Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 33
„Á sumum þeirra vill fólk fá að vera
í friði og þá talar maður í örfáar
mínútur og gefur því svo kost á að
ræða málin. Það er engin ástæða til
að þreyta fólkið.“ En stundum er
eins og ekki verði þverfótað fyrir
frambjóðendum. „Á árshátíð Fylkis
voru átta frambjóðendur,“ segir
einn og heldur því fram að hann
hafi verið eini Fylkismaðurinn af
þeim.
Ef til vill er brandari sem sami
frambjóðandi segir lýsandi fyrir þá
stöðu sem þeir eru í: „Einhvern
tíma var brandarinn um rottutil-
raunir heimfærður á lögmenn, en
nú virðist hann eiga við um stjórn-
málamenn. Hann er þannig að vís-
indamenn eru farnir að nota stjórn-
málamenn frekar en rottur sem
tilraunadýr vegna þess að það er
minni hætta á að þeir myndi tilfinn-
ingasamband við þá en rotturnar og
hægt er að fá þá til að gera hvað
sem er.“
En Össur Skarphéðinsson, sem
vaknaði sex um morgun til að dreifa
Samfylkingarvatni og breiða út
fagnaðarerindið, lýsir því öðruvísi
þegar hann hittir fyrrum nemendur
sína frá Ísafirði. „Þeir taka mér allt-
af vel og ég þarf ekki tala lengi við
þá áður en þeir lofa því að minnast
mín að minnsta kosti í kvöldbænum
sínum.“
Vinstri grænir of sniðugir?
Flestir viðmælenda voru á einu
máli um að ekki bæri að líta á aug-
lýsingar eingöngu sem skrum, því
oftast fælust í þeim skilaboð og inni-
hald. Almennt þykja auglýsingarnar
málefnalegar og það þykir heil-
brigðismerki á íslenskum stjórn-
málum að náðst hafi samkomulag
um takmörkun á auglýsingum.
Skoðanir voru afar ólíkar á her-
ferðum stjórnmálaflokkanna. Flest-
um fannst auglýsingaherferð Sjálf-
stæðisflokksins passa vel fyrir
flokkinn – ýta undir þá ímynd að
stjórnarseta flokksins væri forsenda
stöðugleika. Öðrum fannst hún leið-
inleg og einn lýsti því baráttunni
þannig að það ætti að læðast í gegn-
um húsið án þess að vekja heim-
ilisfólkið. Þá lýstu sumir undrun yf-
ir því að Sjálfstæðisflokkurinn
auglýsti minna en aðrir flokkar.
Fleiri voru ánægðir með herferð
Samfylkingarinnar. Einn sagði aug-
lýsingarnar einfaldlega virka, svo
sem áherslan á biðlistana sem fór
að bera á eftir landsfundinn. Þó var
bent á að lögð væri áhersla á fram-
bjóðendur sem margir hverjir ættu
litla möguleika á að komast inn á
þing á meðan þingmenn flokksins
væru lítt áberandi.
Vinstri grænir þóttu ýmist afar
sniðugir eða með „langverstu“ aug-
lýsingarnar vegna þess að þeir
væru of uppteknir af því að vera
sniðugir og væru því ekki með nógu
víða skírskotun. Til marks um snið-
ugheitin var að frambjóðendur
völdu „sinn stað“ fyrir myndatökur,
þannig að myndirnar væru sprottn-
ar úr farvegi fólksins. Og ungir
vinstri grænir keyptu merkjavél til
að hengja hugmyndir sínar í flíkur
landsmanna. Á einu þeirra stóð:
„Ég er Hafnfirðingur“.
Hvað Framsókn varðar greindi
einn taugaskjálfta, en flestir voru á
því að þær væru í lagi fyrir flokk-
inn. Það væri vel til fundið að kynna
nýja formanninn, Jón Sigurðsson,
kjósendum í sjónvarpsauglýsingum
og hann kæmi vel fyrir.
