Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 39

Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 39
HAUKADALSKIRKJA | Fermingarmessa verður sunnudaginn 20. maí kl. 14. Fermdur verður Ólafur Aron Einarsson, Haukadal 3, Biskupstungum. HÁTEIGSKIRKJA: | Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11. Veitingar eftir messu. Um- sjón með barnaguðsþjónustu: Erla Guð- rún Arnmundardóttir og Þóra Marteinsdóttir. Organisti Douglas A. Brotchie. Prestur Tómas Sveinsson. HJALLAKIRKJA: | Hátíðarmessa kl. 11. 20 ára afmælis Hjallasafnaðar minnst. Prestar kirkjunnar þjóna. Fólk úr kirkju- starfinu aðstoðar. Kór kirkjunnar flytur m.a. Þýska messu e. Franz Schubert. Stjórnandi Jón Ól. Sigurðsson. Undirleik- ari Friðrik V. Stefánsson. Kaffiveitingar í safnaðarsal að messu lokinni. HJÁLPRÆÐISHERINN: | Samkoma á sunnudag kl. 20. Umsjón: Miriam Ósk- arsdóttir. Bæn og lofgjörð fimmtudag kl. 20. Opið hús daglega kl. 16–18. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Síð- asti fundur fyrir sumarið hjá sunnudaga- skólanum verður kl. 11. Kl. 17: almenn samkoma í umsjá Níels Jakobs Erlings- sonar og Rannveigar Óskarsdóttir. Allir velkomnir. HVERAGERÐISKIRKJA: | Ferming- armessa kl. 10.30. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Vorferð kirkjunnar verður farin til Þingvalla. Hist verður við þjónustumiðstöðina kl. 12. Þetta eru lok vetrarstarfsins. Samkoma kl. 20 með lofgjörð og fyrirbænum. Friðrik Schram predikar. Samkoma á Eyjólfs- stöðum á Héraði kl. 20. KÁLFATJARNARSÓKN: | Hátíðarguðsþjón- usta í Kálfatjarnarkirkju kl. 14. Elías Dav- íðsson, tónskáld og baráttumaður fyrir mannréttindum, predikar. Fermingarbörn Kálfatjarnarkirkju 1957 boðin sérstaklega velkomin til hátíðarinnar. Kirkjukaffi í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla á vegum kven- félagsins Fjólu eftir helgihaldið. KFUM og KFUK: | Samkoma í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 20. „Átökin um hugarfarið“, ræðumaður er sr. Sigurður Pálsson, Keith Reed sér um tónlistina. Söngur og lofgjörð. Samfélag og kaffi eftir samkomuna. Verið öll velkomin. KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga heilögu, Mormónakirkjan: | Ásabraut 2, Garðabæ. Sunnudaga: 11.15 sakrament- issamkoma. 12.30 sunnudagaskóli. 13.20 prestdæmis- og líknarfélagsfundir. Þriðjudaga: 17.30 trúarskóli yngri, 18.00 ættfræðisafn opið, 18.30 unglingastarf, 20.00 trúarskóli eldri. Allir eru alltaf vel- komnir. www.mormonar.is. KÓPAVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópa- vogskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Julian Hewlett. LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Landakot | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Gunn- ar Rúnar Matthíasson, organisti Birgir Ás Guðmundsson. LANGHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir predikar og þjónar ásamt sóknarpresti. Organisti Jón Stef- ánsson. Aðalsafnaðarfundur kl. 12.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarbörn hvött til að fjölmenna. Léttur hádeg- isverður. LAUGARNESKIRKJA: | Messa kl. 13 í sal Sjálfsbjargar í Hátúni 12. Sr. Hildur Eir Bolladóttir predikar og þjónar ásamt Kristni Guðmundssyni meðhjálpara, Gunnari Gunnarssyni organista, Guðrúnu K. Þórsdóttur djákna og fleirum. Messa í Laugarneskirkju kl. 20. Sr. Hildur Eir Bolla- dóttir predikar og þjónar ásamt lesurum, Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara, kór Laugarneskirkju og Gunnari Gunnarssyni organista. Gunnhildur kirkjuvörður verður með heitt á könnunni eftir messuna. Allir velkomnir. LÁGAFELLSKIRKJA: | Sumarferð kirkju- kórs, organista og sóknarprests á Snæ- fellsnes. Sameiginleg messa safnaðanna í Lágafells- og Setbergssóknum í Grund- arfjarðarkirkju