Morgunblaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.05.2007, Blaðsíða 27
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 27 EF HEIMILIÐ ÞITT FÆR EKKI ATHYGLI EKKI KENNA OKKUR UM Fáðu frían vörulista í verslun okkar BoConcept®Íslandi Faxafeni 8, 108 Reykjavík. Sími 577 1170 - Faxnúmer 577 1172 www.boconcept.is Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun? Jú, hjá BoConcept® þar sem við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum framleiðsluvörum okkar - allt frá heildarhönnun til minnstu smáatriða. Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og húsgögnin og aukahlutirnir. Urban design Verð 105.655 kr Hallmundur Kristinsson fylgdistmeð atganginum við myndun nýrrar ríkisstjórnar, þar sem brúnin var þung á framsóknar- mönnum: Hjá framsóknarmönnum var hiti í heyinu. Hitnaði Jóni og viðræðum sleit. Þá var nú hundur í Guðna karlgreyinu sem gelti og urraði og klóraði og beit. Frjálslyndi flokkurinn hafði raunar boðið fram krafta sína til að ríkisstjórnin héldi. Hjálmar Freysteinsson sér skemmtilegu hliðina á þeirri þróun: Er þraukaði stjórn við þunga nauð þrotið var afl og kraftur, góðhjartaður Guðjón bauð að gefa þeim sleggjuna aftur. Limra barst frá karli af Laugaveginum: Löng var setan, lítið fjör, lúið tryggðabandið. Ingibjörg með bros á vör býður Geir í dansinn snör, Guðni segir: „Loft er lævi blandið.“ Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit orti: Heldur er nú Framsókn fúl Frjálslyndir og Vinstri grænir. Ingibjörg svo ofsa kúl með ástarsvip á Haarde mænir. Erlendur Hansen á Sauðárkróki sendir inn vísu með yfirskriftinni: „Til Evrópu agenta!“ Allt er landið einskis virt út við norðurhjara Schengen hefur svæðið girt sekir koma og fara? Annars má ýmislegt um stjórnarsamstarf segja. Sigurður Björnsson, trésmiður á Seyðisfirði, hafði ekki mikla trú á því: Stjórnarkænan mastramjóa mjakast út á hlið. Þegar einn vill áfram róa annar leggur við. VÍSNAHORNIÐ Sleggja og Framsókn pebl@mbl.is Hér í Skagafirði er allt að færast í eðlilegt horf eftir kosningarnar, lömbin leika sér á ört grænkandi túnunum, folöldin skoppa léttfætt á eftir mæðrum sínum, krían er komin og skól- arnir eru senn hvað líður að verða búnir, öllum prófum að verða lokið og eftir eru aðeins útivist- ardagar, skólaferðir og annað það sem fylgir vordögunum.    Flest ummerki eftir aurskriðurnar sem féllu í gamla bænum fyrr í vor eru horfin eða að hverfa, aðeins eru eftir djúp gapandi sár í Nöf- unum, sem sjálfsagt verða seint grædd eða hverfa. Ótrúlegt hvílík heppni það var, að engin slys urðu á fólki þegar ósköpin dundu yfir.    Þá hafa verktakarnir sem eru að vinna í end- urbyggingu vegarins yfir Þverárfjall hafist handa við síðasta spölinn sem eftir var og lenti utan útboðs, en gengið hefur verið frá samn- ingum um lok þessarar endurbyggingar og virð- ist sem jafnvel nú um mitt sumar verði þessi mikla samgöngubót orðin eins og gert er ráð fyrir, en hún styttir leið okkar Sauðkrækinga til nágranna okkar í vestri og suðri um tæpa fjöru- tíu kílómetra. Stutt er í að gólfið á brúna yfir Gönguskarðs- ána verði steypt og ætti þá að vera unnt að fara í vegtenginguna frá brúnni og inn í bæinn.    Mikil umsvif eru á hafnarsvæðinu, þó að flutn- ingaskipin séu nánast hætt að koma hér inn á fjörðinn þá koma þó togararnir stöðugt og færa björg í bú, og enn róa trillukarlar þó þeim fari fækkandi. Hið nýja vísindasetur Verið, þar sem í sam- starfi eru m.a. Hóla- skóli – háskólinn á Hól- um, Fisk Seafood og Matís hefur þegar sprengt utan af sér það hús- rými sem það hefur til afnota á hafnarsvæðinu. Fyrirsjáanlegt er að öll aðstaða til rannsókna og vísindastarfa er aðþrengd og byggja þarf nýjar og stórar kæli- og frystigeymslur.    Vegna þessa er því með ólíkindum að sveit- arstjórn skuli hafa heimilað byggingu bíla- verkstæðis á einum besta stað á hafnarsvæð- inu, þar sem ætla má að öll sú matvæla- framleiðsla sem á svæð- inu er þarfnist alls rýmis sem á Eyrinni finnst og líklega gott betur ef fram heldur sem horfir.    Sjúkrahúsið á Sauð- árkróki hélt á dögunum upp á eitthundrað ára afmæli sitt með samkomu og sýningu í Gamla spítalanum. Þar má skoða hluta hússins sem færður hefur verið í það horf sem var, á síðustu öld, ásamt tækjum og tólum sem þeir snillingar sem gættu lífs og lima Skagfirðinga á þeirri tíð notuðu. Hefur aðsókn að sýningunni verið góð, en hún verður opin fram undir næstu mán- aðamót. Gamli spítalinn á Sauðárkróki. SAUÐÁRKRÓKUR Björn Björnsson fréttaritari Ljósmynd/Björn Björnsson AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.