Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 69
Félagsstarf
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur í kvöld kl. 20. Klassík leik-
ur fyrir dansi.
Félagsstarf Gerðubergs | Á morgun
kl. 16.30 er ,,Vortónfundur“ gít-
arnemenda Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. Stjórnandi Símon H. Ív-
arsson. Allir velkomnir. Fimmtud. 17.
maí, uppstigningardag, verður messa
í Fella- og Hólakirkju m.a. syngur
Gerðubergskórinn undir stjórn Kára
Friðrikssonar. Uppl. á staðnum og í s.
575-7720.
Hæðargarður 31 | Listasmiðja, fram-
sögn, trésmíðar, leikfimi, myndlist,
skapandi skrif, félagsvist, bók-
menntahópur, tölvuleiðbeiningar,
gönguferðir, ljóðalestur, ljóðagerð,
söngur, bútasaumur, morgunandakt
og hugmyndabankinn alltaf opinn. Til
hvers langar þig? Kíktu við. S. 568-
komutíma og að barnagæslan er
komin í sumarfrí. Sigrún Einarsdóttir
prédikar. Á samkomunni verður lof-
gjörð og niðurdýfingarskírn. Kaffisala
eftir samkomu.
Grafarvogskirkja | Kórar Grafarvogs-
kirkju halda tónleika í dag kl. 16.
Kirkjukórinn, stjórnandi: Hilmar Örn
Agnarsson. Krakkakórinn, stjórnandi:
Gróa Hreinsdóttir. Barna- og ung-
lingakórinn flytur söngleik eftir John
Hojbye. Stjórnandi er Svava Kr. Ing-
ólfsdóttir. Einsöngvari: Hafsteinn
Þórólfsson. Aðgangur er ókeypis.
Laugarneskirkja | Laugarnes á ljúf-
um nótum. Vorhátíð í dag kl. 14-16.
Leikskólabörn syngja auk Barnakórs
Laugarness og Þorvaldar Halldórs-
sonar, brúðuleikrit, danssýning,
trúbador, hljómsveitir, leiktæki, hopp-
kastali, fimleikasýning, grillaðar pyls-
ur, kaffi og margt fleira.
3132. asdis.skuladottir@reykjavik.is.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
mánudag, er ganga frá Grafarvogs-
kirkju kl. 10 og boccia á Korpúlfs-
stöðum kl. 13.30.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Félags-
og skemmtifundur mánudaginn 14.
maí í safnaðarheimili Bústaðakirkju
kl. 20. Kvenfélagið Fjólan frá Vogum
á Vatnleysuströnd kemur í heimsókn.
Kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Mæðradagurinn. Sr. Sólveig Halla
Kristjánsdóttir. Kvennakór Akureyrar
syngur. Organisti: Arnór B. Vilbergs-
son. Súpa og brauð í safnaðarheimili
eftir guðsþjónustu.
Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Söngur, sögur, brúðuleikhús og
leikir. Allir krakkar velkomnir. Almenn
samkoma kl. 20. Ath. breyttan sam-
Haldinn verður opinnkynningarfundur umMBA-nám í Háskól-anum í Reykjavík næst-
komandi þriðjudag, 15. maí. Fund-
urinn er haldinn á 3. hæð
háskólabyggingarinnar og hefst kl.
17.15.
Finnur Oddsson er forstöðumað-
ur MBA-námsins: „Kynningin verð-
ur óformleg og fræðandi. Ég mun
kynna námið ásamt nemanda og
taka við spurningum,“ segir Finn-
ur.
MBA-nám er meistaranám í við-
skiptafræði með áherslu á stjórnun
og er eftirsóttasta stjórnunarnám
sem völ er á í heiminum í dag.
Finnur segir mikinn metnað
lagðan í námið við HR og að náms-
brautin státi af einvalaliði kennara:
„Við gerum þá kröfu til kennara að
þeir séu sérfræðingar á sínu fræða-
sviði, hafi getið sér gott orð fyrir
kennslu og hafi víðtæka hagnýta
reynslu að baki, því MBA-nám þarf
umfram allt að vera praktískt nám
og byggjast á reynslu og raunhæf-
um verkefnum frekar en fræði-
legum,“ segir Finnur. „Einnig
leggjum við áherslu á að nemendur
njóti kosta alþjóðlegrar menntunar
og koma um 70% af kennurum í
MBA-náminu frá fremstu við-
skiptaháskólum víða um heim en
námið fer fram á ensku. Að auki
bjóðum við upp á lengra og
skemmra skiptinám og starfs-
þjálfun erlendis.“ HR gerir ekki
síður ríkar kröfur til nemenda:
„Gerðar eru þær forkröfur til um-
sækjenda að þeir hafi lokið
grunnháskólagráðu og hafi þriggja
ára reynslu af vinnumarkaði. Nám-
ið er svokallað „executive“ MBA-
nám og er hagað með þeim hætti að
gert er ráð fyrir að unnið sé með
námi,“ segir Finnur. „Við val á um-
sækjendum höfum við til hliðsjónar
að nemendahópurinn standi saman
af fólki með áhugaverða reynslu og
fjölbreyttan bakgrunn, þannig að
hver nemandi læri ekki aðeins af
kennaranum heldur njóti ekki síður
reynslu samnemenda sinna.“
Fagnað var á dögunum 5 ára út-
skrifarafmæli fyrstu MBA-nemenda
HR: „Námið hefur getið sér gott
orð og leiddi könnun sem gerð var
meðal útskriftarnema í ljós afar
mikla ánægju með námið, aukin
tækifæri í starfi og töluverða hækk-
un launa umfram vísitölu að námi
loknu,“ segir Finnur að lokum.
