Morgunblaðið - 13.05.2007, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 13.05.2007, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ 15. maí 1977: „Eftir útfærslu fiskveiðilandhelgi okkar í 200 sjómílur, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði alla forystu um, eins og setn- ingu sjálfra landgrunnslag- anna, hefur hafsvæði það, sem íslenzk lögsaga nær til stækkað í 758 þúsund ferkíló- metra en 50 mílna lögsagan náði til 216 þúsund ferkíló- metra og 12 mílna lögsagan til 75 þúsund ferkílómetra. Hin nýja lögsaga er 3½ sinn- um stærri en 50 mílna lög- sagan. Sé miðað við láð og lög hefur íslenzkt yfirráðasvæði ríflega tvöfaldazt við síðustu útfærslu. Meginmálið er þó, að þessar útfærslur og þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið í kjölfar þeirra, nái til- ætluðum árangri, þ.e. há- marksstofnstærð nytjafiska okkar og hámarksafrakstri þeirra í þjóðarbúið.“ . . . . . . . . . . 17. maí 1987: „Í forystugrein Þjóðviljans var sú skýring gefin á „tregðu“ lýðræðisríkj- anna til að semja við Sov- étmenn, að afvopnun gengi „gegn þeirri mafíu sem tengir saman hernaðarbrölt og iðn- aðarhagsmuni, og helstu ráðamenn Vesturveldanna virðist skorta annaðhvort vilja eða þor til að rísa gegn valdi þeirrar vélar“. Þeir sem beita jafn einfeldningslegum og úreltum röksemdum í um- ræðunum um það sem nú er að gerast í öryggismálum Evrópu, geta líklega aldrei áttað sig á því um hvað um- ræðurnar á vettvangi NATO snúast. Einmitt þess vegna hafa alþýðubandalagsmenn staðið utan við allar ákvarð- anir um öryggi og varnir Ís- lands. Þeir nálgast málið jafn- an úr þeirri átt, að það sé af hinu illa og hættulegt heims- friði, að lýðræðisríkin hafi uppi viðbúnað vegna vígvélar Kremlverja. Að þeirra mati er það einhver „vél“ á vegum „mafíu“ á Vesturlöndum, sem heldur okkur öllum í greip sinni til að hagnast sem mest á smíði morðtóla!“ . . . . . . . . . . 18. maí 1997: „Hugsjónir um alþjóðlegt samstarf sækja margt til kristinna markmiða. Á þessari öld hefur verið lei- tazt við að breyta ástandi, þar sem þjóðir berast á banaspjót og láta sér fátt um örlög hver annarrar finnast, og stuðla þess í stað að því að allar þjóðir reyni í sameiningu að leysa vandamál skorts og só- unar og skapa í sameiningu frið og hagsæld um allan heim. Við eigum ennþá langt í land en þó hafa möguleikar okkar til að ná árangri aldrei verið betri. Fyrir tilstuðlan umbylt- inga í samgöngum og fjar- skiptum vitum við bæði meira um hlutskipti náungans, hvar sem hann kann að vera stadd- ur, og eigum auðveldara með að koma aðstoð til bág- staddra. En gerum við, jafnt sem kristnir einstaklingar og sem samfélag kristinna manna, nóg af því að nýta mögu- leikana til að láta gott af okk- ur leiða? Látum við nóg af hendi rakna til þróun- araðstoðar og neyðarhjálpar? Gerum við nóg til að efla al- þjóðlega samvinnu og vinna gegn stríði og tortryggni á milli þjóða? Tökum við nógu vel á móti nýjum Íslendingum af erlendum uppruna? Setj- um við bróðerni ofar þjóð- erni?