Morgunblaðið - 24.05.2007, Blaðsíða 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 25
Margir knattspyrnuáhugamenn, einkum og sér
í lagi stuðningsmenn enska félagsins Man-
chester United, glöddust þegar tilkynnt var á
dögunum að Peter Schmeichel yrði í liði Dana
sem mætir Íslandi í öldungalandsleik á Ak-
ureyri í sumar. Schmeichel varð margfaldur
meistari með United og er örugglega besti
markvörðurinn í glæstri sögu félagsins.
Halldór Áskelsson, fyrrverandi landsliðs-
maður í knattspyrnu, er einn þeirra sem
glöddust þegar ljóst var að Schmeichel yrði
með danska liðinu. Leikurinn er haldinn í
tengslum við árlegt Pollamót Þórs, þar sem
gamalkunnir kappar taka fram skóna og reyna
með sér, en Halldór sér um framkvæmd leiks-
ins fyrir Þór og verður í landsliðinu. Hann er
mikill stuðningsmaður United og dreymir ef-
laust um að skora hjá Dananum stóra …
Meðal leikmanna íslenska öldungalandsliðsins
eru Atli Eðvaldsson, Guðni Bergsson, Arnór
Guðjohnsen, Eyjólfur Sverrisson, Þorvaldur
Örlygsson og áðurnefndur Halldór. Leikurinn
verður á Akureyrarvelli laugardaginn 7. júlí;
07-07-07. Gárungarnir hafa talað um að við
hæfi yrði að fá Bubba Morthens til að syngja í
tengslum við leikinn; þó ekki væri nema í
framhaldi eftirminnilegra afmælistónleika
hans í fyrra sem hann hélt 06-06-06 … Vert er
að halda því á lofti að 23. ágúst í sumar verða
40 ár frá 14:2-leiknum í Kaupmannahöfn, og
tími hefndarinnar kominn.
50 ár eru liðin síðan konur í Zontaklúbbi Ak-
ureyrar opnuðu Nonnahús, bernskuheimili
hins víðfræga barnabókarithöfundar og jes-
úítaprests Jóns Sveinssonar – Nonna. Í
Nonnahúsi má m.a. finna myndskreytingar úr
Nonnabókunum eftir fjölmarga listamenn frá
ótal löndum. Nú hafa börn í 4. bekk Brekku-
skóla, Lundarskóla og Oddeyrarskóla teiknað
myndir sem tengjast Nonna og ævintýrum
hans. Myndirnar eru sýndar á Glerártorgi og
stendur sýningin til 27. maí.
Hátíðarfagnaður afmælisstúdenta frá
Menntaskólanum á Akureyri verður að vanda
haldinn í Íþróttahöllinni 16. júní. MA-hátíðin
2007 verður með hefðbundnu sniði og gaman
að geta þess að hljómsveitin Í svörtum fötum
leikur fyrir dansi – þótt hún sé hætt störfum.
Jónsi, Jón Jósep Snæbjörnsson, er stúdent frá
MA og sveitin oft skemmt á hátíðinni.
Miðasala á MA-hátíðina 2007 er hafin og er nú
með öðru sniði en áður. Hægt er að panta miða
á sérstökum vef veitingahússins Bautans –
slóðin er http://bautinn.muna.is – og þar er
nauðsynlegar upplýsingar að finna. Þá má
benda á síðuna www.ma1982.blog.is, vef 25 ára
stúdenta, en þeir sjá jafnan um hátíðarhaldið.
Jón Jósep
Snæbjörnsson
Peter
Schmeichel
Nonni – Jón
Sveinsson
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Einar Kolbeinsson slæst í hópþeirra hagyrðinga sem syrkja
um nýja stöðu í stjórnmálunum:
Í stjórnarveginn lagðist ljón,
þó lítið ýmsum finndist tjón,
hér kveður nú við nýjan tón,
– nefnilega í fýlu Jón!
En stjórnin þótti feikna fjörg,
þó færi í vaskinn aðgerð mörg,
og fyrr því gapti gröm og örg,
en glöð er núna Ingibjörg!
Og nokkrir telja fáráðsflím,
þann framgang er nú set í rím,
svo gæfusnautt og gálaust stím,
sem gerir ólman Skallagrím!
Þó sumir kátir hrópi, heyr!
en hneykslist aðrir þeim mun meir,
nú auðvitað sjá allir þeir,
að alltaf brosir hringinn Geir!
Hjálmar Freysteinsson er með
ákveðnar efasemdir:
Spurningar þeirrar spyrja má
spekinga í eðlisfræði,
hvort ríkisstjón mynda eigi á
alræmdu sprungusvæði.
Hálfdan Ármann Björnsson veltir
fyrir sér viðbrögðum Framsóknar:
Lifir einn og annar deyr,
oft vill svo til bera.
„Súr eru berin,“ segja þeir,
er sjálfir vildu í stjórn með Geir,
og ætluðu í sporum Ingibjargar að vera.
Konráð Erlendsson skrifar: „Um
það bil sem sólin byrjaði að skína á
Víknafjöllin handan flóans sást
maður nokkur á gangi sunnan
Húsavíkur“:
Vaknar sól um Víkurnar
vonarglampi á sænum.
Hinsta fólið Framsóknar
farið er úr bænum.
Í þeim anda er vísa af Vísnavef
Héraðsskjalsasafns Skagfirðinga:
Áhöfn flúin af er þar
öllu rúin trausti.
Ferjubátur Framsóknar fúnar svo í
nausti.
VÍSNAHORNIÐ
Af stjórn
og sprungu-
svæði
pebl@mbl.is
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7940
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
7
6
2
5
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
NISSAN 4x4
KOMDU OG REYNSLUAKTU!
FYRSTIR FÁ!
FYRSTIR KOMA
Verð aðeins 2.990.000 kr.
Innifalið í verði: Bakkvörn, dráttarbeisli og stigbretti
NÚ BJÓÐUM VIÐ NOKKRA NISSAN X-TRAIL SPORT
Á FRÁBÆRU VERÐI MEÐ VEGLEGUM AUKAPAKKA!
Staðalbúnaður: 17" álfelgur, 4x4, litað gler, 6 diska
geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting,
útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga.
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR