Morgunblaðið - 19.05.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn-
arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
EIGENDUR Fiskvinnslunnar
Kambs ehf. á Flateyri hafa ákveðið
að hætta útgerð og fiskvinnslu og
selja allar eignir félagsins. Um 120
manns starfa hjá fyrirtækinu, 65 í
landvinnslu og um 55 við útgerð
fimm báta. Í gær var haldinn fundur
með starfsfólkinu þar sem þessi
ákvörðun var kynnt. Hinrik Krist-
jánsson framkvæmdastjóri sagði að
allir starfsmenn sem mættir voru
hefðu verið á fundinum. Síðdegis átti
hann fundi með áhöfnum bátanna.
Fiskvinnslan Kambur ehf. er að
83% í eigu hjónanna Hinriks Krist-
jánssonar og Ingibjargar Kristjáns-
dóttur og barna þeirra. Steinþór
Bjarni Kristjánsson skrifstofustjóri
á 17%. Hinrik sagði erfitt rekstrar-
umhverfi aðalástæðu ákvörðunar-
innar um að hætta starfseminni.
„Við búum við mjög sterka krónu
og allar spár eru um að hún verði það
áfram. Það eru háir vextir, hátt verð
á aflaheimildum og leigukvóta. Við
erum mjög háð leigukvóta því við
eigum ekki það miklar aflaheimild-
ir,“ sagði Hinrik. Í fréttatilkynningu
kemur fram að samkeppnisstaða
sjávarútvegs á Vestfjörðum sé slæm
og hafi farið versnandi, þó einkum í
landvinnslu. Þar er t.d. nefndur hár
flutningskostnaður sem skekki mjög
samkeppnisstöðu Vestfjarða. Þá hafi
Kambur verið háður leigukvóta og
þrátt fyrir umtalsverð kaup á var-
anlegum aflaheimildum, sem valda
mikilli skuldsetningu, hafi Kambur
þurft að leigja þúsundir tonna til að
tryggja hráefni. Leigukvóti hafi
hækkað mjög mikið, líkt og verð á
varanlegum aflaheimildum. Hinrik
sagði eignir fyrirtækisins vera meiri
en skuldir og ætlun eigendanna að
greiða upp allar skuldir Kambs.
„Fyrst og fremst er það ætlun
okkar að greiða götu fólksins og að-
stoða það við að fá vinnu. Horfurnar
eru ekki alslæmar því þannig ástand
er á Íslandi að það vantar víða fólk til
starfa. Félagar mínir hér á svæðinu,
í fiskvinnslunni, hafa tekið þokka-
lega í það ef þá vantar starfsmenn
þegar hallar sumri. Við höfum mein-
ingar um að afla hráefnis og vinna út
ágúst.“ Af 65 starfsmönnum Kambs í
landvinnslu eru sjö af íslenskum
uppruna. Margir þeirra sem eru af
erlendu bergi brotnir hafa starfað
lengi hjá Kambi, eru íslenskir rík-
isborgarar og eiga íbúðarhúsnæði á
Flateyri. Í útgerðinni og beitning-
unni eru um 60% starfsmanna af ís-
lenskum ættum og 40% af erlendum
uppruna. Flestir hafa þriggja mán-
aða uppsagnarfrest, sumir skemmri
og aðrir lengri.
Bátar og kvóti innan svæðisins
Hinrik sagði að því væri ekki að
neita að mikil ásókn væri í að kaupa
báta og aflaheimildir. Verið er að
ræða við aðila í Bolungarvík og
Hnífsdal um kaup á tveimur bátum
Kambs. Sá stærri er beitningavélar-
báturinn Halli Eggerts ÍS og fylgir
honum meirihluti aflamarks fyrir-
tækisins, 800-900 þorskígildi. Hitt er
minni bátur sem einnig fylgir tölu-
vert af krókaaflamarki. Hinrik sagði
að rætt yrði við líklega kaupendur í
næstu viku. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru fyrirtækin Jak-
ob Valgeir ehf. í Bolungarvík og HG í
Hnífsdal að skoða kaup á Halla Egg-
erts ÍS.
Ekkert of bjartsýnn
Undanfarnar vikur hefur Hinrik
haft samband við ýmsa sem hann
taldi geta haft áhuga á að kaupa
Kamb og að halda áfram starfsemi á
Flateyri. „Sú tilraun mín hefur ekki
gengið, því miður. Nú er þetta orðið
opinbert og menn vita af þessu. Ég
er ekkert of bjartsýnn miðað við þær
aðstæður sem hér ríkja,“ sagði Hin-
rik. En ætlar hann að fara frá Flat-
eyri?
„Það vona ég ekki, en minn tími í
sjávarútvegi er liðinn. Ég hef eytt
ævinni á þessari eyri, hef tekist á við
það og reynt að gera mitt besta. Ég á
mitt hús á Flateyri og hyggst ekki
selja það. Hér hefur mér liðið vel, að
undanskildum þeim áföllum sem hér
hafa dunið yfir, en hér er gott að
vera. Því er ekki að neita að fé-
lagslegi þátturinn hefur látið mikið á
sjá. Það verður að koma í ljós hvað
verður hægt að gera og hvað verður í
boði.“ Varðandi félagslega þáttinn
segir Hinrik að mjög halli á sveit-
arfélög á landsbyggðinni.
