Morgunblaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á FYRSTA áratug 20. aldar markaði ungmennafélagshreyf- ingin sín fyrstu spor í sögunni. Fyrsta ungmenna- félag landsins var stofnað á Akureyri 7. janúar 1906 og fyr- irmyndin var sótt til æskufólks í Noregi. Hin nýja vakning fékk afar góðar við- tökur og breiddist hratt út um byggðir landsins. Fyrsta ung- mennafélagið í A- Skaft. var stofnað í Nesjahreppi 27. jan- úar 1907 og á því nú um þessar mundir 100 ára afmæli. Ávallt þarf nokkuð til þess að halda utan um félagsskap, svo að hann lifi af og njóti sín í nokkra áratugi, hvað þá um eina öld. Það er afrek. Fyrsti formaður Ungmenna- félagsins Mána var Bjarni Guðmundsson f.1886, síðar kaup- félagsstjóri á Höfn, formaður ti1 1910. Hann var í skóla á Akureyri og hefur orðið vitni að stofnun ungmennafélagsins þar. Hjalti Jónsson, f.1884, var formað- ur árin 1910-1925. Í lok stofnfund- arins 1907 flutti hann félögum sín- um kvæði. 1. og 4. erindi hljóða svo: Vér erum ungir, lífið lítið þekkjum og lítum naumast á þess dökku hlið. Vort æskufjör er engum bundið hlekkj- um, og oss til dáða hvetur fram á við. Það hvetur oss að elska fósturlandið og á þess framtíð glæðir vora trú. Það fremur öðru treystir tryggðabandið, sem tengir hér í dag vér erum nú. Látum nú bilbug aldrei á oss finna þótt erfiðleikar séu á vorri leið, en munum að vér ætlum þá að vinna og í því trausti byrjum þetta skeið. Og á þeim líka unnið bug vér getum ef eindreginn og sterkur viljinn er. Svo áfram djarft með heilum huga fet- um og hinu setta marki náum vér. Þeir þættir sem haldið hafa Ungmennafélaginu Mána síungu í heila öld eru meðal annars leik- listin, sem verið hefur drjúgur þáttur allt frá stofnun félagsins, ásamt hvers kyns íþróttaiðkunum, þar sem frjálsar íþróttir hafa lengst af verið stærsti þátt- urinn. Þar hefur hver kynslóðin tekið við af annarri. Stephan G. segir svo í ljóði: „Aldrei deyr úr sögu sigurvon sem á stöð- ugt nýjan mann í skarðið.“ Ef fólkið hér í byggðarlaginu eignast stöðugt nýja ein- staklinga í skarðið, sem láta ekki merkið falla, fremur bæta við eins og sannast núna á afmælisárinu með áhrifamikilli upp- færslu Ingunnar Jensdóttur á Fiðl- aranum á þakinu, þar sem mörg ný andlit verma huga áhorf- enda, mun aldrei deyja sigurvonin úr sögu þess. Það var mikil eft- irvænting í loftinu í salnum í Mánagarði sunnudags- kvöldið 4. febrúar s.l. þegar sýning Leikhóps Mána og Leikfélags Hornafjarðar var að hefjast. Eft- irvæntingin var ef til vill hjá sum- um blandin örlitlum ótta og spurn. Var hægt að koma slíku stórvirki fyrir á litla sviðinu í sveitaleikhús- inu, með litlu af þeim nútíma- tæknibúnaði sem stóru leikhúsin ráða yfir? Var hægt að safna sam- an í fremur fámennu samfélagi tugum hæfileikafólks, sem væri tilbúið að leggja á sig í launalausri eftirvinnu og næturvinnu allt það erfiði sem slíku fylgir? Voru Horn- firðingar nú kannski að fara örlítið fram úr sjálfum sér? Hafi slíkar hugsanir og aðrar af svipuðum toga gert vart við sig, þá gufuðu þær upp eins og dögg fyrir sólu þegar leiksýningin byrjaði. Í einni svipan voru leikhúsgestir orðnir heimamenn í litla sveita- þorpinu Anatevka austur í Evr- ópu, þátttakendur í daglegu amstri