Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 35
Sylvie Testud. Eins og nafnið bendir
til fjallar myndin um stormasamt líf
söngfuglsins Edith Piaf frá fæðingu
í París 1918 til endalokanna röskum
44 árum síðar. Piaf var og er ein dáð-
asta söngkona og listamaður
frönsku þjóðarinnar og orðstír henn-
ar lifir góðu lífi, m.a. í söngleik um
sigursæla ævi á listasviðinu sem var
jafnsorgleg í einkalífinu. Cotillard er
sögð fara hamförum í tónlistaratrið-
unum (líkt og Brynhildur Guðjóns-
dóttir sem hlaut Grímuna 2004 fyrir
frammistöðu sína í hlutverkinu í
Þjóðleikhúsinu).
22. Hostel Part II
Leikstjóri: Eli Roth. Með Lauren
German og Bijou Phillips.
Framhald ofurvibbans heldur
áfram á svipuðum slóðum í Slóveníu
austur. Þrír sætir mennta-
skólanemar lenda í höndum öfug-
ugga sem svívirða þá og limlesta á
hroðalegasta hátt. Meira af jarð-
nesku víti og sjúklegri grimmd.
JÚLÍ
6. Evan Almighty
Leikstjóri: Tom Shadyac. Með
Steve Carell og Morgan Freeman.
Shadyac og Jim Carrey slógu í
gegn fyrir nokkrum árum með gam-
anmyndinni Bruce Almighty. Carell
(Little Miss Sunshine) er tekinn við
hlutverki hins ólíklega handbendis
himnaföðurins (Freeman) sem færir
honum það verkefni að byggja örk
að hætti Nóa. Það gengur ekki jafn-
snurðulaust og í pólskri skipa-
smíðastöð.
13. For Your Consideration
(Græna ljósið) Leikstjóri: Chri-
stopher Guest. Með Catherine O’H-
ara og Ed Begley jr. Hollywood fær
á baukinn í ádeilu sem er sögð frum-
leg og fyndin. Óþekktir leikarar eru
að ljúka við B-mynd þegar sá orð-
rómur kemst á kreik að einn þeirra
sýni óskarsverðlaunatakta. Síðan
víkur sögunni til dagsins fyrir verð-
launaafhendinguna og kvikmynda-
borgin við það að ganga af göflunum.
27. Georgia Rule
Leikstjóri: Garry Marshall. Með
Jane Fonda, Lindsey Lohan og Feli-
city Huffman.
Lohan leikur óstýriláta stelpu-
skjátu sem er gjörsamlega að fara
með taugakerfið í mömmu sinni
(Huffman) sem grípur til þess ráðs
að koma uppreisnarorminum í hend-
ur ömmunnar (Fonda). Hún dvelst
sumarlangt hjá þeirri gömlu sem
kennir stúlkunni sitt lítið af hverju
um lífið og tilveruna. Leikhópurinn
einn vekur óneitanlega athygli.
ÁGÚST
Grindhoouse – Planet Terror
(Græna ljósið) Leikstjóri: Robert
Rodridguez. Með Rose McGowan og
Freddy Rodriguez.
Í Grindhouse-helftinni hans Ro-
driguez berst lögregla í smábæ við
ófélegan her sem reynist vera morð-
óðir uppvakningar. Gamansöm með
gæsahúð.
10. Becoming Jane
Leikstjóri: Julian Jarrold. Með
Anne Hathaway og James McAvoy.
Ein af áhugaverðari myndum
sumarsins segir af æskuástum
skáldkonunnar Jane Austen (Hat-
haway) áður en hún varð fræg. Það
verður forvitnilegt að sjá Hathaway
(The Devil Wears Prada, Brokeback
Mountain) reyna sig í krefjandi aðal-
hlutverki og það á móti goðsögn-
unum Maggie Smith og Julie Wal-
ters.
Mr. Brooks
Leikstjóri: Bruce A. Evans. Með
Kevin Costner, Demi Moore og
William Hurt.
Gömlu brýnin minna á sig í glæpa-
mynd þar sem Moore leikur rann-
sóknarlögreglumann á hælum hugs-
anlegs raðmorðingja (Costner).
Hurt fer með hlutverk lögreglu-
stjórans sem virðist vera með maðk-
að mjöl í pokahorninu.
17. Vacancy
Leikstjóri: Nimród Antal. Með
Kate Beckinsale og Luke Wilson.
Bíllinn bilar á fáförnum sveitavegi
og farþegarnir, nýgift hjón, verða að
hreiðra um sig í eina mótelinu í sjón-
máli. Þau taka eftir tökuvélum sem
eru faldar í herberginu og gera sér
ljóst að þeim er ætlað að verða fórn-
arlömb í „snuff-mynd“. Hljómar eins
og vinaleg B-samsuða af Psycho og
Hostel.
24. Evening
Leikstjóri: Lajos Koltai. Með Va-
nessu Redgrave, Toni Collette og
Claire Danes.
Kona sem liggur fyrir dauðanum
(Redgrave) rifjar upp bestu árin á
meðan dæturnar neita að viður-
kenna það sem er óhjákvæmilega í
aðsigi. Önnur sumarmynd sem stát-
ar af mögnuðum kvenleikarahópi.
31. Disturbia
Leikstjóri: D.J. Caruso. Með Shia
LaBeouf, David Morse og Carrie-
Anne Moss.
Nýstirnið LaBeouf (Indina Jones
IV) fer með hlutverkið hans Jimmys
Stewarts í nútímatáninganálgun
Hitchcock-klassíkurinnar Glugginn
á bakhliðinni – Rear Window (’54).
LaBeouf leikur ungan mann sem er
settur í stofufangelsi fyrir slæma
hegðun af kerlingu móður sinni.
Stráksi hefur fátt fyrir stafni og fer
að njósna um nágrannana sér til af-
þreyingar. Eitt kvöldið æsast leikar
í húsinu á móti með þeim afleið-
ingum að líf pilts er í bráðri hættu.
saebjorn@heimsnet.is
Spenna Mark Ruffalo og Jake Gyl-
lenhaal í Zodiac, sem fjallar um leit
lögreglu að raðmorðinga.
Ástardrama Naomi Watts og Edward Norton leika óhamingjusöm hjón.
Handan heima Swank leikur sér-
fræðing í dulrænum efnum í The
Reaping.
! " #$ %& '
()) " )
))
# " + , " "
-.-
/
&*