Morgunblaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hrefna Frí-mannsdóttir fæddist á Óspaks- eyri í Bitrufirði 29. maí 1938. Hún lést á sjúkrahúsi Akra- ness 13. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jón Frímann Sigurðs- son, f. á Brekku í Hún. 12. júlí 1903, d. 26. febrúar 1979, og Júlíana Guð- bjartsdóttir, f. á Melum í Kjalarnes- hreppi í Kjósarsýslu 20. júní 1915, d. 11. mars 1974. Systkini Hrefnu voru Ingibjörg Signý Frímanns- dóttir, f. 31. október 1932, d. 24. júní 1988, Kristrún Ósk Kalmans- dóttir, f. 23. mars 1934, Sigur- bjartur Árni Frímannsson, f. 6. janúar 1936, Emil Hólm Frí- mannsson, f. 28. apríl 1937 og Guðmundur Eyþór Guðmundsson, f. 22. desember 1955. Hrefna ólst upp á Neðri-Torfustöðum í Mið- firði hjá fósturforeldrum sínum Birni Benediktssyni, f. 27. apríl 1905, d. 5. maí 1964, og Önnu Maríu Sigurvinsdóttur, f. 20. júní 1909, d. 29. nóvember 2001. Fóst- ursystkini Hrefnu eru Benedikt Guðmundur, Böðvar Sigurvin, Katrín Ragnheiður og Guðrún Aðalheiður. Eftir fermingu fór Hrefna til föður síns og Rögnu eiga þrjú börn og tvö barnabörn. 6) Kolbrún Bylgja, f. 18. febrúar 1964, gift Guðmundi Elíssyni, f. 29. nóvember 1955, þau eiga fjög- ur börn og tvö barnabörn. Fyrir átti Kolbrún eitt barn. 7) Edda Bára, f. 25. október 1967. 8) Krist- ín Heiðbrá, f. 19. október 1969, sambýlismaður Friðjón Guð- mundsson, f. 25. mars 1959, þau eiga fimm börn. 9) Júlíus Daníel, f. 25. september 1971. 10) Sævar Örn, f. 12. maí 1979, sambýlis- kona Katarzyna Katszukiewicz, f. 17. mars 1984. Hann á eina dótt- ur. Hrefna og Sveinbjörn hófu bú- skap á Nesvegi í Reykjavík, Síðan á Vesturgötu og þaðan fluttu þau upp í Álftamýri. Þá eru börnin orðin sex. 1966 flytja þau vestur á Hellissand, fyrst á Grund og síðan á Stóru-Hellu. Hrefnu féll aldrei verk úr hendi og vann ýmis störf svo sem beitningar, í saltfiski og aðra fiskvinnu. Hún var mikil hannyrðakona og saumaði fötin á börnin sín áður en föt fóru að fást í flestum búðum. Þá var saumað upp úr gömlum fötum sem hætt var að nota. Hún var ákaflega bóngóð og vildi allt gera til að hjálpa ef hún gat. Fljótlega eftir að þau fluttu vestur fengu þau sér kindur og hesta. Útför Hrefnu verður gerð frá Ingjaldshóli í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. stjúpu sinnar í Reykjavík og var hjá þeim í tvö ár eða þar til hún flutti til Júl- íönu móður sinnar sem býr líka í Reykjavík. Stjúp- systir Hrefnu er Sonja Geirharðs- dóttir. Hrefna giftist 7. september 1958 Sveinbirni Halldórs- syni, síðast bónda á Stóru-Hellu á Hellis- sandi, f. 24. apríl 1918, d. 9. mars 1984. Börn Hrefnu eru: 1) Jónfríður Birna Sigurðardóttir, f. 8.9. 1956, gift Aðalsteini Ólafssyni, f. 13. sept- ember 1952, þau eiga fjögur börn og þrjú barnabörn. 2) Guðlaug Ingibjörg, f. 1. júní 1958, gift Guðna Kristjáni Sævarssyni, f. 6 janúar 1957, d. 18. maí 1994, þau eiga þrjú börn. 3) Halldór Viðar, f. 24. júní 1959, sambýliskona Auðbjörg Laufey Guðjónsdóttir, f. 3. desember 1966, þau eiga saman einn son. Fyrir á Halldór tvö börn og eitt barnabarn. 