runalegu mynd. Guðný Gerður
Gunnarsdóttir borgarminjavörður
hefur sagt það eindreginn vilja allra
hlutaðeigandi yfirvalda að götu-
myndin á horni Austurstrætis og
Lækjargötu verði endurbyggð í
þeirri mynd sem hún var fyrir brun-
ann. „Þar hafa borgaryfirvöld lagt
áherzlu á að viðhalda götumynd-
inni,“ segir Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, formaður skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar. „Sú skoðun úti-
lokar þó alls ekki uppbyggingu á
reitnum, enda talsvert rými fyrir
aftan umrædd hús sem sjálfsagt er
að skoða með frekari nýtingu í huga.
Viðræður hafa átt sér stað milli
borgaryfirvalda og eigenda húsanna
og nú er beðið tillagna um uppbygg-
ingu frá sérstökum vinnuhópi.
Stefna borgaryfirvalda er að upp-
byggingin á þessum stað verði í sátt
við söguna, en líka þannig að mið-
borgin fái áfram tækifæri til að efl-
ast.“
„Ég tel að það eigi að gera við
húsið við Lækjargötu, það er fyrst
og fremst viðgerðarverkefni, og
Austurstæti 22 á að endurbyggja í
sínum fyrsta stíl; eins og húsið var
fyrir 1915, og það af byggingalist-
arlegum ástæðum og skipulags-
legum með tilliti til hæðarinnar,“
segir Magnús Skúlason, for-
stöðumaður húsafriðunarnefndar.
„Mér finnst að það eigi að láta gömlu
Reykjavík í friði og þá byggja þessi
hús upp í anda þess sem var,“ segir
Guðrún Jónsdóttir arkitekt.
Og Pétur H. Ármannsson, arki-
tekt og stjórnarmaður í Torfu-
samtökunum, segir ekki vafa í sínum
huga, að húsin eigi að endurbyggja í
þeirri mynd sem þau voru upp á sitt
bezta á 19. öld. „Fyrir þessu eru
margar ástæður. Við eigum afar fá
hús eftir frá 19. öld og sérstaklega
fyrri hluta hennar. Þessi þriggja
húsa samstæða; (Eymundsson-
arhúsið, Yfirréttarhúsið og Hress-
ingarskálinn) hefur í 200 ár verið
eitt helzta kennileiti Reykjavíkur og
hluti af umgjörð stjórnarráðsins og
Lækjartorgs.
Yfirréttarhúsið var mjög fallegt í
sinni fyrstu mynd. Það hefur ótví-
rætt menningarsögulegt gildi og hin
húsin tvö eiga líka sína sögu.
Í mínum huga er það skipulagsleg
nauðsyn að halda þarna lágum hús-
um. Háhýsi myndu byrgja fyrir sól-
ina.
Við eigum að nota tækifærið og
fjarlægja þarna bakhús og skapa
möguleika til að nýta þar garðsvæði
og tengja þau saman með göngu-
götu. Svæðið myndi þá njóta sólar
úr suðri og vera í skjóli bygginga
norðan við.
Þeir sem hugsa í stærri einingum
eiga að horfa norður fyrir Lækj-
artorg og láta spennandi arkitektúr
njóta sín þar í höfuðstöðvum Lands-
bankans og tengingu við Tónlistar-
húsið.“
Atli Heimir Sveinsson tónskáld
hefur mælt opinberlega gegn slíkri
uppbyggingu á horni Austurstrætis
og Lækjargötu. Í grein í Morg-
unblaðinu í apríllok hvatti hann til
þess að byggt yrði „stórmannlega“ á
brunarústunum og vill fá til „frá-
bæran, heimsþekktan arkitekt er-
lendis frá“ til að hanna hús á bruna-
rústunum, hús sem myndi kallast á
við væntanlega Tónlistarhöll og
verða miðpunktur höfuðborg-
arinnar, „sem allur umheimurinn
mundi dást að og afkomendur okkar
vera stoltir af um ókomna tíð“. Á
íbúaþingi um uppbyggingu á horni
Lækjargötu og Austurstætis;
Hvernig bætum við brunann?
