Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 84
SUNNUDAGUR 13. MAÍ 133. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 10 °C | Kaldast 1 °C
Norðaustan og
norðan 5–10 m/s og
dálítil él norðan- og
austanlands en annars
léttskýjað. » 8
ÞETTA HELST»
Annríki á kjörstöðum
Góð kjörsókn var víða um land í
alþingiskosningunum sem fram fóru
í gær. Ríflega 221 þúsund manns var
á kjörskrá, þar af 17 þúsund nýir
kjósendur. »Forsíða
Engar fastmótaðar reglur
Eiríkur Tómasson lagaprófessor
segir að engar fastmótaðar reglur
séu hér á landi um stjórnarmynd-
unarferlið eftir þingkosningar. „Ef
forsetinn er snjall getur hann virkað
eins og ríkissáttasemjari sem er að
leysa erfiða vinnudeilu,“ segir Eirík-
ur um hlutverk forsetans. »6
Lóðir á föstu verði
Lóðum verður úthlutað á föstu
verði í Reykjavík samkvæmt al-
mennum reglum sem borgarráð hef-
ur samþykkt. Kvöð er um greiðslu
viðbótargjalds ef lóð eða fasteign er
seld innan sex ára frá gerð lóð-
arleigusamnings. »2
Vill koma Wolfowitz frá
Framkvæmdastjórn Alþjóðabank-
ans hefur í hyggju að lýsa yfir van-
trausti á Paul Wolfowitz, forstjóra
bankans, í von um að það verði til
þess að hann segi af sér. Stjórnin vill
ekki víkja honum frá þar sem það
gæti vakið deilu við bandarísk
stjórnvöld. »6
Hamstrað í Færeyjum
Færeyingar eru farnir að hamstra
matvæli og bensín vegna yfirvofandi
verkfalls eða verkbanns þegar
kjarasamningar falla úr gildi aðfara-
nótt þriðjudagsins kemur. »2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Jákvæð barátta
Forystugreinar: Alcoa, Alcan og
Ísland | Reykjavíkurbréf
Ljósvakinn: Beinagrindur í bikiníum
UMRÆÐAN»
Hár launakostnaður á Íslandi
Svíi í tveimur störfum á Íslandi
Ólöglegar eftirlíkingar frá Kína
Hvalveiðar og hvalaskoðun
Áfengisneyslan vex stöðugt
Vestfirðir til framtíðar
Að stilla Kompásinn
ATVINNA»
FÓLK»
Cameron Diaz segist
hafa átt erfið ár. »76
Guðmundur Krist-
inn Jónsson er þeim
töfrum gæddur að
allt sem hann kemur
nærri í tónlistinni
verður að gulli. »74
TÓNLIST»
Fondúpott-
urinn góði
KVIKMYNDIR»
Íslandsvinkona gerir
það gott. »76
TÓNLEIKAR»
Fimm stjörnu tónleikar
Konono no°1. » 81
Brasilíski tónlist-
armaðurinn Caetano
Veloso á að baki á
sjötta tug af breið-
skífum á fjórum ára-
tugum. »80
Enn að og
enn ferskur
TÓNLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Steingrímur um orð Geirs
2. Auglýsing Jóhannesar ósmekkleg
3. Myndir af nýburum á netinu
4. Þúsundir fylgdust með risabrúðu
GÍNURNAR í Harvey Nichols-vöruhúsinu í
London skrýðast nú íslenskum sumarflíkum í
fyrsta skipti, nánar tiltekið hvítu vorlínunni 2007
frá ELM. Þar taka þær sig ljómandi vel út meðal
stallna sinna í nýjustu tísku frá heimsþekktum
hönnuðum í kvenfatadeildinni á annarri hæðinni.
Eigendur og hönnuðir ELM, Erna Steina Guð-
mundsdóttir, Lísbet Sveinsdóttir og Matthildur
Halldórsdóttir, voru himinlifandi í fyrra þegar
þær fengu pöntun sem hljóðaði upp á um 600 flík-
ur frá þessu þekkta vöruhúsi sem þegar hefur
pantað annað eins af vetrarlínu fyrirtækisins.
„Það þykir mikill heiður í tískuheiminum að fá
inni í þessu glæsilega vöruhúsi,“ segja þær.
Meðal viðskiptavina Harvey Nichols er leik-
konan Emma Thompson, sem hreifst svo af föt-
unum frá ELM að hún bað stílista sinn að hafa
samband við umboðsmann þeirra í Bretlandi með
einhvers konar samvinnu í huga. Slíkt segja hönn-
uðirnir að geti borgað sig því fræga fólkið hafi
ótrúlega mikil áhrif á tískuna og sé í rauninni ein
besta auglýsing sem hugsast geti.