Nánari upplýsingar um námið við
Háskólann í Reykjavík má finna á
slóðinni www.hr.is
Menntu n | Kynningarfundur á MBA-námi í Háskólanum í Reykjavík
Metnaðarfullt og gefandi nám
Finnur Odds-
son fæddist í
Uppsölum árið
1970. Hann lauk
stúdentsprófi
frá VÍ 1990,
B.A. í sálfræði
frá HÍ 1994 og
doktorsprófi frá
West Virginia
University 2000. Finnur starfaði
sem ráðgjafi í Bandaríkjunum áður
en hann tók við stöðu lektors við
viðskiptadeild HR 2001. Síðan hef-
ur hann gnegt starfi forstöðumanns
rannsókna og framkvæmdastjóra
Stjórnendaskóla HR og hefur veitt
MBA-námi HR forstöðu frá 2005.
Finnur er kvæntur Sigríði Þor-
geirsdóttur framkvæmdastjóra og
eiga þau soninn Óttar.
Tónlist
Árbæjarkirkja | Vortónleikar
Kórs Átthagafélags Stranda-
manna í dag kl. 16. Stjórnandi er
Krisztina Szklenár. Píanóleikari
er Judith Þorbergsson. Einnig
syngja bræðurnir Gunnar og Sig-
mundur Jónssynir. Miðaverð er
kr. 1800 fyrir fullorðna, frítt fyrir
14 ára og yngri.
Seltjarnarneskirkja | Á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna í dag kl. 17 verður
fluttur tvíleikskonsert fyrir fiðlu
og víólu eftir Mozart, KV 364, og
önnur sinfónía Brahms. Einleik-
arar eru Auður Hafsteinsdóttir
og Þórunn Ósk Marinósdóttir og
stjórnandi Óliver Kentish. Þetta
eru 6. tónleikar 17. starfsársins.
Myndlist
Listasafn ASÍ | Kl. 15 í dag veita
Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir leiðsögn um nor-
rænu textílsýninguna „Frá einum
til óendanleika“.
Þar sýna, auk þeirra, K. Wiher-
heimo og A. Hobin frá Finnlandi
og M. Mannsåker frá Noregi.
Paola Lovorsi samdi tónlist við
sýninguna.
Aðgangur ókeypis.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | 14.
júní verður farin dagsferð í Þórs-
mörk, Básar. Allir eldri borgarar
velkomnir. Uppl. í s. 892-3011.
Kaffi Hljómalind | Laugavegi 21.
Kynning á nýju 3ja ára námi í
náttúrulækningum, heilsumeist-
aranámi verður kl. 17 í dag.
Áhugasamir geta komið og hitt
skólastjóra heilsumeistaranáms-
ins og fengið upplýsingar um
innihald námsins, kennsluaðferð-
ir, tíma o.sfrv. en námið hefst í
ágúst. Allir velkomnir.
dagbók
Í dag er sunnudagur 13. maí, 133. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.)
Skartgripir
Fjallkonunnar
Reynomatic
Café Mílanó
Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar
um heita vatni›
www.stillumhitann.is
FRÉTTIR
LOKASÝNING útskriftarnema í fatahönnun fór fram í húsi Orkuveitunnar við
Gvendarbrunna í Heiðmörk föstudagskvöldið síðastliðið.
Margt var um manninn og góður rómur gerður að verkum nemenda. Eins og sjá
má af myndinni einbeittu gestir sér að flíkum frekar en fyrirsætum, en sú sem stik-
ar tískubrautina á þessari mynd gæti allt eins verið höfuðlaus.
Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskólans, sést hér lengst til vinstri einbeittur
á svip og nýklipptur. Listaháskólinn fékk nýverið úthlutað lóð í Vatnsmýrinni und-
ir nýja skólabyggingu, en skólinn hefur verið í tveimur byggingum í nær tvo ára-
tugi, í Laugarnesi og við Skipholt. Fagnaði Hjálmar því með hárskurði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfuðlausa fyrirsætan
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hef-
ur undirritað reglugerð um lög-
gildingu stoðtækjafræðinga þar
sem kveðið er á um menntun, rétt-
indi og skyldur stoðtækjafræðinga.
