Morgunblaðið - 24.05.2007, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
VEL með farinn svefnsófi, úr sér
gengið bílaútvarp og brak úr tölvu-
kassa var á meðal þess sem varð á
vegi blaðamanns í Öskjuhlíð um eft-
irmiðdaginn í gær. Fjaran í Naut-
hólsvík var full af spýtnabraki og
mulið, hvítt frauðplast innan um
fuglalífið. Ástandið var litlu betra í
Skeifunni, þar sem umbúðir af
skyndibitamat, notaður DVD-diskur
og sígarettustubbar prýddu trjábeð
og gangstéttarkanta versl-
unarhverfisins.
Iðulega kemur mikið rusl undan
snjónum á vorin og vekur athygli
hversu lítið virðist hafa verið hirt af
ruslinu, nú þegar júní nálgast.
Guðbjartur Sigfússon, yfir-
verkfræðingur gatnadeildar
Reykjavíkurborgar, sem sér um
ruslatínslu allt árið í samvinnu við
verktaka og ýmsa aðila, segir sóða-
skap í borginni hafa farið vaxandi
síðustu ár og ekki loku fyrir það
skotið að góðærið og neyslu-
samfélagið kunni að eiga sinn þátt í
slæmri umgengni og hirðuleysi.
Hann segir Orkuveitu Reykjavík-
ur fara með hreinsun Öskjuhlíðar,
íþrótta og tómstundaráð Reykjavík-
ur sjái um tínslu í Nauthólsvíkinni
og garðyrkjudeild Reykjavíkur í
trjábeðum borgarinnar. Þá sinni
tveir verktakar, Íslenska gáma-
félagið og Hreinsitækni, gatnasópun
og ruslatínslu á götum höfuð-
borgarinnar.
Veðrið hamlar tínslu á vetrum
Unglingar í vinnuskóla Reykjavík-
ur leggi sitt af mörkum í sumar-
störfum og starfsmenn gatnadeildar
tíni rusl allt árið, þótt veður leyfi það
ekki alla daga á vetrum.
Guðbjartur treystir sér ekki til að
áætla kostnað við að hirða rusl af
götunum en segir ljóst að fyrirtæki
og einstaklingar verði að taka þátt í
að halda borginni hreinni. Til um-
ræðu sé með hvaða hætti megi
stuðla að aukinni hreinsun í borginni
en takmörk séu fyrir því hvað borg-
in geti lagt mikið fé í hreinsunina.
Rusl í Reykjavík
Vaxandi sóðaskapur í borginni
Rúm, bílaútvörp, innkaupakerrur og sígarettustubbar á víðavangi á útivistarsvæðum Reykjavíkur
Í skóginum Þessi svefnsófi liggur milli trjánna í Öskjuhlíð. Brak Leifar af tölvu suður af Öskjuhlíð. Í fjörunni Nauthólsvík er full af drasli. Við beðið DVD-diskur og umbúðir við Skeifuna.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
BREYTA þarf lögum um stjórnar-
ráð Ísland til þess að breyta skipun
ráðuneyta. Tilfærslum á verkefnum
milli ráðuneyta er hins vegar í flest-
um tilvikum hægt að breyta með
reglugerðum. Þetta kom fram í máli
Geirs H. Haarde forsætisráðherra á
blaðamannafundi á Þingvöllum í
gær þar sem stjórnarsáttmáli nýrr-
ar ríkisstjórna var kynntur. Laga-
breyting þess efnis verður að öllum
líkindum lögð fram á sumarþingi en
ráðgert er að kalla Alþingi saman í
næstu viku.
Eins og fram hefur komið þarf að
breyta lögum um heilbrigðis- og
tryggingaráðuneyti, þar sem skilja á
heilbrigðis- og tryggingamál að þar
sem málefni aldraðra og al-
mannatryggingaþáttur lífeyris-
kerfisins flyst yfir í félags-
málaráðuneytið, sem í framtíðinni
mun að öllum líkindum heita ráðu-
neyti velferðarmála, en sjúkratrygg-
ingarnar, sem nú eru undir Trygg-
ingastofnun, verði áfram hluti af
heilbrigðisráðuneytinu. Einnig þarf
að breyta lögum um sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneyti þar sem
stefnt er að sameiningu þessara
tveggja ráðuneyta, en vinnuheiti
nýja ráðuneytisins er matvælaráðu-
neyti.
Hagstofa ekki lengur ráðuneyti
Eins og fram hefur komið á að
reka iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
sem tvö aðskilin ráðuneyti, en ráðu-
neytin hafa um allnokkurt skeið ver-
ið starfrækt sem tvö ráðuneyti undir
einum ráðherra, en verða í nýrri rík-
isstjórn sem fyrr segir skipt upp í
tvö ráðuneyti. Eftir því sem blaða-
maður kemst næst þá helgast það
fyrst og fremst af því að bæði ráðu-
neytin hafa vaxið mjög að umfangi
og verkefni aukist til muna sem kalli
á fyrirhugaða breytingu.
Af öðrum breytingum sem boð-
aðar hafa verið er að sveitarstjórn-
armál færast frá félagsmálaráðu-
neytinu til samgönguráðuneytisins
og verkefni tengd ferðaþjónustu
færast frá samgönguráðuneytinu til
iðnaðarráðuneytisins. Jafnframt er
stefnt að því að menntamál landbún-
aðarins, þ.e. landbúnaðarháskólarn-
ir, færist frá landbúnaðarráðuneyti
til menntamálaráðuneytis, en slíkt
kallar að öllum líkindum aðeins á
reglugerðarbreytingu, að vatnamæl-
ingar færist frá iðnaðaráðuneyti til
umhverfisráðuneytis, að matvæla-
eftirlit færist frá Umhverfisstofnun
og þar með umhverfisráðuneytinu til
hins nýja sameinaða sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðuneytis. Auk þess
er ætlunin að breyta Hagstofunni úr
ráðuneyti í sjálfstæða stofnun. Sú
breyting kallar að öllum líkindum á
lagabreytingu.