kl. 14. NORÐFJARÐARKIRKJA: | Messa kl. 11. Barnakór og Kór Neskirkju syngja. Stjórn- andi Steingrímur Þórhallsson organisti. Sr. Örn Bárður Jónsson predikar og þjónar fyrir altari. Kaffi eftir messu. Vorferð barnastarfsins á Akranes kl. 11. Farið á safn, grillað og fleira. Börn komi í fylgd með fullorðnum. Heimkoma um kl. 16. SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11. Kirkju- kórinn og Unglingakór Selfosskirkju syngja undir stjórn organistans, Jörgs E. Sondermanns. Fjórir félagar Unglingakórs- ins heiðraðir með silfurkrossi. Kl. 17 sama dag: næðisstund við orgelleik. Jörg E. Sondermann leikur falleg orgelverk á hljóðfæri kirkjunnar. SELJAKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson predikar. Kirkjukórinn leiðir sönginn. Organisti Jón Bjarnason. Aðalsafnaðarfundur strax að lokinni guðs- þjónustu. Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar. Tónlist í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Alt- arisganga. Kvöldguðsþjónusta verður í Seljakirkju sunnudaginn 20. maí kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar og þjónar fyrir altari. Þorvaldur Hall- dórsson sér um tónlistina. Kirkjukórinn styður við söng undir stjórn Jóns Bjarna- sonar. Gengið verður að borði Drottins. Verið velkomin. Sjá nánar um starf kirkj- unnar á seljakirkja.is. SELTJARNARNESKIRKJA: | Messa kl. 11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir Tézesálma. Áhersla er lögð á kyrrð og íhugun enda eru tézesálmar sérstaklega hentugir til söngs á bænar- og kyrrð- arstundum. Organisti Pavel Manasek. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa verður sunnudaginn 20. maí kl. 11. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta verður í Sólheimakirkju sunnudaginn 20. maí kl. 14. Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og predikar. Organisti er Ingimar Pálsson. Almennur safnaðarsöngur. Verið öll vel- komin að Sólheimum. VÍDALÍNSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11 í tilefni af vorhátíð Garða- prestakalls. Hljómsveitin Exodus spilar. Kór Vídalínskirkju flytur kórverk. Barbara trúður og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir pre- dika. Boðið upp á pylsur og djús í safn- aðarheimilinu kl. 12. Tónleikar kl. 13 til styrktar þrælabörnunum. Morgunblaðið/ÞÖKSólheimar í Grímsnesi MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 39 ið á Stokkseyri skoðað, við borðum hádegisverð á veitingastaðnum Hafinu bláa og síðan verður keyrt að Strandakirkju. Skráning í s. 557–3280 fyrir kl. 12 mánud. 21. maí. Verið velkomin. 20 ára afmæli Hjalla- safnaðar SUNNUDAGINN 20. maí verður þess minnst að 20 ár eru síðan Hjallasöfnuður var stofnaður. Af því tilefni verður hátíðarmessa í Hjallakirkju kl. 11. Prestar kirkj- unnar þjóna og fólk úr safnaðar- starfinu aðstoðar í messunni. Að auki verður drengur fermdur. Kór kirkjunnar flytur meðal annars messu eftir Franz Schubert í þýð- ingu Jóns Þ. Björnssonar og Bless- unarorðin í tónsetningu Johns Rut- ter. Undirleikari verður Friðrik V. Stefánsson sem var fyrsti organisti safnaðarins. Að guðsþjónustu lok- inni verður boðið til kaffisamsætis í safnaðarsal kirkjunnar. Sóknar- börn og aðrir eru hjartanlega boðn- ir velkomnir. Vorhátíð Garðaprestakalls og styrktartónleikar SUNNUDAGINN 20. maí verður vorhátíð Garðaprestakalls. Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 í Vídalínskirkju. Stundin mun einkennast af tónlist, en organistar eru Jóhann Baldvinsson og Bjartur Logi Guðnason. M.a. mun nýstofnuð unglingahljómsveit við Vídal- ínskirkju flytja þrjú lög undir stjórn Andra Bjarnasonar og Ár- manns H. Gunnarssonar. Þá mun Barbara trúður leika stórt hlutverk á vorhátíðinni. Hún mun m.a. pre- dika ásamt sr. Jónu Hrönn Bolla- dóttur. Að lokinni guðsþjónustu kl. 12 mun æskulýðs- og fjölskyldu- nefnd Garðasóknar bjóða upp á veitingar í safnaðarheimili Vídal- ínskirkju. Þá mun Barbara trúður stýra leikjum og söng við harm- onikkuundirleik. Unglingar í fermingarfræðslu og æskulýðsstarfi Vídalínskirkju hafa lyft grettistaki á þessum vetri til styrktar þrælabörnum á Indlandi. Nú þegar hafa safnast nokkur hundruð þúsund krónur. Nú vilja þau gera enn betur og því verða tónleikar í safnaðarheimili Vídal- ínskirkju sunnudaginn 20. maí kl. 13.00. Fjórar hljómsveitir úr Garðabæ stíga á svið. Söfnunin er unnin í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og reiknisnúmerið er 0111–05–272386, en einnig verður tekið við frjálsum framlögum á vorhátíðinni til styrktar þrælabörn- um. Allir velkomnir. Sjá www.gardasokn.is. Kvennakirkjan í Digraneskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guð- þjónustu í Digraneskirkju í Kópa- vogi sunnudaginn 20. maí kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er „Gleði vorsins“. Séra Yrsa Þórðardóttir predikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu. Að morgni sama dags verður farið í vorferð upp í Bláfjöll, dvalið þar yfir daginn og endað í messunni í Digraneskirkju. Þær sem vilja koma með í ferðina mæti á Umferðarmiðstöðina kl. 10. Helgihald í Kolaportinu SUNNUDAGINN 20. maí kl. 14 verður helgihald í Kolaportinu á veitingarstaðnum „Kaffi Port“. Um leið og gengið er um og bæn- arefnum safnað eða frá kl. 13.30 syngur og spilar Þorvaldur Hall- dórsson ýmis þekkt lög, bæði eigin og annarra. Hann annast einnig tónlistina í helgihaldinu. Sr. Hildur Eir Bolladóttir mun predika og sr. Þorvaldur Víðisson og Margrét Scheving leiða samveruna. Að venju er boðið upp á að leggja fram fyrirbænarefni og verður beðið með og fyrir þeim sem þess óska. Allir eru velkomnir. Menningarvaka Vestfirðingafélagsins MENNINGARVAKA Vestfirðinga- félagsins verður í safnaðarheimili Áskirkju sunnudaginn 20. maí. Guðsþjónustan hefst kl. 14 og um kl. 15 hefst dagkrá Menningarvök- unnar. Á dagskránni er m.a. tónlist- aratriði, einsöngur, ávarp sem sr. Örn Bárður Jónsson flytur, gam- anmál, fjöldasöngur o.fl. Kaffihlað- borð verður að lokinni dagskrá. Allur ágóði af samkomunni rennur til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku en sjóðurinn er 40 ára á þessu ári. Allir sem koma að dagskránni gefa vinnu sína. Allir eru velkomnir og er aðgangseyrir 1500 kr. 50, 60 og 70 ára fermingarbörn í Hafnarfjarðarkirkju SUNNUDAGINN 20. maí nk. munu 50, 60 og 70 ára fermingarbörn Hafnafjarðarkirkju sækja messu kl. 11, en þau voru fermd 1937 í krep- putíð, 1947 rétt eftir stríð og 1957 á endursköpunarskeiði eftirstríðs- ára. Þau hafa lifað margvísleg um- skipti og breytingar í samfélagi og veraldarsögu og hafa margs að minnast frá fyrri tíð sem rifjast upp við endurfundi. Sr. Gunnþór Þ. Ingason sóknarprestur mun messa. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu í messunni en Guðmundur Sigurðs- son kantor leikur á orgel og stjórn- ar kór kirkjunnar. Eftir messu munu þessir afmælisárgangar fermingarbarna hittast í hádegis- verði í Hásölum Strandbergs. Þar mun eitt eldri fermingarbarnanna, Hlíf Káradóttir, syngja einsöng við undirleik Guðmundar og Ólafur B. Ólafsson mun leika vorlög og létta tónlist. EIN furðulegasta niðurstaða einvígis Kramniks og Topalovs í Elista varðar næstu heims- meistarakeppni sem fer fram í Mexíkó næsta haust. Veselin Topalov vann þetta mót með glæsibrag árið 2005 en Vladimir Kramnik hefur dregist á að skrá þátttöku sína en kveðst sakna gömlu heimsmeistaraeinvígj- anna og hefur alls ekki útilokað að hann muni hefja viðræður um slíkt einvígi við sigurveg- arann í Mexíkó þ.e.a.s. ef