Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 75 91 0 5/ 07 INNRITUN www.hi.is Umsóknarfrestur í grunnnám er til 5. júní Allt sem þú vilt vita og rafrænar umsóknir á www.hi.is FORMAÐUR Framsóknarflokks- ins, Jón Sigurðsson, segir að vinnulag sjálfstæðismanna undan- farna daga hafi ekki aðeins ein- kennst af tvöfeldni heldur marg- feldni. Forystumenn í Sjálfstæðisflokknum hafi skipt sér í nokkra flokka eftir kosningar, einhverjir hafi farið að tala við Samfylkingu og Vinstri græna á meðan flokksformaðurinn, Geir H. Haarde, hafi rætt við sig. Í pistli, sem birtist á vef Framsóknar- flokksins, xb.is í gær, rekur Jón aðdraganda stjórnarslitanna og stjórnarmyndunarviðræðna Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar. „Á þingflokksfundi árdegis á upp- stigningardag var ljóst að nýjar aðstæður voru komnar upp. Miklar sögur gengu af viðræðum annarra flokka. Staðfestar fregnir voru af miklum áhuga og framgangi í við- ræðum sjálfstæðismanna og Sam- fylkingar …,“ segir Jón í pistli sín- um og kveður að í kjölfarið hafi þingflokkur Framsóknarflokksins falið formanni og varaformanni flokksins að ganga á fund for- sætisráðherra og tilkynna að ekki yrði af frekara samstarfi milli flokkanna um sinn. Jón sakar Geir H. Haarde einnig persónulega um að hafa gengið á bak orða sinna með því að segja við sig á viðræðu- fundi í stjórnarráðinu síðar sama dag að sjálfur tæki hann ekki þátt í viðræðum við aðra flokka, en þó hafi Geir aldrei viljað þoka málum af frumstigi meðal annars með vís- an til naums þingmeirihluta. Að kvöldi uppstigningardags hafi hins vegar komið upp úr kafinu að við- ræður hafi átt sér stað á milli Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, for- manns Samfylkingarinnar, og Geirs Haarde, á meðan stjórnar- flokkarnir sátu við samningsborð- ið. Harmar framgöngu þeirra Jóns og Guðna „Ég harma mjög þessi ummæli sem fram hafa komið og tel þau ekki eiga við rök að styðjast,“ seg- ir Geir Haarde spurður um afstöðu sína til ummæla þeirra Jóns og Guðna Ágústssonar, varaformanns Framsóknarflokksins um trúnað- arbrest milli flokkanna tveggja. Hann vill þó ekki láta ummælin skyggja á stjórnarsamstarf flokk- anna sem hafi verið gjöfult og ár- angursríkt. Aðspurður hvort við- ræðuferlið við Samfylkinguna hafi verið eðlilegt segir Geir að eftir kosningar hefjist opið ferli og þó að menn séu í viðræðum hvor við annan séu þeir ekki bundnir og ekki sé bannað að spjalla við aðra flokka. Í pistli Jóns Sigurðssonar kveð- ur Jón þá ríkisstjórn sem nú virð- ist vera í burðarliðnum vera óska- barn eigenda eins stærsta auðfélags landsins, eins og berlega hafi komið fram í sérblaði DV sem gefið hafi verið út í kosningavik- unni, Framsóknarflokknum til ófrægingar. Sakar Geir um ósannsögli  Jón Sigurðsson gagnrýnir vinnulag Sjálfstæðisflokksins  Geir Haarde harmar ummæli formanns Framsóknarflokksins og segir ekki flugufót fyrir þeim Jón Sigurðsson Geir H. Haarde HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs- dóms yfir pilti sem grunaður er um átta auðgunarbrotamál, þar af til- raun til ráns í versluninni Pét- ursbúð síðla októbermánaðar 2006. Lagði á flótta Pilturinn er sakaður um að hafa komið inn í búðina með nælonsokk yfir höfði og skipað afgreiðslukonu að setja peninga í poka. Af- greiðslukonan neitaði því og taldi sig þekkja manninn í gegnum sokk- inn. Lagði hann á flótta þegar hún setti viðvörunarkerfi í gang. Sak- borningurinn var handtekinn sama kvöld og yfirheyrður daginn eftir þar sem hann neitaði sök. Héraðsdómur telur rökstuddan grun um aðild piltsins að málunum og tekur Hæstiréttur undir þá nið- urstöðu. Situr pilturinn í gæslu til 12. júní að kröfu lögreglustjóra höf- uðborgarsvæðisins. Gæsluvarðhald var staðfest í Hæstarétti SIGURÐUR Helgason, fyrrverandi stjórnarformaður Flugleiða, hlaut á fimmtudag Harry Edmonds- verðlaunin sem samtökin Int- ernational House veita. Eru verð- launin veitt fyrir glæsilegt lífsstarf í anda samtakanna. Hlaut Sigurður verðlaunin fyrir framlag sitt til sam- takanna en hann hefur veitt öflugt liðsinni við fjáraflanir. Kathleen Burns veitti Sigurði verðlaunin. International House eru um 80 ára gömul samtök sem stuðla að samskiptum háskólastúdenta frá fjarlægum heimshornum með því að veita þeim tækifæri á að búa saman á meðan þeir stunda nám í ýmsum borgum þar sem samtökin ráða yfir húsakynnum. Skapast þannig fjöl- þjóðlegt andrúmsloft þar sem