Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 16

Morgunblaðið - 19.05.2007, Side 16
16 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                                                               ! "##$        !"#$%& '( ) ! ") "$!* "& ) '+*, " &-%& '( --#.&%& '( /%& '( %)$" $&0 -$ 1 $+-$(2)34)  5'(6$ 30 -$ / 0 -$4)  & )  $! $  "&'+'&7'&8&9 :9& 0  ;'&       <$" )3%& '( =! ) $&%& '(1 ) $ 3 =! ) $!%& '( > &:$  ?+$ &?33$ 3+$8".8$  @$ )'".8$    !  )9"'&2)3'8'&) #    "  # $ 1%& $ 1+($8:  %  ! & ' (                                                                                             1 $) &7 #$8-$("$ 3$  $)0 8A) - 3B 5'()  C   C D CD      CD DC E E C  EC E CE   DD EF E ED CE  C F  F EF     F EED  D E C CC FD FE 7 DE C D 7  DD C E EE 7 F  7  FF  7 GF FGF GC FG EGC EG DFGE DGC FG FFG GD FDG G DGF G DGE DGD DEG G EG G EGC FG GD GF GE FEG GC FG EGC EG DFGC DEG FG CG G FDG GC DGC G DGF DGDE DEG GE GC FGD DG DG EG @$8-$("$A-&H '+  1 I"'3' &)$"$ :.) $ #$8-$(" E D    D F     D   E  7  7   7 D 7  7 3 " $ 3 #$8- # &8 F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE F  DE   DE F  DE   DE F  DE   DE F  DE C  DE F  DE D  DE F  DE   DE ● EJS og Skýrr hafa gert sam- komulag um að sameina hluta af starfsstöð Skýrr á Akureyri við starfsstöð EJS í bænum. Starfs- stöðin verður í eigu EJS og rekin undir því heiti frá og með 1. júní næstkomandi. Skýrr hyggst áfram starfrækja starfsstöð á Akureyri fyrir það starfsfólk fyrirtækisins er sinnir þjónustu á sviði hugbúnaðar- og við- skiptalausna. Fyrirhugað er að styrkja þá starfsemi Skýrr á Akur- eyri og fjölga fólki þar í hugbúnaðar- þróun og tengdri ráðgjöf, segir Þór- ólfur Árnason, forstjóri Skýrr, í tilkynningu. EJS tekur yfir hluta af Skýrr á Akureyri SJÓLASKIP hf. og Samherji hf. hafa gert sam- komulag um að Samherji kaupi erlenda starf- semi Sjólaskipa og tengdra fé- laga. Þessi félög hafa gert út 6 verksmiðjuskip og tvö þjónustu- skip í lögsögu Máritaníu og Mar- okkó. Sjólaskip eru með höfuð- stöðvar á Íslandi en með bækistöðvar á Kanaríeyjum. Skip- in veiða einkum makríl, hestamak- ríl og sardínellu. Aflinn er unninn um borð en skipin eru búin öfl- ugum vinnslubúnaði og fiskimjöls- verksmiðjum. Á hverju skipi eru um eitt hundrað sjómenn. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir að starfsemi fyrirtækisins erlendis verði nú um 70% af heildarveltunni. Eftir þessi viðskipti eiga Sjóla- skip hf. eitt skip, Delta, sem stund- ar veiðar í landhelgi Marokkó og landar ferskum fiski til vinnslu þar í landi. Samherji með rekstur í Marokkó VEGNA tæknilegra mis- taka í vinnslu vantaði hluta af inngangi að fréttaskýringu um hausaveiðar, sem var í síðasta Viðskiptablaði Morgunblaðsins. Birtist inngangurinn hér á ný, um leið og beðist er vel- virðingar á mistökunum: „Síðustu ár hafa orðið miklar breytingar á fjár- málamarkaðinum hér heima. Fjármálafyrir- tæki hafa ekki aðeins stækkað heldur hefur þeim líka fjölgað og þar með hefur eftirspurn eftir hæfu starfsfólki á þeim vett- vangi aukist. Eins og vill verða, þeg- ar eftirspurn eftir þeim hæfustu er meiri en framboðið, er óhjákvæmi- legt að farið sé að bítast um það sem talið er besta fólkið. Innan fjár- málageirans eru hausaveiðar sagðar hafa skilað sér í launaskriði sem veldur því að sumir tala um laun í fjármálaheiminum á móti launum í hinu venjulega vinnumarkaðs- umhverfi.