Fréttatilkynningu Kambs lýkur á
orðunum: „Það að vera stærsti
vinnuveitandi í litlu þorpi er mikið
ábyrgðarhlutverk. Það víkur sér
enginn undan þeirri ábyrgð meðan
stætt er. Sé viðunandi rekstrar-
grundvöllur ekki til staðar er engum
greiði gerður með áframhaldandi
rekstri.“
Um 120 manns missa vinnuna þegar Fiskvinnslan Kambur á Flateyri hættir starfsemi síðar í sumar
„Minn tími í
sjávarútvegi
er liðinn“
Búið Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar Kambs ehf.
á Flateyri, telur fullreynt að reka fyrirtækið við núverandi aðstæður.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Óvissa Starfsfólk Kambs, sem er um 120 manns, var kallað til fundar í
gær. Þar var viðkomandi sagt að rekstrinum yrði hætt og eignirnar seldar.
ÁLFTIN Svandís kom ásamt ektamaka sínum á
heimaslóðir við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi í
lok apríl og er þetta þrettánda árið í röð sem
þau búa um sig í hólmanum í tjörninni.
Svandís hefur legið á eggjunum undanfarnar
vikur og hefur þeim hjónakornum nú orðið
fimm unga auðið eins og tvö fyrri ár. Hún spók-
aði sig ásamt ungunum í blíðunni á Bakkatjörn í
gær. Ungarnir héldu hópinn nálægt mömmu
sinni og kannski hefur pabbinn leitað matfanga
á meðan.
Álftir koma yfirleitt til landsins í lok apríl.
Morgunblaðið/Ómar
Svandís gætir unga sinna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Bogi Nils-
son gegni embætti ríkissaksóknara
til áramóta og verður starfið auglýst
laust til umsóknar á ný síðar á árinu.
Á heimasíðu dómsmálaráðuneyt-
isins segir að samkomulag hafi orðið
um það milli Björns Bjarnasonar,
dóms- og kirkjumálaráðherra, og
Boga Nilssonar ríkissaksóknara að
starfslokum Boga verði frestað frá 1.
júlí 2007 til 1. janúar 2008. Vegna
þessa verði embættið auglýst að
nýju síðar á árinu.
Staðan var auglýst fyrir nokkru og
rann umsóknarfrestur til embættis-
ins út 27. apríl sl., en dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu bárust fimm
umsóknir.
Umsækjendur voru Brynjar
Níelsson hæstaréttarlögmaður, Eg-
ill Stephensen saksóknari, Jóhannes
Rúnar Jóhannsson hæstaréttarlög-
maður, Jón H.B. Snorrason, aðstoð-
arlögreglustjóri og saksóknari, og
Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari.
Áfram
ríkissak-
sóknari
„ÞETTA er skelfilegt,“ segir Hall-
dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, um þróun mála á Flat-
eyri þar sem búa um 300 manns.
„Fyrirtækið sem er burðarásinn í at-
vinnulífinu á Flateyri er að hætta.
Eftir stendur fiskvinnsluhús vel búið
tækjum og hæft starfsfólk, en eng-
inn til að reka fyrirtækið og enginn
sem á fisk í húsið – allavega í bili.“
Halldór segir útgerðarmenn á
norðanverðum Vestfjörðum vilja
eignast sem mest af veiðiheimildum
Kambs. Það sé lykilatriði fyrir svæð-
ið. Sé möguleiki á forkaupsrétti
sveitarfélagsins verði hann nýttur.
Halldór vill setja upp teymi sveitar-
félaga á svæðinu, Vinnumálastofn-
unar, Fjölmenningarseturs, fræðslu-
miðstöðvar og fleiri til að hjálpa
starfsfólki Kambs að fá aðra vinnu,
bjóða endurmenntun og námskeið.
Halldór taldi að nú vantaði 80-90
manns í vinnu á svæðinu og fleiri
störf að bætast við. Í þriðja lagi yrði
reynt að endurreisa fiskvinnslu eða
annan rekstur sem munar um á Flat-
eyri.
Grípa til
aðgerða
VERKALÝÐSFÉLAG Vestfirðinga
mun eiga fund í næstu viku með fé-
lagsmönnum sem vinna hjá Kambi,
að sögn Finnboga Sveinbjörnssonar,
formanns félagsins. Hann var á
fundinum í Kambi í gær.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir alla
hér, en við munum styðja við bakið á
okkar fólki eftir bestu getu,“ sagði
Finnbogi. Hann sagði verkalýðs-
félagið reiðubúið að vinna með sveit-
arfélaginu eða öðrum til að létta
fólkinu róðurinn. „Fólk er að missa
lífsviðurværi sitt, fólk sem búið er að
festa sér húseignir og er að byggja
upp samfélag sitt þegar burðarás
þess hverfur í raun. Það er verið að
skera á lífæð samfélagsins.“
Finnbogi sagði að ef starfsemi
Kambs legðist af væri lítil önnur
vinna í boði á Flateyri. Hann sagðist
ekki vilja hugsa þá hugsun til enda
ef enginn fengist til að hefja atvinnu-
rekstur á staðnum.
Finnbogi sagði að nú væri lag að
nýta aðstöðu til námskeiðahalds í
sjálfshjálp og endurmenntun og
hugað yrði að því.
Mikið áfall