nem- endum er einnig boðið upp á ýmiss konar námskeið og þjálfun samhliða námi sínu. Styrkja samtökin í þessu skyni nemendur og þykir vistin stuðla að tengslum nemenda á milli sem endast lengi. Sjálfur dvaldi Sig- urður hjá International House á námsárum sínum í New York. Verðlaunin sem Sigurður hlaut í vikunni þykja afar virt og má nefna að Richard C. Holbrooke, fyrrver- andi sendiherra og sáttasemjari Bandaríkjanna á Balkanskaga, hef- ur hlotið þau. Einnig má geta Wass- ily Leontief, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði, og Carlo Rubbia, nób- elsverðlaunahafa í eðlisfræði. Meðal heiðursfélaga eru einnig þekktir ein- staklingar, s.s. Henry Kissinger, frv. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, David Rockefeller og Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóri. Sigurður var einn af hvatamönn- um þess að stofnað var ráð útskrift- arnema samtakanna en hann er að- stoðarframkvæmdastjóri þess nú. Hann tók sæti í stjórn samtakanna árið 1969. Veitt viðurkenning Sigurður Helgason, fyrrverandi stjórnarformaður Flugleiða, heiðraður fyrir starf í þágu International House Verðlaunahafi Sigurður Helgason og Kathleen Burns. FORMENN Sjálfstæðisflokksins og Samfylk- ingarinnar, þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, segja góðan anda einkenna stjórnarmyndunarviðræður og telja að þeim miði vel áfram. Fyrsti formlegi stjórnarmynd- unarfundurinn fór fram í Ráðherrabústaðnum við Tjörnina í gær, nokkru eftir að forseti Ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafði veitt Geir Haarde umboð til að hefja viðræður um myndun nýrrar meirihlutastjórnar Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðis- flokks, og Össur Skarphéðinsson, þingflokks- formaður Samfylkingar, sátu fundinn með for- mönnunum. Góðar líkur á að niðurstaða náist innan skamms „Við höfum farið yfir nokkur mál og teljum að það séu góðar líkur á við náum niðurstöðu innan ekki allt of langs tíma,“ sagði Ingibjörg að fundi loknum en kvað þó ómögulegt að svara til um það hvort ný ríkisstjórn tæki við völdum upp úr helgi; algjör óþarfi væri að rasa um ráð fram og mestu máli skipti að andinn væri góð- ur. Ingibjörg Sólrún hafði fyrir fundinn sagt að mikill stuðningur væri innan Samfylkingarinn- ar við þessar stjórnarmyndunarviðræður og hún gengi til þeirra bjartsýn og vonglöð. Geir Haarde sagði að á fundinum hefði verið hafist handa við að fara yfir málefnastöðuna og und- irbúa þá vinnu sem fram mundi fara næstu daga. Össur Skarphéðinsson segir stjórnarmynd- unarviðræðurnar snúast um það með hvaða hætti hægt sé að sameina það helsta og besta úr stefnu þessara tveggja flokka í þessum kosningum og hvernig hægt sé að greiða úr þeim vandamálum sem upp komi við samræm- ingu þeirra. „Það sem við erum að gera núna felst meðal annars í ákveðinni textavinnu og þó að henni sé ekki lokið lít ég ekki svo á að það ríki nein óvissa um þetta,“ segir Össur og held- ur áfram. „Það er mjög góður andi í þessum viðræðum og ég met það svo, sem nokkuð sjó- aður stjórnmálamáður, að okkur miði hratt og vel áleiðis enda er greinilegt að það er fullur vilji til að greiða úr þeim vandamálum sem upp koma.“ Össur sagðist ekki hafa heyrt neinar umræður um skiptingu ráðuneyta eða nein nöfn nefnd í slíku samhengi. Þá sagðist hann ekki telja skiptingu ráðuneyta þurfa að tengj- ast málefnasamningi ríkisstjórnar með beinum hætti enda hlytu samstarfsflokkar að líta svo á að þeir væru bundnir af stefnu þeirrar stjórn- ar, sem þeir ættu aðild að, burtséð frá því hver væri í forsvari fyrir hvert ráðuneyti. Miðar hratt og vel áleiðis Morgunblaðið/G.Rúnar Rekspölur Viðræðum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Geirs H. Haarde um myndun nýrr- ar meirihlutastjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks miðar vel að sögn Ingibjargar. Formenn flokkanna segja bjartsýni og góðan anda einkenna stjórnarmyndunarviðræðurnar Í HNOTSKURN »11:00: Geir Haarde fer á fund forsetaÍslands og fær umboð til stjórn- armyndunar »14:00: Fyrstu formlegu viðræðurSjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefjast »15:45: Fundi Ingibjargar SólrúnarGísladóttur og Geirs Haarde lýkur. »Formenn flokkanna ásamt þeim Þor-gerði Katrínu Gunnarsdóttur og Öss- uri Skarphéðinssyni ganga brosandi nið- ur tröppur Ráðherrabústaðarins og eru samdóma um að viðræður hafi gengið vel Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.