Umsvifin hjá ELM hafa aukist um 60% milli
ára nokkur undanfarin ár og 70% frá 2005 til 2006
og er salan á Íslandi núna aðeins brot af veltunni.
Tíu fastir starfsmenn vinna hjá ELM hér á landi,
fimm í dótturfyrirtæki þeirra í Perú og einn um-
boðsmaður í Bretlandi og annar í Bandaríkjunum,
sem er þeirra stærsta markaðssvæði. Þar eru um
eitt hundrað verslanir sem bjóða uppá ELM-
fatnað, tíu í Bretlandi auk vöruhúsanna Selfridges
og Liberty House og núna síðast Harvey Nichols,
auk þess sem flíkurnar fást í tugum verslana víðs-
vegar um Evrópu, tveimur í Japan og einni í Suð-
ur-Afríku. | 26
Íslenska tískan í London
Vorlínan frá ELM boðin til sölu í Harvey Nichols-vöruhúsinu í Knightsbridge
Bjart Hvíti liturinn nýtur sín í vorlínu Elm.
Í HNOTSKURN
» Stofnendur, hönnuðir og eigendurELM eru textílhönnuður, listmálari og
dramaþerapisti að mennt.
» Fyrirtækið var stofnað fyrir níu árum. » Hver fatalína, vor, sumar, haust og vet-ur, samanstendur af um 300 sniðum og
oft er hvert snið til í mismunandi efnum.
» Veltan jókst um 70% frá árinu 2005 til2006.
» Í undirbúningi er að ELM opni eiginlífsstílsverslun í London á næsta ári.
HVÍLDARKLETTUR ehf. á Suður-
eyri hefur selt erlendum ferðamönn-
um 12.000 gistinætur í sumar og
gerir ráð fyrir 1.500 til 1.800 ferða-
mönnum í sjóstangaveiði árlega, að
sögn Elíasar Guðmundssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Sjóstangaveiði er eftirtektarverð-
asta nýjungin í vestfirskri ferða-
þjónustu og hefur á skömmum tíma
náð að skapa sér ákveðna sérstöðu
sem höfðar til erlendra ferðamanna,
einkum Þjóðverja, sem kaupa ferð-
irnar hjá þýskum ferðaþjónustufyr-
irtækjum sem eru í samstarfi við
Hvíldarklett og Fjord Fishing ehf.
Fjord Fishing var stofnað 2005 í
þeim tilgangi að efla ferðaþjónustu á
Vestfjörðum með áherslu á sjó-
stangaveiði. Ómar Már Jónsson,
sveitarstjóri Súðavíkurhrepps og
einn forsvarsmanna fyrirtækisins,
segir að hátt í eitt þúsund manns
hafi komið á Vestfirðina á vegum
Fjord Fishing í fyrrasumar og ætl-
unin sé að tvöfalda og jafnvel þre-
falda þann fjölda á næstu tveimur til
þremur árum. | 4
Ásókn í sjó-
stangaveiði
Elías
Guðmundsson
Ómar Már
Jónsson
EINAR Guðlaugsson flugmaður
hefur reynt margt um dagana.
Hann flaug í gegnum kúlnaregn í
Bíafra, var á vettvangi flugslyss-
ins í Srí Lanka og eitt sinn mun-
aði minnstu að illa færi þegar
gammur flaug á vél hans.
„Við vissum ekki hvað í ósköp-
unum var á seyði en grunaði fyrst
að gluggi hefði sprungið. Fljót-
lega kom flugvélstjórinn aftur á
móti auga á gat á flugstjórn-
arklefanum fyrir neðan sætið
mitt. Þá tók fiður og drulla að
streyma inn um gatið og fyllti vit-
in. Annan eins viðbjóð hef ég
aldrei fengið upp í mig,“ rifjar
Einar upp.
Hann lenti vélinni heilu og
höldnu á flugvellinum í Delí. „Það
eru vitaskuld engar bækur til um
það hvernig bregðast eigi við
svona aðstæðum, þannig að ég
spilaði þetta bara eftir eyranu.
Það er ofsögum sagt að lendingin
hafi gengið vel en miðað við að-
stæður heppnaðist hún sæmilega.
Ég skil ekki enn þann dag í dag
hvernig þetta tókst. Við hefðum
ekki átt að lifa þetta af.“
Gæfan var ekki bara hliðholl
Einari í þetta skipti en hann segir
sögu sína í Morgunblaðinu í
dag. | 10Morgunblaðið/Kristinn
„Við hefð-
um ekki
átt að lifa
þetta af“