“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ALCOA, ALCAN OG ÍSLAND Um fátt er nú meira rætt í al-þjóðlegum viðskiptablöðumen hina fjandsamlegu tilraun Alcoa til yfirtöku á Alcan en bæði fyrirtækin eru í hópi stærstu álfyr- irtækja í heimi. Nái Alcoa að yfirtaka Alcan er fyrirtækið á ný orðið stærsta álfyrirtæki heims en þessa stundina skipar rússneska álfyrirtækið Rusal það sæti. Alcoa er eins og kunnugt er fyrir- tækið, sem er að byggja álverið á Reyðarfirði. Alcan er fyrirtækið, sem eignaðist álverið í Straumsvík með yfirtöku á Svissneska álfélaginu, sem byggði það álver í upphafi. Nú er spurning, hvort þessi yfir- tökutilraun Alcoa á Alcan skipti ein- hverju máli fyrir okkur. Jón Sigurðs- son, viðskipta- og iðnaðarráðherra, hefur gert lítið úr því og bent á að um aðskilda samninga sé að ræða við þessi fyrirtæki um álverin hér, sem er auðvitað rétt. Í erlendum blöðum er ekki talið ein- sýnt, að Alcoa nái að yfirtaka Alcan. Sum blöð halda því reyndar fram, að málið allt geti orðið til þess að ein- hverjir aðrir reyni að yfirtaka Alcoa. Allt skiptir þetta máli fyrir okkur Íslendinga. Það skiptir t.d. máli ef eitt og sama fyrirtækið á megnið af áliðn- aðinum hér. Móðurfyrirtæki Norður- áls á Grundartanga er lítið fyrirtæki, sem hvenær sem er kann að verða tekið yfir af einhverju öðru álfélagi. Þótt það sé vissulega rétt hjá Jóni Sigurðssyni, að um er að ræða sér- staka samninga um hvert og eitt álver breytir það ekki því, að eigi sama ál- fyrirtækið tvö af þremur álverum, sem hér eru starfrækt og tæki hugs- anlega að sér byggingu þess fjórða við Bakka á Húsavík er það fyrirtæki í mjög sterkri stöðu gagnvart íslenzk- um stjórnvöldum og orkuseljendum. Það er í sjálfu sér ekkert, sem við get- um í því gert ef Alcoa yfirtekur Alcan en við hljótum að hafa augun opin fyr- ir því, að slík yfirtaka getur breytt samningsstöðu okkar og það liggur þá t.d. ekki alveg beint við að semja við Alcoa um hugsanlegt álver við Húsa- vík. En jafnframt hljóta fréttir um að framvinda mála geti orðið sú, að ein- hverjir reyni að yfirtaka Alcoa sjálft að valda okkur vissum áhyggjum. Hvað gerist ef t.d. Rusal reynir yf- irtöku á Alcoa eða Alcan en hið síð- arnefnda hefur verið til umræðu í ál- heiminum? Hverjir eru þá orðnir viðsemjendur okkar? Hann heitir Oleg Deripaska, 39 ára gamall Rússi, sem varð sigurvegari í álstríði, sem geisaði í Síberíu á síðasta áratug og reynir nú m.a. að eignast Chrysler-bílaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum. Eins og Morgunblaðið hefur áður bent á eru viðskiptahættir í Rússlandi aðrir en hér og aðrir en við eigum að venjast. Við getum að sjálfsögðu engin áhrif haft á það hverjir yfirtaka hvern úti í hinum stóra heimi. Við getum hins vegar íhugað stöðu okkar og mikil- vægt er að við áttum okkur á því, að slík viðskiptaátök geta gjörbreytt stöðu áliðnaðarins hér. Það er ekki góð staða fyrir okkur Íslendinga að eitt og sama fyrirtækið ráði megninu af áliðnaðinum hér. Það er heldur ekki góð staða fyrir okkur ef aðilar, sem spurningarmerki eru sett við í hinum alþjóðlega viðskipta- heimi, eignast álfyrirtækin, sem eiga álverin hér. Við þurfum að gæta að okkur og ekki rasa um ráð fram. Niðurstaða þessara mála hlýtur að hafa áhrif á ákvarðanir varðandi Bakka. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Þ egar þetta Reykjavíkurbréf er skrif- að er stutt í að kjörstaðir verði opn- aðir á laugardagsmorgni og þegar þetta tölublað Morgunblaðsins berst til sumra lesenda hefur þeim ekki verið lokað. Þess vegna er ekki hægt að fjalla um úrslit þingkosninganna, sem fram fara í dag, laugardag, á þessum vettvangi. En kosninga- baráttunni er lokið og þegar kosningabaráttu lýkur verða alltaf ákveðin kaflaskil á ritstjórn Morgun- blaðsins, þótt með öðrum hætti sé en áður var. Fyrir mörgum áratugum var Morgunblaðið beinni þátttakandi í kosningabaráttu, hvort sem var til