Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 61

Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 61 Til leigu í Skútuvogi 1 Atvinnuhúsnæði - 3 x 173,7 fm – Frábær staðsetning Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is tákn um traust Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu Hóls, Skúlagötu 17. Upplýsingar gefur Stefán Bjarni í síma 694 4388. Um er að ræða þrjár einingar sem hver um sig er 173,7 fm að stærð. Fyrsta einingin er á 3. hæð og er með góðum innkeyrsludyrum. Gæti hentað vel fyrir heildsölu- eða þjónustufyrirtæki. Hægt að vera með lager fremst í bilinu og skrifstofu- aðstöðu fyrir innan. Önnur og þriðja einingin eru á fjórðu hæð og voru þær útbúnar undir rannsóknaraðstöðu af Actavis á sínum tíma. Loftræsting og allar innréttingar til þess eru til staðar. Annars eru léttir veggir í bilunum og er auðvelt að breyta fyrirkomulagi á herbergjaskipan. Býður upp á ýmsa möguleika. Gæti hentað prýðilega undir ýmiss konar skrifstofustarfsemi. Hóll kynnir - til leigu vandað skrifstofu- og lagerrými Til leigu – Suurhraun, Garabæ 3000 m fjölnotahús, hentar vel fyrir verslun, jónustu ea lager, ar af c.a. 900m skrifstofuhluti sem einnig getur nst sem lager a hluta. Gó lofthæ, 13.000m malbiku ló, gámaastaa, stórar innkeyrsludyr, mötuneyti, starfsmannaastaa og næg bílastæi Upplsingar gefur Karl 892-0160 ea Aron 861-3889 karl@kirkjuhvoll.com // aron@kirkjuhvoll.com Fasteignafélagi Kirkjuhvoll ehf. // www.kirkjuhvoll.com Mikil umræða hefur farið fram síð- ustu árin um að tími sé kominn á að færa Reykjavíkurflugvöll og þar með innanlandsflug burtu úr Vatnsmýr- inni. Ég hef velt því fyrir mér nú í allri umræðunni ef til þess kæmi, hvort ekki væri tímabært að huga að því hvort þörf sé komin á endurskipu- lagningu á nýtingu Umferðarmið- stöðvarinnar. Á sama tíma og þessi umræða fer fram er sjónum beint að byggingu varaflugvallar á Íslandi. Hugmynd mín er, að reist verði um- ferðarmiðstöð þar sem allir lang- ferðabílar landsins hefðu þjónustu. Strætisvagnar gengju til og frá út frá henni, um allt höfuðborgarsvæðið. Þessi stöð væri staðsett nálægt Vífils- stöðum í Garðabænum, því þar er enn pláss fyrir svona mannvirki. Þaðan gengi rafknúin lest á einu spori í Leifsstöð. Svona lestir ganga óháð veðri. Að sjálfsögðu gæti allur al- menningur nýtt sér þessa lest. Slík stöð kallar á tugi ef ekki hundruð bíla- stæða og yrði mjög stór vinnustaður. Starfsfólk sem þjónað hefur á flug- stöðinni í Reykjavík mætir á nýjan og glæsilegan vinnustað. Þar verður gef- inn kostur á innskráningu í flug og farþegar losna við farangur sinn. Far- þegar gætu beðið flugs þar ef þeir óskuðu þess. Lest er jú fljót í förum. Lestin yrði fermd innan stöðvarinnar og gengi þaðan um göng sem lægju undir Setberg og Ásholt. Kæmu þar undan sem leið liggur inn í lestarstöð sem tengd yrði Leifsstöð. Fargjöld yrðu engin því rekstrarkostnaður yrði greiddur af fyrirtækjum eins og álver- um sem gjald fyrir afnot af landi og mengun sem þær valda. Þá er spurningin um varaflugvöll. Mörg ár eru síðan bandaríski herinn vildi byggja varaflugvöll fyrir Kefla- vík í Aðaldalshrauni í Aðaldal nyrðra. Þeir töldu að aðstæður þar væru góð- ar. Þar eru mannvirki fyrir. Til stend- ur að byggja álver við Húsavík og kallar það á góðar samgöngur, bruna- varnir og aðra þjónustu. Nú styttist í jarðgöng í gegnum Vaðlaheiði. Með þeim styttist og batnar leiðin á milli Akureyrar og Húsavíkur. Þá væru Akureyringar komnir með góðan millilandaflugvöll. Fresta mætti því að stækka Akureyrarflugvöll og um leið væri orðið miklu betra flugöryggi fyr- ir norðan og um landið allt. Að mínu mati mælir allt með þess- um framkvæmdum, ef Reykjavík- urflugvöllur á að fara úr Vatnsmýr- inni. SIGURÐUR K. EIRÍKSSON, eftirlaunaþegi og ábúandi í Norðurkoti í Sandgerði. Innanlands- flug til Keflavíkur Frá Sigurði K. Eiríkssyni „I know what I want to do,“ segir konan sem var að eignast barn sem var hennar en átti ekki að vera og þrír menn gætu verið faðirinn. Ég er að horfa á lokaþátt hins umtalaða lækna- þáttar Greýs An- atomy þegar ég heyri kunn- uglegt lag. „Þessi rödd.... þessi gítartónn... þetta hlýtur að vera íslenskt,“ sagði ég við sjálfa mig. „Mojo love“, ahh þarna kom það. Engin önnur en Lay low, sem er búin að gera garðinn frægan hér heima var hér með lag í Greýs An- atomy og í lokaþættinum. Þættinum sem er hálfur Greýs Anatomy, hálfur til að gera áhorfendur tilbúna fyrir nýjan þátt með fyrrverandi konu Mcdreamy, Addison í aðalhlutverki. Ég fylltist stolti. Ég fyllist von. Týpískur Íslendingur. Mér fannst eitthvað svo frábært við að heyra Íslending vera með lag þar. Ég fylltist sama stolti þegar ég heyrði tvö lög með Emilíönu Torrini í annarri seríu. Greinilegt að mann- eskjunni sem sér um að velja lögin fyrir Greýs Anatomy líkar íslenski hljómurinn. Til hamingju Lay Low og til ham- ingju Íslendingar... við erum bara 300.000 en við erum mjög góð að vekja athygli. ANNA CLAESSEN er nemi í fjölmiðlafræði í Vín. Lag Lay Low í umtöluðum læknaþætti Frá Önnu Claessen Anna Claessen Fréttir á SMS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.