4) María Hrönn, f. 13. júní 1960, sambýlis- maður Sigurbjörn Karlsson, f. 27. desember 1947, þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn. 5) Ragna Sigurborg, f. 2. desember 1962, sambýlismaður Þorsteinn Már Kristjánsson, f. 1. ágúst 1955, þau Elsku amma mín, þegar ég hugsa til baka um liðna tíma er svo margt sem kemur upp í huga minn. Allar þær skemmtilegu stundir sem við áttum saman. Allar þær áhugaverðu samræður sem við áttum. Allt það góða sem þú gerðir fyrir mig og nú, í seinni tíð, börnin mín, langömmu- börnin þín. Allir sokkarnir, vettling- arnir, peysurnar úr lopa sem þú hef- ur prjónað á okkur. Öll sú ást og hlýja sem þú hefur gefið okkur. Þú hefur alla tíð gætt líf mitt mikilli gleði. Ég veit að þú átt ekki eftir að prjóna meira á okkur núna eða gefa okkur að borða, og þú átt ekki eftir að gróðursetja blómin sem ég kem með til þín núna eða gefa mér ráða- góð svör þegar ég tala við þig, en þú átt alltaf eftir að lifa áfram í huga mínum, hugum okkar allra. Þú hefur alltaf gefið okkur allt það sem þú hefur getað gefið okkur. Þegar ég hugsa til baka er svo margt sem ég er þakklát fyrir. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu. Ég er þakklát fyrir að þú skulir hafa gefið þér tíma til þess að eignast 10 börn og gefið mér allan þennan flokk af skemmtilegum og litríkum skyldmennum. Ég er þakk- lát fyrir að þú skulir alla tíð hafa haft mikið af dýrum; kindum, hest- um, hænum, hundum, köttum, kan- ínum, öndum og svo lengi mætti telja, í kringum okkur öll, og kennt okkur að elska og virða náttúruna. Ég er þakklát fyrir það að ég skuli hafa ákveðið að fara til þín upp á sjúkrahús með lestrarefni og eitt- hvað gotterí, og setið og talað við þig í síðasta sinn, og greitt á þér hárið. Það var skrítið að sjá þig svona óhressa þegar maður hefur vanist þér sem þessari hörkukonu sem að ekkert hefur nokkurn tímann getað bitið á. Alla tíð hefurðu unnið mikið, amma mín, og oft hef ég hugsað, eins og sennilega við öll, að ég vildi geta gert meira fyrir þig svo að þú gætir bara legið með „tærnar upp í loftið“. Ég veit samt vel að þú hefur aldrei getað gert það, og engu breyt- ir þó svo að þú hefðir getað það. Þú hefðir þá bara tekið upp saumadótið eða prjónana og gert eitthvað fallegt fyrir einhvern af afkomendum þín- um. Þennan síðasta dag á spítalanum baðst þú mig um að finna fleiri fjöl- ær blóm fyrir þig, og sagðir mér að þau sem ég lét þig hafa í fyrra væru að byrja að vakna til lífsins. Elsku amma mín, ég mun finna fyrir þig fullt, fullt af fjölærum blómum. Ég skal gróðursetja þau hjá þér og afa. Ég veit að þú hefur alltaf haldið mik- ið upp á þrenningarfjólu og hana skal ég setja hjá þér. Elsku amma mín, ég vil þakka þér kærlega fyrir allt það góða sem þú hefur gert og alla þá ást og hlýju sem þú hefur gætt líf mitt og okkar allra með. Erna Rós Aðalsteinsdóttir. Mamma hringdi í mig fyrir augna- bliki og spurði hversu hratt ég gæti skrifað minningargrein. Ég virðist vera í æfingu í því að skrifa slíkar, svo það er beðið mig um það þrátt fyrir að ég viti ekki hvað skal segja. Ég get eingöngu tjáð tilfinningar mínar sem dóttir og ég held ég skilji hvernig mömmu líður þessa stund- ina og sérstaklega þegar hún hringdi í mig á sunnudagsmorgun- inn til að láta mig vita að amma væri dáin, ég veit ekki hvernig ég færi að því að lifa ef mamma myndi láta lífið, hún hefur verið mér klettur, en eru það ekki allar mæður? Ég veit að ef mamma væri að rita þessi orð myndi hún skrifa „Ég elska þig mamma og ég sakna þín, ég vildi að við hefðum geta haft meira samband seinustu árin. Ég bið að heilsa pabba og ég vona að núna sértu hamingjusöm við hlið hans. Við sjáumst einhvern tíma aftur og ég bið að heilsa pabba ásamt þeim öðrum sem hafa staðið okkur nærri.