Alþingis eða sveitarstjórna. Nú er blaðið í kosn- ingabaráttu fyrst og fremst vettvangur fyrir skoð- anaskipti frambjóðenda allra flokka og framboða en tekur sjálft ekki þátt í þeirri baráttu á annan veg en þann að lýsa skoðunum sínum í ritstjórnargreinum. Síðustu mánuðir fyrir kosningar hafa alltaf verið eins konar vertíð á ritstjórn Morgunblaðsins en þó með mjög ólíkum hætti nú en fyrr á tíð. Nú snýst þessi vertíð fyrst og fremst um að veita flokkum og frambjóðendum viðunandi þjónustu í formi birtinga á greinum, fréttaflutnings af blaða- mannafundum eða öðrum viðburðum í kosninga- baráttunni og öðru slíku. Í þessu felst mikil vinna fyrir þá starfsmenn ritstjórnar, sem um hana sjá, en tæknin hjálpar stöðugt meira til. Nú fyrir skömmu var t.d. skýrt frá því, að blaðið tæki ekki lengur við aðsendu efni í tölvupósti, sem er orðin úr- elt aðferð í vinnslu og framleiðslu blaðs. Í þess stað er höfundum bent á að senda slíkt efni í gegnum sérstakt innsendingarkerfi á mbl.is, sem leiðir til þess að textinn fer beint inn í framleiðslukerfi blaðsins. Þessi aðferð minnkar mjög þá vinnu, sem inna þarf af hendi við frágang greina, sem auðvitað eru lesnar yfir eftir sem áður. Í þessari vinnu er lögð áherzla á að jafnræði ríki með flokkum og framboðum, þótt það geti hins veg- ar ekki verið til staðar að öllu leyti í staðsetningu greina. Sumir staðir í blaðinu eru betri en aðrir. Í vetur var tekin ákvörðun um að láta forystumenn flokka og ráðherra njóta forgangs við birtingu greina á miðopnu Morgunblaðsins, sem sennilega er einn bezti staður í blaðinu fyrir birtingu slíkra greina. Það er ritstjórn Morgunblaðsins að sjálfsögðu ánægjuefni hversu margir velja blaðið sem sinn vettvang til slíkra skrifa og þess vegna er lögð áherzla á að veita þessum höfundum eins góða þjón- ustu og mögulegt er. Það getur þó á köflum verið erfitt vegna þess, að plássið í blaðinu er takmarkað. Á tímabili í vetur voru óbirtar um 500 aðsendar greinar og minningargreinar og biðtími orðinn allt- of langur. Þá var brugðið á það ráð að bjóða höf- undum upp á birtingu á netútgáfu Morgunblaðsins, mbl.is, með tilvísun í blaðinu og mynd af höfundi. Þetta var gert m.a. vegna þeirra miklu vinsælda, sem svonefndar bloggsíður hafa notið á mbl.is. Þessu var vel tekið af mörgum en verr af öðrum en niðurstaðan varð sú, að Morgunblaðinu tókst að birta allt það efni fyrir kjördag og á kjördegi, sem á einn eða annan veg tengdist kosningunum. Þátttaka hins almenna borgara í þjóðfélagsum- ræðum, hvort sem er á síðum Morgunblaðsins, ann- arra blaða eða á vettvangi ljósvakamiðla, er mjög þýðingarmikil fyrir lýðræðið í landinu og sennilega er svo almenn þátttaka frekar undantekning en regla ef tekið er mið af helztu nágrannalöndum okkar. Í kosningaham? F yrir þá, sem starfa á ritstjórn Morg- unblaðsins, er alltaf jafn forvitni- legt að fylgjast með því, hvernig fjallað er um Morgunblaðið í að- draganda kosninga. Sumir þeirra, sem að jafnaði eiga góð samskipti við blaðið, telja að það umbreytist og fari í svo- nefndan „kosningaham“ nokkrum vikum eða mán- uðum fyrir kosningar. Þetta kannast þeir, sem ábyrgð bera á ritstjórn Morgunblaðsins, ekki við, alla vega ekki nú orðið, þótt ýmislegt megi um blað- ið segja í þeim efnum eins og það var rekið fyrir nokkrum áratugum! Í þeim kosningum, sem fram hafa farið á þessari öld, hafa ýmsir talsmenn Samfylkingarinnar hafið þennan áróður gegn blaðinu nokkrum mánuðum fyrir kosningar og sú herferð byrjaði líka í vetur en fjaraði smátt og smátt út. Hér í blaðinu birtist sl. fimmtudag grein eftir Árna Þór Sigurðsson, borgarfulltrúa vinstri grænna, undir fyrirsögninni: „Morgunblaðið í kosn- ingaleiðangri?