Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 39
ar voru margir veiðibátar í þyrpingu
og menn renndu fyrir „yellowfin“
túnfisk, sem er stór og öflugur. Einn
daginn náðum við tveimur slíkum.
Það kostaði mikil átök, ekki síður en
við bráðina sem allir þessir reyndu
veiðimenn í fylgdarliði okkar voru
helst eftir: GT eða stóra bryn-
stirtlur, Giant Trevally. Þeir eru eft-
irsóttasta bráðin á stöng þarna, gríð-
arsterkir og geta orðið 100 kíló. Við
náðum nokkrum um borð í veiðibát-
inn; allir tóku popper. Nokkrir voru
um 70 pund. Ég togaðist á við einn
sem var lítill, eða um 15 pund; kraft-
inum er erfitt að lýsa. Hann var mik-
ill. Flestum GT náðum við á sama
stað við norðvesturhorn eyjaklas-
ans, á leynistað sem Peluffo er með
merktan á GPS-tækið. „Við vorum
hér í október og það var galið hvað
við veiddum vel,“ sagði hann. „Eftir
tvo daga vildu veiðimennirnir fara
eitthvað annað, breyta til! Þeir voru
búnir að veiða 60, 70 stórfiska á
stöng.“
Í mollunni drekka veiðimenn
þarna ógrynni af vökva – hann
flæðir gegnum líkamann og sífellt er
hætta á að ofþorna. Tvo daga fór hit-
inn í sólinni yfir 50 stig. Þá lágum við
undir seglinu á heimstíminu og
hlustuðum í tónhlöðunni á Þursa-
flokkinn syngja „norður við íshaf“.
Geitafiskar og bænaköll
Eitt síðdegið fórum við Þorsteinn
einir í land á einni eyjunni. Veiddum
lónið vandlega og vorum víða í fiski.
Hann tók fallega bláblettótta bryn-
stirtlu í briminu við rifið, þar sem
aldan gekk af og til yfir okkur.
Þegar sólin lækkaði á lofti færðum
við okkur yfir á hina hlið eyjunnar;
þar náði Þorsteinn meðal annars lit-
fögrum geitarfiski og ég missti einn
sem tók með miklum látum og sýndi
sig aldrei. Við gengum hringinn
kringum eyjuna meðan sólin lækk-
aði hratt á lofti og litaði sjóndeild-
arhringinn mettuðum heitum tón-
um, eins og henni er aðeins lagið við
miðbaug, og komum við að litlu
þorpi. Undir pálmatrjánum húktu
lágreistar byggingar, hlaðnar úr kó-
röllum, og frammi við ströndina sátu
fjölskyldurnar. Fólk talaði saman í
lágum hljóðum, heilsaði þessum
stangveiðimönnum brosandi og
kurteislega. Á einum stað stóð mað-
ur upp undir háls í sjónum og hugaði
að bát sínum, aðeins fjær voru hjón í
flæðarmálinu, hún þvoði potta og
hann burstaði tennurnar. Svali kom
utan að hafinu, sólin nálgaðist haf-
flötinn og skyndilega hóf imaminn
að tóna og kalla fólk til bæna. Það
var friðsæld í þessum heimi og við
dóluðum okkur út fyrir rifið og tók-
um síðustu köst dagsins í þessari
undraveröld meðan sótsvart myrkr-
ið lagðist varlega yfir þennan heim,
sem hafði kennt okkur að ný veröld
bíður veiðimanna sem taka að kasta
flugum sínum í hlýjan sjó.
TENGLAR
.....................................................
http://www.vatnsdalsa.is
Á rifinu Þorsteinn J. Vilhjálmsson
hampar silfraðri brynstirtlu á rif-
inu við eina af hinum ótal eyjum.
Fiskurinn tók græna og hvíta
straumflugu, Clouser Minnow.
Lúxusfley Soldáninn af Maldíveyjum, móðurskip veiðimannanna, er með loftkældum káetum og fimm stjörnu
fæði. Á daginn er siglt á miðin á hefðbundum veiðibáti, “dhoni“, eða smábátum með utanborðsmótor.
Bókaðu bílinn um leið
þegar framvísað er brottfararspjaldi
frá Flugfélagi Íslands.
Innifalið:
100 km og
kaskó.
Bílaleigubíll
í heilan
sólarhring
frá 2.499 kr.
Flugfélag Íslands flýgur yfir 40 ferðir
í viku til Egilsstaða. Þú nýtur þess að
lesa dagblöðin, fá þér kaffi og súkkulaði
og áður en þú veist af er lent á
Egilsstöðum.
Ferðin tekur enga stund.
Taktu flugið.
Pantaðu í síma 570 3030
eða á www.flugfelag.is
TÍMINN FLÝGUR flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
75
78
0
5/
07
* Flugvallarskattar innifaldir. Eingöngu bókanlegt á netinu. Takmarkaður sætafjöldi.
FRÁ
EGILSSTAÐIR *