“ Ég er kannski orðheppin en í raun veit ég ekki hvað skal segja, það hef- ur alltaf áhrif á mann þegar einhver lætur lífið, hvort sem viðkomandi hefur verið manni nákominn eða ekki. Lífið er stutt og ég vildi óska þess að fólk gerði sér grein fyrir því og myndi lifa því meira lifandi, reyna að gera sem mest á þeim stutta tíma sem við höfum. Kannski að þetta sé áminning til okkar um það að við er- um að gleyma okkur, að við ættum að nota tímann betur. Ég vona að amma skemmti sér með afa og að þau séu að ræða mál líðandi stundar, kannski þau séu í reiðtúr? Fyrir hönd fjölskyldunnar í Sæ- lingsdal, Sveinbjörg. Hrefna Frímannsdóttir AKRANESKIRKJA: | Guðsþjónusta í Kálfa- tjarnarkirkju kl. 14. AKUREYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju leiða söng. Organisti: Ey- þór Ingi Jónsson. Drengjakór Dómkirkj- unnar í Niðarósi kemur fram í guðsþjón- ustunni. ÁSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 14 í umsjá sr. Maríu Ágústsdóttur héraðsprests. Kór Áskirkju syngur, organisti Kári Þormar. Kirkjukaffi Vestfirðingafélagsins í efri safnaðarsal að athöfn lokinni. Kl. 16–20 sjá nemendur 10. bekkjar Langholtsskóla um opið hús í neðri safnaðarsal til styrktar Tsjernobyl-börnum. BESSASTAÐASÓKN: | Vorhátíð Garða- prestakalls í Vídalínskirkju kl. 11. Hljóm- sveitin Exodus spilar. Barbara trúður og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predika. Boðið upp á pylsur og djús í safnaðarheimlinu á eftir. Tónleikar til styrktar þrælabörnum á Indlandi kl. 13. Söfnunin er í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar. BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Félagar úr Söngsveitinni Fílharmóníu leiða söng- inn. Organisti Magnús Ragnarsson. Að- alsafnaðarfundur eftir messu að loknum léttum málsverði. BRÆÐRATUNGUKIRKJA | Ferming- armessa verður laugardag 19. maí kl. 14. Fermd verður Anna Karítas Ómarsdóttir, Heiðmörk, Biskupstungum. BÚSTAÐAKIRKJA: | Guðsþjónusta klukk- an 11. Sr. Pálmi Matthíasson þjónar fyrir altari. Organisti Renata Ivan. Kór Bústaða- kirkju syngur ásamt sönghópnum Tríólu. Athugið breyttan messutíma. Sumarferð og lok barnastarfsins. Farið verður í ferða- lag upp á Akranes. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 10.30. Hafið með ykkur nesti. Velkomið að hafa með útileikföng því Langisandur er spennandi. DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Prest- ur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju, B-hópur. Súpa í safnaðarsal eftir messu. Kvennakirkjan kl. 20.30. Prestar sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir og sr. Yrsa Þórðardóttir. Organisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Kór Kvennakirkjunnar syngur. DÓMKIRKJAN: | Kl. 11: messa, sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson predikar. Sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Friðriksson. Kl. 20: Æðruleysismessa, sr. Karl V. Matt- híasson predikar. Sr. Anna Sigríður Páls- dóttir og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson þjóna fyrir altari. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Guðsþjónusta og altarisganga kl. 11. Prestur sr. Guð- mundur K. Ágústsson. Kór Fella- og Hóla- kirkju flytur kafla úr Messu í G-dúr eftir F. Schubert. Undirleik annast Peter Maté en stjórnandi er Lenka Mateova. Eftir guðs- þjónustuna verður boðið upp á léttar veit- ingar í safnaðarheimili kirkjunnar. Velkom- in. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Engin guðs- þjónusta verður sunnudaginn 20. maí. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Sunnudagur 20. maí kl. 14: Fermingarguðsþjónusta. Messuna leiða sr. Hjörtur Magni Jóhanns- son og sr. Ása Björk Ólafsdóttir, en al- mennan safnaðarsöng leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller. Barn verður borið til skírnar. FRÍKIRKJAN KEFAS | Síðasti sunnudaga- skólinn verður kl. 11. Pylsupartý, leikir og óvæntur glaðningur fyrir alla krakka. Al- menn samkoma kl. 20, ath. breyttan sam- komutíma. Bryndís Svavarsdóttir predikar. Lofgjörð, fyrirbænir í lok samkomu og kaffisala að henni lokinni. Allir velkomnir. GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Bjarni Þór Bjarnason predikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Gróa Hreinsdóttir. Siglu- fjarðarmessa kl. 13.30. Sr. Sigurður Æg- isson predikar, sr. Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir altari. Kór Siglufjarðar syngur ásamt kór Grafarvogskirkju. Organisti: Re- nata Ivan. GRENSÁSKIRKJA: | Messa kl. 11. Alt- arisganga. Samskot til Hjálparstarfs kirkj- unnar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Björn Jónsson messar. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrum þjónandi presta. HAFNARFJARÐARKIRKJA: | Messa kl.11. 50, 60 og 70 ára fermingarbörn heim- sækja kirkjuna. Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason. Organisti: Guðmundur Sigurðs- son, kantór. Fiðluleikari: Hjörleifur Vals- son. Kór: Kór Hafnarfjarðarkirkju. Hádeg- isverður og samsæti afmælisárganganna í Hásölum Strandbergs eftir messu. Hlíf Káradótttir syngur einsöng við undirleik Guðmundar Sigurðssonar. Ólafur B. Ólafs- son leikur létta tónlist og vorlög undir borðum. HALLGRÍMSKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Báru Friðriksdóttur og messuþjónum. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór syngja. Sögustund fyrir börnin. Guðspjall dagsins: Þegar huggarinn kemur. Jóh. 15 Hátíðarhelgi í Selfosskirkju LAUGARDAGINN 19. maí kl. 16 verður „Maraþon-söngdagur“ Sel- fosskirkju. Eldri deild Barnakórs kirkjunnar syngur undir stjórn Edítar Molnár. Unglingakór kirkj- unnar og Hörpukórinn (kór eldri borgara á Selfossi og nágrenni) syngja undir stjórn organistans, Jörgs E. Sondermanns. Að venju verður kaffisala þegar hlé verður á söngnum. Allir velkomnir. Sunnu- daginn 20. maí verður „krossam- essan“ svokallaða kl. 11. Félögum í Unglingakór Selfosskirkju verður þakkað og þeir heiðraðir með silf- urkrossi. Kirkjukórinn og Ung- lingakórinn syngja undir stjórn organistans. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir athöfnina. Þennan sama dag verður „Næð- isstund við orgelleik“ í kirkjunni kl. 17. Organistinn, Jörg E. Sonderm- an, leikur falleg orgelverk á hljóð- færi kirkjunnar. Norðlensk og sunn- lensk kórasumarveifla KÓRAR Bústaðakirkju og Siglu- fjarðarkirkju bjóða til sumar- tónleika í Bústaðakirkju laugar- daginn 19. maí klukkan 17. Fjölbreytt og skemmtileg tónlist. Fram koma, auk kóra Bústaða- kirkju og Siglufjarðakirkju, Tríóla söngtríó – Gréta Hergils, Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir og Sibylle Köll. Stjórnandi og undirleikari: Renata Ivan. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. Frekari upplýs- ingar á heimasíðu Bústaðakirkju, http://www.kirkja.is. Guðsþjónusta í Víkurkirkju í Mýrdal GUÐSÞJÓNUSTA verður í Vík- urkirkju í Mýrdal sunnudaginn 20. maí nk. kl. 14. Dagurinn er 6. sunnudagur eftir páska. Léttir sálmar og söngvar við allra hæfi. Kórar Víkur- og Skeiðflatarkirkna syngja undir stjórn Önnu Björns- dóttur. Páll Rúnar Pálsson syngur einsöng í einu lagi. Undirleikarar á hljóðfæri eru Kristín Björnsdóttir á orgel, Anna Björnsdóttir á gítar, Hróbjartur Vigfússon á gítar og Kristinn Jóhann Níelsson á gítar og fiðlu. Fjölmennum til kirkju og eig- um þar skemmtilega og notalega stund áður en sumarleyfin hefjast af fullum krafti. Siglufjarðarmessa í Grafarvogskirkju SUNNUDAGINN 20. maí kl. 13.30, á afmæli Siglufjarðarkaupstaðar. Séra Sigurður Ægisson, sóknar- prestur Siglufjarðar, predikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Vig- fúsi Þór Árnasyni, sóknarpresti Grafarvogskirkju. Kór Siglufjarðar syngur ásamt kór Grafarvogs- kirkju. Í messunni flytur kór Siglu- fjarðar Hátíðarkantötu eftir Bjarna Þorsteinsson, fyrsta heiðursfélaga Siglufjarðar. Organisti er Renata Ivan. Ritningarlestur annast fé- lagar úr Siglufjarðarfélaginu. Eftir messu verður Siglufjarðarfélagið með kaffi og veitingar. Vorferð Fella- og Hólakirkju TÓNLISTARMESSA með altaris- göngu verður haldin sunnudaginn 20. maí kl. 11. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju flytur kafla úr messu eftir Franz Schubert. Undirleikari er Peter Maté en stjórnandi er Lenka Mátéová. Boðið er upp á létt- ar veitingar í safnaðarheimili kirkj- unnar eftir guðsþjónustuna. Vorferð eldriborgarastarfs Fella- og Hólakirkju verður þriðju- daginn 22. maí. Farið verður frá kirkjunni kl. 11. Verð er 2500 kr. (allt innifalið). Keyrt verður til Þor- lákshafnar, síðan verður Veiðisafn- MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR JÓNASDÓTTUR frá Öxney, (Guðrúnar í Galtarey). Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun færum við starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi. Hreinn Jóhannsson, Geirþrúður Kjartansdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir, Reynir Vilhjálmsson, Brynja Jóhannsdóttir, Þorvaldur Ólafsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÞORBJÖRNS JÓNSSONAR frá Grjótá, Fljótshlíð. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Kirkju- hvols fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Ágúst Þorbjörnsson, Arnar Þorbjörnsson, Margrét Jónsdóttir, Ásdís Þorbjörnsdóttir, Ásrún Þorbjörnsdóttir, Ásta Þorbjörnsdóttir, barnabörn og langafabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.