Morgunblaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐIDEILD
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
74
76
0
5/
07
METNAÐARFULLT, FRAMSÆKIÐ OG HAGNÝTT NÁM
6 námsleiðir
■ BA í hagfræði
■ BS í hagfræði
■ BS í fjármálum
Umsóknarfestur er til 5. júní.
Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr.
Styrktu stöðu þína og sæktu um.
Rafræn skráning og upplýsingar
um námið eru á vef viðskipta- og
hagfræðideildar, www.vidskipti.hi.is.
■ BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum
■ BS í reikningshaldi
■ BS í stjórnun og forystu
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór
Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
VERKALÝÐSFÉLAG Vestfirðinga
efnir til starfsmannafundar í Fisk-
vinnslunni Kambi ehf. á Flateyri í lok
vinnudags í dag. „Fundurinn verður
aðallega haldinn til að miðla upplýs-
ingum og koma með hugmyndir.
Einnig til að sýna fólkinu að það situr
ekki eitt í þessari súpu og að það er
fylgst með því að ekki sé gengið á rétt
þess. Réttindamálin verða höfð í há-
vegum,“ sagði Finnbogi Sveinbjörns-
son, formaður verkalýðsfélagsins.
Í hádeginu í gær var haldinn fund-
ur fulltrúa Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða, Fjölmenningarseturs,
Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða,
skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísa-
fjarðarbæjar, Verkalýðsfélags Vest-
firðinga, Vinnumálastofnunar og for-
ystumanna sveitarfélaganna á
svæðinu. Að mati Finnboga fór þessi
vinna vel af stað og taldi hann að
fundurinn hefði verið mjög gagnleg-
ur. Þar var skipaður þriggja manna
stýrihópur fulltrúa verkalýðsfélags-
ins, Vinnumálastofnunar og Fjöl-
menningarsetursins. Finnbogi kvaðst
hafa sagt fundarmönnum frá starfs-
mannafundinum sem haldinn verður í
dag og hvatt viðstadda til að mæta.
„Það liggur fyrir að það verði feng-
inn verkefnisstjóri í þetta. Við verðum
að reyna að vinna þetta eins hratt og
við getum því við viljum halda fólkinu
hér. Við erum að reyna að gefa fólkinu
hugmyndir og beina því á þær brautir
að það geti leitað sér að vinnu á svæð-
inu. Það hefur verið skilningur okkar
að norðanverðir Vestfirðir séu eitt at-
vinnusvæði og sú vinna sem við erum
að hefja mun styrkja það enn frekar.
Við viljum benda fólkinu á möguleika
í menntun og eins að koma sér á fram-
færi til þess að við missum það ekki í
burtu. Við megum síst við því, við
Vestfirðingar,“ sagði Finnbogi.
Margir starfsmenn af erlendum
uppruna eru orðnir íslenskir ríkis-
borgarar og Finnbogi kvaðst vilja
halda í þetta fólk. Það segir nokkra
sögu að fundurinn í dag verður hald-
inn á þremur tungumálum, íslensku,
pólsku og tagalog, sem er móðurmál
margra Filippseyinga.
Fundað verður með
starfsfólki Kambs í dag
Starfshópur skipaður til að bregðast við vandanum sem blasir við á Flateyri
Í HNOTSKURN
»Verkalýðsfélag Vestfirð-inga boðar til starfs-
mannafundarins þar sem rétt-
indamál verða rædd.
»Fundurinn verður haldinná íslensku, pólsku og
tagalog, enda margir starfs-
menn af erlendum uppruna.
kirkju og sáu þaðan ýmis kennileiti, t.d. Mela-
skólann þar sem mörg þeirra hefja nám í haust.
ELSTU börnin á leikskólanum Vesturborg eru
nú að útskrifast. Í gær fóru þau í turn Hallgríms-
Klukknaspilið í turninum lét hátt í eyrum en í
dag hlusta börnin á Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Horft til jarðar
STURLA Böðvarsson, fráfarandi
samgönguráðherra verður forseti
Alþingis til næstu tveggja ára. Á
miðju kjörtímabili, eða haustið
2009, fær Samfylkingin forseta-
embættið yfir til sín og tilnefnir
þingmann í forsetastól.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var það hluti af sam-
komulagi þeirra Geirs H. Haarde,
formanns Sjálfstæðisflokksins, og
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
formanns Samfylkingarinnar, í
stjórnarmyndunarviðræðunum,
sem lauk í fyrradag, að hvor flokk-
ur um sig fengi embætti forseta Al-
þingis í sinn hlut í tvö ár; fyrst
Sjálfstæðisflokkur til 2009 og síðan
Samfylking frá 2009 til 2011. Ekki
liggur fyrir hvern Samfylkingin
mun gera að forseta Alþingis að
tveimur árum liðnum.
Sturla verð-
ur þingfor-
seti í tvö ár
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur vísað frá dómi kröfu sem
höfð var uppi í deilu um þrjú lista-
verk eftir Magn-
ús Kjartansson,
en verkin eru
lokuð inni í
vinnustofu
Magnúsar heitins
í gamla Álafoss-
húsinu. Um er að
ræða þrjú stór
málverk eftir
listamanninn sem
staðsett eru í eignarhluta hans í
Álafosshúsinu. Grafarvogskirkja
falaðist eftir verkunum til sýn-
ingar og þar sem ekki var hægt
að flytja verkin heil út úr húsi
vegna veggjar sem eigandi annars
eignarhluta hafði látið setja upp
krafðist ekkjan beinnar innsetn-
ingar í málverkin, þannig að unnt
væri að sýna málverkin eins og til
hefði staðið.
Í dóminum kemur fram að til-
gangur aðfarargerða sé að full-
nægja skýlausum rétti eiganda til
að öðlast umráð yfir eign sinni.
Þar sem krafa ekkjunnar hafi
beinst að lausafjármunum sem
hún þegar hafði full umráð yfir
var talið ógerlegt að veita sókn-
araðila fullnustu kröfu sinnar. Var
málinu því vísað frá dómi.
Málverkadeilu
vísað frá dómi
Deilur Verk eftir
Magnús Kjart-
ansson heitinn frá
árinu 2001.
EINKAFLUGVÉL, af gerðinni
Cessna 337, brotlenti við lendingu á
Reykjavíkurflugvelli á ellefta tíman-
um í gærkvöldi. Tveir farþegar voru
um borð í vélinni og gengu þeir báðir
heilir út úr vélinni eftir brotlend-
inguna.
Talið er að vinstra afturhjól vél-
arinnar, sem var að koma frá Nars-
arsuaq í Grænlandi, hafi brotnað við
harkalega lendinguna. Ekkert liggur
fyrir um tildrög óhappsins en rann-
sóknarnefnd flugslysa var strax
kvödd á vettvang og mun hún annast
rannsókn óhappsins.
Brotlenti á Reykjavíkurflugvelli
Morgunblaðið/Golli
♦♦♦