Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 52

Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÚMORISTAR eru til alls vísir, að gera grín að blóðvibbanum Hostel er langsótt en greinilega ekki útilokað. Severance minnir á Shaun of the Dead, en er suddalegri, fyndnin groddalegri, atriðin ófélegri. Hópur vopnasala er í helgarferð í Ungverjalandi til að hressa upp á móralinn. Ekki er um að ræða nein- ar ofurhetjur heldur mismunandi veiklundaðar og mannlegar skrif- stofublækur af báðum kynjun. Fljót- leg fer allt úrskeiðis, rútan er komin með hópinn á afskekkt landssvæði þegar óhugnanlegir hlutir fara að gerast og blækurnar að týna sem óðast tölunni á hinn hroðalegasta hátt. Óvinurinn ósýnilegur, morð- óðir mannskrattar. Ástæðulaust að tíunda frekar þær hremmingar sem áhorfandinn verð- ur að ganga í gegnum áður en hann kemst aftur út í sumarkvöldið. Höf- undarnir blanda saman ónýtri ádeilu, en þrælgóðum gálgahúmor, fyndnum persónum og sláturtíð- arstemningu, þannig að úr verður nánast óbærilegur léttleiki viðbjóðs- ins. Algeng viðbrögð hjá hræddum manni eru móðursýkisleg hlátra- sköll. Þegar svo handritið er jafn stútfullt af óþverrafyndni er mikið hlegið undir Severance. Viðkvæmar sálir ættu að leita annað en í Laugarásinn þessa dag- ana til að kitla hláturtaugarnar, þeir sem hafa þykkari skráp una hag sín- um vel og venjulegt fólk þraukar. Leikstjórinn kann vel til verka, hlut- verkin eru skoplega saman sett og undantekningarlaust vel leikin. Þó þú hafir almennt skömm á blóði og ofbeldi, áttu að geta haft gaman að Severance, þó þú slakir ekki beinlín- is á... Meinfyndin „Viðkvæmar sálir ættu að leita annað en í Laugarásinn þessa dagana til að kitla hláturtaugarnar,“ segir í dómi. Hostel á léttu nótunum KVIKMYNDIR Laugarásbíó Leikstjóri: Christopher Smith. 90 mín. Með Toby Stephens, Claudie Blakley, Andy Nyman, Babou Ceesay. Þýskaland/ England. 2006. Severance  Sæbjörn Valdimarsson EINN FYNDNASTI óþokki kvikmyndasög- unnar er trúlega Dr. Evil, hugarfóstur leik- arans Mike Myers. Í þremur myndum um njósnarann kven- sama, Austin Powers, var hans helsti óvin- ur Dr. Evil. Á blaðamannafundi nýlega lýsti Myers því þó yfir að hann hefði mikinn hug á að gera mynd frá sjónarhóli Dr. Evil. Myers sagði málið samt enn vera á við- ræðustigi og ekkert hefði verið ákveðið um gerð myndarinnar þó svo að sagan væri tilbúin í höfði hans. Myers ljær hinum græna og góða Shrek rödd sína en þriðja myndin um ævintýri tröllsins verður frumsýnd hér á landi á næstunni. Meira um Dr. Evil Snilld Dr. Evil og hans smávavna hliðarsjálf Mini-Me. ZODIAC kl. 8:10 - 10 B.i. 16 ára GOAL 2 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára BLADES OF GLORY kl. 2 - 4 - 6 - 8 B.i. 12 ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 - 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI ZODIAC kl. 5:50 - 9 B.i.16.ára ZODIAC VIP kl. 2 - 5:50 - 9 THE REAPING kl. 5:50 - 8 -10:10 B.i.16.ára SPIDER MAN 3 kl. 12:20 - 3 - 6 - 9 B.i.10.ára BLADES OF GLORY kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára BREACH kl. 6 - 10:10 (Síðustu sýn.) B.i.12.ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 2 - 3:30 - 4 LEYFÐ WILD HOGS kl. 8 (Síðustu sýn.) B.i.7.ára / ÁLFABAKKA eee V.J.V. TOPP5.IS WWW.SAMBIO.IS FRÁ FRAMLEIÐANDA MATRIX, DIE HARD OG LETHAL WEAPON HILARY SWANK SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUM VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA SE7EN & FIGHT CLUB. “BESTA KVIKMYND FINCHER TIL ÞESSA.” David Ansen, Newsweek “MÖGNUÐ KVIKMYND!” Leonard Maltin, E.T. “ÁN EFA BESTA MYND ÁRSINS TIL ÞESSA” Ó.F. eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á FORSALA HAFIN - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA ! „Bráðskemmtileg bók fyrir ungar stúlkur, skrifuð af miklu fjöri ... hressileiki og húmor sem gerir það að verkum að fullorðnar konur hafa sennilega alveg jafngaman af að lesa hana og ungar stúlkur.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Mannlíf Komin í kilju!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.