“ Og hver skyldi sá kosningaleiðang- ur hafa verið? Jú. Í blaðinu birtist daginn áður for- ystugrein um lóðamál Listaháskólans í tilefni af því, að skólanum hafði verið úthlutað lóð í Vatnsmýr- inni. Auðvitað getur Árni Þór Sigurðsson haft aðra skoðun á lóðamálum þess skóla en Morgunblaðið en þeir, sem ábyrgð bera á leiðaraskrifum Morgun- blaðsins, áttu erfitt með að sjá í hvers konar kosn- ingaleiðangur blaðið gæti farið vegna lóðamála Listaháskólans! Í Morgunblaðinu í gær, föstudag, birtist grein eftir Stefán Benediktsson arkitekt, sem sæti á í borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar. Greinin hófst á þessum orðum: „Morgunblaðið er ekki bara málgagn Sjálfstæðisflokksins heldur áróðursvél“. Höfundurinn færir að sjálfsögðu engin rök fyrir þessari fullyrðingu sinni enda er það ekki hægt – Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn eru sam- mála um mörg mál en mjög ósammála um önnur mál – en Stefán Benediktsson er í hópi þeirra, sem láta svonefnda Staksteina blaðsins fara í taugarnar á sér, og segir: „Nú er Samfylkingunni farið að ganga of vel og þá er tekin Staksteinasleggjan og byrjað að berja með dónaskap á Ingibjörgu. Þetta er ekki nýtt. Í heilt ár hamraði Morgunblaðið skipulega á því í Staksteinum og leiðurum, hvað Ingibjörg Sólrún væri ómöguleg. Síðan fjölluðu litlu spunadoktorarn- ir um Staksteinaummælin og leiðarana eins og um stórasannleik væri að ræða. Sú ókurteisi og æpandi karlremba, sem einkenndi þessi skrif, verður rann- sóknarefni seinni tíma en allt snerist þetta um að Sólrún væri að tapa fylgi Samfylkingarinnar vegna þess hvað hún væri ómögulegur leiðtogi.“ Staksteinar eru lítill dálkur, sem hefur birtzt í Morgunblaðinu áratugum saman. Þar hefur stund- um verið fjallað um samtímaatburði í stjórnmálum og á öðrum tímum var þessi dálkur vettvangur fyrir tilvitnanir í önnur dagblöð. Þar hefur verið fjallað um marga stjórnmálaforingja samtímans og með ýmsum hætti en af einhverjum ástæðum hefur Samfylkingarfólk þolað illa, að þar væri fjallað um núverandi formann Samfylkingarinnar. Hins vegar heyrðust þessar raddir aldrei, þegar Össur Skarp- héðinsson var formaður Samfylkingarinnar. Hvað skyldi valda því, að fylgismenn Samfylkingarinnar gera þennan mannamun, þegar þeir fjalla um skrif í þessum dálki, sem þeir gera áreiðanlega hærra undir höfði en nokkrir aðrir, sem taka þátt í um- ræðum um íslenzk stjórnmál og tilefni er til? Í þessari sömu grein fjallar Stefán Benediktsson um skrif Morgunblaðsins um flutningabílana á þjóðvegunum og segir: „Það að Morgunblaðið skuli telja flutningabílstjóra lífshættulega ógnvalda um- ferðarinnar og að ritstjórar þess skuli halda að sam- félagið geti lifað það af að umferð flutningabifreiða verði bönnuð bendir til ótrúlegs dómgreindarleysis og er jafn fáránlegt og hræðsla þeirra við hugs- anlega stjórnarsetu Samfylkingarinnar.“ Það er með þetta eins og meintan kosninga- leiðangur Morgunblaðsins í leiðara um lóðamál Listaháskólans að það er erfitt að átta sig á hvernig hægt er að nota umfjöllun blaðsins um flutningabíla á þjóðvegum í tengslum við umfjöllun um meintar Laugardagur 12. maí Reykjavíkur Risessan á ferð um borgina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.