hnykkti Atli Heimir á þessari skoð-
un sinni og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri hnykkti á sinni:
„Upp úr þessum brunarústum munu
rísa hús á gömlum grunni og sótt
verður í sjóði fortíðarinnar.“ Einar
Bjarki Malmquist, arkitekt í Noregi,
fjallaði í máli og myndum um upp-
bygginguna í Þrándheimi eftir brun-
ann 2002 og segir í frásögn Morg-
unblaðsins af íbúaþinginu, að ljóst
hafi verið af viðbrögðum áhorfenda
sem sumir tóku andköf, að hug-
myndir Norðmanna hugnuðust þeim
ekki.
Björgólfur Guðmundsson, stjórn-
arformaður Landsbankans, sagði á
íbúaþinginu: „Verndun menning-
arverðmæta er mikilvæg, en þau
viðhorf mega ekki hindra eðlilega
framþróun borgar …“ Og síðar
sagði Björgólfur að skoða ætti hvort
bruninn gæfi tækifæri til að ná fram
„áhugaverðri heildarmynd sem
muni þjóna miðbænum til framtíðar.
Þessi hús voru falleg og merkileg en
þau falla ekki vel að skipulagi reits-
ins kvosarmegin við Lækjargötuna.“
Laugavegurinn lengi
lifi - en hvernig
Þegar rætt er um skipulagsmál í
Reykjavík, er Laugavegurinn öllum
BORG Í DEIGLU
Magnús Skúlason, forstöðumaður
húsafriðunarnefndar, segir, að húsa-
friðun eigi undir högg að sækja. „Fólk
er almennt ekki á bandi húsafriðunar,
þótt ef til vill hafi eitthvað rofað til í
þeim efnum síðustu misserin. Við er-
um alltaf 20, 30 árum á eftir því sem
er að gerast í kring um okkur.
Sú kynslóð sem er næst á undan
mér upplifði erfiða tíma og sára fá-
tækt. Hún tengdi timburhúsin við tím-
ann og vildi þau burtu, en tók þess í stað ofsatrú á stein-
steypu. Þessi misskilda minnimáttarkennd hefur orðið
eldri húsamynd Reykjavíkur dýrkeypt.
Hún hefur leitt til þess, að það hefur verið alltof mikið
um það að gömul hús hafa verið rifin í Reykjavík og
ekkert skeytt um afleiðingar þess sem kemur í staðinn.
Ísafoldarhúsið, þar sem Morg-
unblaðið var eitt sinn til húsa, var
reyndar ekki rifið, en illu heilli flutt í
burtu. Og í stað þess kom nýtt hús
sem varpar skugga niður í strætið.
Hæðin skiptir meginmáli. Ég er ekki
að segja að eitt og eitt kennileiti megi
ekki standa upp úr borgarlandslag-
inu, en heildin á að vera á lægri nót-
unum. Reykjavík er einfaldlega þann-
ig borg.“
Magnús segir að mörg hús sem eru friðunar virði séu
enn ófriðuð. Hann nefnir sem dæmi að af tíu ára göml-
um tillögum um húsavernd í Reykjavík standi margt
enn út af borðinu. Lækjargata 2 er í þeim hópi og Magn-
ús nefnir líka hús í Miðstræti og Þingholtsstræti. „En
þetta sígur svona áfram.“
Húsafriðun á undir högg að sækja
Á elleftu stundu Alliance-húsinu
hefur verið bjargað frá niðurrifi.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
6
3
4
Veldu verðtryggðan sparireikning
hjá Kaupþingi sem hentar þér.
Verðtr
yggðir
sparire
ikninga
r
með a
llt að
6,6% v
öxtum
Þú getur stofnað sparireikning í Netbanka Kaupþings
á kaupthing.is eða í næsta útibúi.