Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.05.2007, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn- arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is EIGENDUR Fiskvinnslunnar Kambs ehf. á Flateyri hafa ákveðið að hætta útgerð og fiskvinnslu og selja allar eignir félagsins. Um 120 manns starfa hjá fyrirtækinu, 65 í landvinnslu og um 55 við útgerð fimm báta. Í gær var haldinn fundur með starfsfólkinu þar sem þessi ákvörðun var kynnt. Hinrik Krist- jánsson framkvæmdastjóri sagði að allir starfsmenn sem mættir voru hefðu verið á fundinum. Síðdegis átti hann fundi með áhöfnum bátanna. Fiskvinnslan Kambur ehf. er að 83% í eigu hjónanna Hinriks Krist- jánssonar og Ingibjargar Kristjáns- dóttur og barna þeirra. Steinþór Bjarni Kristjánsson skrifstofustjóri á 17%. Hinrik sagði erfitt rekstrar- umhverfi aðalástæðu ákvörðunar- innar um að hætta starfseminni. „Við búum við mjög sterka krónu og allar spár eru um að hún verði það áfram. Það eru háir vextir, hátt verð á aflaheimildum og leigukvóta. Við erum mjög háð leigukvóta því við eigum ekki það miklar aflaheimild- ir,“ sagði Hinrik. Í fréttatilkynningu kemur fram að samkeppnisstaða sjávarútvegs á Vestfjörðum sé slæm og hafi farið versnandi, þó einkum í landvinnslu. Þar er t.d. nefndur hár flutningskostnaður sem skekki mjög samkeppnisstöðu Vestfjarða. Þá hafi Kambur verið háður leigukvóta og þrátt fyrir umtalsverð kaup á var- anlegum aflaheimildum, sem valda mikilli skuldsetningu, hafi Kambur þurft að leigja þúsundir tonna til að tryggja hráefni. Leigukvóti hafi hækkað mjög mikið, líkt og verð á varanlegum aflaheimildum. Hinrik sagði eignir fyrirtækisins vera meiri en skuldir og ætlun eigendanna að greiða upp allar skuldir Kambs. „Fyrst og fremst er það ætlun okkar að greiða götu fólksins og að- stoða það við að fá vinnu. Horfurnar eru ekki alslæmar því þannig ástand er á Íslandi að það vantar víða fólk til starfa. Félagar mínir hér á svæðinu, í fiskvinnslunni, hafa tekið þokka- lega í það ef þá vantar starfsmenn þegar hallar sumri. Við höfum mein- ingar um að afla hráefnis og vinna út ágúst.“ Af 65 starfsmönnum Kambs í landvinnslu eru sjö af íslenskum uppruna. Margir þeirra sem eru af erlendu bergi brotnir hafa starfað lengi hjá Kambi, eru íslenskir rík- isborgarar og eiga íbúðarhúsnæði á Flateyri. Í útgerðinni og beitning- unni eru um 60% starfsmanna af ís- lenskum ættum og 40% af erlendum uppruna. Flestir hafa þriggja mán- aða uppsagnarfrest, sumir skemmri og aðrir lengri. Bátar og kvóti innan svæðisins Hinrik sagði að því væri ekki að neita að mikil ásókn væri í að kaupa báta og aflaheimildir. Verið er að ræða við aðila í Bolungarvík og Hnífsdal um kaup á tveimur bátum Kambs. Sá stærri er beitningavélar- báturinn Halli Eggerts ÍS og fylgir honum meirihluti aflamarks fyrir- tækisins, 800-900 þorskígildi. Hitt er minni bátur sem einnig fylgir tölu- vert af krókaaflamarki. Hinrik sagði að rætt yrði við líklega kaupendur í næstu viku. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru fyrirtækin Jak- ob Valgeir ehf. í Bolungarvík og HG í Hnífsdal að skoða kaup á Halla Egg- erts ÍS. Ekkert of bjartsýnn Undanfarnar vikur hefur Hinrik haft samband við ýmsa sem hann taldi geta haft áhuga á að kaupa Kamb og að halda áfram starfsemi á Flateyri. „Sú tilraun mín hefur ekki gengið, því miður. Nú er þetta orðið opinbert og menn vita af þessu. Ég er ekkert of bjartsýnn miðað við þær aðstæður sem hér ríkja,“ sagði Hin- rik. En ætlar hann að fara frá Flat- eyri? „Það vona ég ekki, en minn tími í sjávarútvegi er liðinn. Ég hef eytt ævinni á þessari eyri, hef tekist á við það og reynt að gera mitt besta. Ég á mitt hús á Flateyri og hyggst ekki selja það. Hér hefur mér liðið vel, að undanskildum þeim áföllum sem hér hafa dunið yfir, en hér er gott að vera. Því er ekki að neita að fé- lagslegi þátturinn hefur látið mikið á sjá. Það verður að koma í ljós hvað verður hægt að gera og hvað verður í boði.