íbúanna þar, gleði þeirra og sorg- um, sigrum og ósigrum, því hér sönnuðust sem oftar orð skáldsins „að hjörtum mannanna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu“ Ingunn Jensdóttir leikstjóri er okkur Austur–Skaftfellingum að góðu kunn og hefur nú enn einu sinni leyft okkur að njóta list- rænna hæfileika sinna og hjálpað til við að auðga menningu og mannlíf hér eystra. Sýningin hafði að yfirbragði þann töfrandi sjarma, sem einkennir góða sýn- ingu áhugaleikara. Leikgleðin var áberandi, hvert hlutverk skipti máli og allir skiluðu sínu með mik- illi prýði, enginn hlekkur í keðj- unni brást. Leikendahópurinn var frábær blanda fólks á öllum aldri og það var eins og hver og einn væri einmitt í sínu óskahlutverki. Gamalreynt leikhúsfólk naut sín vel innan um hóp ungra leikara, sem svo sannarlega stóð fyrir sínu. Í því sambandi er líklegt að Magn- ús J. Magnússon skólastjóri, hafi séð blómin spretta á þeim akri sem hann hefur af elju og fórnfýsi plægt á undanförnum árum. Við sem eldri erum sáum þarna líka afrakstur leiklistarstarfs sem Rafn Eiríksson lagði mikla rækt við í Heimavistarskólanum í Nesjum á árum áður en þarna voru þó nokkrir leikarar sem fyrst stigu á fjalirnar undir hans stjórn. Tónlistarfólkið okkar er ein af meginstoðum þessarar sýningar og minnir okkur á mikilvægi þess starfs sem hér fer fram bæði í tónskóla og einnig í því fjölbreytta kórastarfi sem hér blómstrar. Hér verða einstökum persónum ekki gerð skil en verður þó að nefna aðalhlutverk leiksins mjólk- ursalann Tevye. Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson túlkar þessa marg- slungnu og yndislegu persónu á þann veg að tæpast verður betur gert. Hér hefur margt fólk lagt hönd á plóginn til þess að við lands- byggðarfólkið fáum notið góðrar leiklistar í heimabyggð. Hafi það allt heiður og þökk. Ungmennafélaginu Mána óskum við til hamingju með aldarafmælið. Afmæliskveðja í tilefni aldaraf- mælis Ungmennafélagsins Mána Þorsteinn Geirsson og Aðalheiður Geirsdóttir fjalla um aldarafmæli Ungmennafélagsins Mána »U.m.f. Máni er meðelstu ungmenna- félögum landsins. Starf- semi þess hefur aldrei fallið niður. Nú á árinu er afmælisins minnst á veglegan hátt. Aðalheiður Geirsdóttir Þorsteinn er rithöfundur og fyrrver- andi kennari. Aðalheiður er húsmóðir. Þorsteinn Geirsson Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is NÚ þegar sumarið er að koma með ljósið, gróðurinn, andarungana og ylinn er tilvalið að fara í æðruleys- ismessu í Dómkirkjunni. Gott er að vera í húsi Guðs og uppbyggjast þar, taka á móti orði hans og vera á stað þar sem von og gleði er nóg. Við mætum mörgu í lífinu og oft þurfum við að takast á við erfið verkefni, en einnig hljótum við líka ýmist happ eða lán. En hvernig sem lífið er og dagar okkar þá er nauðsynlegt að búa við jafnvægi, innri styrk og kraft. Boðskapur kirkjunnar er ein- mitt til þess fallinn að byggja upp fólk, auka þakklæti þess, von og gleði. Það er reynsla þúsunda, jafn- vel mjög margra sem mætt hafa miklu andstreymi og mótlæti í lífinu. Þess vegna hvet ég sem allra flesta til að koma í æðruleysismessu sem verður í Dómkirkjunni sunnudaginn 20. maí kl. 20.00. Þeir Ástvaldur Traustason píanóleikari, Birgir Bragason kontrabassaleikari og Hjörleifur Valsson fiðluleikari ann- ast tónlistarflutninginn og Anna Sig- ríður Helgadóttir mun líka koma í messuna og syngja einsöng og leiða sönginn. Einnig verðu einhver til að segja reynslusögu sína, sem verið hefur í þessum messum. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson mun leiða messuna, sr. Karl V. Matthías- son mun predika og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson mun fara með bæn. Allir eru hjartanlega velkomnir í æðruleysismessurnar, en þær eru fullar af gleði og von og kærleika. Karl V. Matthíasson, prestur og þingmaður. Æðruleysismessa í upphafi sumars Frá Karli V. Matthíassyni: FRAMUNDAN eru mikilvægar kosningar innan Sjúkraliðafélags Íslands. Kosið er um það hver skuli gegna formennsku í félaginu næstu þrjú árin. Mikið er í húfi fyrir stéttina í þessum kosningum þar sem sótt er að Kristínu Á. Guðmundsdóttur, núverandi formanni Sjúkraliða- félagsins. Við viljum þess vegna eindregið hvetja sjúkraliða til að fylkja sér um hana og tryggja henni endurkjör, félaginu til heilla. Það hefur verið gæfa okkar sjúkraliða að hafa hana sem for- mann félagsins í erfiðri baráttu okkar fyrir réttindum og bættum kjörum. Sjúkraliðastéttinni til sóma Kristín Á. Guðmundsdóttir hefur ávallt verið sjúkraliðastéttinni til mikils sóma. Hún hefur sem for- maður sýnt fádæma kjark og áræði í baráttunni fyrir hærri launum okkar sjúkraliða, auknum rétt- indum og viðurkenningu á mik- ilvægi þeirra starfa sem við vinnum á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigð- isstofnunum þjóðarinnar. Þetta hefur skilað okkur sjúkra- liðum ótrúlegum árangri á síðustu árum. Sjúkraliðafélagið hefur breyst úr veikburða fagfélagi í öfl- ugt stéttarfélag. Kjör okkar hafa batnað mikið sem hlutfall af laun- um annarra heilbrigðisstétta. Sjúkraliðafélagið hefur einnig sam- ið um margvísleg réttindi sem eru mikilvæg fyrir okkur öll í daglega lífinu. Undir forystu Kristínar hef- ur Sjúkraliðafélagið orðið sterkara og kraftmeira en nokkurn gat dreymt um fyrr á árum þegar við höfðum ekki einu sinni samnings- rétt. Sjúkraliðastéttin getur í dag bor- ið höfuðið hátt vegna einarðrar bar- áttu félagsins okkar undir forystu Kristínar Á. Guðmundsdóttur. Kjósum Kristínu! En það er ekki einungis vegna fyrri afreka sem við hvetjum sjúkraliða til að kjósa Kristínu í formanns- kjörinu og tryggja okkur forystu hennar næstu árin, heldur líka vegna þess sem framundan er. Þótt mikilvægum áföngum hafi verið náð á liðnum árum þarf sjúkraliðastéttin áfram að berjast af krafti og einurð fyrir bættum kjörum og auknum réttindum og viðurkenningu. Sú barátta tekur aldrei enda. Það er mjög mikilvægt fyrir okk- ur sjúkraliða að reynsla, þekking, áræði og dugnaður hennar fái áfram að njóta sín í forystu félags- ins í þeirri baráttu sem framundan er. Við hvetjum því sjúkraliða ein- dregið til þess að tryggja endurkjör Kristínar. Sjúkraliðar! Greiðum Kristínu Á. Guðmundsdóttur atkvæði í póst- kosningunni 21.