Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 26

Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 26
lifun 26 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ég er búinn að fá algjörtógeð á þessum minimal-isma sem virðist vera ráð-andi hér á landi. Ég kann ekki vel við heimili sem eru hvít og köld. Ég hef tekið eftir að fólki sem hingað kemur finnst gott að fá hvíld frá naumhyggjunni. Því líður vel að vera innan um allt þetta kraðak hjá mér,“ segir Sigmar Magnússon sem býr í pínulítilli íbúð í kjallara á Vest- urgötunni þar sem hver einasti fer- sentimetri er vel notaður, hvort sem það eru veggir eða gólfflötur. „Þetta eru innan við fjörutíu fer- metrar en það dugar mér alveg. Hér hef ég allt sem ég þarf. Vissulega á ég fullar geymslur af málverkum og antikmunum, en ég er svo mikið á fartinni og bý ýmist hér á Íslandi eða erlendis, þannig að það bíður betri tíma að koma mér upp varanlegu heimili.“ Það tekur skemmtilega langan tíma að skoða allt sem prýðir heimili Sigmars og nýir hlutir koma stöðugt í ljós og allt á sína sögu. Allir veggir, hvort sem það er í svefnrýminu eða á baðinu, eru þaktir myndum í vegleg- um römmum og eru það ýmist mál- verk eða ljósmyndir og hver einasta þeirra hefur einhverja sögu. Athygli vekur að þó nokkuð er um myndir af kóngafólki og öðru fyrirfólki, sem tónar reyndar ágætlega við kon- unglegt yfirbragð íbúðarinnar, þar sem gyllti liturinn er ríkjandi og gluggatjöldin eru þung og þykk. Kristján, fyrrum Danakonungur, sem heimsótti Ísland á sínum tíma situr hest á stórri mynd sem gefin var út í tilefni afmælis hans árið 1940. Mónakófurstinn og Grace Kelly, prinsar, keisarar, íslenskir forsetar og skáld, og Elísabet Breta- drottning eiga öll sinn heiðursstað á veggjum. „Ég bjó í tíu ár í Bretlandi og þá gerist það nánast sjálfkrafa að mað- ur fær áhuga á kóngafólkinu. Auk þess var ég að vinna á Langham Hil- ton hóteli, sem er mjög virt hótel byggt 1863 og aðalsfólkið sækir mik- ið þangað. Ég var oft að þjóna þessu fólki í veislum, meðal annars bland- aði ég Martini fyrir Karl Breta- prins.“ Sigmar hefur unnið sem þjónn og veitingastjóri í mörg ár og núna er hann rekstrar- og veitingastjóri á nýjum stað sem opnaður verður í gamla Naustinu um næstu mán- aðamót. En í hjáverkum kaupir hann og selur antikmuni, enda er hann heillaður af gömlum munum og íbúð- in hans ber þess sannarlega merki. Sumt kom hann með frá Bretlandi þegar hann flutti heim fyrir þremur árum, annað hefur hann keypt á fornsölum í Íslandi. Sumir hlutir hafa fengið nýtt hlutverk, til dæmis er eldgamall tveggja hæða kökud- iskur inni á baði sem þjónar sem hirsla undir rakspíra og aðrar snyrti- vörur. Og til að kóróna stemninguna ber- ast frá útvarpinu fréttir á fallegri bresku, en Sigmar kveikir ekki á annarri stöð. Blandaði Martini fyrir Bretaprins Morgunblaðið/Golli Konunglegt Sigmar hefur rammað pínulitlu gluggana inn með dragsíðum og íburðarmiklum gluggatjöldum sem gefur íbúðinni allt annan svip. Fyrir of- an bækurnar hans er árituð mynd af Vilhelm, síðasta keisara Þýskalands og fyrir neðan er síðan stór mynd af Bismarck hershöfðingja. Nýtt Tölvan hans Sigmars er nán- ast það eina sem er ekki gamalt heima hjá honum. Stóll: Þegar inn er komið á vesturgötunni, þá taka íslensk málverk á móti gestum og konunglegur stóll. Gullið ráðandi: Gyðja á gylltri súlu, flúraður spegill og kertastjaki.. Dragsíð þung tjöld fyrir gluggum, veggir þaktir myndum og gamlir hlutir með sögu allsráðandi. Kristín Heiða Krist- insdóttir heimsótti heim- ili á Vesturgötunni þar sem naumhyggjunni hef- ur verið úthýst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.