Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 59
Til leigu Garatorg –
Garabæ
(áur Betrunarhúsi - Skammtímaleiga til 1. nóvember 2009 -
2. hæ 1000 m2 áur Betrunarhúsi, möguleiki a reka
áfram líkamsræktarstö ea nta undir ara starfsemi
s.s. verslun, jónustu ea lager.
- Hagstæ leiga -
Upplsingar gefur Karl 892-0160 ea Aron 861-3889
karl@kirkjuhvoll.com // aron@kirkjuhvoll.com
Fasteignafélagi Kirkjuhvoll ehf. // www.kirkjuhvoll.com
Vel skipulagt einbýli
í grónu hverfi Grafarvogs
Húsið, sem stendur við Hverafold, er sérlega vel staðsett, innst í botnlanga. Það er alls 182
fermetrar, með 3 svefnherbergjum og góðum og björtum stofum. Auðveldlega má fjölga
svefnherbergjunum. Garðurinn er sérlega glæsilegur og hefur verið hugsað um hann af natni.
Húsið er vel byggt og hefur því verið vel viðhaldið að utan. Stór 38 fermetra bílskúr fylgir eigninni.
Þægileg stærð á húsi, í götu með skemmtilegri heildarmynd og í grónu og friðsælu hverfi.
Allar frekari upplýsingar veitir Albert Björn Lúðvígsson
sölumaður Húsakaupa í síma 840 4048.
Guðrún Árnadóttir
lögg. fasteignasali
Albert Björn Lúðvígsson
sölumaður, s. 840 4048
Í REYKJAVÍK og nágrenni eru
starfandi sex staðir sem sjá um dag-
þjálfun fólks með heilabilunarsjúk-
dóma. Þar fá um 120 einstaklingar
þjálfun og meðferð. Markmið dag-
þjálfunar er meðal annars að við-
halda sem lengst getu einstaklingsins
og þannig stuðla að því að hann geti
búið sem lengst á eigin heimili. Dag-
þjálfun einstaklinga með heilabilun
er sérhæfð þjálfun með markvissri
jákvæðri hvatningu og örvun. Til að
maður geti nýtt styrkleika sína þarf
umhverfið að vera styðjandi og
öruggt, þannig að sú virkni, virðing
og vellíðan sem nauðsynleg er sé til
staðar. Aðstandendur þurfa stuðning
og fræðslu þannig að þeir séu betur í
stakk búnir að styðja viðkomandi og
takast á við þau verkefni sem fylgja
vaxandi einkennum heilabilunar.
Fyrir marga þá sem þjónustan tekur
til hefur verið gert vistunarmat, þ.e.
mat á hjúkrunarþörf, en fyrir aðra er
það gert meðan á dvöl stendur. Þrátt
fyrir að matið sýni fram á brýna þörf
fyrir hjúkrunarheimili er í flestum
tilfellum vilji, bæði viðkomandi ein-
staklings og fjölskyldu hans, að hann
búi sem lengst heima. Hins vegar
þegar þær aðstæður breytast og
þörfin fyrir meiri þjónustu verður að-
kallandi er ekki margt í boði og við
tekur mikill álagstími í fjölskyldum
einstaklinga með heilabilun. Biðin
eftir hjúkrunarheimili getur orðið
löng, allt upp í tvö ár. Þeir sem
standa næst þessum einstaklingum
og annast þá eru oft aldraðir makar
sem eru jafnvel sjálfir komnir í brýna
þörf fyrir hjúkrunarþjónustu. Einnig
er um að ræða ungar barna-
fjölskyldur þar sem amma eða afi eru
á besta aldri þjáð af heilabilun. Þetta
ástand veldur miklu álagi á fjölskyld-
una alla. Skjólstæðingar okkar í dag-
þjálfun hafa margir notið þjónustu
sérdeilda fyrir fólk með heilabil-
unarsjúkdóma á Landakoti. Gott
samstarf hefur verið um skipulag
þeirrar þjónustu. Skammtímainn-
lagnir þar hafa staðið skjólstæð-
ingum okkar til boða. Nú hefur sú
þjónusta verið mjög skert vegna
skorts á starfsfólki á Landakoti. Er
nú aðeins eitt pláss þar fyrir skamm-
tímainnlögn. Framundan er sum-
arlokun annarrar deildarinnar af
sömu ástæðu. Tilmæli frá heilbrigð-
isráðuneytinu þess efnis að hjúkr-
unarheimilin taki í ríkari mæli inn
einstaklinga sem eru á sjúkrahúsum
eru góðra gjalda verð en henta afar
illa einstaklingum með heilabilun.
