Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 50

Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 50
50 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Mjög vel skipulögð 3ja herb. íbúð á 1. hæð í þriggja hæða fjölbýli. Ljómandi útsýni til Esjunnar og Úlfarfells. Verð 19,5 millj. Nánari upplýsingar veitir Þórður Ingi sölufulltrúi í síma 820-5002 EFSTIHJALLI – 200 KÓPAVOGUR Dalsel 34 - 109 Reykjavík Skemmtileg 3ja herb. íb. á 3. hæð (efstu) í fjöl- býli. Sólarsvalir. Fallegt útsýni í allar áttir. Íbúð- inni hefur verið vel við haldið. Sjón er sögu ríkari. VERÐ 23,7 millj. Nánari upplýsingar veitir Þórður Ingi sölufulltrúi í síma 824-5002 og 594-5000 FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Fallegt endaraðhús á tveimur hæðum, staðsett í barnvænu hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla. Húsið er samtals 179,5 fm þar af innbyggður bílskúr 22,8 fm. VERÐ 41,0 millj. Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardótti sölufulltrúi í síma 822-2225 KAMBASEL – REYKJAVÍK Fallegt raðhús á einni hæð, staðsett efst í götu, samtals 156,4 fm þar af bílskúr 21,8 fm. Húsið er snyrtilegt og vel viðhaldið. Aðkoma að húsinu er góð og stór trépallur er í bak- garði. VERÐ 34,9 millj. Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardótti sölufulltrúi í síma 822-2225 RJÚPUFELL - 111 REYKJAVÍK FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Sérlega glæsilegt, fokhelt, einbýli á einni hæð en á tveimur pöllum, í góðum botnlanga. Fimm svefnherbergi, rúmgóður bílskúr. Möguleiki á að fá lengra komið. VERÐ fokhelt, 51,0 millj. LITLIKRIKI - 270 MOSF. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 FULLYRT er að háskólar séu menntastofnanir þeirrar gerðar að ekki megi taka mið af byggða- stefnu við uppbyggingu þeirra. Þetta er sett fram sem svo sjálfsögð sannindi að ekki þurfi frekari umræðu. Fræði og reynsla segja annað. Þess vegna hafa Vestfirð- ingar kallað eftir byggðastefnu þar sem hryggjarsúlan er öfl- un og miðlun þekk- ingar. Á síðustu hálfri öld eru mörg dæmi um að uppbygging há- skóla hafi tekið mið af byggðastefnu. Dæmi sem undir- ritaður þekkir af eigin raun er Háskólinn í Maastricht í Hollandi sem var stofnaður á 8. áratugnum í kjölfar þess að námuiðnaðurinn í Limburg hrundi saman. Í dag er hann fjölmennur og öflugur rannsóknarháskóli sem m.a. rekur eina af bestu hagfræðideildum álf- unnar 1). Svíar eru sér á parti og hafa sett upp marga héraðshá- skóla. Nokkur dæmi mætti einnig telja frá Skotlandi. Mesta dreif- býlisskírskotun hefur Hálanda- háskólinn (UHI Millenium Insti- tute) sem var byggður úr mörgum kennslu- og rannsóknarstofnunum víða um landið. Telja má fleiri dæmi frá öðrum löndum. Ástæða þess að háskólar hafa verið nýttir til að þróa samfélög er að auk eftirspurnaráhrifanna, þ.e. áhrifa af eyðslu stofnunarinnar innan samfélagsins, hafa þeir oft áhrif á framboðshlið hagkerfanna. Þ.e. þættir eins og t.d. þekkingar- smit, hægfara vinnuafl og aukin nýsköpun leiðir til staðbundinnar fram- leiðniaukningar. Þetta var metið í nýlegri rannsókn vísinda- manna við Konung- legu tæknistofnunina í Stokkhólmi og Berke- leyháskóla í Kali- forníu 2) þar sem kom fram að framleiðni- aukning varð meiri á svæðum þar sem ný- verið höfðu verið sett- ar niður háskólar. Gilti þá einu hvort samanburður var gerður við svæði með enga háskólastarfsemi eða svæði þar sem háskólar höfðu ver- ið lengi. Í nýlegum samanburði á margvíslegum byggðaaðgerðum í Svíþjóð er niðurstaðan sú að út- víkkun