–23. maí næstkom- andi. Hvetjum vinnufélaga okkar til að gera slíkt hið sama og leggjum þannig okkar af mörkum til þess að félagið okkar verði áfram sterkt og öflugt og sjúkraliðastéttinni til sóma. SIGURÐUR H. GÍSLASON, LÁRA H. ÁRNADÓTTIR OG ÞÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR, sjúkraliðar á Landspítala í Fossvogi. Kjósum Kristínu til forystu á ný Frá Sigurði H. Gíslasyni, Láru Hrönn Árnadóttur og Þórunni Ólafsdóttur HANN vissi flestum betur að margt er manna bölið. Liðagigt, lungnasjúkdómar, hjarta- sjúkdómar, blóðtappar, horm- ónasjúkdómar og bólgu- sjúkdómar í meltingarvegi og æðum höfðu, þrátt fyrir óbilandi kjark og starfslöngun, bundið hann í hjólastól og gert hann háð- an súrefni bróðurpartinn úr sóla- hringnum. Eitt sinn, þegar hann kom til mín, mat ég það svo að hann þyrfti að hitta hjartalækni sinn sem allra fyrst vegna nýtil- kominnar hjartsláttaróreglu. Að öllu eðlilegu hefði þetta átt að vera auðvelt því hjartalæknirinn var með móttöku á sama tíma og í sama húsi og ég. En nú var komið babb í bátinn. Frá því að skjól- stæðingur minn hitti hjartalækni sinn síðast var komin tilvís- unarskylda til hjartlækna. Sam- kvæmt reglugerð nr. 241/2006 eru heimilislæknar einir færir um að meta hvort sjúklingar þurfi á hjartalækni að halda. Mér, aum- um sérfræðingi, var ekki treyst til að meta hvort þessi skjólstæð- ingur minn, sem ég hafði þekkt og meðhöndlað í nærri þrjá áratugi, væri í þörf fyrir skoðun hjá hjartalækni. Vandamálið var tor- leystara fyrir þá sök að hann hafði engan heimilislækni. Nú tóku við hringingar og samtöl við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðis og bið eftir viðtali hjá heimilislækninum nýja, sem hafði þann eina tilgang, að sá góði maður skrifaði tilvísun til hjartalæknisins. Að skoðun og meðferð hjartalæknis lokinni lá svo leiðin niður í Trygg- ingastofnun til að fá endurgreitt. Eftir þessa reynslu sótti sá grun- ur að mér, og skjólstæðingi mín- um, að reglugerð nr. 241/2006 væri ekki samin fyrir sjúklinga, heldur beinlínis í þeim tilgangi að leggja stein í götu þeirra sem virkilega þurfa á læknisaðstoð að halda og spara með því útgjöld fyrir ríkissjóð. Við ætluðum í sameiningu að skrifa litla grein um þessa reynslu okkar. Hann lést þó áður en af því gat orðið. Davíð Gíslason Örlítil sjúkrasaga Höfundur er læknir og sérfræð- ingur í lyflækningum og ofnæm- islækningum. AFTUR og aftur les ég í Morg- unblaðinu, í Staksteinum og Reykjavíkurbréfi og nú síðast í dag, föstudag, í leiðara blaðsins, um „þau djúpstæðu vandamál sem eru á ferðinni í forystusveit (Samfylkingarinnar)“. Ég hef tekið virkan þátt í kosn- ingabaráttu Samfylkingarinnar, setið að ráðum með foringjum flokksins sitt á hvað og öllum í einu og nú síðast á þingflokks- fundum og einkasamkvæmum og ekkert fundið eða heyrt nema ein- drægni og samhljóm í forystu- sveit Samfylkingarinnar. For- maðurinn, Ingibjörg Sólrún, hefur notið óskoraðs trausts og fengið einróma stuðning í öllum málatilbúnaði í aðdraganda þeirr- ar stjórnarmyndunar sem nú er í spilunum. Það er dæmalaus og ósmekk- legur kjaftagangur að þar séu á ferðinni djúpstæð vandamál. Þau eru akkúrat engin. Morgunblaðið á að sjá sóma sinn í að láta af þessum spuna og gróusögum. Morgunblaðið á ekki að haga sér eins og Gróa á Leiti. Það hæfir ekki vönduðu blaði. Ellert B. Schram Hættu nú, Gróa á Leiti Höfundur er alþingismaður. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.