það verður ekki hann sjálfur. Það er rétt hjá Kramnik að eftirsjá er að gömlu góðu heimsmeistara- einvígjunum og einnig að því til- tölulega sanngjarna fyrirkomu- lagi sem FIDE stóð fyrir, svæðamótum, millisvæðamótum og áskorendaeinvígjunum. Sú leiða klíka sem náði völdum í FIDE árið 1995 breytti þessu, studd af andlýðræðislegum sjónarmiðum Kasparovs sem áð- ur hafði viðrað þau, að Elo- stigalisti FIDE ætti að duga til að finna keppendur. Topalov kom eins og ferskur vindur þegar hann vann hei- meistaramótið í Saint Louis í Argentínu haustið 2005. Hann getur vissulega sjálfum sér um kennt að hafa fallist á einvígi við Kramnik á „útivelli“. Allir sem tefldu í gömlu Sovétríkjunum þekkja þau seigdrepandi leiðindi sem gestgjafarnir buðu stund- um upp á. Að Kramnik skyldi hafa unnið það einvígi er eig- inlega skáksögulegt slys á borð við það þegar Botvinnik vann Tal í endurkomueinvíginu þeirra árið 1961. Í Búlgaríu nýtur Topalov enn mikillar lýðhylli enda snerist bæði þing og forseti á band með honum meðan á orrahríðinni í Elista stóð. Í höfuðborginni So- fíu stendur þessa dagana yfir hið árlega stórmót sem kallast MTel Masters. Ýmis stórfyrir- tæki kosta þetta mótshald, þ. á m. Actavis. Í mótinu gildir hin svokallaða Sofía-regla sem gengur út á það að hvorki má bjóða né semja jafntefli nema með samþykki dómara. Þessi regla er hið mesta þarfaþing. Að sjálfsögðu vekur taflmennska Topalovs mesta athygli og menn spyrja hvort dagur múrmeldýrs- ins sé runninn upp; rétt eins og í fyrra gengur allt á afturfót- unum hjá honum í byrjun en hann ætlar að koma sterkur inn á lokasprettinum. Eftir tap í fyrstu og þriðju umferð hefur Topalov unnið helsta keppinaut sinn og mætir honum aftur í átt- undu umferð. Í þessu móti tefla sex kepp- endur tvöfalda umferð og staðan er þessi þegar þrjár umferðir eru eftir: 1. Krisnan Sasikiran (Indland) 4 ½ v. 2.–4. Veselin Topalov (Búlgaría), Michael Adams (England) og Mamedyarov (Azerbadsjan) 3 ½ v. hver. 5.–6. Kamsky (Bandaríkin) og Nisipeanu (Rúmeníu) 3 v. hver. Árangur Anands undanfarin ár hefur blásið kjarki í marga landa hans en Indverjar eiga marga frábæra skákmenn um þessar mundir. Sasikiran er að öllum líkindum sá sem kemst næst Anand að styrkleika. Hann var með 2 vinninga þegar eft- irfarandi skák var tefld og Topalov einn á botninum með ½ vinning. Nú var að duga eða drepast. Skákin er dæmigerð fyrir hinn kraftmikla stíl Búlg- arans: Sofia, 4. umferð: Krisnan Sasikiran – Veselin Topalov Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4. Rc3 O-O 5. e4 d6 6. Be2 e5 7. Be3 Rg4 8. Bg5 f6 9. Bh4 g5 10. Bg3 Rh6 11. d5 Rd7 12. h3 f5 13. exf5 Rc5 14. Rd2 Bxf5 15. O-O e4 16. Rb3 b6 17. Rd4 Df6 18. Rc6 a5 19. f4 Bd7 20. Rb5 Bxc6 21. dxc6 Dxb2 22. Hb1 Dxa2 23. Rxc7 Rf5 24. Bf2 e3 25. Be1 Rd4 26. Rxa8 Rxe2+ 27. Kh2 Rxf4 28. Hxf4 gxf4 29. Hxb6 f3 30. Dd5+ Re6 31. Dxe6+ Kh8 32. Dg4 Be5+ 33. Kh1 f2 – og hvítur gafst upp. Þrír efstir á stigamóti Hellis Þrír skákmenn eru efstir þeg- ar tefldar hafa verið tvær um- ferðir á stigamóti Hellis. Atli Freyr Kristjánsson, Snorri Snorrason og Omar Salamaa hafa unnið báðar skákir sínar. Omar Salama er langsigur- stranglegastur keppenda en margir ungir og efnilegir skák- menn gætu gert honum skrá- veifu. Keppendur er 14 en með vinning og meira eru: 1.–3. Atli Freyr Kristjánsson, Omar Salama og Snorri Snorrason 3 vinning hver. 4. Vigfús Ó. Vigfússon 1½ vinning. 5.–9. Dagur Kjartansson, Helgi Brynjarsson, Dagur Andri Friðgeirsson, Guðmundur Kristinn Lee og Stefanía Bergljót Stefánsdóttir 1 vinning hver. Topalov í eld- línunni í Sofia Helgi Ólafsson. Einbeittur Venselin Topalov. helol@simnet.is SKÁK Sofia - MTel Masters 9. – 20. maí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.