“ Inngangur að hausaveiðum ÞETTA HELST ... ● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í ís- lensku OMX-kauphöllinni í gær. Úr- valsvísitalan hækkaði um 0,16% og er 7993 stig. Bréf Straums Burðaráss hækkuðu um 1,95% og bréf Exista um 1,53%. Gengi íslensku krónunnar veikt- ist um 0,17% í fremur dræmum viðskiptum í gær. Gengi Banda- ríkjadollars er nú 63,14 krónur, gengi breska pundsins er 124,73 krónur og gengi evrunnar er 85,28 krónur. Hækkun í kauphöllinni ● BAUGUR Group hefur auk- ið við hlut sinn í danska fast- eignafyrirtækinu TK Develop- ment, en Baugur keypti í gær 293.000 hluti í danska félaginu. Nemur eignarhlutur Baugs í TK Development því nú um 1,7 millj- ónum hluta, eða um 6% af heildar- hlutafé félagsins og er Baugur í kjölfarið orðinn stærsti hluthafinn. Gengi bréfa TK Development var í gær 135 danskar krónur, sem þýðir að eignarhlutur Baugs er um 230 milljóna danskra króna virði, eða um 2,6 milljarða íslenskra króna. Baugur eykur við sig í TK Development Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is AÐILAR á markaði virðast horfa já- kvæðum augum til hugsanlegrar rík- isstjórnar Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar, en markaðurinn tók fréttum af stjórnarmyndunarvið- ræðum flokkanna með ró í gær. Í samtali við Morgunblaðið sagði Björn Rúnar Guðmundsson, for- stöðumaður greiningardeildar Landsbankans, að frammistaða markaðanna í gær væri líklega vís- bending um að markaðsaðilar væru ekki með miklar áhyggjur vegna stjórnarskiptanna. „Nær engar sviptingar voru á hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum í gær og sömu sögu má segja af gjaldeyris- markaðnum, sem er viðkvæmari en hinir tveir fyrir breytingum á fram- tíðarvæntingum,“ segir Björn. Svipuð skattastefna Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, segist ekki gera ráð fyrir því að stjórnar- skiptin muni hafi mikil langtímaáhrif á markaðina. „Það ríkir sátt í sam- félaginu um ákveðin atriði í efna- hagslífinu og staða hins frjálsa markaðar nokkuð traust og í raun óháð því hvaða flokkar fara með stjórnina.“ Segist hann búast við því að stjórn Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar verði með svipaða skatta- stefnu og verið hefur, enda hafi það sýnt sig að lægri skattar á fyrirtæki hafi skilað meiri tekjum til ríkis- sjóðs. „Þá verður að horfa til þess að mörg fyrirtæki, sem orðin eru al- þjóðleg, eru enn með höfuðstöðvar sínar hér á landi vegna hagstæðra aðstæðna og lagaumhverfis.“ Í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis í gær sagði að stjórn flokk- anna tveggja myndi líklega reynast fjármálamörkuðum nokkuð hagfelld. „Ólíklegt er að skattar á fyrirtæki eða fjármagnstekjur verði hækkaðir, eða þrengt að atvinnulífinu með stíf- ara regluverki.“ Þá segir í Morgun- korninu að báðir flokkar hafi auk þess haft uppi hugmyndir um aukinn einkarekstur og einkavæðingu. „Í heild ætti þó myndun hinnar nýju stjórnar að hafa róandi áhrif á markaði, þar sem einhverjir mark- aðsaðilar hafa verið smeykir um að fram gæti komið stjórnarmynstur sem reynast myndi fjármálamörkuð- um óþægur ljár í þúfu.“ Stjórnin fjármála- mörkuðum hagfelld Morgunblaðið/Ómar Falla í kramið Mörgum markaðs- aðilum hugnast stjórn Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar. HÁIR vextir á næstu misserum við- halda áhuga fjárfesta á vaxtamun- arviðskiptum með íslensku krónuna, sem leiðir til gengisstyrkingar. Kemur þetta fram í skýrslu grein- ingardeildar Landsbankans um gengi krónunnar. Segir þar að hæg aðlögun hagkerfisins að jafnvægi nái ekki að vega upp á móti áðurnefndri styrkingu. Gengi krónunnar hefur styrkst með afgerandi hætti frá áramótum og mun hraðar en greiningardeild Landsbankans átti von á. Gengisvísi- talan stóð í 127,9 stigum um áramót- in en er