Morgunblaðið - 13.05.2007, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 65
saman 1978 þegar ég hóf sambúð
með Jóhönnu Bryndísi dóttir henn-
ar.
Didda var þá flutt til Reykjavíkur
og hafði hafið sambúð með Jóni Stef-
ánssyni og bjuggu þau á Vesturbergi
í Breiðholti.
Okkar kynni tókust vel strax í
fyrstu og héldust góð allt tíð.
Ekki vorum við alltaf sammála en
það er hluti af tilverunni en alltaf
sátt af lokum.
Diddu var alla tíð hlýtt til Skaga-
strandar og sagði mér oft sögur það-
an af sér og sínu fólki og þá
skemmtilegar sögur, aldrei neitt nei-
kvætt.
Ég vissi vel að á þeim árum sem
hún var að alast upp og einnig eftir
að hún giftist og bjó með sínum góða
manni, Hallgrími Kristmundssyni,
var almennt erfitt að búa á Íslandi
og ættu margir núlifandi að bera
virðingu fyrir því fólki sem landið
byggði upp og við nú njótum.
Fólk sem þekkir Diddu hefur sagt
mér að hún hafi ekki látið sitt eftir
liggja, hvort sem vinnan var í frysti-
húsinu eða á heimilinu, dugleg og af-
kastamikil.
Þar sem okkar leiðir lágu ekki
saman á þeim tíma læt ég aðra sem
betur til hennar þekktu segja frá.
Þau Hallgrímur og Didda eignuð-
ust saman þrjú börn, Jóhönnu Bryn-
dísi, Sævar Rafn og Axel Jóhann.
Barnabörnin og barnabarnabörnin
eru orðin 15.
Hallgrímur og Didda bjuggu alla
sína sambúð á Skagaströnd. Þau
byggðu sér glæsilegt hús á Hóla-
braut 14 á Skagaströnd 1966 og
bjuggu í því húsi þar til leiðir þeirra
skildi 1977.
Didda vann við veitingastörf eftir
að hún flutti til Reykjavíkur.
Allstaðar báru vinnuveitendur
Diddu henni gott orð, góð mæting,
dugleg, alltaf að, hláturinn og brosið,
það var alltaf til staðar.
Didda var frábær saumakona og
eru enn til á mínu heimili föt sem
hún hannaði og saumaði, að vísu í
kössum í dag.
„Guð minn góður, sérðu þetta,“
sagði hún oft þegar gamlir munir
eftir hana voru skoðaðir og brosti út
að báðum.
Oft var komið í heimsókn í Vest-
urbergið og seinna í Blikahólana eft-
ir að þau Jón og Didda fluttu þangað.
Alla tíð sömu góðu móttökurnar,
rammíslenskur veislumatur og
„Didda mér fannst alltaf fiskiboll-
urnar þínar bestar“.
Þau ferðuðust mikið Didda og Jón,
tjaldvagninn settur í krókinn og
haldið út á land, upp í Húsafell, aust-
ur fyrir fjall eða norður í land.
Þegar leiðir þeirra lágu um Borg-
arnes var alla tíð gert gott stopp.
Jón Stefánsson lést 1991 eftir
stutta sjúkdómslegu, langt fyrir ald-
ur fram.
Eftir lát Jóns bjó Didda ein í
Blikahólunum þar til hún flutti á Sæ-
borg, dvalarheimili aldraðra á
Skagaströnd í maí 2006.
Á Sæborg rifjuðust upp gömul
kynni við fólk sem þar býr og hún
hafði ekki hitt lengi en þekkt frá
fyrri tíð.
Didda talaði vel um starfsfólið á
Sæborg og ber að þakka þeim fyrir
góða umönnun.
Ég vil að lokum þakka þér Didda
mín fyrir samferðina, okkur var allt-
af hlýtt hvoru til annars og við áttum
margt okkar á milli sem aðrir vissu
ekki.
Jakob Skúlason.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGIBJARGAR AXELMU AXELSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Sæborg,
Skagaströnd,
áður til heimilis í Blikahólum 10,
Reykjavík.
Jóhanna B. Hallgrímsdóttir, Jakob Skúlason,
Sævar R. Hallgrímsson, Ragnheiður Magnúsdóttir,
Axel J. Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
HJARTAR LEÓS JÓNSSONAR
fv. hreppstjóra,
Káragerði, Eyrarbakka,
Gauksrima 30, Selfossi.
Sesselja Ásta Erlendsdóttir,
Vigdís Hjartardóttir, Þórður Grétar Árnason,
Hreinn Hjartarson,
Hólmfríður Rannveig Hjartardóttir, Ólafur Sigfússon,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Blómabúð
MICHELSEN
ÞÚ VELUR AÐEINS ÞAÐ
BESTA Í GLEÐI OG SORG
44 ÁRA
STARFSREYNSLA Í
ÚTFARARSKREYTINGUM
MICHELSEN
HÓLAGARÐI
SÍMI 557 3460
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ELÍNAR SIGDÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Arnartanga 25,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki
Víðiness fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Sólveig Þorleifsdóttir,
Erla Þorleifsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði ✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmmu,
LILJU KRISTINSDÓTTUR,
Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi.
María Jóna Gunnarsdóttir, Jóhann Bergmann,
Soffía Kristín Sigurðardóttir, Kjartan Tryggvason,
Kristín Elínborg Sigurðardóttir, Kristján Gissurarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa
og bróður,
GUÐMUNDAR EINARSSONAR
verkfræðings,
Gimli
við Álftanesveg.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Holtsbúðar, Garðabæ.
Jón Guðmundsson,
Einar Guðmundsson, Hulda Jóhannesdóttir,
Karólína Guðmundsdóttir, Guðmundur Elías Níelsson,
Guðmundur Guðmundsson, Ruth Sigurðardóttir,
Guðlaug Guðmundsdóttir, Brynjólfur Sigurðsson,
Sævar Leifsson,
barnabörn, systkini
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður og tengdaföður,
GÍSLA SIGURÐAR GUÐJÓNSSONAR
prentara,
Ofanleiti 17,
Reykjavík.
Auður Fanney Jóhannesdóttir,
Reynir Sigurður Gíslason, Sigríður Edda Hafberg.
✝
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki líknar-
deildar LSH í Kópavogi fyrir frábæra umönnun og
hlýhug.
Ástþór Runólfsson
Hildur Ástþórsdóttir, Jóhann Ólafur Jónsson,
Guðmundur Már Ástþórsson,
Hlín Ástþórsdóttir, Hrafnkell Marinósson,
Hulda Ástþórsdóttir, Aðalsteinn Guðmannsson,
Runólfur Þór Ástþórsson, Heiðrún Ólöf Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
✝
Elskuleg systir mín,
GUÐRÍÐUR JÓNA JÓNSDÓTTIR CLEMENSEN
(Dúa frá Garðbæ, Akranesi),
Independence, Missouri,
Bandaríkjunum,
andaðist á hjúkrunarheimili í Missouri miðviku-
daginn 2. maí.
Útförin hefur farið fram ytra.
Guðrún B. Jónsdóttir
✝
Ástkær faðir okkar, bróðir og afi,
EYMUNDUR KRISTJÁNSSON,
Bleikugróf 13,
Reykjavík,
áður til heimilis á Lundagötu 17B,
Akureyri,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn
5. maí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík laugar-
daginn 19. maí nk. 11.00.
Börn, systkini og barnabörn.