Þetta þýðir að okkar skjólstæðingar
sem eru í þörf fyrir frekari hjúkrun
leggjast fyrst inn á Landspítalann.
Það er undir hælinn lagt hvar þeir
lenda innan spítalans. Það fer eftir
því hvar er laust pláss. Jafnvel getur
farið svo að þeir liggi á göngum spít-
alans. Síðan getur tekið við flutn-
ingur milli deilda á meðan beðið er
eftir að pláss losni á Landakoti. Og
enn tekur við bið og nú eftir að kom-
ast á hjúkrunarheimili og sú bið get-
ur orðið löng. Einstaklingar með
heilabilun eiga mjög erfitt með að
þola allar breytingar þannig að þess-
ar aðstæður og tilfærslur allar eru
þeim mjög erfiðar og minna óneit-
anlega á hreppaflutninga. Við sem
vinnum í dagþjálfun verðum áþreif-
anlega vör við þennan mikla vanda og
aðstandendur eru undir miklu álagi.
Mikill kvíði og óöryggi fylgir því að
vita ekki hvað tekur við. Það getur
verið erfitt að fylgja maka eða for-
eldri inn á hjúkrunarheimili. En að
þurfa að fara þessa fjallabaksleið er
enn erfiðara auk áhrifanna á einstak-
lingana sjálfa. Óöryggi í ókunnu um-
hverfi gerir það að verkum að ástand
þeirra versnar til muna og umönnun
þeirra verður öll erfiðari þegar þeir
koma inn á hjúkrunarheimilið. Ein-
staklingar með heilabilun eru hópur
sem á erfitt með að berjast fyrir rétti
sínum, þeir eru ekki þrýstihópur sem
skrifar í blöðin. Þeir geta ekki nýtt
sér öryggissímann sem er verið að
ýta úr vör né ýmsa aðra tækni og
þjónustu sem í boði er. Við undirrit-
aðar viljum með þessum skrifum
vekja athygli á þeirri brotalöm sem
er að finna í þjónustu við ein-
staklinga með heilabilun. Margt er
vel gert en afar brýnt er að fleiri og
fjölbreyttari úrræði bjóðist. Það
vantar markvissari stuðning en nú er
fyrir hendi við fjölskyldur frá því að
einstaklingur greinist og þar til hann
fær dagþjálfun. Það vantar fjöl-
breyttari stuðningsúrræði fyrir þá
sem vilja og geta búið heima, s.s. sér-
hæfða heimaþjónustu, liðveislu og
heimahjúkrun. Það vantar skamm-
tímainnlagnir á heimili, til dæmis í
líkingu við „Rjóðrið“ sem er skamm-
tímaheimili fyrir langveik börn. Það
er mikilvægt að okkar skjólstæð-
ingar fái að dvelja í heimilislegu
öruggu umhverfi til dæmis á meðan
umönnunaraðilinn tekur sér frí eða
sinnir eigin veikindum. Það vantar
fleiri sambýli og það þarf að vera
greiðari leið beint inn á hjúkr-
unarheimili og mikilvægt að þörf
allra fyrir virðingu, virkni og vellíðan
sé höfð að leiðarljósi.
Undanfarið hefur verið mikill
skortur á starfsfólki í þessari þjón-
ustu og margir starfsmenn staldra
ekki lengi við í starfi einkum vegna
mikils álags í starfinu og lágra launa.
Að okkar mati þarf einnig að taka á
þeim málum. Það er von okkar að
með þessum skrifum takist okkur að
vekja til umhugsunar þá sem hafa
ákvörðunarvald í svo mikilvægum
málaflokki sem á einn eða annan hátt
varðar flestar fjölskyldur í landinu.
MARÍA RÍKARÐSDÓTTIR,
MARTA PÁLSDÓTTIR,
SIGRÍÐUR LÓA RÚNARS-
DÓTTIR OG SIGRÚN K.
ÓSKARSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingar og í forstöðu
fyrir dagþjálfun í Drafnarhúsi,
Vitatorgi, Fríðuhúsi og Hlíðabæ.
Fleiri úrræði fyrir fjöl-
skyldur sem þjást vegna
heilabilunarsjúkdóma
Frá Maríu Ríkarðsdóttur, Mörtu
Pálsdóttur, Sigríði Lóu Rúnars-
dóttur og Sigrúnu K. Óskarsdóttur
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111