Rólegur sunnudagur
Einn viðmælenda er á því að eft-
irmál kosninganna verði miklu
meira spennandi en kosningarnar
sjálfar. En hvað sem því líður ætla
margir frambjóðendur að taka það
rólega á sunnudag. Einn heldur til
New York í nokkra daga og annar
gengur upp á Esjuna. „Þar getur
maður hvílt hugann og verið einn
með sjálfum sér. Það eru mikil for-
réttindi.“ Hann lætur annað göngu-
fólk í friði, – næstu fjögur árin. Þá
fer aftur að heyrast:
Góðan daginn!
Morgunblaðið/ÞÖK
Kringlan Guðfinna Bjarnadóttir og Geir H. Haarde tala við kjósendur.
„... þeir lofa því að minn-
ast mín að minnsta kosti í
kvöldbænum sínum.“
Yfirnáttúrulegar
furður
Miðasalan fer fram á www.listahatid.is og í síma 552 8588, alla virka daga
frá kl. 10 til 16. Miðasala á Cymbeline 15. og 16. maí er hjá Listahátíð en 17.
og 18. maí hjá Þjóðleikhúsinu á www.leikhusid.is. Miðasala við innganginn
hefst klukkustund fyrir viðburð.
Miðasala
Tónleikarnir byggja á samnefndum geisladiski sem tilnefndur
var sem diskur ársins á Íslensku tónlistar-verðlaununum
í fyrra. Flutt verða tónverk Atla Heimis Sveinssonar fyrir
einleiksflautu og flautu og píanó. Í aðlhlutverki með flautuna
er Áshildur Haraldsdóttir: Flytjendur auk Áshildar eru
píanóleikararnir Anna Guðný Guðmundsdóttir og tónskáldið
sjálft; Atli Heimir Sveinsson.
Tónamínútur
– verk eftir Atla Heimi Sveinsson
Þjóðleikhúsið, í dag sunnudag kl. 15.00Miðaverð 2.700
Hinn margverðlaunaði leikhópur Cheek by Jowl, sem talinn
er einn af tíu bestu leikhópum veraldar skv. Time Magazine,
sýnir Cymbeline eftir Shakespeare á Listahátíð. Leikhópurinn
hefur hlotið margvísleg verðlaun, þar á meðal fern Olivier
verðlaun, Golden Mask Award, Obie Award, New York
Drama Desk Award, Paris Drama Critics Award og Time Out
Award. Sýningin er í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
„Djarfir leikararnir sýna snilldarleik og ná að galdra fram þvílíka orku á
sviðinu að áhorfendur sitja agndofa eftir.“ - Tageblatt, March Weinachter, 2007
„Einnaftíubestuleikhópumveraldar!“ - Time Magazine
Þjóðleikhúsið 15., 16., 17. & 18. maí Miðaverð: 3.300
Cymbeline eftir W. Shakespeare
Morgunmálþing Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Iðntæknistofnunar, Rannís
og Stofnunar stjórnsýslufræða við H.Í. verður haldið miðvikudaginn...
...16. maí nk. kl. 8.00-10.00 á Grand hótel.
HVERNIG MÁ AUKA
NÝSKÖPUN
Í OPINBERUM REKSTRI?
Fundarstjóri:
Haukur Ingibergsson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
„Nýsköpun í opinberum rekstri”
Elvar Örn Arason, sérfræðingur á greiningasviði Rannís.
„Hvað geta opinberar stofnanir lært af nýsköpun fyrirtækja?”
Karl Friðriksson, framkvæmdarstjóri Iðntæknistofnunar.
„Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu – Rafræn lyfjafyrirmæli”
María Heimisdóttir, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs
Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Skráning: stjornsyslaogstjornmal@hi.is
Þátttökugjald er kr. 3.800, morgunverður innifalinn.
Stofnun stjórnsýslufræða við
Háskóla ÍslandsS
Félag forstöðumanna ríkisstofnana