Morgunblaðið - 13.05.2007, Qupperneq 32
stjórnmál
32 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Friðjónsdóttir, sem titluð er dag-
skrárstjóri frambjóðenda í Reykja-
vík og segir þetta ekki ósvipað því
að verkefnastýra stórri kvikmynd.
„Þetta er orðin svo strúktúreruð
og einsleit kosningabarátta,“ segir
starfsmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Allir fjölmiðlar ræða við sama fólk-
ið, auglýsingar eru með svipuðu
sniði og fólkið situr í stofunni heima
og fylgist með. Það er erfitt fyrir
kjósendur að átta sig á því hvaða
munur er á stefnu flokkanna og
þeim hlýtur að leiðast þessi umfjöll-
un. Þeir verða því fegnastir að geta
kosið á kjördag og gengið út í sum-
arið.“
Rólegt yfirbragð kosningabarátt-
unnar skýrist af því að átakaflet-
irnir hafa minnkað, að sögn Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar,
prófessors í stjórnmálafræði.
„Varnarliðið hvarf úr landi á kjör-
tímabilinu og markaðshagkerfið er
ekki lengur umdeilt. Það er því eðli-
legt að baráttan sé rólegri og frið-
samlegri en áður. Íslendingar eru
að færast nær hver öðrum.“
Hvað er á matseðlinum?
Það er í nógu að snúast hjá fram-
bjóðendum og þeir leggja ýmislegt
á sig til að hitta kjósendur. Jón
Magnússon, frambjóðandi Frjáls-
lynda flokksins, kvartar undan
óvenju óhagkvæmum innkaupum
meðan á kosningabaráttunni stend-
ur. „Ég hef hingað til reynt að vera
hagkvæmur, en nú er ég alltaf að
gera mér erindi í búðir og enda
kannski á því að kaupa eina und-
anrennu, baunadós eða fjórar app-
elsínur.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
hleypur inn í þinghúsið og rétt kast-
ar kveðju á blaðamann. Hún er ný-
komin af fundi og er að sækja sér
næringu fyrir þann næsta. Það má
heyra að hún er að missa röddina.
Ólafur Hannibalsson er nánast
raddlaus þar sem hann ræðir við
starfsmenn á vinnustaðafundi í
mötuneyti Landspítalans. Hann
biðst afsökunar á því og fer með
vísu.
Fólk heldur áfram að snæða mat-
inn sinn og það berast engar spurn-
ingar, enda eru færri en venjulega í
mötuneytinu. Á matseðlinum eru
soðnar kjötbollur, hvítkálsjafningur
og kartöflur. „Mætingin fer eftir því
hvað er í matinn,“ segir einn starfs-
maður spítalans. „Flokkarnir ættu
kannski að gá að því áður en þeir
boða komu sína.“
„Viðtökur eru misjafnar eftir
vinnustöðum,“ segir frambjóðandi.
Einn af fáum sem ekki horfðu á Eirík Hauksson
syngja í Evróvisjón á fimmtudag var Ólafur Þ. Harð-
arson, prófessor í stjórnmálafræði. En hann hafði þó
mikinn áhuga á úrslitunum. Eða eigum við að segja
áhyggjur? „Ég vonaði bara að Eiki kæmist ekki
áfram,“ segir hann. „Það var helsta ósk okkar í kosn-
ingasjónvarpinu. Á meðan kosið er annan laugardag í
maí getum við ekki byrjað fyrr en klukkan 22 og árið
2003 gafst ekki tími til að endurtaka sigurlagið. Það
var bara spilað eftir dúk og disk um nóttina. Það er
svo sem allt í lagi, nema ef Eiki hefði unnið. Þá hefð-
um við getað lent í því að velja á milli Eika í sigurvím-
unni og þess að fá fyrstu tölur úr Kraganum,“ segir
hann og hlær.
Hann er ósammála þeim sem segja kosningabarátt-
una leiðinlega. „Þetta hefur farið vel og prúðmann-
lega fram. Sumir hafa sagt þetta dauflega baráttu.
Það hafa menn sagt síðan ég man eftir mér. Það er
gjarnan talað um að hér áður fyrr hafi menn tekist al-
mennilega á og rifist. En oft þýðir lífleg kosningabar-
átta að hún sé ómálefnaleg. Það dásama til dæmis
margir framboðsfundina á Austfjörðum og Vest-
fjörðum í gamla daga, sem voru í raun skemmtiefni
og ómálefnalegt skítkast á köflum.“
Ólafur er þeirrar skoðunar að fjölmiðlar hafi staðið
sig vel á heildina litið og gefið frambjóðendum mikið
rúm. „Það er gífurlega mikilvægt að fjölmiðlar sinni
þessu lýðræðislega hlutverki, sérstaklega ef flokkar
vilja takmarka kostnað. Með því er komið í veg fyrir
að þeir verði háðir dýrum auglýsingum. En baráttan
hefur verið málefnaleg og menn farið yfir breitt svið.
Ef einhverjum finnst það leiðinlegt, þá verður bara að
hafa það.“
Öfugt við það sem margir halda hefur áhugi á
stjórnmálum ekki minnkað frá því mælingar á því hóf-
ust árið 1983, þó að kjörsókn hafi dalað lítillega. Og
spurning vaknar hvort Evróvisjón sé ef til vill að
spilla kjörsókninni?
„Þetta er skemmtileg tilgáta og við höfum ekki
mikil gögn til þess að prófa hana. En síðast var kjör-
sókn 87% og jókst frá kosningunum þar áður, sem var
tæp 85%. Þannig að kjörsóknin jókst með Evróvisjón –
án þess að ég ætli að halda því fram að Evróvisjón ýti
undir kjörsókn!“
Þá verður bara að hafa það
Morgunblaðið/Golli
Byltingin Kosningabæklingar Vinstri grænna og lesning um félaga Che Guevara.
Morgunblaðið/Golli
Slátur Þjóðlegt skal það vera á skrifstofu Frjálslynda flokksins.
Morgunblaðið/Golli
Einbeiting Árni Þór Sigurðsson að störfum á kosningaskrifstofu Vinstri grænna.
Morgunblaðið/Golli
Tombóla Það má vinna ýmislegt á tombólunni hjá Samfylkingunni.
Morgunblaðið/Golli
Hlaðborð Það er kræsilegt hlaðborðið hjá Framsóknarflokknum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Anddyrið Geir H. Haarde brosandi
með geislabauginn.