Samkvæmt reglugerðinni geta
aðeins þeir sem fengið hafa starfs-
leyfi heilbrigðisráðherra og hafa
lokið viðurkenndu námi í stoð-
tækjafræði kallað sig stoðtækja-
fræðinga og starfað sem slíkir hér
á landi. Sama gildir um þá sem
heilbrigðisráðherra staðfestir að
hafi leyfi til að starfa sem stoð-
tækjafræðingur í landi sem er aðili
að samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið eða stofnsamningi
Fríverslunarsamtaka Evrópu. Um
10 stoðtækjafræðingar eru starf-
andi á Íslandi í dag. Viðstaddir
undirritun reglugerðarinnar voru
fulltrúar Félags stoðtækjafræðinga
sem hefur um árabil beitt sér fyrir
löggildingu stoðtækjafræðinga.
Starf stoðtækjafræðinga felst í
gerð, viðhaldi og eftirliti stoðtækja
en með stoðtæki er átt við vél-
rænan eða tæknilegan búnað sem
er liður í meðferð sjúkdóma eða
aðlögun útlima. Dæmi um slík
stoðtæki eru gervilimir sem koma
að hluta eða öllu leyti í stað útlims
og spelkur sem koma í staðinn fyr-
ir eða laga skerta getu líkams-
hluta.
Stoðtækjafræðingar starfa á eig-
in ábyrgð en eru í starfi sínu háðir
faglegu eftirliti landlæknis.
Við undirritun Fulltrúar Félags stoðtækjafræðinga færðu heilbrigðis-
ráðherra, Siv Friðleifsdóttur, blóm. Frá vinstri: Þórir Jónsson, formaður
Félags stoðtækjafræðinga, Sveinn Finnbogason, Siv Friðleifsdóttir, Ásta S.
Halldórsdóttir, Guðmundur R. Magnússon og Atli S. Ingvarsson.
Löggilding á starfi
stoðtækjafræðinga
ICELAND Express útskrifaði ný-
lega 45 flugliða sem ráðnir hafa ver-
ið til starfa hjá félaginu í sumar og
hafa aldrei áður verið ráðnir svo
margir flugliðar í einu hjá Iceland
Express. Fjölgunin er í beinu sam-
bandi við fjölgun ferða félagsins í
sumar en þá bætast við fimm nýir
áfangastaðir; Basel í Sviss, Billund í
Danmörku, Eindhoven í Hollandi,
Ósló í Noregi og París í Frakklandi.
Tíu flugliðar til viðbótar sem hafa
áður starfað í faginu hafa verið ráðn-
ir í sumar svo alls hefja 55 nýir flug-
liðar störf hjá félaginu í vor.
Flugliðarnir hafa nú lokið nýliða-
námskeiði en þeir þurfa að geta
sinnt öllu frá hefðbundinni þjónustu
við farþega til neyðaraðstoðar ef
eitthvað fer úrskeiðis. „Starfið felst
fyrst og fremst í öryggisvörslu og á
flugliðanámskeiðum okkar er því
langmest áhersla lögð á öryggi um
borð, notkun öryggisbúnaðar, eld-
varnir og reykköfun. Auk þess er
notkun alls annars öryggisbúnaðar
flugvéla kennd og æfð, þar með talin
notkun neyðarrenna, rýming véla og
björgun á sjó,“ segir Lísa Ólafs-
dóttir yfirflugfreyja. Mikil áhersla
er lögð á skyndihjálp, enda ekki
hægt að hringja í Neyðarlínuna í há-
loftunum. Jafnframt hefur sérsveit
lögreglunnar aðstoðað hópinn við að
læra hvernig eigi að afstýra vand-
ræðum tengdum ölvun, múgæsingi
og annarri hegðun svokallaðra „flug-
dólga“. „Einnig var farið vandlega í
allt sem tengist hefðbundnari þjón-
ustu og umönnun farþega, auk þess
sem flugliðarnir hafa lært framkomu
og fengið leiðsögn um eigin förðun
og hárgreiðslu,“ segir Lísa.
Vel á sjöunda hundrað umsóknir
barst og eftir að vandlega hafði verið
farið yfir þær allar voru 150 manns
kallaðir í viðtal þar sem tungumála-
kunnátta var einnig könnuð.
Nýliðar Iceland Express útskrifaði 45 flugliða að þessu sinni en alls hefja
55 nýir flugliðar störf hjá félaginu í vor, þrír karlmenn og 52 konur.
Iceland Express
útskrifar 45 flugliða