Óljóst hvort Íbúðalánasjóður
færist frá félagsmálaráðuneyti
Þessu til viðbótar hefur sam-
kvæmt heimildum blaðamanns einn-
ig verið rætt um það að forræði
Íbúðalánasjóðs færist frá félags-
málaráðuneytinu til fjármálaráðu-
neytis, að Þróunarsamvinnustofnun
færist frá utanríkisráðuneyti til við-
skiptaráðuneytis og að landgræðsla
og skógrækt færist frá landbúnaðar-
ráðuneyti til umhverfisráðuneytis.
Þess ber hins vegar að geta að eftir
því sem blaðamaður kemst næst er
ekki búið að taka ákvörðun um þrjú
síðast töldu atriðin.
Ýmis verkefni flytj-
ast milli ráðuneyta
! "
!#
$% ! "
&
'$%
(
) ) ( ' (
% !$ # (#
!$ # (#
(
!
(
+#
!$ # (#
( ) #,
& +#
,
,
$
,
*
Flestum til-
færslum breytt
með reglugerðum
STEFNUYFIRLÝSING
nýrrar ríkisstjórnar Sjálf-
stæðisflokks og Samfylk-
ingar, sem formenn flokk-
anna, Geir H. Haarde og
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, kynntu í gær, hlýt-
ur ágætar viðtökur hjá
ýmsum hagsmuna-
samtökum. „Mér finnst
tónninn í þessu jákvæður
og góður,“ segir t.d. Sig-
ursteinn Másson, formaður Ör-
yrkjabandalags Íslands. „Auðvitað
er um að ræða almennt mál-
efnaplagg og þ.a.l. lítið um út-
færslur. Ég hefði þó viljað sjá vísan í
Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um
réttindi fatlaðra sem staðfestur var
af stjórnvöldum hér 30. mars,“ segir
Sigursteinn. Það hefði mátt gera á
svipaðan hátt og vitnað er í Barna-
sáttmála SÞ. Það hefði stytt mönn-
um leið að því marki að jafnrétti í
reynd verði náð. Sigursteinn segist
þó sérstaklega sáttur við markmið
um að einfalda almannatrygg-
ingakerfið. „Það er gott að lífeyr-
ishluti almannatrygginganna og
Tryggingastofnunar skuli flytjast í
félagsmálaráðuneytið,“ segir hann
og að framtíðin ráðist mikið af því
hvernig til takist með samráð. „Því
var oft mjög ábótavant í tíð fyrri rík-
isstjórnar,“ segir hann og er bjart-
sýnn á að góðir hlutir geti gerst í tíð
þessarar ríkisstjórnar.
„Viðbrögð okkar eru almennt já-
kvæð,“ sagði Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins. „Við vonum að hægt sé
að viðhalda hér góðum hagvexti og
stöðugleika. Við sjáum ekkert í
stjórnarsáttmálanum sem á að
stoppa það.“ Í stefnuyfirlýsingunni
segir m.a. að „tímabært sé að leysa
úr læðingi krafta einkaframtaksins
svo að íslensk sérþekking og hugvit
fái notið sín til fulls í útrás orkufyr-
irtækja“. Það segir Vilhjálmur vera í
takt við það sem verið hafi í gangi og
gott ef setja eigi aukinn kraft í þessi
mál. Vonir SA standi til þess að eiga
gott samstarf við ríkisstjórnina, eins
og verið hafi fram til þessa með aðr-
ar ríkisstjórnir.
Það markmið að útlendingar á
vinnumarkaði njóti sambærilegra
réttinda og íslenskt launafólk og að
allar ráðningar séu í samræmi við
gildandi kjarasamninga er mjög í
takt við markmið SA. „Við höfum
lagt áherslu á það að allir fari eftir
sömu leikreglum á vinnumark-
aðinum og okkur líst ágætlega á
þennan stjórnarsáttmála og þau
áform sem stjórnin leggur af stað
með.“
Mörg atriði í stefnuyfirlýsingu
stjórnarflokkanna um bættan hag
aldraðra eru svar við áralangri bar-
áttu eldri borgara og er allvel tekið á
kröfum þeirra í málefnasamn-
ingnum, að mati Ólafs Ólafssonar,
formanns Landssambands eldri
borgara. Hann nefndi t.d. baráttu
fyrir því að málefni aldraðra yrðu
færð til félagsmálaráðuneytis, líkt
og nú hefur verið ákveðið. Sömuleið-
is að ábyrgð á lögbundinni þjónustu
við aldraða yrði færð frá ríki til
sveitarfélaga. „Það er vænn sigur og
við væntum okkur mikils af því,“
sagði Ólafur. Hann sagði það að
skoða sérstaklega samspil skatta,
tryggingabóta, lífeyrissjóðs-
greiðslna og atvinnutekna ein-
staklinga til að tryggja meiri sann-
girni mjög mikilvægt. Þá sagði
Ólafur aldraða fagna hraðari upp-
byggingu hjúkrunarrýma fyrir aldr-
aða og fjölgun einbýla.
Ekki náðist í framkvæmdastjóra
ASÍ, Gylfa Arnbjörnsson, eða Grét-
ar Þorsteinsson formann, en þeir
voru báðir staddir erlendis.
Jákvæð við-
brögð við stefnu-
yfirlýsingu
Vilhjálmur
Egilsson
Ólafur
Ólafsson
Sigursteinn
Másson
Rusl í Reykjavík
VEFVARP mbl.is