“ Varðandi félagslega þáttinn segir Hinrik að mjög halli á sveit- arfélög á landsbyggðinni. Fréttatilkynningu Kambs lýkur á orðunum: „Það að vera stærsti vinnuveitandi í litlu þorpi er mikið ábyrgðarhlutverk. Það víkur sér enginn undan þeirri ábyrgð meðan stætt er. Sé viðunandi rekstrar- grundvöllur ekki til staðar er engum greiði gerður með áframhaldandi rekstri.“ Um 120 manns missa vinnuna þegar Fiskvinnslan Kambur á Flateyri hættir starfsemi síðar í sumar „Minn tími í sjávarútvegi er liðinn“ Búið Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Kambs ehf. á Flateyri, telur fullreynt að reka fyrirtækið við núverandi aðstæður. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Óvissa Starfsfólk Kambs, sem er um 120 manns, var kallað til fundar í gær. Þar var viðkomandi sagt að rekstrinum yrði hætt og eignirnar seldar. ÁLFTIN Svandís kom ásamt ektamaka sínum á heimaslóðir við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi í lok apríl og er þetta þrettánda árið í röð sem þau búa um sig í hólmanum í tjörninni. Svandís hefur legið á eggjunum undanfarnar vikur og hefur þeim hjónakornum nú orðið fimm unga auðið eins og tvö fyrri ár. Hún spók- aði sig ásamt ungunum í blíðunni á Bakkatjörn í gær. Ungarnir héldu hópinn nálægt mömmu sinni og kannski hefur pabbinn leitað matfanga á meðan. Álftir koma yfirleitt til landsins í lok apríl. Morgunblaðið/Ómar Svandís gætir unga sinna ÁKVEÐIÐ hefur verið að Bogi Nils- son gegni embætti ríkissaksóknara til áramóta og verður starfið auglýst laust til umsóknar á ný síðar á árinu. Á heimasíðu dómsmálaráðuneyt- isins segir að samkomulag hafi orðið um það milli Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Boga Nilssonar ríkissaksóknara að starfslokum Boga verði frestað frá 1. júlí 2007 til 1. janúar 2008. Vegna þessa verði embættið auglýst að nýju síðar á árinu. Staðan var auglýst fyrir nokkru og rann umsóknarfrestur til embættis- ins út 27. apríl sl., en dóms- og kirkjumálaráðuneytinu bárust fimm umsóknir. Umsækjendur voru Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður, Eg- ill Stephensen saksóknari, Jóhannes Rúnar Jóhannsson hæstaréttarlög- maður, Jón H.B. Snorrason, aðstoð- arlögreglustjóri og saksóknari, og Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari. Áfram ríkissak- sóknari „ÞETTA er skelfilegt,“ segir Hall- dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar, um þróun mála á Flat- eyri þar sem búa um 300 manns. „Fyrirtækið sem er burðarásinn í at- vinnulífinu á Flateyri er að hætta. Eftir stendur fiskvinnsluhús vel búið tækjum og hæft starfsfólk, en eng- inn til að reka fyrirtækið og enginn sem á fisk í húsið – allavega í bili.“ Halldór segir útgerðarmenn á norðanverðum Vestfjörðum vilja eignast sem mest af veiðiheimildum Kambs. Það sé lykilatriði fyrir svæð- ið. Sé möguleiki á forkaupsrétti sveitarfélagsins verði hann nýttur. Halldór vill setja upp teymi sveitar- félaga á svæðinu, Vinnumálastofn- unar, Fjölmenningarseturs, fræðslu- miðstöðvar og fleiri til að hjálpa starfsfólki Kambs að fá aðra vinnu, bjóða endurmenntun og námskeið. Halldór taldi að nú vantaði 80-90 manns í vinnu á svæðinu og fleiri störf að bætast við. Í þriðja lagi yrði reynt að endurreisa fiskvinnslu eða annan rekstur sem munar um á Flat- eyri. Grípa til aðgerða VERKALÝÐSFÉLAG Vestfirðinga mun eiga fund í næstu viku með fé- lagsmönnum sem vinna hjá Kambi, að sögn Finnboga Sveinbjörnssonar, formanns félagsins. Hann var á fundinum í Kambi í gær. „Þetta er gríðarlegt áfall fyrir alla hér, en við munum styðja við bakið á okkar fólki eftir bestu getu,“ sagði Finnbogi. Hann sagði verkalýðs- félagið reiðubúið að vinna með sveit- arfélaginu eða öðrum til að létta fólkinu róðurinn. „Fólk er að missa lífsviðurværi sitt, fólk sem búið er að festa sér húseignir og er að byggja upp samfélag sitt þegar burðarás þess hverfur í raun. Það er verið að skera á lífæð samfélagsins.“ Finnbogi sagði að ef starfsemi Kambs legðist af væri lítil önnur vinna í boði á Flateyri. Hann sagðist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda ef enginn fengist til að hefja atvinnu- rekstur á staðnum. Finnbogi sagði að nú væri lag að nýta aðstöðu til námskeiðahalds í sjálfshjálp og endurmenntun og hugað yrði að því. Mikið áfall

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.