háskólastigsins sé eina að- gerðin sem hafi skilað verulegum árangri. Þar sé um afar ódýra byggðaaðgerð að ræða 3). Margt fleira hefur verið skrifað um þessi mál þó fræðin séu ekki komin svo langt að bjóða upp á öruggar og útfærðar lausnir. Ekki er sjálfgefið að háskólar hafi áhrif á framboðshliðina og hafa verið skjalfest dæmi um að jafnvel stofnanir með mikla starfsemi hafi sáralítil áhrif á atvinnulífið á sínu starfssvæði 4). Af fyrirliggjandi rannsóknum má þó greina ýmsar vísbendingar sem mætti leggja til grundvallar við uppbyggingu há- skóla á landsbyggðinni (og náttúr- lega á höfuðborgarsvæðinu líka). T.d. virðast áðurnefnd framleiðni- áhrif frekar drifin af rannsóknum en kennslu skólanna. Eins og sjá má af framansögðu er umræða um uppbyggingu há- skóla sem hluta byggðastefnu langt í frá séríslenskt fyrirbæri og fer áhugi vaxandi ef eitthvað er. Til dæmis má nefna að nýverið fengu Glasgow- og Strathclydehá- skólar í Skotlandi styrk frá breska rannsóknarráðinu um hagfræði og félagsvísindi (ESRC) til að hefja umfangsmiklar rannsóknir á hag- rænum áhrifum háskóla, jafnt svæðisbundnum sem á landsvísu. Þannig er byggt á gildum rök- um þegar óskað er eftir samstöðu þjóðarinnar um uppbyggingu há- skólastigsins í byggðakjörnum á landsbyggðinni. Sökum fámennis er ljóst að ekki er hægt að færa beint yfir á aðstæður hérlendis þær lausnir sem t.d. hafa verið notaðar í Svíþjóð – það er áskorun um að þróa nýjar lausnir en ekki leggja árar í bát. Sjálfum finnst mér spennandi möguleiki að byggja upp rann- sóknarstarfsemi í hverjum lands- fjórðungi í tengslum við styrkleika hvers svæðis. Stofnanirnar gætu svo tekið höndum saman um það nám sem áhugi væri að bjóða upp á og nýtt tæknina til að ná ásætt- anlegri stærðarhagkvæmni. Þann- ig mætti hugsa sér að hver slíkra héraðsháskóla miðlaði í fjar- kennslu þeim fögum sem mestur styrkur væri í og því yrði nám á hverjum stað byggt á samblandi staðkennslu og fjarkennslu. Auð- vitað væri eftirsóknarvert að tengja þá háskóla sem fyrir eru við þetta háskólanet. Þannig mætti auka hagkvæmni og gæði í krafti sérhæfingar og saman- burðar. Uppbygging háskóla á lands- byggðinni býður upp á mikla möguleika og verðskuldar mál- efnalega umfjöllun. Nær er að byggja á skrifum fræðimanna og reynslu nágrannaþjóða en kreddu- festu. Í mínum huga er enginn vafi. Við eigum að setja kraft í að móta lausn sem hentar íslenskum aðstæðum og byggja upp hér- aðsháskóla í hverjum fjórðungi til viðbótar við þá öflugu háskóla sem þegar þjóna landinu. 1) Lubrano, M., Bauwens, L., Kirman, A. & Protopotescu. (2003). Ranking Economics Departments in Europe: A Statistical Approach. Journal of the European Economic Association. 1. árg., 6. tbl., bls 1367-1401. 2) Andersson, R., Quigley, J.M. & Wilhelmsson, M. (2004). University Decentralization as Regional Policy: the Swedish Experiment. Journal of Econo- mic Geography.4. árg., 4. tbl., bls. 371-388. 3) Andersson, R. (2005). The ef- ficiency of Swedish regional policy. Annals of Regional Science. 39. árg., bls. 811-832. 4) Feldman, M. (1994). The Uni- versity and Economic Deve- lopment. The Case of John Hopkins University and Balti- more. Economics Development Quarterly, 8. árg., 1. tbl. Víst eru háskólar góð byggðastefna Kristinn Hermannsson skrifar um uppbyggingu háskóla á landsbyggðinni »Uppbygging háskólaá landsbyggðinni býður upp á mikla möguleika og verð- skuldar málefnalega umfjöllun. Kristinn Hermannsson Höfundur er hagfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.