nú komin í um 115 stig. Hef- ur gengi krónunnar því styrkst um rúm 11% á rúmum fjórum mánuðum. Ný jöklabréf „Helstu skýringar á þessari þróun eru að nýr kraftur hefur færst í út- gáfu jöklabréfa, það sem af er ári hafa samtals verið gefin út jöklabréf að upphæð 156 milljarða króna en hrein útgáfa nemur 107 milljörðum króna. Líkt og í fyrri útgáfuhrinum hefur afleiðingin verið þrýstingur á gengið til styrkingar. Þessu til við- bótar hafa væntingar um vaxtaþróun breyst þar sem nú er almennt gert ráð fyrir því að Seðlabankinn lækki ekki vexti fyrr en í fyrsta lagi í lok þessa árs.“ Segir í skýrslunni að hagvísar síð- ustu mánaða bendi til þess að full þörf sé á áframhaldandi aðhaldi í peningamálum. Þetta eigi ekki hvað síst við um fasteignamarkaðinn, sem sé að taka við sér á nýjan leik, auk þess sem enn dragi úr atvinnuleysi. Tölur um þróun utanríkisviðskipta gefi þó til kynna að viðsnúningur til hins betra hafi þegar átt sér stað. Það sé því fyrirsjáanlegt að vaxta- munur verði áfram umtalsverður og viðhaldi áhuga erlendra fjárfesta á að stunda vaxtamunarviðskipti með íslensku krónuna. „Við þessar aðstæður getur fátt komið í veg fyrir að gengisstyrking krónunnar haldi áfram þó svo að bú- ast megi við töluverðum sveiflum í báðar áttir,“ segir í skýrslunni. Áhrif hárra vaxta á gengi krónunnar Spá áframhald- andi styrkingu EKKERT lát virðist ætla að verða á yfirtökum og samþættingu á mörk- uðum heimsins. Nú hefur bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft greitt um 378 milljarða króna fyrir aQuan- tive, fyrirtæki sem sérhæfir sig í netauglýsingamiðlun. Markmið kaup- anna er einmitt að styrkja starfsemi Microsoft á sviði netauglýsinga og má ætla að þar sjái fyrirtækið mikla vaxtarmöguleika því kaupverðið er nær tvöfalt markaðsvirði aQuantive. Samkvæmt fréttaveitunni Bloom- berg eru kaupin svar Microsoft við kaupum Google á einum helsta keppi- naut aQuantive, DoubleClick, sem til- kynnt var um í apríl en verðmæti þeirra viðskipta er um 195 milljarðar króna. Vöxtur Google á undanförnum ár- um hefur verið mörgum upplýsinga- tæknifyrirtækjum þyrnir í augum og eru Microsoft og Yahoo þar mest áberandi. Undanfarin misseri hefur Yahoo þurft að lúta í lægra haldi fyrir Google þegar kemur að yfirtökum, en Yahoo hafði einnig hug á að kaupa DoubleClick. Að því djásni horfnu þurfti Yahoo að láta sér nægja fyrir- tækið Right Media, sem er umtals- vert smærra en DoubleClick. Reuters Kaupir aQuantive ATORKA Group hefur gengið frá sölu á vörustjórnunarfyrirtækinu Parlogis hf. sem verið hefur í eigu fé- lagsins frá árinu 2002. Parlogis sér um vörustjórnun og dreifingu fyrir fjölda fyrirtækja sem framleiða og markaðssetja lyf og aðrar vörur tengdar heilbrigðisgeiranum. Kaupandi er eignarhaldsfélagið Parlo en Guðný Rósa Þorvarðardótt- ir verður áfram framkvæmdastjóri félagsins. Nýir eigendur Parlogis reka með- al annars Transport toll- og flutn- ingsmiðlun ehf. og DM Logistics sem einnig starfa á vörustjórnunar- markaði. Félögin verða rekin áfram sem sjálfstæðar einingar með óbreyttu sniði. Atorka sel- ur Parlogis ● YFIRTÖKUTILBOÐI Glitnis í alla hluti og kauprétti í finnska fjár- málafyrirtækinu FIM Group Corp- oration er lokið. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum yfirtöku- tilboðsins hafa hluthafar í FIM sem fara með 30,05% prósent hluta og atkvæða í félaginu gengið að til- boðinu og er hlutafjáreign Glitnis í FIM samkvæmt því 98,16%. Auk þess samþykktu allir kaupréttar- hafar tilboðið. Yfirtöku Glitnis á FIM Group lokið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.